NT - 31.05.1984, Blaðsíða 12

NT - 31.05.1984, Blaðsíða 12
Fimmtudagur 31. maí 1984 12 Útvarp fimmtudag kl. 14j Ný framhaldssaga „Endurfæðingin(< - undarleg blanda af vísindaskáldskap, hryllingssögu og bókmenntalegri mannlífsstúdíu ■ Þorsteinn Antonsson, rit- höfundur byrjar í dag kl. 14.00 lestur þýðingar sinnar á sögu eftir Max Ehrlich, sem á ís- lensku nefnist „Endurfæðing- in“, (The Reincarnation of Peter Proud). Við spurðum Þorstein Ant- onsson hvort hann vildi kynna hlustendum söguna og höfund hennar með nokkrum orðum. Hann brást vel við og sagði: „Undanfarin ár hefur athygli manna mjög beinst að hvers konar sálrænum afbrigðum. Dularsálfræði, sú grein sál- fræði, sem fjallar um fjar- skynjun og ámóta, skilað nokkrum árangri. Huglækn- ingar, tilvist drauga, draumvísi, skyggnilýsingar, hugboð um óorðna atburöi hafa auk fjar- skynjunar verið sérstætt á- hugamál íslendinga um langan aldur. Skáldsagan „Endur- fæðingin" (The Reincarnation of Peter Proud“) sameinar vit- und manna um þvílík yfir- skilvitleg fyrirbrigði, nútíma- leg viðhorf til slíks og rann- sóknaraðferðirsálvísinda. Slík er hún að efni. Um bókmenntaverk er að ræða, en samhliða sálfræðilega spennusögu. Sagan er skýr í framsetningu, atburðarás hröð, bygging sterk en einföld. Hún er afar myndræn, og höf- undi tekst jafnan að komast hjá að einfalda um of viðfangs- efni sitt. Persónubygging er raunsæisleg og sannfærandi. Ungan mann, Pétur Proud, aðstoðarprófessor við Suður- Kalíforníu-háskóla, tekur að dreyma sömu drauma nótt eftir ■ Þorsteinn Antonsson rit- höfundur nótt. Þetta eru sjö eða átta draumar, alltaf hinir sömu og alltaf eins. Að mestu látlausir draumar úr hversdagslífi fólks sem hann kannast ekki við né staðhætti þess. Einn þessara drauma er þó martröð, Pétur dreymir að hann sé myrtur. Sagan greinir frá viðleitni Péturs Proud til að losna við þessa drauma, skilja hvernig á þeim stendur. Og loks, þegar hann fyrir hendingu telur sig kannast við staðhætti úr draumunum í kynningarmynd í sjónvarpi frá einu fylki Bandaríkjanna, leit hans að þeim stað, borg- og eftir að hann hefur fundið hana, leit hans að því fólki sem bar í drauma hans. Rökstuðningur höfundar fram til þess og pers- ónusköpun gerir að úr því kallar sagan á mjög sterka innlifun lesanda í æsilegt efni. Þessi saga er blanda skemmt- unar og fróðleiks. Sérstætt efni cr gert aðgengilegt með góðri frásagnartækni. Vísindi notuð falslaust til stuðnings við hugmyndir sem einum þriðja mannkyns þykja ótrú- legar - þeim hluta sem einkum aðhyllist þau hin sömu vísindi. Sagan er undarleg blanda af vísindaskáldskap, hryllings- sögu og bókmenntalegri mann- lífstúdíu. „The Reincarnation of Peter Proud" er áttunda skáídsaga höfundarins, Max Ehrlich. Fyrst gefin út 1975, í Bretlandi. Höfundurinn hefur starfað sem blaðamaður, skrifað leikrit og unnið við handrita- gerð fyrir þekkta sjónvarps- þætti (Star Trek t.d.) Fimm skáldsagna hans hafa verið kvikmyndaðar þar á meðal of- annefnd. FyrstaskáldsagaMax Ehrlich kom út 1949. Hann er fjölskyldumaður, búsettur í Los