NT - 23.05.1984, Page 10
Miðvikudagur 23. maí 1984 1 0
iiL
Haukur Sigurbjarnarson
Fæddur 8. apríl 1965
Dáinn 16. desember 1983
Fólk var farið að hlakka til
jólanna. Jólaljósin voru að
senda fyrstu geisla sína yfir land
og lýð þegar harmafregn um
andlát Hauks Sigurbjarnarson-
ar bægði skyndilega burtu bæði
tilhlökkun og yl ljósanna. Ung-
ur drengur er allur. Erfitt er að
trúa slíku og ótal spurningar
leita á hugann, sem á engin svör.
Jólin eru hátíð gleðinnar og
ljóssins. En sjaldan er ljós án
skugga og angar hans byrgðu
bæði birtu og gleði síðustu jóla
í hugum þeirra er þekktu Hauk
og unnu honum. Yfir hvíldi
skuggi í stað Ijóss, sorg í stað
gleði, söknuður og tregi í stað
vona og drauma.
Fundum okkar Hauks bar
fyrst saman á haustdögum 1981.
Vorum við þá báðir að hefja
nám við Bændaskólann á
Hólum, hvor í sinni deild.
Kynni okkar urðu aldrei náin en
þó þykist ég hafa þekkt hann
allvel og fann að hann var
góðum kostum búinn.
Einn þáttur í fari hans var
hreinskilni. Minnist ég þess að
eitt sinn, sem oftar, var haldinn
nemendafundur sem varð
stormasamur vegna þess að mis-
skilningur hafði komið upp um
ákveðið málefni. Erfitt reyndist
að leiðrétta hann á fundinum en
mér er það minnisstætt að
Haukur var einn fárra fundar-
manna sem fjallaði málefnalega
um efnið, sem og af hreinskilni
og víðsýni. Sýndi hann ró og
stillingu en þó festu og reyndi
að sætta fundarmenn. Honum
var mikilvægt að fá að vita
forsendur málsins áður en hann
drægi af því ályktanir eða felldi
dóma. Einhverra hluta vegna
tókst honum ekki að heyra alla
málavexti á fundinum og sýndi
hann þá enn betur hreinskilni
sína og dómgreind með því að
koma inn á herbergi mitt og
ræða málin betur í ró og næði að
loknum fundi. Mat ég það ævin-
lega við hann síðan. Slíkan
þroska vantar margan ungling-
inn og sýnir þetta vel hvað í
Hauki bjó.
Viljaþrek hafði Haukur og
kom það vel fram í ástundun
hans og dugnaði í íþrótt hans,
sem hann stundaði einn, lengi
vel, við erfiðar aðstæður.
Við Haukur áttum það til,
þegar við hittumst á göngum
Hólaskóla, að gera hlé á ferðum
okkar og hefja þess í stað sam-
ræður um heima og geima. Við
áttum einhvern veginn einkar
auðvelt með að spjalla saman
en gerðum því miður allt of lítið
af því. Þessar samræður voru
e.t.v. ekki merkilegar í sjálfu
sér en eru mér mjög minnisstæð-
ar vegna þess, að Haukur var
vingjarnlegur og viðmótsþýður
drengur sem mér fannst vert að
kynnast. Hann vildi gera gott úr
þeim ólgusjó sem sambúð ungs
fólks á fámennri heimavist getur
verið. Hann kom vel fyrir sig
orði, orð hans festust í minni
mínu og ég hugleiddi þau oft.
Hugur Hauks hneig til bú-
skapar og honum vildi hann
helga krafta sína. Nú njóta æðri
heimar krafta þessa unga og
efnilega drengs, krafta sem
hann átti í ríkum mæli. Það vita
þeir sem hann þekktu þótt hann
bæri það ekki á torg, það var
ekki hans eðli.
Síðustu misseri hafa skilið
okkur bæði haf og lönd en þó
fannst mér Haukur alltaf ná-
lægur í huganum því það var
sem lægi þráður væntumþykju
milli okkar, þráður sem ég lagði
ekki nógu mikla rækt við. Eftir
að leiðir skildu tognaði á honum
en hann slitnaði aldrei og ævin-
lega skulu einhverjir þættir hans
tengja okkur, lífs eða liðna.
Haukur kvaddi þennan heim
í desember síðastliðnum, þá á
19. aldursári. Höndin hans
gjörva og hugur hafa heilsað
nýjum heimkynnum en eftir lifir
minningin um dreng sem mikið
var í spunnið.
