NT - 31.05.1984, Page 17

NT - 31.05.1984, Page 17
Itt Myndlist Mokka-kaffi: Á morgun opnar Hannes Sigurðsson sýningu á Mokka- kaffi og stendur hún til 18. júní. Kópavogur: Matthea Jónsdóttir, listmál- ari, opnar á laugardaginn sýn- ingu í nýjum sýningarsal að Digranesvegi 71, Kópavogi. A sýningunni verða um fimm- tíu myndir, olíu- og vatnslita- málverk. Sýningin verður opin til 17. júní, virka daga og um helgar. Fundir og mannamót Góðtemplara- reglan 100 ára ■ í tiiefni að 100 ára afmæli Góðtemplarareglunnar verður haldið unglingaregluþing á Akureyri miðvikudaginn 6. júní. Gengið verður í skrúð- göngu frá Hótel Varðborg að Oddeyrarskóla. Sama dag hefst stórstúkuþing kl. 19.30 með veislu í boði bæjarstjórnar Akureyrar á Hótel Varðborg. Ásgrímssafns: Landsþing JC Á sunnudaginn verður opn- uð hin árlega sumarsýning Ás- grímssafns. Að þessu sinni eru sýndar olíu- og vatnslitamynd- ir, þ.á.m. nokkurstórolíumál- verk frá Húsafelli og eitt af elstu verkum safnsins, sem er olíumálverk frá Vestmanna- eyjum frá árinu 1903. Sýningin verður opin daglega frá kl. 13.30 til 16.00, nema laugar- daga og stendur fram í lok ágústmánaðar. Nú stendur yfir landsþing JC hreyfingarinnar á íslandi og mun það standa til þriðja júní. Þingið er að þessu sinni haldið á Bifröst í Borgarfirði. í tengslum við þingið verður haldið sérstakt „mini-þing“ fyrir börn, og gestum þingsins gefinn kostur á að taka börn sín með sér. Stúdenta- fagnaður: Hannes Sigurðsson Matthea Jónsdóttir ■ A laugardagskvöldið gengst bekkjaráð tíu ára stúd- enta frá MH fyrir samkomu að Hótel Loftleiðum. Sýndar verða gamlar myndir af hópn- um og leikin verða lög frá árum áður. Miðar verða seldir til laugardagsmorguns í MH. Allir kennarar menntaskólans eru einnig velkomnir á sam- komuna. Doktorsvörn: ■ Á laugardaginn fer fram doktorsvörn í heimspekideild Háskóla íslands. Hans Jacob Debes, cand. mag., mun verja ritgerð sína „Nú er tann stundin...“ til doktorsnafnbót- ar í heimspeki. Ritgerðin ber undirtitilinn „Tjóðskapar rörsla og sjálfstýripolitikkur til 1906 - við sögulegum baksýni" og kom út í Þórshöfn í Færeyj- um í desember 1982. Ritið sem er á færeysku er um 400 blað- síður. Doktorsvörnin fer fram í hátíðasal háskólans og hefst kl. 14.00. Öllum er heimill aðgangur. itudagur 31. maí 1984 17 Námskeið í skyndihjálp ■ Á þriðjudaginn mun hefj- ast námskeið í almennri skyndi- hjálp sem Reykjavíkurdeild RKI gengst fyrir. Námskeiðið verður haldið í húsnæði RKÍ að Nóatúni 21. Þeir sem vilja taka þátt í námskeiðinu geta látið skrá sig að Öldugötu 4, sími 28222. Skemmtanir Álafosskórinn: ■ Á laugardaginn heldur Álafosskórinn kvöldskemmt- un í Hlégarði kl. 21.00. Ein- sönvarar með kórnum eru Helgi Einarsson og Dór Reyndal, söngstjóri er Páll Helgason. Á skemmtuninni verður sýndur tískufatnaður frá Álafossi h.f. Skagfirðinga- félögin: ■ Skagfirðingafélögin í Reykjavík halda árlegt gesta- boð fyrir eldri Skagfirðinga í félagsheimilinu Drangey, Síðumúla 35 í dag. Boðið hefst kl. 14.00. Leiklist Þjóðleikhúsið: ■ Á laugardagskvöldið verð- ur söngleikurinn Gæjar og píur sýndur í þrítugasta sinn í Þjóð- leikhúsinu. Uppselt er á þessar sýningar og næstu sýningar verða þriðjudaginn fimmta júní og fimmtudaginn sjöunda júní. Föstudaginn áttunda júní frumsýnir Þjóðleikhúsið nýtt íslenskt leikrit, Milli skinns og hörunds eftir Ölaf Hauk Sím- onarson. Leikritið verður ein- ungis sýnt tvisvar sinnum á Listahátíð. Utivist og terðalög Sviff lugfélagið: ■ í júní hefst regluleg starf- semi Svifflugfélags íslands og verður flogið á hverju kvöldi frá kl. 18.00 og allar helgar þegar veður leyfir, frá Sand- gerði. Kennsla hefst 4. júní og er innritun þegar hafin. Upp- lýsingar fást í síma 74288 og á Sandskeiði þegar flogið er. Útivistarferðir: ■ HvítasunnuferðirÚtivistar 8.