Angeles“. Sjónvarp - laugardagur - kl. 18.30; Börnin við ána ■ Nýr breskur sjónvarps- myndaflokkur í 8 þáttum fyrir börn hefur nú göngu sína. Hann heitir Börnin við ána (Swallows and Amazons) og er hann gerður eftir bókum Arthurs Ransome. Höfundur hefur í huga við samningu bókanna ýmsar bernskuminningar frá því hann ásamt bróður sínum og systur, eyddi sumarfríinu í Vatnahér- aðinu (Lake District) og Nor- folk í Englandi. Hann lýsir þar bátsferðum þeirra og ýmsum ævintýrum. Fyrsti þátturinn heitir „Bles- hænufélagið" og er þar sagt frá tápmiklum krökkum, sem stunda siglingar á ánum í Nor- folk-héraði. Þau eru miklir fuglavinir og lenda í útistöðum viðsumarleyfisfólk, sem kallað er „Hullabaloos". Það hefur haldið sig nálægt hreiður- stöðvum blesandarinnar, og fuglavinirnir vilja ekki að hún verði fyrir ónæði. Þýðandi þáttanna er Jóhanna Jóhanns- dóttir. ■ A1 Giddings býr sig undir heimsókn tii hákarla og illfiska í djúpinu. Sjónvarp föstudag kl. 21.05: í heimsókn hjá hákörlum ■ HEIMUR HAFDJÚP- ANNA heitir heimildamynd frá breska sjónvarpinu, BBC, um einn fremsta neðansjávar- kvikmyndatökumann í heimin- um, Al Giddings,og störfhans í hafdjúpunum. Flestum þykir víst nógu ægi- legt að sjá hákarla og illhveli í sjónvarpsmyndum og kvik- myndum, en hugsa þá lítið út í hversu ógnvænlegt hlýtur að vera að taka þessar sömu myndir. Al Giddings þykir einn fremsti myndatökumaður á sínu sviði, og hann hefur stundað neðansjávarmynda- tökur í um 20 ár, en þar áður hafði hann mikið verið við neðansjávarveiðar og var mjög fær kafari. í þessari mynd er Al Gidd- ings við störf í hafinu við Suður-Astralíu. Þar er hinn hættulegi stóri, hvíti hákarl. Fimmtudagur 31. maí Uppstigningardagur 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.20 Létt morgunlög Hljómsveit Hans Carste leikur. 8.00 Fréttir Dagskrá. 8.15 Veður- fregnir. Morgunorö - Magnús Guðjónsson talar. 8.30 Morguntónleikar a. „Lofið Drottinn himinsala”, kantata á upp- stigningardegi ettir Johann Se- bastian Bach. Elisabeth Grúmmer, Marga Höffgen, Jans-Joachim Rotsch og Theo Adam syngja með Thomaner-kórnum og Gewand- haus-hljómsveitinni í Leipzig; Kurt Thomas stj. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Afastrákur" ettir Ármann Kr. Einarsson Höfundur les (9). 9.20 Morguntónleikar, frh. b. Óbókonsert í c-moll eftir Domenico Cimarosa. Léon Goossens og Fíl- harmóníusveitin í Liverpool leika; Sir Malcolm Sargent stj. c. Con- certo Grosso í D-dúr eftir Georg Friedrich Hándel. Sinfóníuhljóm- sveit Lundúna leikur; Charles MacKerras stj. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregir. For- ustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 11.00 Messa í Áskirkju: Prestar: Séra Grímur Grímsson prédikar og séra Árni Bergur Sigurbjörns- son þjónar fyrir altari. Organleikari: Kristján Sigtryggsson. Hádegis- tónleikar. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 „Endurfæðingin“ ettir Max Ehrlich Þorsteinn Antonsson byrj- ar lestur þýðingar sinnar. 14.30 Á frívaktinni Margrét Guð- mundsdóttir kynnir óskalög sjó- manna. 