Ég vil enda þessi síðbúnu og
fátæklegu orð á því að votta
foreldrum hans og öllum að-
standendum mína dýpstu
samúð.
Blessuð sé minning Hauks
Sigurbjarnarsonar.
Bjarni Stefán Konráðsson.
Sérstök áskrift ad
íslendingaþáttum
- minningar- og afmælisgreinar birtar daglega.
■ Framvegis verða afmælis- og minningargreinar birtar
í blaðinu daglega, en hætt verður vikulegri útgáfu Islend-
ingaþátta eins og venð hefur. í stað þess hefur verið
ákveðið að gefa út íslendingaþætti sjaldnar en efnismeiri,
og bjóða þá í sérstakri áskrift til þeirra sem áhuga hafa.
Áhugafólk um íslendingaþættina er beðið um að láta skrá
sig niður á afgreiðslu blaðsins, Síðumúla 15, Reykjavík,
eða í síma 86300.
ritstj.
Auglýsinga-
símar Áskrifta-
18-300 sími
86-300 86300
Gullbrúðkaup
■ Síðastliðinn laugardag 19. maí áttu fimmtíu ára hjúskaparafmæli hjónin Pálína
Þorsteinsdóttir og Guðmundur Björnsson, kennari, Akranesi.
Þessir fengu styrki
Þjóðhátíðarsjóðs
■ Lokið er úthlutun styrkja úr Þjóðhátíðarsjóði fyrir
árið 1984 og þar með sjöundu úthlutun úr sjóðnum.
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins, nr. 361 frá 30.
september 1977, er tilgangur sjóðsins að veita styrki
til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að
vinna að varðveizlu og vernd þeirra verðmæta lands og
menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.
Fjórðungur af árlegu ráðstófunarfé sjóðsins skal renna
til Friðlýsingarsjóðs til náttúruverndar á vegum Nátt-
úruverndarráðs, annar fjórðungur skal renna til varð-
veizlu fornminja, gamalla bygginga og annarra menn-
ingarverðmæta á vegum Þjóðminjasafns.
arverðmæta á vegum Þjóð-
minjasafns, skv. ákvæðum
skipulagsskrár.
Allt að helmingi úthlutun-
arfjár á hverju ári er varið til
styrkja skv. umsóknum og
voru því allt að kr.
2.500.000,00 til ráðstöfunar í
þennan þátt að þessu sinni.
Alls bárust 80 umsóknir um
styrki aðfjárhæð um 10,5 millj.
kr.
Hér á eftir fer skrá yfir þá
aðila og verkefni, sem hlutu
styrki að þessu sinni, en fyrst
er getið verkefna á vegum
Friðlýsingarsjóðs og Þjóð-
minjasafns.
Friðlýsingarsjóður:
Samkvæmt skipulagsskrá
Þjóðhátíðarsjóðs skal Friðlýs-
ingarsjóður verja árlegum
styrk til náttúruverndar á veg-
um Náttúruverndarráðs. Nátt-
úruverndarráð hefur ákveðið
að verja styrknum, eftir því
sem hann hrekkur tií, í eftirtal-
in verkefni:
1. Snyrtihús í þjónustumið-
stöðinni í Ásbyrgi
2. Lagfæring á prestseturshús-
inu á Skútustöðum.
3. Rotþrær við Hæðir og Bölta
í Skaftafelli.
Þjóðminjasafn:
Samkvæmt skipulagsskrá
Þjóðhátíðarsjóðs skal Þjóð-
minjasafnið verja árlegum
styrk til varðveizlu fornminja,
gamalla bygginga og annarra
menningarverðmæta á vegum
safnsins. Þjóðminjavörður
hefur gert grein fyrir ráðstöfun
styrksins í ár og eru þessi
verkefni helzt:
1. Framhald fornleifarann-
sókna að Stóruborg undir
Eyjafjöllum.
2. Kopiering ljósmyndaplatna
og önnur vinna við ljósmynda-
söfnin.
3. Viðgerð vörugeymsluhúss
frá Vopnafirði í Árbæjarsafni.
4. Viðgerð Grundarkirkju í
Eyjafirði.
5. Þjóðháttaskráning
6. Skráning fornleifa í ná-
grenni Reykjavíkur
7. Tækjakaup vegna forvörzlu
safngripa
8. Smíði skápa til geymslu á
textílum
9. Ljúka’ viðgerð bæjarins á
Galtastöðum..
Að öðru leyti úthlutar stjórn
sjóðsins ráðstöfunarfé hverju
sinni í samræmi við megintil-
gang hans, og komi þar einnig
til álita viðbótarstyrkir til
þarfa, sem getið er hér að
framan.
