NT


NT - 23.05.1984, Side 1

NT - 23.05.1984, Side 1
Atvinnuleysi hjá skóla- fólki í sumar? ■ „Ad þekkja mann, sem þekkir mann“ er yfirskrift NT-úttektar í dag. Allt útlit er fyrir að skólafólk eigi örðugara um vik nú en endranær, með að afla sér atvinnu. Hvaða þýðingu hefur atvinnuleysi fyrir námsframvindu þeirra er framfleyta sér sjálfir? Flosnar fólk upp frá námi? Gefa atvinnuhorfur skólafólks vísbendingu um atvinnumál landsins í heild? NT leitast við að svara þessum spurningum og öðrum í NT-úttekt, þar sem dregnar eru upp ýmsar staðreyndir varðandi atvinnuhorfur námsmanna. ÉT Utför Ólafs á þriðjii' daginn ■ Útför Ólafs Jóhann- essonar, fyrrum forsætis- ráðherra, verður gerð á vegum ríkisstjórnarinnar frá Dórakirkjunni þriðju- daginn 29. maí kiukkan 13.30. Þórir Stephensen, dómkirkjuprestur, jarð- syngur og dómkórinn syngur útfararsálraa. Einnig verður leikið á selló við útförina. Heroinfrétt útvarpsins kom flatt upp á íslensku löregluna Norsk yfirvöld krafin skýringa hið snarasta „Við munum hafa samband við norsk lögregluyfírvöld strax á morgun og krefja þau um skýringar,“ sagði Arngrímur Isberg, fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík, í gærkvöldi, þegar NT bar undir hann frétt útvarpsins í gærkvöldi, þar sem haft var eftir Oddmund Dale, fíkniefnasérfræðingi norsku lögreglunnar í Islama- bad í Pakistan, að Island væri líklegur viðkomustaður þeirra sem vilja smygla heróíni frá Pakistan til V-Evrópu. „Ef Dale telur sig hafa ein- þá hefði hann átt að vera búinn hverjar vísbendingar í þá átt, að skýra íslenskum lögregluyfir- völdum frá því, sagði Arngrím- ur, en samkvæmt samningum milli Norðurlandanna skiptast þau á öllum upplýsingum varð- andi fíkniefnamál. Þannig ber Dale að tilkynna það til yfir- valda viðkomandi lands ef hann telur sig búa yfir upplýsingum sem þau varðar. Samkvæmt frétt útvarpsins í leið, m.a. vegna þess að transit gærkvöldi þá telur Dale að búast farþegar séu aldrei tollskoðaðir megi viðaðpakistanskirheróín- á Keflavíkurflugvelli, og á er- smyglarar reyni að smygla her- lendum flughöfnum sé ekki bú- óíni til íslands, og þaðan áfram ist við að farþegar frá íslandi á markaði V-Evrópu með ís- hafi fíkniefni í farangrinum. lenskum vélum, sem fljúga á Lúxemburg, Holland eða „Það verður þegar aflað Þýskaland. Þetta sé freistandi fyllstu upplýsinga um þetta mál enda er það í samningum milli Norðurlandanna, að þau skipt- ist á öllum þeim upplýsingum sem talið er að megi koma að gagni þegar fíkniefnamál eru annars vegar,“ sagði Jón Helga- son, dómsmálaráðherra, þegar NT bar frétt útvarpsins undir hann í gærkvöldi. Stórbruni í Helsinki ■ Sprengingar af völdum bruna oilu miklum skaða í miðborg Helsinki í fyrrinótt. Eldurinn braust út um miönætti aðfaranótt gærdagsins og var barist við hann allt til morguns. Rústirnar fremst á myndinni eru þar sem áður stóð kvikmyndahúsið Capitol, bygging sem talin var til menningarverðmæta. Áflogaseggur á slysadeildina - annar færður á lögreglustöð ■ Maður var fluttur á slysa- deild með sjúkrabíl eftir áflog við félaga sinn í heimahúsi við Skólavörðustíg á ellefta tíman- um í gærkvöldi. Lögreglunni var tilkynnt um mikinn hávaða frá húsinu og fór hún á vettvang á tveimur bílum. Tókst henni að skakka leikinn. Hún tók þann sem ekki meiddist í áflog- unum með sér til yfirheyrslu. Var hann, og raunar báðir á- flogaseggirnir, vel við skál. Meiðsli munu ekki hafa verið alvarleg. Allt fé í Barðastranda- hreppi fellt vegna riðu Er byggð í hreppnum í hættu? ■ Allt fé verður skorið niður í Barðastrandahreppi á komandi hausti vegna riðu- veiki og eru menn þar vestra uggandi um atvinnumögu- leika næstu tvö ár sem verða að vera fjárlaus vegna riðunnar. Þá leikur grunur á að riðan hafí breiðst út víðar á Vestfjörðum og cru að- gerðirnar í Barðastranda- hreppi aðeins fyrsta skrcfíð í víðtækarí aðgerðum. í Barðastrandahreppi binda menn helst vonir við útgerð sem þegar er til I sveitinni en í þeim cfnum er talið að kvótaúthlutun geti ráðið miklu. Sjá bls. 3 Metþátttaka íslendinga í Olympíuleikunum - Handknattleikslandsliðið að líkindum til Los Angeles ■ í gær tilkynnti Olympíu- nefnd Islands að íslenska lands- liðið í handknattjeik muni keppa á Olympíuleikunum í Los Angeles,svo fremi að Aust- antjaldslöndin hætti ekki við að hætta. Jafnframt tilkynnti nefndin val á fimm íþrótta- mönnum til viðbótar við þá átta sem áður höfðu verið valdir. Fari svo sem horfir að hand- knattleikslandsliðið keppi á leikunum munu fleiri íslenskir íþróttamenn taka þátt í Olymp- íuleikum nú en nokkru sinni áður. Alls munu þá 29.íslenskir keppendur taka þátt, en að meðtöldum fararstjórum, þjálf- urum og aðstoðarmönnum mun hópurinn telja 40 til 45 manns. Sjá nánar íþróttir bls. 26-27

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.