15.30 Kirkjan í fjötrum ríkisvalds- ins Umsjón: Gunnlaugur Stefáns- son. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Litið við í gömlu Þorlákshöfn Jón R. Hjálmarsson ræðir við Þórð Ögmund Jóhannsson. 17.00 Fréttir á ensku 17.10 Frá tónleikum Zukofskynám- skeiðsins í Háskólabíói 20. ágúst í fyrrasumar Stjórnandi. Paul Zukofsky. a. „Dauðinn og dýrðarljóminn", tónaljóð op. 24 eftir Richard Strauss. b. „Uppstign- ingin", hljómsveitarverk eftir Olivi- er Messiaen. 18.00 Af stað með Ragnheiði Da- víðsdóttur. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Daglegt mál. Mörður Árnason talar. 19.50 Við stokkinn Stjórnendur: Margrét Ólafsdóttir og Jórunn Sig- urðardóttir. 20.00 Sagan: Flambardssetrið II. hluti, „Flugið heillar" eftir K.M Peyton Silja Aðalsteinsdóttir les þýðingu sína (7). 20.30 Hóratíus skáld Sigurlaug Björnsdóttir tók saman og flytur inngangsorð. Lesarar: Kristín Anna Þórarinsdóttir og Baldur Pálmason. 21.10 Einsöngur í útvarpssal: Magnús Jónsson syngur lög eftir Arna Thorsteinson, Sigfús Einars- son, Markús Kristjánsson, Sigurö Þórðarson ög Sigvalda Kaldalóns. Ólafur Vignir Albertsson leikur á pianó. 21.30 „Bianca verður tll“, smásaga eftir Dorrit Willumsen Vilborg Halldórsdóttir les þýðingu Halldóru Jónsdóttur. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins 22.35 Lýriskir dagar. Fyrstu Ijóða- bækur ungra skálda 1918-25. 2. þáttur: „Svartar fjaðrir" eftir Davíð Stefánsson frá Fagra- skógi Gunnar Stefánsson tók saman. Lesari með honum: Kristín Anna Þórarinsdóttir. 23.00 Síðkvöld með Gylfa Baldurs- syni. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Föstudagur 1.júní 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Morgunútvarp. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Marðar Árnasonar frá kvöldinu áöur. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Þórhildur Ólafs talar.. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Afastrákur“ eftir Ármann Kr. Einarsson. Höfundur les (10). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Tónleikar. 10.45 „Mér eru fornu minnin kær“ Einar Kristjánsson frá Hermundar- felli sér um þáttinn (RÚVAK). 11.15 Tónleikar 11.35 Tvær smásögur a. „Kaffihús á Jaffa“ eftir Mörthu Gellhorn Anna María Þórisdóttir les þýðingu sina. b. „Snæblóm" eftir Guð- mund L. FriðfinnssonHöfundur les. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 „Endurfæðingin“ eftir Max Ehrlich Þorsteinn Antonsson les þýðingu sína (2). 14.30 Miðdegistónleikar Suisse- Romandehljómsveitin leikur „La Valse“, hljómsveitarverk eftir Maurice Ravel; Ernest Ansermet stj. 14.45 Nýtt undir nálinni Hildur Ei- ríksdóttir kynnir nýútkomnar hljómplötur. 15.30 Tilkynningar. Jónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar Ingrid Ha- ebler og Háskólahljómsveitin i Vínarborg leika Píanókonsert i F-dúr op. 13 nr. 3 eftir Johann Christian Bach; Eduard Melkus stj. / Salvatore Accardo og Gewand- haus-hljómsveitin í Leipzig leika Fiðlukonserl nr. 1 í g-moll op. 26 eftir Max Bruch; Kurt Masur stj. 17.00 Fréttir á ensku. 17.10 Síðdegisútvarp. