NT - 31.05.1984, Side 18
Fimmtudagur 31. maí 1984 18
Martial Solai.
Bob Kerr’s Whoopee Band.
rokk og klassík
Jass,
- auk fjölda myndlistarsýninga
■ Þegar hefur veriö greint
frá opnunarhátíð Listahátíöar
hér í blaðinu og því sem þar
verður á boðstólum. Vonandi
verður ekki svo af listunnend-
um dregið eftir hana að þeir
komist ekki af stað um hádegi
á laugardag til að fylgjast með
því sem Listahátíð býður þá
upp á.
Annars staðar er sagt frá
þeim myndlistarsýningum sem
opnaðar verða á laugardaginn
En það er ekki bara myndlist
sem verður á döfinni á laugar-
daginn.
Klukkan 16.30 koma hinir
bráðhressu meðlimir hljóm-
svcitarinnar Bob Kerr’s
Whoopee Band fram á Lækjar-
torgi. Þcir félagar byrjuðu að
spila saman á háskólaárum sín-
um og eru víðfrægir og eiga
víða aðdáendaklúbba, m.a.
hér á íslandi.
Aðalforsprakki sveitarinn-
ar, Bob Kerr, er þekktastur
þeirra félaga, m.a. fyrir lagið
„Winchester Cathedral," sem
hann söng fyrir allmörgum
árum og gerði frægt. Ennfrem-
ur tók hann þátt í hljómleika-
ferðum með „Loving Spoon-
ful“, „Mamas and the Papas“,
„Count Basie“ ogfleirum. Bob
Kerr og félagar verða svo aftur
á ferðinni á sunnudaginn á
Lækjartorgi á sama tíma og á
Broadway á sunnudagskvöld.
Klukkan 17.00 á laugardaginn
hefjast svo tónleikar franska
jasspíanistans Martial Solai í
Norræna húsinu. Solai er með-
al allra fremstu jasspíanista
Evrópu og jafnvel heimsins að
sögn fróðra manna og hefur
leikið með mörgum af stærstu
nöfnum jassins, svo sem
Kenny Clarke, Niels-Henning
Örsted Pedersen og fleirum.
Hann hefur annars nokkra sér-
stöðu meðal jasspíanista að
því leyti að hann nam klassísk-
an píanóleik og snéri sér ekki
að jassinum fyrr en sem full-
orðinn maður og svipar honum
að þessu leyti til Guðmundar
„okkar“ Ingólfssonar, Solai
verður aftur á ferðinni í
Broadway á sunnudagskvöld-
ið.
Á laugardagskvöldið kl.
20.00 hefst í Gamla bíói gesta-
leikur frá Borgarleikhúsinu í
Stokkjiólmi. Nefnist verkið
„Nár man har kánslor“ og er
samið eftir verkum finnskrar
konu sem uppi var í byrjun
aldarinnar. Þetta verk hefur
notið gífurlegrar hylli sænskra
leikhúsgesta síðasta leikár.
Leikendur eru tveir, Birgitta
Ulfsson og Stína Ekblad. Ulfs-
son hefur áður komið hingað
til lands með Lilla teatem frá
Helsinki, en Stína Ekblad, sem
einnig er finnsk hefur nýlega
byrjað að príla upp á stjörnu-
himininn, hún leikur eitt af
aðalhlutverkunum í nýjum
sænskum framhaldsmynda-
flokki um líf Agústs
Strindbergs. Onnur sýning á
„Nár man harkánslor" verður
á sama stað á sunnudag kl.
20.00.
Af viðburðum helgarinnar
er þá enn ógetið þriggja tón-
leika sem haldnir verða á
sunnudaginn. Innlendir tón-
listarviðburðir Listahátíðar
verða flestir í Bústaðakirkju,
hinir fyrstu verða sérstæðir
tónleikar Gunnars Kvaran og
8 annarra sellóleikara kl. 20.30
á sunnudagskvöld, ásamt
Elísabetu Erlingsdóttur söng-
konu. Gunnar flytur fyrst ein-
leikssvítu Bachs nr. 3 fyrir
selló, en síðan taka við tvö
verk eftir H. Villa Lobos fyrir
8 selló og sópranrödd. Verkin
eru Bachianas Brasieiras no. 1
og no. 5. Þau hafa ekki verið
flutt hérlendis áður og Villa
Lobos er reyndar ekki mjög
þekktur hér. Allir sellóleikar-
arnir sem taka þátt í flutningn-
um með Gunnari eru núver-
andi nemendur hans við Tón-
iistarskólann í Reykjavík.
Klukkan 21.00 á sunnudags-
kvöld hefst samnorræn rokk-
hátíð í Laugardalshöllinni
undir yfirskriftinni Norrokk.
Þar koma fram hljómsveitirnar
Clinic Q frá Danmörku, Impe-
riet frá Svíþjóð, Hefty Load
frá Finnlandi, Cirkus Modern
frá Noregi og fulltrúar íslands
verða Þursarnir og Vonbrigði.
