NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 31.05.1984, Qupperneq 4

NT - 31.05.1984, Qupperneq 4
■ Björgvin Sigurgeir Haraldsson, prófstjóri: „Stjórnvöld hafa ■ Þuríður Guðmundsdóttir og Ingibjörg J. Gunnlaugsdóttir: „SOS: skólinn verður að fá betra húsnæði“ NT-mynd Árni Bjarna. lítið sinnt skólanum“. NT-mynd: Árni Bjarna. mr Fimmtudagur 31. maí 1984 4 LU Fréttir Myndlista-og handíðaskólinn: „Hvorki til stólar né borð“ Aldrei fleiri umsækjendum vísað frá en nú. Skólinn er allt of lítill, þetta jaðrar við neyðarástand. NT náði tali af tveim stúlkum, þeim Þuríði Guðmundsdóttur og Ingibjörgu J. Gunnlaugs- dóttur. Þær eru nú að útskrifast úr skólanum og hafa stundað þar nám s.l. fjögur ár. Sögðu þær þrengslin allt of mikil í skólanum. „Við vorum í textíldeild þar sem ástandið var livað verst. Við höfum t.d. verið á hlaupum í fyrirlestrum, á milli stofa, auk þess sem það er varla hægt að snúa sér við, í verknám- inu vegna þrengsla. Þetta haml- ar mjög vinnu nemenda. Það er t.d. ekki hægt að vinna nein stór verk hér og varla hægt að halda sómasamlegar sýningar. Við ætl- um nú samt að sækja um upp á fimmta ár. þó að þrengslin séu svona mikil. En við eigum ekk- ert víst að komast inn, því allt veltur þetta á fjöldanum sem sækir um, og húsnæðinu," sögðu þær Þuríður og Ingibjörg. Þær bættu því við, að svo -virtist sem ásókn ykist að mun í sumar deildir eftir árum. Það - væri því allt útlit fyrir að oft væri um tískufvrirbrigði að ræða. „Og það eru þessar tískudeildir sem sprengja allt utan af sér. öllum nemendum skólans. NT-mynd Árni Bjarna. Nú er málverkadeild mikið í tísku, fyrir nokkrum árum var það kerantikið. Nú eru t.d. sára fáir í keramiki", sögðu þær stöllur að lokum. Loks voru nokkrir nemendur sem þreyta inntökupróf spurðir hvort þeir hefðu sótt um áður, og hversvegna þeir hygðust stunda nám við Myndlista- og handíðaskólann. Ómar Baldursson: Þetta er í fyrsta skipti sem ég sæki um inngöngu í skólann. Ég er húsasmiður og hef lítillega fengist við teiknun. Ég vildi virkja þann áhuga sem ég hef á teiknun. Þórarinn Leifsson: Þetta er í annað skipti sem ég tek inntökupróf. Ég tók inn- tökupróf fyrir ári síðan, en þá munaði nokkrum punktum að ég kæmist inn. Það er vel þess virði að reyna aftur. Ég þekki marga sem eru að reyna í annað skipti núna. Ég hef sjálfur teikn- að svolítið og farið á nokkur námskeið því ég hef mestan áhuga á teiknun. Sigurbjörg B. Guðmundsdóttir: Þetta er í fyrsta skipti sem ég reyni. Mér fannst þetta nú frekar strangt. Ég hef áhuga á myndlist og listum yfir höfuð. Mig langar til að læra einu sinni eitthvað almennilega. Annars er ég aðallega að þessu að gamni mínu. ■ Þórarinn Leifsson þreytir inntökupróf í annað sinn. NT-mynd: Árni Bjarna. ■ Sigurbjörg B. Guðmunds- dóttir:„Eg geri þetta að gamni mínu“. ■ Ómar Baldursson, húsa- smiður, þreytir inntökupróf í fyrsta sinn. ■ Þessa dagana fara fram inn- tökupróf við Myndlista- og handíðaskóla íslands. Það munu vera um 180 nemendur sem hafa skráð sig til inntöku- prófs. { fréttatilkynningu frá Mynd- lista- og handíðaskólanum er greint frá því að fjöldinn í inntökupróf sé slíkur, að hvorki séu til stólar nó borð fyrir alla þá sem inntökupróf þreyta. Inn- tökuprófin standa yfir í fjóra daga. Hefur því verið gripið til þess ráðs að fá stóla og borð að láni, auk þess sem eitthvað af prófum hefur verið flutt úr skólanum. NT lagði leið sina niður í Myndlista- og handíðaskóla til að forvitnast nánar um aðbúnað og sjónarmið þeirra sem í skólan- um starfa. Björgvin Sigurgeir Haraldsson, prófstjóri, varð á vegi NT ogvarhann tekinn tali. Aldrei meiri aðsókn en nú Björgvin Sigurgeir tjáði NT að aldrei hefðu jafn margir sótt um inngöngu í Myndlista- og handíðaskólann en nú í vor. Ásóknin í skólann hefur þó aukist nokkuð stöðugt undan- farin ár. Sagði Björgvin að skól- inn hefði þurft að grípa til fjöldatakmarkana allt frá upp- hafi, sökum húsnæðis og að- stöðuskorts. Þannig yrðu ýmsir frá að hverfa, jafnvel þótt þeir hinir sömu hefðu hæfileika og vilja til að stunda nám við skólann. Björgvin sagði jafnfram að lítill vilji væri til staðar hjá stjórnvöldum að bæta úr vanda skólans, og hefðu tilmælum um úrbætur ekkert verið sinnt til þessa. Það eina sem gerst hefði í húsnæðismálum skólans, hefði verið þegar skólanum var boðið upp á 1200 fm húsnæði í Lauga- ■ Þessi kaffistofa er ætluð lækjaskóla í stað þess 2000 fm húsnæðis sem skólinn hafði þá þegar yfir að ráða. Því boði hefði af augljósum ástæðum ekki verið tekið. Björgvin lagði jafnframt áherslu á, að tækja- kostur er lítill í skólanum og aðstaða að öllu leyti óviðun- andi. ■ Nú þreyta hátt á annað hundrað manns inntökupröf í Myndlista- og handíðaskólan- um við þröngan kost. NT-mynd: Árni Bjarna.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.