NT - 10.08.1984, Blaðsíða 1

NT - 10.08.1984, Blaðsíða 1
Sjá bls. 2 um ástand vega. 15 -20 gráður Norðáusturland • Austurland að Glettingi. 12-15 gráður Strandir og Norðurland vestra • Austfirðir. 8-12 gráður Suðausturland • Suðurland • Faxaflói • Breiðafjörður • Vest- firðir. Notkun Visa-korta eykst gífurlega: Viðskiptin 40 milljónir erlendis á einum mánuði ■ Notendur íslensku Visa- greiðslukortanna kevptu er- lendis í júlímánuði síðast liðnum fyrir um 1,3 milljónir dollara, eða tæpar 40 milljónir króna. Er þetta gífurleg aukning frá því í fyrra, þegar Visa viðskiptin erlendis voru 200 þúsund doUar- ar, eða um 6 milljónir króna. „Það er áberandi hvað notk- un kortanna erlendis hefur aukist,“ sagði Einar S. Einarsson framkvæmdastjóri Visa-ísland, í samtali við NT í gær. „Þetta þýðir kannski ekki að íslending- ar séu farnir að eyða meiri gjaldeyri en áður, heldur þýðir þetta minni notkun ferðatékka og annarra greiðsluforma.“ Nú í vikunni er liðið eitt ár • síðan Visa-ísland hóf starfsemi sína, en áður hafði Landsbank- inn gefið út Visa-kort til notkun- ar erlendis. Þá voru 2.500 kort í notkun, en nú eru kortin orðin um 20.000, þeim hefur fjölgað um allt að þremur þúsundum á mánuði að undanförnu. Euro- kort em, að sögn Gunnars Bærings- sonar framkvæmdastjóra Kredit- korta s.f., orðin um 15.500 í landinu. Fjölskyldur í landinu munu vera rúmlega 70.000. Einar S. Einarsson lét þess getið að Visa-ísland væri það Visa fyrirtæki í heiminum sem stækkaði örast um þessar mundir. Hann sagði að Visa- korthafar í Noregi væruaðeins um 100 þúsund, en í Svíþjóð um 120 þúsund. Myndbönd: Tveir handteknir fyrir fjölföldun ■ Rannsóknarlögreglan hefur krafist gæsluvarðhaldsúrskurð- ar yfir tveimur mönnum vegna sölu og dreifingar á ólöglegum myndböndum. Það voru samtök Rétthafa Myndbanda sem kærðu annan manninn, og leiddi það að sögn Helga Daníelssonar, hjá Rann- sóknarlögreglunni, til handtöku þessara manna. Að sögn Helga tengjast máli þessu tvær myndbandaleigur á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt upplýsingum blaðsins fjölfölduðu mennirnir efni myndbandsspóla, og létu jafnvel litprenta hylkin utan um spólurnar. Síðan fóru þeir sölu- ferðir um landsbyggðina. Brynjólfur Eyvindsson, lög- maður Samtaka Rétthafa, sagði að lögreglan hefði haft skjót viðbrögð. Sagðist hann hafa kært málið til lögreglu á þriðju- dag, en mennirnir voru hand- teknir á miðvikudagskvöld og gæsluvarðhaldskrafan lögðfram í Sakadómi Kópavogs í gær. | Heimsmeistaramót unglinga í skák: ~ Kalli Þorsteins í efsta sætið? - sjá bls. 2 ■ NT hitti í gær fimm Frakka sem voru að leggja upp í ferðalag um ísland. Þau ferðast á farartækjum af Pulsargerð sem eru frekar ólík þeim bflum sem landinn á að venjast. Tilgangur ferðarinnar er að gera kvikmynd um landið og áætla þau háll'an mánuð í ferð sína. NT-mynd: ah. Mývatnsöræfi: Slys ■ Herkúles vél varnar- liðsins lenti seint í gær- kvöldi á Reykjavíkurflug- velli með mikið slasaða þýska konu. Konan slas- aðist í Herðubreið í gær- morgun, ásamt annarri þýskri konu sem slasaðist minna. Konan hlaut m.a. höfuðáverka. Tildrög slyssins voru þau að 20 þýskar konur voru á göngu í Herðubreið þegar þessar tvær urðu fyrir grjóthruni og hröp- uðu síðan í hamrabelti sem þær voru staddar í. Skálavöröur í Herðu- breiðarlindum fór fram á aðstoð slysavarnarfélags- ins og fóru meðlimir slysa- varnardeildanna Garðars á Húsavík og Stefáns í Mývatnssveit á staðinn, ásamt lögreglu og lækni frá Húsavík. Fljótlega gekk að komast að þeirri fyrri sem var ekki mikið slösuð, en erfiðar gekk að komast til hinnar sem reyndist meira slösuð. Þyrla varnarliðsins flutti konuna á Akureyri, en þar var hún flutt yfir í Herkúles vél varnarliðsins og flutt til Reykjavíkur. Albert hitt- ir þingmenn stjórnar- andstöðu - sjá bls. 3 Búðardalur: Ólga inn- an kaup- félagsins - sjá bls. 3 Bíiamarkaður íTá bls. 9-12

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.