Þeir sem ekki verða í skapi
til að hlusta á klassík eða rokk
á sunnudagskvöld geta farið í
Broadway, þar sem boðið
verður upp á jass. Þar leikur
sænska kvennahljómsveitin
Quintetten ásamt Martial Sol-
ai. Quintetten er reyndar ekki
alveg sænsk því í henni leikur
einn fárra jassgítarleikara
heimsins sem er kvenkyns og
hún er íslensk og heitir Guðrún
Hauksdóttir. Til bragöbætis
með jassinum leikur svo Bob
Kerr’s Whoopee Band og kveð-
ur þar með listahátíðina.
útvarp
Miðvikudagur
6. júní
7.00 Veöurtregnir. Fréttir. Bæn. Á
virkum degi. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Halldóra Rafnar talar.
9.00 Freltir.
9.05 Morgunstund barnanna.
„Hindin góða“ eftir Kristján Jó-
hannsson Viöar Eggertsson les
(3).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10Veðurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.)
10.45 l'slenskir einsögnvarar og
kórar syngja.
11.15 Guðbrandur biskup Þorláks-
son og bókaútgáfa hans Séra
Björn Jónsson flytur erindi. Tón-
leikar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Pink Floyd, Roger Waters,
David Gilmour, Richard Wright
o.f. leika og syngja.
14.00 „Endurfæðingin" eftir Max
Ehrlich Þorsteinn Antonsson les
þýðingu sina (5).
14.30 Miðdegistónleikar. Sinfóniu-
hljómsveit útvarpsins i Munchen
leikur Slavneska dansa op. 72 eftir
Antonín Dvorák; Rafael Kubelik
stj.
14.45 Popphólfið-JónGústafsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. Sinfóníu-
hljómsveit danska útvarpsins
leikur Sinfóníu nr. 6 eftir Carl
Nielsen; Herbert Blomsted stj.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Síðdegisútvarp Tilkynningar.
18.45 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn. Stjórnandi:
Gunnvör Braga.
20.00 Ungir pennar Stjórnandi: Hild-
ur Hermóðsdóttir.
20.10 Var og verður. Um iþróttir,
útilif o.fl. fyrir hressa krakka.
Stjórnandi: Matthías Matthíasson.
20.30 Listahátið 1984: Christa Lu-
dwig og Erik Wergba Beint útvaip
frá fyrri hluta tónleikanna í Háskól-
abiói. - Kynnir: Baldur Pálmason.
21.25 Mozart-hljómsveitin í Vinar-
borg leikur dansa eftir Wolfgang
Amadeus Mozart; Willi Boskovsky
stj. .
21.40 Utvarpssagan: „Þúsund og
ein nótt“ Steinunn Jóhannesdóttir
les valdar sögur úr safninu í
þýðíngu Steingríms Thorsteins-
sonar (23).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Aldarslagur. Gullleit i Reykja-
vík. Umsjón: Eggert Þór Bern-
harðsson. lesari með honum: Þór-
unnValdimarsdóttir.
23.15 íslensk tónlist Guðmundur
Jónsson leikur fjórar pianó-etýður
eftir Einar Markússon / Björn Guðj-
ónsson og Gísli Magnússon leika
Trompetsónötu op. 23 eftir Karl O.
Runólfsson / Kammersveit Reykj-
avikur leikur þrjú islensk þjóðlög i
útsetningu Jóns Ásgeirssonar.
Freftir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
7. júní
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn
Morgunútvarp. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir 8.15 Veður - Morgunorö
- Jón Hjartar talar.
9.00 Frettir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Hindin góða“ eftir Kristján Jó-
hannsson Viðar Eggertsson les
(4).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.). tónleikar.
11.00 „Eg man þá tið“ Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 „Gamla heyið“, smásaga eft-
ir Guðmund Firðjónsson. Kle-
menz Jónsson les.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 „Endurfæðingin" eftir Max
Ehrlich Þorsteinn Antonsson les
þýðingu sína (6).
14.30 Á frívaktinni Sigrún Sigurðar-
dóttir kynnir óskalög sjómanna.
Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir.Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Siðdegistónleikar
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Siðdegisútvarp Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
Daglegt mál. Mörður Árnason
flytur.
19.50 Við stokkinn Stjórnandi:
Gunnvör Braga.
20.00 Sagan: Flambardssetrið II.
hluti, „Flugið heillar" eftir K.M.
Peyton Silja Aðalsteinsdóttir les
þýðingu sína (9).
20.30 Leikrit: „Nótt á níundu
hæð“ eftir Agnar Þórðarson
Leikstjóri: Brynja Benediktsdóttir.
Leikendur: Róbert Arnfinnsson,
Jóhann Siguöarson, Auður Guð-
mundsdóttir, Saga Jónsdóttir og
Þórir Steingrímsson.
21.05 Einsöngur i útvarpssal Elín
Sigurvinsdóttir syngur lög eftir
Maríu Markan. (Frumflutningur).
ólafur Vignir Albertsson leikur á
pianó.
21.30 Af sígaunum Fyrsti þáttur með
tónlistarivafi um sögu þeirra og
siöi. Þorleifur Friðriksson tók
saman. lesari með honum: Grétar
Halldórsson.