-11. júní: 1) Þórsmörk. Gönguferðir, kvöldvökur. Góð gistiaðstaða í Útivistarskálanum Básum. Fararstjórar: Óli G. H. Þórð- arson og Lovísa Christiansen. 2) Snæfellsnes-Snæfellsnesjök- ull. Gist í Lýsuhóli. Sundlaug og heitur pottur. Léttar strand- göngur eða fjallgöngur. Sigling um Breiðafjarðareyjar. Far- arstjórar: IngibjörgS. Ásgeirs- dóttir og Steingrímur Gautur Kristjánsson. 3) Purkey á Brciðafirði. 4) Öræfí-Skaftafell. Göngu- og skoðunarferðir. Snjóbílaferð í Mávabyggðir í Vatnajökli. Tjaldað í Skaftafelli. Farar- stjóri: Kristján M. Baldursson. 5) Öræfajökull-Skaftafell. Tjaldað í Skaftafelli. Farar- stjórar: Egill Einarsson og Jón Gunnar Hilmarsson. Opið hús á mánudagskvöldið 4. júníkl. 17-22. Kynning á hvítasunnu- ferðum. Útivistardagur fjölskyldunnar: ■ Á sunnudaginn hefst úti- vistardagur fjölskyldunnar kl. 10.30. Kræklingaferð Hvammshöfða-Hvammsvík. Kl. 13.00 verður síðan krækl- ingaferð að Hvítanesi og Fossá í Hvalfirði. Ferðinni lýk- ur við fjárréttina hjá Fossá. Brottför frá.BSÍ, bensínsölu. Hvítasunnuferðir Ferðafélagsins ■ Áttunda til ellefta júní verða hvítasunnuferðir Ferða- félagsins. Gengið verður á Öræfajökul, gist í tjöldum í Skaftafelli. Auk þess verður farið í Þórsmörk og á Snæfells- nes þar sem gengið verður á jökulinn. Allar upplýsingar fást á skrifstofunni, Öldugötu 3. Þingvellir: ■ Tjaldsvæði og hljólhýsa- stæði í þjóðgarðinum á Þing- völlum verða opnuð þriðju- daginn 12. júní næstkomandi. Sama dag hefst reglubundin umhverfisfræðsla með göngu- ferðum. Alla daga vikunnar er einn af starfsmönnum þjóð- garðsins staddur við Hringsjá á vestari brún Almannagjár kl. 8.45 að morgni. Gengið verður norður að „Köstulum" og það- an suður með Öxará austan- verðri heim á Þingvallastað. Á föstudögum og laugardögum er í boði gönguferð frá „Köst- ulum“ að Skógarkoti og þaðan inn á Leira. Gengið verður ' eftir leiðsögn starfsmanns þjóðgarðsins. Kirkjur og satnaðarlíf Breyttur messutími í Bústaðasókn: ■ Fyrirhugað er að breyta messutíma í Bústaðasókn þannig að frá og með næsta sunnudegi verður messað kl. 10. Er hér um að ræða tilraun sem stendur yfir í þrjá mánuði. Að þeim tíma loknum verður þessi tilhögun endurskoðuð. Dagur aldraðra: ■ Áuppstigningardagverður aldraðs fólks sérstaklega minnst í kirkjum landsins, bæði við guðsþjónustur og á sérstökum samkomum. Upp- stigningardagur var kjörinn öldrunardagur kirkjunnar 1982, í samráði við nefnd sem sérstaklega vinnur að þeim málum á vegum kirkjunnar, að því er fram kemur í frétta- tilkynningu. Formaður hennar er sr. Tómas Guðmundsson. Hefur biskup íslands hvatt til þess að þessi uppstigningar- dagur verði helgaður málefn- um aldraðra með sama hætti og undanfarin ár. útvarp Mánudagur 4. júní 7.00 Veðyrfregnir. Fréttir. Bæn. Ragneiður Erla Bjar'nadóttir flytur (a.v.d.v.J. Morgunútvarp - lllugi Jökulsson og Hanna Sigurðardótt- ir. 7.25 Leikfimi. Jónina Benedikts- dóttir (a.v.d.v.). 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. . Morgunorð - Þrúður Sigurðardótt- ir, Hvammi í Ölfusi, talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Hindin góða“ eftir Kristján Jó- hannsson. Viðar Eggertsson byrj- ar lesturinn. 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. landsmálabl. (útdr.). Tónleikar. 11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum árum. Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson. 11.30 Reykjavik bernsku minnar. Endurtekinn þáttur Guðjóns Frið- rikssonar frá sunnudagskvöldi. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.30 Kanadísk og norsk lög. Mon- ique Leyrac, Gilles Vineault og Nora Brocksted syngja. 