NT


NT - 31.05.1984, Side 11

NT - 31.05.1984, Side 11
Fimmtudagur 31. maí 1984 11 ■ 10 gestir listahátíðar nefn- ist sýningin á Kjarvalsstöðum. f>að er sýning á verkum 10 íslenskra listamanna, sem bú- settir eru, eða hafa verið er- lendis undanfarna áratugi. Sennilega hafa aldrei verið jafnmargir íslenskir listamenn starfandi í útlöndum og nú, og freistandi hefði verið að fá heim miklu fleiri. En hvorki fjármunir nú húsrými eru til þess að hýsa alla þá sem starfað hafa við góðan orðstír erlendis undanfarna áratugi. Hér eru þó á ferðinni nokkrir af þeim sem hæst ber, og ræður fuil- komið handahóf ekki valinu. Þessir listamenn eru Erró, Hreinn Friðfinnsson, Jóhann Eyfells, Kristín Eyfells, Kristj- án Guðmundsson, Louisa Matthíasdóttir, Sigurður Guðmundsson. Steinunn Bjarnadóttir. Tryggvi Ólafs- son og Þórður Ben Sveinsson. Erró Erró er búsettur í París, þar hefur hann búið og starfað Tíu íslenskir myndlistar- menn búsettir erlendis: Jt jm jBBgy * ■ Listamennirnir fyrir utan Kjarvalsstaði. Á myndina vantar einn tímenninganna, Erró. Koma heim og sýna á Kjarvalsstöðum lengst af síðan 1958. Listahátíð hefur boðið honum að sýna hér áður, það var á Kjarvals- stöðum 1978, stór sýning, sem fyllti allt húsið þá. Nú kemur hann með 5 stór málverk, 200x300 sm, það elsta málað 1974,m en tvö þau nýjustu máluð nú í vor. LouisaMatthíasdóttir Louisa Matthíasdóttir hefur hinsvegar sárasjaldan sýnt hér heima, en hún hefur verið búsett í New York frá 1942, eða í yfir 40 ár. Louisa er fædd í Reykjavík 1917, og er því aldursforseti gestanna. Hún stundaði myndlistarnám í Kaupmannahöfn og París, en fluttist til Bandaríkjanna á stríðsárunum, þar sem hún hefur starfað síðan. Hún hefur getið sér gott orð sem málari þar ytra, og sýningar hennar sem hún hefur haldið í Galleríi á Manhattan annað hvert ár í tvo áratugi, hafa jafnan vakið mikla athygli. Þar stendur ein- mitt yfir sýning á verkum henn- ar þessa dagana, þar sem hún sýnir málverk með íslensku mótívi. Hingað kemur hún með um það bil 50 málverk, öll máluð á síðustu árum. Tryggvi Ólafsson Hlutur Tryggva Ólafssonar á sýningunni verður ekki eins stór að umfangi, af skiljan- legum ástæðum, - hann hefur verið hér heima með annan fótinn og sýnt bæði á samsýn- ingum og einkasýningum, enda styst leiðin fyrir hann að koma, - Tryggvi hefur verið búsettur í Kaupmannahöfn í 23 ár, og starfað þar af miklum krafti. Hann kemur nú heim með nýjar olíumyndir. Eyfellshjónin Hjónin Jóhann og Kristín Eyfells hafa verið búsett í Bandaríkjunum í áratugi, lengst af í Florída, þar sem Jóhann er nú prófessor í lista- deild háskólans í Orlando. Jóhann byrjaði í arkitektanámi í Kaliforníu strax eftir stríð, og hefur háskólagráður bæði í arkitektúr og skúlptúr. Hann kenndi við Myndlista- og hand- íðaskóla íslands á árunum 1965-69, en fluttist þá aftur út til Florída, þar sem hann hefur starfað síðan. Verk hans hafa sjaldan sést hér hin síðari ár, en fréttir af þeim borist frá ýmsum stöðum í Evrópu og Bandaríkjunum. Hann sýnir hér skúlptúrverk og teikningar og Kristín röð mannamynda, sem vakið hafa athygli á sýn- ingum hennar ytra. „Amsterdam- hópurinn“ Fjórmenningarnir Hreinn Friðfínnsson, Sigurður Guð- mundsson, Kristján Guð- mundsson og Þórður Ben Sveinsson fóru allir til Amster- dam á sjöunda árátugnum, og dvöldust þar um lengri eða skemmri tíma. Þeir voru allir með í að stofna SUM á sínum tíma. Þeir héldu hópinn fram- an af, frægasta sýning þeirra er líklega er þeim var boðið að sýna við opnun Pompidou- menningarmiðstöðvarinnar í París 1977. Hópurinn hefur tvístrast, Þórður Ben hefur verið búsettur í Dússeldorf síðasta áratug, og Kristján er fluttur heim, en þeir Sigurður og Hreinn búa ennþá í Amster- dam. Þeir tveir sýndu m.a. í Guggenheim-safninu í New York á Skandinavía-to-day menningarkynningunni 1982 og á stórri alþjóðlegri nútíma- listasýningu í Helsinki í fyrra, svo eitthvað sé nefnt. Þeir fjórmenningar skipta með sér vestursal Kjarvalsstaða og sýna þar verk að eigin vali. Steina Vasulka Loks er að geta Steinunnar Bjamadóttur, eða Steinu Vas- ulka. Ferill hennar er allsér- stæður, sem má að vísu segja um þá marga fleiri. En Stein- unn, sem er fædd í Reykjavík, hélt til Prag í tónlistarnám. Þar stundaði hún nám í fiðluleik í nokkur ár, og lék síðan með Sinfóníuhljómsveit íslands í eitt ár, 1964, en fluttist svo til Bandaríkjanna 1965 með manni sínum Woody Vasulka, tékkneskum kvikmyndagerð- armanni. Þau komust fljótlega inn í hóp listamanna, sem fékkst við tilraunir með^raf- eindalist og myndbönd, og urðu brátt þekkt sem frum- herjar á því sviði, voru t.d. með í að stofna The kitchen þekkta listamiðstöð á Man- hattan, þar sem rekin var blómleg starfsemi á sjöunda áratugnum. Þau eru nú búsett í Santa Fe, New Mexico, og kemur Steinunn þaðan með nokkur myndbönd í fórum sín- um svo og verk sem krefst flókinsútbúnaðar.þ.e. tveggja sjónvarpstækja, 8-10 mynd- skjáa og segulbanda.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.