Við það skal miðað, að
styrkir úr sjóðnum verði við-
bótarframlög til þeirra verk-
efna, sem styrkt eru, en verði
ekki til þess að lækka önnur
opinber framlög til þeirra eða
draga úr stuöningi annarra við
þau.
í stjórn sjóðsins eiga sæti:
Björn Bjarnason, aðstoðar-
ritstjóri, formaður, skipaður af
forsætisráöherra. Jóhannes
Nordal, seðlabankastjóri, vara-
formaður, tiluefndur af
Seðlabanka Islands, Eysteinn
Jónsson, fyrrv. ráðherra, Gils
Guðmundsson, fyrrv. forseti
sameinaðs Alþingis og Gísli
Jónsson, menntaskólakennari,
kjörnir af sameinuðu Alþingi.
Ritari sjóðsstjórnar er Svein-
Björn Hafliðason, lögfræðing-
ur.
Stjórn sjóðsins hefur verið
óbreytt frá upphafsstarfsári
sjóðsins, 1978, en hún var
endurskipuð hinn 9. maí 1982
til fjögurra ára.
í samræmi við 5. gr. skipu-
lagsskrár sjóðsins voru styrkir
auglýstir til umsóknar í fjöl-
miðlum í lok desember 1983
með umsóknarfresti til 24.
febrúar sl.
Til úthlutunar í ár koma allt
að kr. 5.000.000.00: Þarafskal
fjórðungur, 1.250 þús. kr.,
renna til Friðlýsingarsjóðs til
náttúruverndar á vegum Nátt-
úruverndarráðs og fjórðungur
1.250 þús. kr., skal renna til
varðveislu fornminja, gamalla
bygginga og annarra menning-
Úthlutun styrkja skv. umsóknum:
Umsækjandi Verkefni
1. Sjómannadagsráð Endurbygging Þorvald-
á Hellissandi og Rifí ar búðar og varðveizla
áraskipsins Blika
2. Safnastofnun Aust- Viðgerð á Löngubúð
urlands, f.h. Búlands- á Djúpavogi
tindsh.l., Djúpavogi
3. Slysavarnardeildin Endurbyggja fyrstu
Sigurvon, Sandgerði björgunarstöð S.V.F.Í.
4. Sigurfarasjóður Framhald viðgerða á
Akranesi Kútter Sigurfara
5. Húsafriðunarnefnd Viðgerð verzlunarhúsa
Isafjarðar íNeðstakaupstað
6. Byggðasafn Rang- Útbyggingviðsafnahús
æinga og V-Skaftfell- byggðasafnsins að
inga Skógum
7. Stofnun Árna Afritun þjóðfræðaefnis
Magnússonar á íslandi á geymslubönd
8. Sigríður Þ. Val- Varðveizla á gömlum
geirsdóttir, Skaftahlíð dansi og leikjum í
18, Reykjavík Svarfaðardal
9. Landsbókasafn Viðgerðirog varðveizla
Islands gamalla bóka
10. Háskólabókasafn Viðgerðirábókumí
Styrkur
80.000,00
100.000,00
100.000,00
150.000,00
100.000,00
70.000,00
100.000,00
30.000,00
60.000,00
40.000,00
11. Kvehnasögusafn
Islands, R.
12. Ljósmyndasafnið
Flókagötu 35, R
13. Héraðsskjalasafn
A-Húnavatnssýslu
14. Héraðsskjalasafn
Svarfdæla
15. Sjóminjasafns-
nefnd
16. OskarGíslasun
kvikmyndagerðar-
maður
17. Héraðsskjalasafn
safni Benedikts S.
Þórarinssonar
Flokkun og skráning
rita um kvennasöguleg
efni
Skráning og kontakt-
gerð á Ijósmyndaplöt-
um Magnúsar Ólafsson-
ar og Ólafs Magnússon-
arljósmyndara.
Söfnun gamalla og
nýrra mannamynda
á héraði
Uppbygging safnsins
Hefja söfnun sjóminja
fyrirSjóminjasafn
Islands
Að gera sýningarhæft
eintak afLýðveldis-
kvikmynd hans.
Gerð lykilskráa við
Skagfírðinga Sauðárkr. handritasafn safnsins
18. Magnús ÞorkelssonLjúka fornleifaupp-
Krókahrauni 12, Hafn. greftri á Búðasandi í
Kjós
40.000,00
80.000,00
40.000,00
30.000,00
60.000,00
60.000,00
60.000,00
100.000,00