NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 23.05.1984, Qupperneq 2

NT - 23.05.1984, Qupperneq 2
 Miðvikudagur 23. maí 1984 Stefnubreyting í undirbúningi hjá EFTA: EFTA og EBE í eina sæng Evrópa eitt stórt markaðssvæði 9 ■ Á fundi forsætisráðherra EFTA ríkjanna, sem hófst í morgun, verða rædd drög að samkomulagi við Efnahags- bandalag Evrópu um myndun eins stórs markaðssvæðis. Utanríkisviðskiptaráðherra Svía, Mats Hellström sem jafnframt er formaður EFTA ráðsins, sagði á fundi við- skiptaráðherra EFTA ríkj- anna í gær að slíkt markaðs- svæði væri mikilvægt skilyrði fyrir lausn atvinnuleysisvanda- mála sem gætt hefur í Evrópu síðustu ár. Fundur forsætisráðherranna er sá fyrsti síðan 1977. Að sögn fréttaskýrenda má búast við stefnubreytingu eftir slíkan „toppfund". Samkvæmt heim- ildum verður rætt á fundinum hvernig efnahagsviðreisninni verði best fylgt eftir. Á fundi viðskiptaráðherra EFTA ríkjanna í gær sagði Matthías Á. Mathiesen við- skiptaráðherra, að EFTA rík- in þyrftu að beita sér fyrir að dregið yrði úr ríkisstyrkjum til atvinnuvega. Sagði Matthías að slíkir styrkir hömluðu eðli- legum alþjóðaviðskiptum, auk þess sem þeir stönguðust á við grundvallarreglur EFTA. I síðustu viku, á ráðherra- fundi Efnahagssamvinnu- og framfarastofnunarinnar, flutti Matthías ræðu þar sem hann sagði ríkisstyrki og viðskipt- ahömlur jafngilda verndar- stefnu. Á þeim fundi hvatti Matthí- as til að jafnframt því sem dregið væri úr tollvernd og viðskiptahömlum væri unnið gegn ríkisstyrkjum þar sem þeir væru þung byrði á ríkis- sjóðum og drægju úr eðlilegri samkeppni í alþjóðavið- skiptum. Síðan að tollalækkanir byrj- uðu, við stofnun hinna ýmsu viðskiptabandalaga, hefur borið æ meir á ýmsum inn- flutningshömlum sem ekki eru tolltengd. Eru slíkar hömlur gjarnan í formi tækni-skilyrða. Matthías lagði einnig áherslu á fundinum í gær, að EFFA á samkvæmt stofn- samningi að vinna að auknum viðskiptum með sjávarafurðir. Hann lagði áherslu á að þessu hlutverki hefði ekki verið sinnt sem skyldi. Líklegt er að á fundi forsætis ráðherranna verði'fjallað um drögin að samkomulaginu við Efnahagsbandalagið og hvern- ig viðreisn efnahagslífs í Evr- ópu verði best fylgt eftir. Efnahagsviðreisn þessi er seinni á ferðinni í Evrópu en í Bandaríkjunum. Hagvöxtur í Bandaríkjunum hefur verið það sem af er þessu ári, á ársgrundvelli, 8.8 prósent. Á sama tíma hefur verðbólga verið 5.1 prósent. ■ Ráðherrar okkar funda stíft þessa dagana með ráðamönnum EFTA. Steingrímur Hermannsson fór í gær utan til að sitja forsætisráðherrafund ríkjanna, en Matthías Á. Mathiesen ráðherra viðskiptamála hefur setið þar á fundum undanfarið. Enn sitja sím- virkjar heima ■ Tugir símvirkja á höfuð- borgarsværðinu og víðs vegar um land mættu ekki til vinnu í gær og er það fyrsti dagur af þremur í ólöglegu verkfalli símvirkjanna. Ekki lágu fyrir endanlegar tölur um fjölda þeirra símvirkja sem ekki mættu til vinnu en í Reykjavík er reiknað með að þeir hafi ekki verið færri en 60. Ekki er kunn- ugt um að vinnustöðvunin hafi haft nein teljandi áhrif enn sem komið er. Að sögn Þorgeirs Þorgeirssonar framkvæmda- stjóra umsýsludeildar Pósts og síma má reikna með að sím- virkjarnir verði krafðir um læknisvottorð en ennþá er ekki ákveðið hverjar aðgerðir Pósts og síma verða í málinu. Vitað er að margir þeir sem ekki mættu til vinnu í dag höfðu til þess leyfi frá vinnu og höfðu sumir notað tækifærið og tekið út hluta af sumarleyfi sem þeir áttu ennþá inni. Margir sím- virkjar utan af landi fengu um- beðin leyfi frá vinnu í fyrradag áður en yfirmönnum var kunn- ugt um að um var að ræða hluta af verkfallsaðgerðum. Erro kemur á Lista- hátíð ■ Tíu íslenskirmyndlist- armenn, sem búsettir hafa verið erlendis undanfarna áratugi, munu sýna verk sín á Kjarvalsstöðum í sumar í boði fram- kvæmdastjórnar Listahát- íðar í Reykjavík 1984 og stjórnar Kjarvalsstaða. Listamennirnir verða Erro sem kemur frá París, Louisa Matthíasdóttir frá New York, Kristín og Jó- hann Eyfells frá Florida, Steinunn Bjarnadóttir frá New Mexico, Tryggvi Ólafsson frá Kaupmanna- höfn, Hreinn Friðfinns- son, Sigurður Guðmunds- son og Kristján Guð- mundsson frá Ámsterdam og Þórður Ben. Sveinsson