NT - 31.05.1984, Side 26
Fjórði Evrópu-
meistaratitill
Liverpool
■ Enn streyma bikararnir til
Liverpoolborgar. Englands-
meistarar Liverpool tryggðu
sér í gærkvöld Evrópubikarinn
í knattspyrnu er þeir sigruöu
ítalska liöiö Roma í úrslitum
Evrópukeppni meistaraliða á
Olympíuleikvanginum í Róm.
Þeir unnu þó ekki átakalaust
því vítaspyrnukeppni þurfti til,
þar sem liðin stóðu jöfn eftir
venjulegan leiktíma og fram-
lengingu, eitt mark gegn einu.
Það voru Liverpool leik-
mennirnir sem voru á undan að
skora. Phil Neal skoraði á 15.
mínútu eftir mikil varnarmis-
tök Rómverja. Eftir markið
sóttu leikmenn Roma án afláts
að marki Liverpool og náðu að
jafna mínútu fyrir leikhlé. Það
var Pruzzo sem skallaði knött-
inn yfir Grobbelaar í marki
Liverpool. Staðan í hálfleik var
því jöfn 1-1.
Síðari hálfleikur var nokkuð
jafn og hvorugu liðinu tókst að
skapa sér umtalsverð mark-
tækifæri. Leiknum var því
framlengt, en þrátt fyrir það
stóð markatalan 1-1 eftir
óhögguð. Það þurfti því víta-
spyrnukeppni til þess að fá úr
því skorið hvort Liverpool eða
Roma hreppti Evrópubikarinn
eftirsótta.
Fyrstu spyrnuna af fimm,
sem hvort lið fékk, tók Steve •
Nicol fyrir Liverpool, en hann
hafði komið inná sem varamað-
ur í leiknum. Nicol skaut yfir
og vonir Liverpool virtust
hverfandi. Bartolomei skoraði
fyrir Roma og Phil Neal fyrir
Liverpool, úr næstu spyrnum.
En nú var komið að Roma að
klikka. Úr annarri spyrnu liðs-
ins skaut Bruno Conti yfir og
möguleikar liðanna voru aftur
orðnir jafnir. Greham Souness
tók næstu spyrnu fyrir Liver-
pool og skoraði örugglega.
Pressa var nú öll á Roma, en
Righetti skoraði úr næstu víta-
spyrnu liðsins. Ian Rush tók
fjórðu vítaspyrnu Liverpool,
og þessum mikla markaskorara
brást ekki bogalistin að þessu
sinni. Úr fjórðu spyrnu Roma
skaut Graziani yfir markið og
gerði vonir Roma að engu því
Alan Kennedy innsiglaði sigur
Liverpool með öruggri víta-
spyrnu í lokin. Liverpool eru
því Evrópumeistarar í knatt-
spyrnu 1984.
■ Graeme Souness faömar Phil
Neal eftir að sá síðarnefndi hafði
skorað fyrir Liverpool á 15. mínútu
leiksins. Ánægjusvipurínn leynir
sér ekki á andliti Kenny Dalglish.
Símamynd-POLFOTO
-----. * * uj
’ Hmmtudagur 31. tríáí 1984
26
■ Frá leik Breiðabliks og Víkings í upphafi íslandsmóts í
fyrra. Hrund Grétarsdóttir Víkingi og Svava Tryggvadóttir
Breiðabliki berjast um knöttinn. Bæði Víkingur og
Breiðablik verða í eldlínunni í dag, Víkingur gegn Val og
Breiðablik gegn KR.
Kvennaboltinn
af stað
■ í dag byrjar boltinn að
rúlla hjá kvenfólkinu og eru
fleiri lið með en áður. Það
eru alls 22 lið sem munu
keppa í fyrstu og annarri
deild. Fyrirkomulag mótsins
verður með örlítið breyttum
hætti en áður þ.e. að nú
verða tveir ríðlar í 1. deild og
tveir í 2. deild og spila síðan
sigurvegararnir í hvorum
riðli í hvorri deild til úrslita.