22.15 Veðurfregnir. Frétir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Listahátíð 1984: Helga Ing-
ólfsdóttir leikur á sembal. Útvarp
frá tónleikum i Kristskirkju fyrr um
kvöldið. - Kynnir: Þorsteinn Hann-
esson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Miðvikudagur 6. júní
10.00-12.00 Morgunþáttur. Kynn-
ing á heimsþekktum tónlistar-
manni eöa hljómsveit. Stjórn-
endur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir
Tómasson og Jón Ólafsson.
14.00-15.00 Út um hvippinn og
hvappinn. Leikin verða létt lög úr
hinum ýmsu áttum. Stjórnandi:
Arnþrúöur Karlsdóttir.
15.00-16.00 Ótroðnar slóðir. Trú-
artónlist. Stjórnendur: Andri Már
Ingólfsson og Halldór Lárusson.
16.00-17.00 Nálaraugað. Gömul
úrvalslög. Stjórnandi: Jónatan
Garðarsson
17.00-18.00 Tapað - Fundið Leikin
verður létt soul-tónlist. Stjórnandi:
Gunnlaugur Sigfússon.
Fimmtudagur 7. júní
10.00-12.00 Morgunþáttur. Kl.
10.30 innlendir og erlendir frétta-
' punktar úr dægurtónlistarlifinu.
Uppúr ellefu: Fréttagetraun úr dag-
blöðum dagsins. Þátttakendur
hringja í plötusnúð. Kl. 12.00-
14.00 símatimi vegna vinsælda-
lista. Stjórnendur: Páll Þorsteins-
son, Ásgeir Tómasson og Jón
Ólafsson.
14.00-16.00 Eftir tvö. Létt dægur-
lög. Stjórnendur: Pétur Steinn
Guðmundsson og Jón Axel Ólafs-
son.
16.00-17.00 Jóreykur að vestan.
Kántrí-tónlist. Stjórnandi: Einar
Gunnar Einarsson.
17.00-18.00 Lög frá 7. áratugnum.
Vinsæl lög frá árunum 1962 til
1974 — Bítlatímabilið.
Þriðjudagur
5. júní
19.35 Hnáturnar Lokaþáttur Þýöandi
Þrándur Thoroddsen. Sögumaður
Edda Björgvinsdóttir.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Myndlistarmenn 2. Ragnar
Kjartansson, myndhöggvari og
leirkerasmiður.
20.40 Á jarnbrautaleiðum (Great
Little Railways) Nýr flokkur - 1.
Gullgrafaralestin heimildamyndafl-
okkur í sjö þáttum frá breska
sjónvarpinu, BBC, um gamlar
jarnbrautir og lestarferðir á fögrum
og oft fáförnum slóðum i Norður-
og Suður-Ameriku, Evrópu og
Asíu. Þýðandi og þulur: Ingi Karl
Jóhannesson.
21.25 Verðir laganna 3. Pólitíkin er
söm við sig Bandarískur fram-
haldsmyndaflokkur um lögreglu-
störf í stórborg. Þýðandi Bogi Arn-
ar Finnbogason.
22.15 Einkarekstur - opinber
rekstur? Pallborðsumræður á
ráðstefnu sem Stjórnunarfélag ís-
lands gekkst fyrir á Hótel Sögu, 9.
mai siðastliðinn og sjónvarpið lét
þá taka upp. Þátttakendur eru:
Árni Gunnarsson, Ingi R. Helga-
son, Jón Magnússon, Valur
Valsson, Vilhjálmur Egilsson og
Þröstur Ólafsson. Umræðum stýrir
Þórður Friðjónsson.
23.20 Fréttir í dagskrárlok
Miðvikudagur
6.júní
19.35 Söguhornið Gamla rauða
ryksugan.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Myndlistarmenn 3. Björg
Þorsteinsdóttir, listmálari og
grafiker.
20.45 Dýr í Alpafjöilum Þýsk nátt-
úrulifsmynd um dýr og fugla sem
eiga heimkynni i Alpafjöllum. Þýð-
andi Óskar Ingimarsson.
21.35 Berlin Alexanderplatz Fjórði
þáttur. Þýskur framhaldsmynda-
flokkur i fjórtán þáttum, gerður eftir
samnefndri skáldsögu eftir Alfred-
Döblin. Leikstjóri Rainer Werner
Fassbinder. Efni þriðja þáttar:
Frændi Linu ræður Biberkopf til að
ganga á milli húsa og selja
skóreimar. Það verður Franz mikið
áfall þegar þessi félagi bregst
trausti hans. Þýðandi Veturliði
Guðnason
22.35 Úr safni Sjónvarpsins Þjóð-
garðurinn i Skaftafelli. Kvikmynd
frá sumrinu 1970. Stjórnun: Órn
Harðarson Textahöfundur og
þulur: Birgir Kjaran. Leiðsögumaö-
ur: Ragnar Stefánsson.
23.10 Fréftir í dagskrárlok