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn. Stjórnendur: Margrét Ólafsdóttir og Jórunn Sig- urðardóttir. 20.00 Lög unga fólksins Þóra Björg Thoroddsen. 20.40 Kvöidvaka a. „Fugl við glugga“ Knútur R. Magnússon les Ijóð eftir Þorstein Gíslason. b. Karlakór Dalvíkur syngur Stjórn- andi: Gestur Hjörleifsson. c. Dala- mannarabb Ragnar Ingi Aðal- steinsson spjallar við Guðmund Jóhannesson frá Reynikeldu. 21.10 „Árstíðirnar" eftir Antonio Vivaldi Jaime Laredo leikur með og stjórnar Skosku kammersveit- inni. Kynnir: Soff ía Guðmundsdótt- ir (RÚVAK). 21.35 Framhaldsleikrit: „Hinn mannlegi þáttur“ eftir Graham Greene Endurtekinn IV. þáttur: „Drápum við ekki réttan mann?“' Útvarpsleikgerð: Bernd Lau. Þýð- andi: Ingibjörg Þ. Stephensen. Leikstjóri. Arni Ibsen. Leikendur: Helgi Skúlason, Steindór Hjörleifs- son, Arnar Jónsson, Arnór Benón- ýsson, Þorsteinn Gunnarsson, Viðar Eggertsson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Erlingur Gíslason, Rúrik Haraldsson, Gísli Guð- mundsson. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 „Risinn hviti“ eftir Peter Boardman Ari Trausti Guðmunds- son byrjar lestur þýðinaar sinnar. Lesarar með honum: Asgeir Sig- urgestsson og Hreinn Magnússon. 23.00 Traðir Umsjón: Gunnlaugur Yngvi Sigfússon. 23.50 Fréttir. Dagskrárlok. 24.00 Næturútvarp frá Rás 2 til kl. 03.00. Fimmtudagur 31. maí Uppstigningadagur, og þvi engin útsending. Föstudagur 1.júní 10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn- endur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir Tómasson og Jón Ólafsson. 14.00-16.00 Pósthólfið Stjórnandi: Valdis Gunnarsdóttir. 16.00-17.00 Bylgjur Stjórnandi: Ásmundur Jónsson. 17.00-18.00 f föstudagsskapi Stjórnandi: Helgi Már Barðason. 23.15-03.00 Næturvakt á Rás 2 Stjórnandi: Ólafur Þórðarson. (Rásir 1 og 2 samtengdar með veðurfregnum kl. 01.00 og heyrist þá í Rás 2 um allt land.) sjónvarp Föstudagur 1. júní 19.35 Umhverfis jörðina á áttatíu dögum fjórði þáttur. Þýskur brúðu- myndaflokkur. Þýöandi Jóhanna Þráinsdóttir. Sögumaður Tinna Gunnlaugsdóttir. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.45 Á döfinni Umsjónamaður Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfs- dóttir. 20.55 Kapp er best með forsjá. Endursýning Fræðslumynd fyrir unga ökumenn frá Umferðarráði. 21.05 Heimur hafdjúpanna Heimildamynd frá breska sjón- varpinu, BBC, um einn fremsta neðansjávarkvikmyndatökumann í heimi, Al Giddings, og störf hans í hafdjúpunum. Þýðandi og þulur Ingi Karl Jóhannesson. 22.00 Við eins manns borð. (Separ- ate Tables) s/h. Bandarísk bió- mynd frá 1958 gerð eftir sam- nefndu leikriti eftir Terence Rattig- an. Leikstjóri Delbert Mann. Aðal- hlutverk: Burt Lancaster. Rita Hay- worth, David Niven og Deborah Kerr. A gistihúsi í Bournemouth á suðurströnd Englands liggja sam- an leiðir nokkurra einmana karla og kvenna og gengur á ýmsu i samskiptum þeirra og ástamálum. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. 23.35 Fréttir í dagskrárlok.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.