14.00 „Endurfæðingin“ eftir Max Ehrlich Þorsteinn Antonsson les þýðingu sina (3). 14.30 Miðdegistónleikar. Christina Ortiz. Jean Temperley, Madrigal- akórinn og Sinfóniuhljómsveit Lundúna flytja „The Rio Grande", tónverk fyrir pianó, mezzósópran, kór og hljómsveit eftir Constant Lambert; André Previn stj, 14.45 Popphólfið - Sigurður Krist- insson. 15.30 Tilkynningar. tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar Fíharmón- iusveitin i Lundúnum leikur forleik að óperunni j„Vilhjálmi Tell“ eftir Giocchino Rossini; Roccardo Muti stj. / Barbara Hencricks syngur með Fílharmóniusveitinni í Monte Carlo ariur úr óperum eftir Hector Berlioz; Jeffrey Tate stj. / Hermann Prey syngur meö Rikishljómsveit- inni i Dresden aríur úr óperunni „Don Giovanni" eftir Wolfgang Amadeus Mozart; Otmar Suitner stj. / Sinfóníuhljómsveitin i Monte Carlo leikúr „Pomp og Circum- stance", mars nr. 1 eftir Edward Elgar og „Fackeltanz" nr. 1 eftir Giacomo Meyerbeer; Hans Carste stj. 17.00 Fréttir á ensku 17.10 Síðdegisútvarp Sigrún Björnsdóttir og Sverrir Gauti Di- ego. Tilkynningar. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 Daglegt mál. Mörður Arnason talar. 19.40 Um daginn og veginn Baldvin Þ. Kristjánsson talar. 20.00 Lög unga fólksins. Þorsteinn J. Vilhjálmsson kynnir. 20.40 Kvöldvaka. a. Hugað í Hlín. Jórunn Ólafsdóttir frá Sörlastööum les úr ársriti islenskra kvenna, b.Slysið við Málmey. Þorbjörn Sigurðsson les frásöguþátt eftir Björn Jónsson í Bæ. Umsjón: Helga Ágústsdóttir. 21.10 Nútimatónlist Þorkell Sigur- björnsson kynnir. 21.40 Útvarpsagan: „Þúsund og ein nótt“ Steinunn Jóhannesdóttir les valdar sögur úr safni i þýðingu Steingrims Thorsteinssonar (21). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Ðagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Kammertónlist a. „Trio conc- ertant" í G-dúr eftir Friedrich Ku- hlau. John Damgaard Madsen, Claes Eriksson og Gert von Búlow leika á píanó, flautu og selló. b. „Grand Duo concertant í Es-dúr op. 48 eftir Carl Maria von Weber. Gervase de Peyer og Cyril Preedy leika á klarinettu og píanó. 23.10 Norrænir nútimahöfundar 11. þáttur: John Gustavsen Njörður P. Njarðvík sér um þáttinn og ræðir við höfundinn sem les úr verkum sinum. Einnig les Njörður stuttan skáldsögukafla eftir Gust- avsen í eigin þýðingu. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Þriðjudagur 5. maí 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. ÞátturMarðar Árnasonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Oddur Albertsson talar. 9.00 Freftir. 9.05 Morgunstund barnanna. „Hindin góða“ eftir Kristján Jó- hannsson Viðar Eggertsson les (2). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkyningar. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.) 10.45 „Man ég það sem löngu leið“ Ragnheiður Viggósdóttir sér um þáttinn. 11.15 Tónleikar Ólafur Þórðarson kynnir. 12.00 Dagskrá. Tónleikar, Tilkynn- ingar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.30Sven Bertil Taube syngur lög eftir Theodorakis Art Blakel- ey, Count Basie o.fl. leika jasslög. 14.00 „Endurfæðingin“ eftir Max Ehrlich Þorsteinn Antonsson les þýðingu sina (4). 14.30 Miðdegistónleikar Hljómsveit Tonlistarskólans í París leikur danssýningarlög eftir Giuseppe Verdi og Camille Saint-Saéns; Anatole Fistoulari stj. 14.45 Upptaktur - Guðmundur Benediktsson. