NT - 23.05.1984, Blaðsíða 17

NT - 23.05.1984, Blaðsíða 17
 ■ Suniir brosa - en aðrir ekki. Fonda og fjölskylda ■ Jane Fondaog fjölskylda svipur á þeim, en cifei ">.aður sjást hér öll saman í sam- Jane Fonda - sem stundum kvæmi, upppússuð og fín. er kallaður Mr. Fonda-hros- Jane er með axlaskúfa eins ir brosi stjórnmálamannsins. og hershöfðingi.endaer hún sem lætur ekkert á sig fá. stjórnsöm kona. Flún hrosir Eiginmaðurinn er Torn Ha- sínu blíðasta, en börnin. yden. sem er reyndar þekktur Vanessa ogTroy, virðast ekki stjórnmálamaður í Banaríkj- alveg eins ánægð. Satt að unum. segja hálfgerður vandræða- hjá „sölumanninum“ og eiginkonu hans. T ootsie hefur elst ■ Þeir sem sáu kvikmyndina „Tootsie" muna eftir aðalleikar- anum, honum Dustin Hoffman, sem korn þar fram bæði í karl- og kvenhlutverki. Hann þótti þar hin álitlegasta stúlka, svo hann fékk meira að segja bónorð! Nú hefur Dustin Hoffman tekið að sér að leika í leikriti Arthurs Miller Sölumaður deyr (Death of a Salesman) og virðist það hafa tekið svo á hann að hann hafi elst um minnst 10 ár. A meðfylgjandi mynd sjáum við Hoffman - án andlitsfarða - sitjandi hjá Arthur Miller og Lisa, eiginkona Dustins, situr hjá þeim. Miðvikudagur 23. maí 1984 1 7 ■ Roselyn Walker sagðist vera „hamingjusamasta mamman í öllum heiminum“. Hér er hún með Lucy litlu dóttur sinni, sem fær að fínna hvernig ófæddu tvíburarnir sparka í móðurlífí. Fyrrum glasabarnsmóð- ir gengur nú með tví- bura - án tæknihjálpar! ■ Roselyne Walker var talin óbyrja. Hún gekkst undir „glasabarna- frjóvgun“ og eignaðist þannig dóttur, sem nú er hálfs árs og heitir Lusy. Síðan gerist það að Rose- lyne fær öll einkenni þess að hún sé aftur orðin ó- frísk - og nú voru engin tæknibrögð viðhöfð - og það ótrúlega hafði gerst að hún var barnsháfandi; „Lusy litla var algjört kraftaverk, fannst okkur hjónunum, en nú hefur guð enn gert kraftaverk, því að ég - sem læknar sögðu að gæti ekki átt barn - geng með tvíbura;“ sagði Roselvne, en hún veitti blaðamönnum viðtal, ásamt læknum. Þeir sögðu þetta vera al- veg sérstakt, að kona, sem eins var ástatt fyrir og Roselyne, gæti orðið ófrísk. Á myndum, sem teknar voru þegar hún var rannsökuð fyrir glasa- barna-aðgerðina, sást að eggjaleiðararnir voru ónýtir, annar var í sundur og hinn stíflaður, - en eitthvað hefur gerst, sagði læknir- inn. Líklega hefur eggja- leiðarinn gróið saman, en það er ekki hægt að segja um það fyrr en seinna. Hvernig sem þetta hefur gerst, þá eru allir í sjöunda himni yfir þessu tilviki. Allt gengur eðlilega og það er nú staðfest aðRose- lyne gengurmeðtvíbura. Þetta er í fyrsta sinn í sögu læknavísindanna, að „glasabarnamóðir“ verður barnshafandi á eðlilegan hátt, en nú hafa læknar áhuga á að rannsaka hvort eitthvaö breytist hjá fleiri „glasabarnakonum“ við fæðinguna, þannig að möguelikar verði meiri eftir en áður að þær geti eignast börn. Roselyne og Paul Walker, sem bæði eru 33 ja ára höfðu lengi þráð að eignast barn. Dóttirin Lusy var því mikið óskabarn ogvel fagnað er hún kom íheiminn. Nú er undirbúningur í fullum gangi fyrir tvíburana, sent samkvæmt útreikningum eiga að fæðast í fyrstu vikunni í ágúst n.k. Roselyne sagði: „Við erum svo hamingjusöm og ánægð yfir að eiga von á tveimur börnum, og nú fær Lusy okkar leikfélaga, en það var eitt af því sem við vorum svolítið leið yfir, - að hún ætti ekki systkini til að leika sér við, þar sem hún væri einbirni. Það er engu barni hollt. Við ætluðum varla að geta trúað því, þegar lækn- arnir sögðu að ég væri aftur ófrísk, það var svo ótrúlegt eftir það sem á undan var gengið, - an mikil gleðifrétt var þetta fyrir okkur!“ ::

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.