Eins og áður sagði þá
hefst keppnin í dag með
eftirtöldum leikjum:
1. d. A-rlðill:
Akranesvöllur
ÍA-ÍBÍ kl. 20:00
KR-völlur
KR-UBK kl. 14:00
Víkingsvöllur
Víkingur-Valur kl. 20:00
2. d. A-riðill:
ídag
Arbæjarvöllur
Fylkir-Haukar kl. 20:00
Framvöllur
Fram-Víðir . kl. 14:00
Grindavikurvöllur
Grindavík-FH kl. 20:00
B-riðill:
Hveragerðisvöllur
Hveragerði-ÍR kl. 14:00
Selfossvöllur
Selfoss-ÍBK kl 20:00
Stjörnuvöllur
Stjarnan-Afturelding kl. 20:00
Síðan rúllar deildin áfram
og þegar upp verður staðið
þann 25. ágúst munu íslands-
meistarar í kvennaknatt-
spyrnu verða krýndir. í fyrra
voru það Breiðabliksstúlk-
urnar sem hrifsuðu til sín
bæði íslands- og Bikarmeist-
aratign og í ár munu liðin
leggja kapp á að stöðva Blik-
ana.
Irar einir gegn
Austantjaldsþjóðum
■ írar eru komnir í undanúr-
slit í Evrópukeppni unglinga-
landsliða ásamt þremur austan-
tjaldsþjóðum þ.e. Pólverjum,
Sovétmönnum og Ungverjum.
Sovétmenn eru fyrirfram taldir
sigurstranglegastir og það kem-
ur í hlut íra að spila gegn þeim
í undanúrslitum.
Lokastaðan í riðlunum varð
þessi:
A-riðill:
írland........... 3 2 1 0 7-3 5
Skotland .........3 1114-5 3
Portúgal ........ 3 1 0 2 6-7 2
Grikkland........ 3 0 2 1 3-5 2
B-riðill:
Polland .......... 3 3 0 0 3-0 6
Búlgaria..........3 1113-3 3
Ítalía .......... 3 1 0 2 3-2 2
Danmörk.......... 3 0 1 2 2-6 1
C-riðill:
Sovétríkin....... 3 2 1 0 7-1 5
England.......... 3 1 2 0 4-2 4
A-Þýskal..........3 1115-2 3
Lúxemborg...... 3 0 0 3 0-11 0
D-riðill:
Ungverjaland ... 3 3 0 0 6-1 6
Spánn .........3 1114-4 3
Tékkóslóvakía ..31113-5 3
Sviss ......... 3 0 0 3 2-5 0
Karl æfir
á fullu
■ Skagamaðurinn knái
Karl Þórðarson er kominn
heim frá Frakklandi og
byrjaður að æfa á fullu
með sínum mönnum á
Skipaskaga. Karl er ekki
orðinn löglegur ennþá og
verður því ekki með gegn
Víkingum á laugardag.
Karl mun hins vegar verða
orðinn klár gegn Vals-
mönnum 6. júní, en sá
leikur verður á Akranesi.
Fyrsta deildin í kvöld:
KR gegn Fram
■ í kvöld er einn leikur í 1.
deild karla í knattspyrnu, KR
mætir Fram á Laugardalsvelli
klukkan 20.00. Þessi leikur er
fyrsti leikur fjórðu umferðar,
en hinir leikirnir eru síðan á
laugardag og sunnudag.
Ekki þarf að efa, að allt
verður lagt undir í þessum leik
Reykjavíkurliðanna í kvöld.
KR-ingar eru í 6. sæti deildar-
innar, hafa ekki tapað leik, en
ekki heldur unnið leik. Þeir
vilja örugglega reka af sér jafn-
teflisorðið. Framarar eru ofar,
í 5. sæti, hafa gert eitt jafntefli,
tapað einum og unnið einn,
hafa því 4 stig gegn þremur
KR-inga.