frá Dússeldorf. Sýningin verður opnuð laugardaginn 2. júní n.k. og eru listamennirnir allir væntanlegir til landsins vel fyrir opnun sýningarinnar og er gert ráð fyrir að þeir verði allir viðstaddir opn- á staönum. m Steypuhrærivélar á traktora. Eigum fyrirliggjandi 2 stæröir af þessum handhægu steypuhrærivélum 250 og 350 lítra. Leytið nénari upplýsinga. ■ UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN LAGMULI5, 105 REYKJA VÍK SÍMI: 91 - 8 5222 Morgunblaðsvél- in með SÍS-skipi ■ Dropar hafa áður minnst á forláta prentvél af stærstu gerð sem Morg- unblaðið er að koma sér upp í nýjum húsakynnum sínum í nýjum Miðbæ sem kostar litlar eitt hundrað milljónir. Eins og kunnugt er rfkir venjulega enginn sérstakur vinskapur á milli „blaðs allra landsmanna“ og Sambands íslenskra samvinnufélaga, en merkilegt nokk, prentvél- in nýja var flutt með Hvassafelli einu af skipum Skipadeildar SfS til lands- ins eins og meðfylgjandi mynd af einum kassanum utanum • vélasamstæðuna ber með sér. Sagan segir að flutning- arnir hafi ekki alveg farið eftir höfði þeirra Aðal- strætismanna. Þannig er mál með vexti að prentvél- in góða er þýsk að gerð og sjá Þjóðverjar um upp- setningu hennar og flutn- ing til landsins. Þegar farið var að kanna skipaferðir komu tvö íslensk fyrirtæki til greina: Nefnilega Eim- skip og Skipadeild SÍS. Eimskip var fljótlega af- skrifað, þar sem það hafði verið umboðsaðili flutn- ingaskipsins „Kampen" sem sökk hér við land í vetur, en mikið mál var gert út af afdrifum þess ytra og því þótti umboðs- aðili þess ekki koma til greipa. Því var Skipadeild SÍS valin. Þegar Morgunblaðs- menn fréttu af þessu reyndu þeir allt hvað þeir gátu að koma í veg fyrir flutningana með þessum hætti, að sögn heimild- armanna Dropa, en án árangurs, jafnvel þó boðin væri hagstæðari frakt með öðru félagi, því Þjóðverjar eru þekktir fyrir allt annað en að skipta um skoðun þegar ákvörðun hefur einu sinni verið tekin, enda yfirleitt hárnákvæmir í á- kvarðanatöku sinni. Svo Morgunblaðið varð að láta sér nægja Hvassafellið, en aðstandendum þess þótti súrt í brotið. ALBERTp SJANIPO Umhirða eins og hjá fagmönnunum. Albert og Lucy seljast ■ Ástir þeirra Alberts fjármálaráðherra og tíkar- innar Lucy eru ekkert launungarmál eins og öllum landsmönnum ætti að vera ljóst, eftir öflugan fréttaflutning í gjörvallri heimspressunni. Viðskiptamenn hafa uppgötvað að hægt er að græða á öllu saman, og nýlega var sagt frá hunda- mat íslenskum sem-fram- leiddur er undir nafninu „Lucy“ og kominn er á markaðinn. Annar bissnesmaður virðist hafa uppgötvað að einnig er hægt að selja Albert því í Morgunblað- inu í gær var komin auglýs- ing um nýtt sjampó auðvit- að undir nafninu: Alberto. Skugga-Sveinn lenti í bílslysi ■ Á Blönduósi skipti sá atburður sköpum fyrir menningarlíf staðarins í vetur þegar það óhapp henti að Skugga-Sveinn lenti í bílslysi. Leikfélag staðarins hafði ákveðið að Skugga- Sveinn yrði verkefni þessa árs og höfðu æfingar raun- ar staðið yfir í einar tvær vikur þegar aðalpersónan, Skugga-Sveinn, varð fyrir slysinu. Ekki þótti nema eínn maður koma til greina í hlutverkið og varð því að hætta æfingum. Leikhúslífið á staðnum bjargaðist þó betur en á horfðist, því leikhópurinn hafði snör handtök og hóf æfingar á Spanskflugunni í staðinn. Heppnaðist leikurinn svo vel, að áhorf- endur urðu um 1.800 áður en sýningum lauk. Þar af söttu um 1.100 manns sýn- ingarnar á Blönduósi, sem hlýtur að teljast afar góð aðsókn þegar haft er í huga að íbúar Blönduóss eru ekki nema um 1.050 talsins. Bjargar gervi- grasið bændum ■ Kveldúlfur heitir blað sem sjálfstæðismenn í Borgarnesi og nágrenni gefa út. í nýjasta tölublaði er vitnað í formann flokksins, Þorstein Pálsson á ráðstefnu ungra sjálf- stæðismanna um landbún- aðarmál undir fyrirsögn- inni: „Núverandi stríðs- ástand í samskiptum bænda og neytenda er óþolandi.“ Á sömu síðu er viðtal við Jóhann Kjartansson hreppsnefndarmann undir fyrirsögninni: „Getur gervigras verið lausnin?“ Hafa menn leitt að því getum að þar sé e.t.v. komin fram hugmynd um lausn þess vandamáls sem formaður flokksins minn- ist á annars staðar á síð- unni.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.