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Frettir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Síðdegistónleikar Guðmund- ur Jónsson syngur með karlakór Reykjavikur „Flyv, fugl, flyv", eftir Johan Hartmann; Sigurður Þórðar- son stj. / Guðmunda Elíasdóttir syngur „Skal blomstrene da visne" og „Irmelin Rose“ eftir Carl Niels- en. Anna Pjeturss leikur á pianó. / Karlakór Reykjavíkur syngur „Fæ- drelandssang" eftir Carl Nielsen: Sigurður Þórðarson stj. / Manuela Wiesler og Sinfóniuhljómsveit danska útvarpsins leika „Euridice" fyrir Manuelu og hljómsveit eftir Þorkel Sigurbjörnsson; Gunnar Staern stj. / Sinfóníuhljómsveit ís- lands leikur „Jalousie" eftir Jacob Gade; Páll P. Pálsson stj. 17.00 Fréttir á ensku. 17.10 Síðdegisútvarp. 18.00Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn Stjórnandi: Gunnvör Braga. 20.00 Sagan: Flambardssetrið II. hluti, „Flugið heillar" eftir K.M. Peyton Silja Aöalsteinsdóttir les þýðingu sina (4). 20.30 Ensk þjóðlög. 20.40 Kvöldvaka a. Hafnfirski söðlasmiðurinn í Klattau Gunnar Stefánsson les frásögu þátt eftir Jón Helgason ritstjóra. b. Úr Ijoð- um Fornólfs Þorsteinn frá Hamri les. 21.10 Frá ferðum Þorvaldar Thor- oddsen um Island 1. þáttur: Austurland sumarið 1882. Umsjón:Tómas Einarsson, Lesari með honum:Snorri Jónsson. 21.45 Utvarpssagan: „Þúsund og ein nótt“ Steinunn Jóhannesdóttir les valdar sögur úr safninu í þýðingu Steingrims Thorsteins- sonar (22). 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Listahátíð 1984: Tohleikar i Bústaðakirkju 3. þ.m. Gunnar Kvaran og átta aðrir sellóleikarar flytja ásamt Elísabetu Erlingsdótt- ur söngkonu tónlist eftir Johann Sebastian Bach og Villa-Lobos. - Kynnir: Ásgeir Sigurgestsson. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Mánudagur 4. júní 1984 10.00-Í2.00 Morgunþáttur Róleg tónlist fyrstu klukkustundina, með- an plötusnúðar og hlustendur eru aö komast í gang eftir helgina. Kl. 11.30 er gluggaö i erlenda vin- sældalista. Stjórnendur: Páll Þor- steinsson, Ásgeir Tómasson og Jón Ólafsson. 14.00-15.00 Dægurflugur. Nýjustu dægurlögin. Stjórnandi: Leopold Sveinsson. 15.00-16.00 Á rólegu nótunum. Tónlistar og viðtalsþáttur. Stjórn- andi: Arnþrúður Karlsdóttir. 16.00-17.00 Á norðurslóðum. Gö- mul og ný dægurlög frá Norður- löndum. Stjórnandi: Kormákur Bragason 17.00-18.00 Asatími. Umferðaþátt- ur. Stjórnendur: Ragnheiður Da- viösdóttir og Júlíus Einarsson. Þriðjudagur 5. júní 10.00-12.00 Morgunþáttur. Síma- timi. Spjallað við hlustendur um ýmis mál líðandi stundar. Músík- getraun. Stjórnendur: Páll Þor- steinsson, Asgeir Tómasson og Jón Ólafsson. 14.00—16.00 Vagg og velta. Létt lög af hljómplötum. Stjórnandi Gisli Sveinn Loftsson. 16.00-17.00 Þjóðlagaþáttur. Kom- ið við vítt og breitt i heimi þjóðlaga- tónlistarinnar. Stjórnandi: Kristján Sigurjónsson 17.00-18.00Frístund. Unglingaþátt- ur. Stjórnandi: Eðvarð Ingólfsson. Mánudagur 4. júní 19.35Tommi og Jenni Bandarísk teiknimynd. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Myndlistarmenn 1. Einar Hákonarson, listmálari. Kynning- arþættir um íslenska listamenn sem sjónvarpið hefur látið gera í tilefni Listahátíðar 1984. Umsjón: Halldór Björn Runólfsson, list- fræðingur. Stjórn upptöku: Valdi- mar Leifsson. 20.45 Regndansinn Finnsk sjón- varpsmynd. Leikstjóri er Kari Palj- akka en leikendur eru finnskir leik- listarnemar. Brugöið er upp mynd af ungu fólki, sem er að hlaupa af sér hornin og er ekki ennþá undir það búið að axla mikla ábyrgð. Þýðandi: Kristin Mantyla. (Nor- dvision-Finnska sjónvarpið) 21.25 Vika vatnsins Verðlaunamynd frá BBC gerð i samvinnu við Barnahiálp Sameinuðu þjóðanna. Myndin er um lifsbaráttu fólks á þurrkasvæði í. Afriku og beinist athyglin einkum að hjónum nokkr- um i sveitaþorþi í Efra-Volta og ungri dóttur þeirra. Þýðandi: Jón O. Edwald. 22.05 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 23.35 Fréttir í dagskrárlok.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.