NT - 31.05.1984, Page 27

NT - 31.05.1984, Page 27
Ungversk knatt- spyrna: Fjórir leiðtogar í 35 ára bann! ■ Fjórir framámenn í ungversku íþróttahreyf- ingunni, þar á meðal einn alþjóða knattspyrnudóm- ari, hafa verið dæmdir í samtals 35 ára bann frá öllum íþróttaviðburðum eftir því sem ungverskt blað skýrði frá í gær. Þeir voru allir dæmdir fyrir að falsa úrslit í knattspyrnu- leik. Leikurinn sem hér um ræðir var milli Nyireg- yhaza sem óttaðist fall í aðra deild og Csepel sem var í engri hættu í deild- inni. Hið fyrrnefnda lið sigraði í leiknum 3-0 og slapp við fall en eftir lcikinn risu strax upp mótmæli enda voru leik- menn ákaflega ósannfær- andi í „hlutverkum“ sínum. A síðasta ári voru um 400 leikmenn og stjórn- endur liða dæmdir í keppnisbann fyrir svindl sem kostaði ungversku getraunirnar um 25 millj- ónir ísl. krónur. Alls 77 manns voru fangelsaðir vegna svika. ÍVNS6. - ■ Aðalsteinn Aðalsteinsson hefur náð sér af meiðslum sínum og leikur að líkindum mcð Víkingum gegn Skagamönnum á iaugardag. Ekki er að efa að Aðalsteinn er Víkingum mikill styrkur. Þessi mynd var tekin í leik Víkings og IBÍ í fvrra, og með Aöalsteini á myndinni er Ámundi Sigmundsson sem nú leikur með Aðalsteini í Víkingi. víkingar með alla sína menn gegn IA ■ Það kann að verða erfiður róðurinn hjá Islands- og bikarmeisturum Akra- ness, þegar þeir mæta Víkingum á Laug- ardalsvellinum á laugardag. Víkingar verða með alla sína sterkustu menn klára í slaginn. Aðalsteinn Aðal- steinsson og Þórður Marelsson eru orðnir góðir af meiðslum sínum og Örnólfur Oddsson er kominn frá Danmörku. Þá er miðvörðurinn sterki Ólafur Ólafsson orð- inn góður af þeim meiðslum sem hann hlaut í leik Víkinga og Valsmanna í síðustu viku. Meiðsl Óiafs voru ekki eins alvarleg og í fyrstu var talið. Það má því reikna með að Víkingar verði erfiðir heim að sækja á laugardag, en gengi þeirra í fyrstu leikjum Islands- mótsins hefur verið mun betra en fyrir- fram var talið. Fimmtudagur 31. maí 1984 27 WRANGLER JEPPADEKK , Fullkomin hjólbarðaþjónusta Tölvustýrð jafnvægisstilling IhIhekla hf J Laugavegi 170-172 Sími 21240 COODWYCAR GEFUR ^RÉTTA GRIPIÐ ■ Framkvæmdastjóri brasilíska félagsins Flamengo, George Helal, segir að landsliðsmaðurinn Junior sé ekki til sölu, en ef glæsilegt tilboð fæst þá muni hann hugsa málið. Umsögn þessi er tilkomin vegna fréttar í dagblaði í Ríó þess efnis að Antonio Julino stjórnandi ítalska félagsins Napoli hafi komið til Ríó til viðræðna við forráðamenn Flam- engo um kaup á Junior. Þess má geta að Junior skrifaði und;r þriggja mánaða samning við Flainengo í febrúar síðastliðnum. Opna Fluglei&a- keppnin í golfi ■ Opna Flugleiðakeppnin í golfi fer fram á Hvaleyrarholtsvelli í Hafnarfirði um næstu helgi. Dagana 2.-3. júní. Leiknar verða 18 holur hvorn dag með og án forgjafar. Þetta mót er fyrsta stigamót ársins. Glæsileg verðlaun eru í boði í mótinu og einn þátttakenda fær vikudvöl í Luxemborg í verðlaun, en dregið verður um hver reisuna fær. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir kl. 23.00ídag31. maíísíma53360. HSK styrkir Ólympíufara ■ Héraðssambandið Skarphéðinn hefur veitt íþróttamönnunum Vé- steini Hafsteinssyni, kringlukastara, Tryggva Helgasyni sundmanni og Þráni Hafsteinssyni tugþrautar- manni styrki að upphæð 27 þúsund hverjum vegna þátttöku þeirra í Ólympíuleikunum í sumar. Eins og kunnugt er hafa þeir Vésteinn og Tryggvi verið valdir í Ólympíulið íslands, en Þráinn Haf- steinsson getur ekki keppt á leikun- um vegna meiðsla. Hann fer þó á leikana sem aðstoðarmaður frjáls- íþróttamannanna þar. ÍR svæðið opnað ■ í dag uppstigningardag.verður hið nýja íþróttasvæði ÍR í Suður- mjódd í Breiðholti tekið í notkun. Opnunarathöfnin hefst kl. 14.30. Allir velunnarar félagsins eru vel- komnir á staðinn. W Æfingaskór 2370 BASKCT'SUPEB Basket Super, þrælsterkir uppháir skór St. 6-IOV2. Kr. 2180,- Easy Rider, trabærir hlaupa og gönguskór St. 5V2-11VL Kr. 1347,- Pele Junior, svart rúsk. Góðir krakkaskór. St. 25-35. Kr. 545.- Heinkes Star, blátt rúsk. hvlt rönd. St. 3Ví>-9'/2Kr. 991.- Pele Brasil .dökkbl. rusk. með óslítandi botni. St. 7-11. Kr. 938 - 2451 STEMZEl (JUIVEX8A1 Stenzel Universal, hvítt leður. Svört rönd. Frábærir skór. Fitness, léttir og þægilegir skór. St. 6-11%. Kr. 1170.- Sportvoruvers/un Póstsendum /ngó/fs Óskarssonar Laugavegi 69 — simi 11783 Klapparstig 44 — simi 10330 Stenzel Coach, blátt rúsk. hvít rönd, þægi- legir skór. St.3V2-9'/2. Kr. 1122,- Maradonna æfingaskór, bláir m hvítri rönd, þrælsterkur botn. St. 3%-10'/2. Kr. 938.-

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.