Það er því ljóst, að leikurinn
í kvöld getur háft mikil áhrif
um hvort þessi lið verða í
toppbaráttunni fyrri hluta
móts. Staðan í 1. deild er hér
að neðan:
■ Ómar Torfason
Mark Ómars
fallegast
■ Að mati knattspyrnu-
dómara þá var mark Ómars
Torfasonar sem hann skor-
aði fyrir Víking í 3-3
leiknum gegn KA falleg-
asta mark 3. umferðar Is-
landsmótsins. Ómar skor-
aði með þrumuskoti upp
undir þaknetið á KA-
markinu eftir sendingu frá
Ámunda Sigmundssyni.
Onnur deildin í knattspyrnu:
Vestmannaeyingar
í áttunda sæti
■ FH-ingar hafa fengið
„fljúgandi start“ í annarrar-
deildarkeppninni í knatt-
spyrnu, hafa unnjð alla þrjá
fyrstu leikina og tróna efstir í
deildinni með 9 stig. Njarðvík-
ingar og Völsungar eru næstir
með 6 stig, en svo furðulega
bregður við andstætt því sem
oft hefur verið, að fyrstudeild-
arliðin frá í fyrra eru neðarlega
og hafa byrjað illa. Isfirðingar
eru í 7. sæti með 3 stig, og
Eyjamenn eru í 8. sæti með 2
stig, en eiga þó einn leik til
góða.
Úrslit leikja í 3. umferð
urðu:
Skallagr.-ÍBV..........2-2
FH-Einherji............2-1
Völsungur-Tindastóll ... 3-0
Njarðvík-ÍBÍ .............2-1
KS-Víðir...............3-0
STAÐAN 11. DEILD:
Heima Úti Samtals
Leikir Unnið Jatnt Tapað Mörk Stig Leikir Unnið Jafnt Tapað Mörk Stig L U J T M St.
ÍA 2 1 0 1 2-2 3 1 1 0 0 3-0 3 3 2 0 1 5-2 6
Þróttur 2 1 1 0 3-0 4 1 0 1 0 2-2 1 3 1 2 0 5-2 5
Víkinqur 2 1 1 0 2-1 4 1 0 1 0 3-3 1 3 2 1 0 5-4 5
IBK 1 0 1 0 1-1 1 2 1 1 0 2-1 4 3 1 2 0 3-2 5
Fram 1 0 1 0 2-2 1 2 1 0 1 1-1 0 3 1 1 1 2-3 4
KR 1 0 1 0 1-1 1 2 0 2 0 1-1 2 3 0 3 0 2-2 3
Þór 1 0 0 1 0-3 0 2 1 0 1 2-4 3 3 1 0 2 2-7 3
UBK 1 0 0 1 0-1 0 2 0 2 0 1-1 2 3 0 2 1 1-2 2
KA 2 0 1 1 4-5 1 1 0 1 0 1-1 1 3 0 2 1 5-6 2
Valur 2 0 2 0 0-0 2 1 0 0 1 0-1 0 3 0 2 1 0-1 2
STAÐAN I 2. DEILD:
Heima Úti Samtals
Leikir Unnið Jafnt Tapað Mörk Stig Leikir Unnið Jafnt Tapað Mörk Stig L U J T M St.
FH 2 2 0 0 8-2 6 1 1 0 0 2-0 3 3 3 0 0 10-2 9
Völsunqur 2 2 0 0 4-0 6 1 0 0 1 0-1 0 3 2 0 1 4-1 6
Njarðvík 1 1 0 0 2-1 3 2 1 0 1 2-1 3 3 2 0 1 4-2 6
Skallaqr. 3 1 1 1 5-5 4 0 0 0 0 0-0 0 3 1 1 1 5-5 4
Víðir 1 1 0 0 1-0 3 2 0 1 1 2-4 1 3 1 1 1 3-4 4
KS 1 1 0 0 0-0 0 0 0 0 0 0-0 0 1 1 0 0 3-0 3
Isafjörður 1 0 0 1 0-2 0 2 1 0 1 4-4 3 3 1 0 2 4-6 3
IBV 1 0 1 0 2-2 1 1 0 1 0 2-2 1 2 0 2 0 4-4 2
Einherji 0 0 0 0 0-0 0 2 0 0 2 1-3 0 2 0 0 2 1-3 0
Tindastóll 1 0 0 1 0-2 0 2 0 0 2 1-9 0 3 0 0 3 1-11 0