NT - 23.05.1984, Qupperneq 5
Saksóknari áfrýjar Skaftamálinu til Hæstaréttar:
Furðulegt, segir verjandinn
Eðlilegt, segir Skafti Jónsson
■ „Pað er furðulegt að
ríkissaksóknari skuli áfrýja
málinu eftir að vera búinn að
bakka að miklu leyti út úr
ákærunni í Sakadómi
Reykjavíkur," sagði Jón
Oddsson hrl. ogverjandieins
hinna þriggja lögreglumanna
í svokölluðu Skaftamáli, en í
gær ákvað ríkissaksóknári að
áfrýja dómi Sakadóms
Reykjavíkur til Hæstaréttar.
Þá sagði Jón ennfremur að
sér þætti það annarlegt sjón-
armið hjá ríkissaksóknara að
tilkynna fjölmiðlum um
ákæruáfrýjun áður en ákærðu
sjálfum er tilkynnt um hana.
Eins og fram hefur komið
í fjölmiðlum voru lögreglu-
mennirnir þrír, sem ríkissak-
sóknari ákærði fyrir að gæta
ekki réttra aðferða við hand-
töku og fyrir líkamsmeiðingar á
Skafta Jónssyni, sýknaðir í
dómi Sakadóms þann 11.
apríl síðastliðinn. 1 áfrýjun-
arstefnu ríkissaksóknara eru
gerðar þær kröfur að ákærðu
verði sakfelldir samkvæmt
ákæru og dæmdir til refsing-
ar, fébóta og að greiða allan
kostnað sakarinnar.
Jón Oddsson sagði í sam-
tali við blaðið að það hlyti að
orka tvímælis hvort ákæra
saksóknara nú hljóðaði upp’
á þær kröfur sem upphaflega
voru gerðar á hendur ákærðu
eða kröfur Braga Steinars-
sonar eins og þær hefðu
hljóðað í dómi eftir að hann
hafði stórlega dregið úr upp-
haflegum ákærukröfum.
Þá hafði blaðið samband
við Skafta Jónsson sem
kvaðst fagna skjótri afgreiðslu
ríkissaksóknara en sam-
kvæmt gildandi reglum hafði
saksóknari frest til 4. ágúst
til ákvarðanatöku um áfr-
ýjun. „Annars hef ég lítið
um málið að segja", sagði
Skafti.
ITT Ideal Color 3304,
-íjárfesting í gæöum
á stórlækkuöu veröi.
Vegna sérsamninga viö
ITT verksmiðjurnar I
Vestur Þýskalandi, hefur
okkur tekist að fá
takmarkaö magn af 20"
litasjónvörpum á
stórlaekkuðu veröi.
Mezzoforte aftur á
lista í Bretlandi
■ Hljómsveitin Mezzo-
forte er nú komin inn á
breska vinsældalistann, í
100. sæti. Þctta er í fyrstu
viku eftir útgáfu, og er
það besti árangur sem
hljómsveitin hefur náð í
fyrstu viku. Það er lagið
Spring Fever sem náð hef-
ur þessum árangri. Aður
hafði hljómsveitin reynt
að fylgja Garden Party
eftir með lögunum Rock-
all og Midnight Sun, en
hvorugt þeirra náði inn á
topp 100.
Árarigurinn núna bygg-
ist á spilun í svokölluðum
svæðastöðvum, litlum út-
varpsstöðvum um allt
Bretland. En hvort hljóm-
sveitin nær hátt á vinsælda-
lista er komið undir því
hvort BBC1 tekur plötuna
til spilunar. Eins og Stein-
ar Berg sagði í viðtali við
Rás, 2, „plötur verða ekki
vinsælar nema BBC spili
þær, og.BBC 1 spilar ekki
plötur nema af vinsælda-
listanum. Það verður því
að brjóta þennan víta-
hring.“
Pétur Kristjánsson
sagði í viðtali við NT að ef
lagið yrði ekki vinsælt,
væri spurning hvort hljóm-
sveitin yrði ekki að koma
heim. Það væri dýrt að
halda svona fyrirtæki úti,
og lag á vinsældalista
skipti sköpum um plötu-
sölu á stórum plötum.
Munurinn gæti verið að
selja LP-plötu í 100.000
eintökum án vinsæls lags,
eða í 400.000-500.000 ein-
tökum með vinsælu lagi.
Máli pólska tannlækn-
isins drepið á dreif
■ Eins og fram hefur komið í frétta-
flutningi NT þá á pólskur tannlæknir
undir högg aö sækja gagnvart tannlækna-
deiid Háskóla íslands.
í tvö ár hefur flóttakonan pólska beðið
eftir fullnægjandi upplýsingum um vænt-
anlega námsframvindu og væntanleg
námslok, og allt útlit er fyrir að hún megi
bíða enn um sinn.
Á háskólaráðsfundi sem haldinn var
nú í vikunni, var samþykkt breytingartil-
laga við tillögu tannlæknadeildar um
hertar fjöldatakmarkanir, þar sem segir:
„Ákvörðun um hvort pólskur tann-
læknir verði einn þessara nemenda er
frestað þar til nánari upplýsingar liggja
fyrir. Ákvörðun þessi skal tekin eigi síðar
en í lok þessa árs.“
Fulltrúar stúdenta í ráðinu greiddu
þessari tillögu mótatkvæði og því var
mótmælt að mál pólsku konunnar skyldi
ekki ganga fljótar fyrir sig.
Þess skal loks getið að tillaga þessi
felur í sér að beiðni tannlæknadeildar um
hertar fjöldatakmarkanir nær ekki fram
að ganga. Breytingartillagan gerir ráð
fyrir að átta nemendur fái inngöngu á
annað misseri háskólaárið 1984/85 með
fyrirvara um samþykki menntamálaráðu-
neytisins á reglugerðarbreytingu um til-
högun fjöldatakmarkana í tannlækna-
deild.
SÖLUBUÐ
- ^ Jarðaber 822 gr
[•jv rVTiT Tekex 200 gr
0 Holtabót 6tegundirkex
EPI ,| Rauð #
RYVIl ra Hrökkbrauð 200 gr
~ITd Sykur 2 kg
Hii'i0'" $a Bonner rúsínur 425 gr
...vöruverð í lágmarkí