NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 10.08.1984, Qupperneq 2

NT - 10.08.1984, Qupperneq 2
Föstudagur 10. ágúst 1984 2 Heimsmeistaramót unglinga eftir sex umferðir: Karl með unna biðskák gegn heimsmeistaranum Nær efsta sæti vinni hann skákina ■ Allar líkur eru á því að Karl Þorsteins taki cinn forystuna að loknum biðskákum úr 6. uml'erð heimsmeistaramóts unglin|>a. Skák Karls og Búlgarans Georg- iev í 6. umferð fór í annaö sinn í bið seint í gærkvöldi og virðist stutt í uppgjöf Búlgarans. Áður hafði Karl unnið biðskák sína við ítalann Arlandi. Fyrir sjöttu umferð hafði Karl náð fjórum vinningum og var í efsta sæti ásamt Sovétmannin- um Dreev, Saaed frá Sameinuðu furstadæmunum, Candi frá Skotlandi og Georgicv senr er núverandi heimsmeistari ungl- inga og langstigahæsti keppand- inn á mótinu. Augu flestra beindust því að skák Karls og Georgiev og er skemmst frá því að segja að hún var æsispennundi. Karl náði snemma miklu takí á Búlgaran- um. Var hann á tímabili kominn- með gjörunnið tafl, en lenti í tímahraki og tókst Georglev að flækja stöðuna og þegar hún fór í bið hafði Karl að vísu tveimur mönnum yfir fyrir þrjú peð, en kóngsstaða hans var hinsvegar mjög viðsjárverð. Þegar tekið var til við skákina aftur lentu báðir keppendur í miklu tíma- hraki, en Karl gerði engin mis- tök og hefur bætt stöðu sína verulega. Er ekki talið ólíklegt að Búlgarinn gefist upp án frek- ari taflnrennsku. Skák Sovétmannsins' Dreev og Saaed t’rá Sameinuðu fursta- dæmunum fór í bið öðru sinni og virtist jafnteflisleg. Skotinn Condi tapaði hinsvegar fyrir Tékkanum Stohl. Staðan eftir 6 umferðir þeg- ar ólokið er biðskákunum á toppborðunum er þessi: 1.-3. Hansen (Danmörku), Stohl (Tékkóslavakíu) og Sandström (Svíþjóð) allir með 41/2 vinning. 4.-7. Karl Þorstcins, Dreev (Sovétríkjunum) Saaed (Sameinuðu furstadæmunum) og Georgiev (Búlgaríu) allir með 4 vinninga og biðskák. Með 4 vinninga eru 011 (Sovét- ríkjunum), Orlandi (Ítalíu) Candi (Skotlandi) og Öster- stadt (Noregi). 7. umferð verður tefld í dag. Alls taka 54 skákmenn 30 ára og yngri þátt í mótinu. Tefldar verða 13 umferðir eftir sviss- neska kerfinu. Biðstaðan hjá Karli og Ge- orgiev er þessi: abcdefg’h Karl - Georgiev Búlgarinn lék biðleik. Akranes: Fjallvegirnir í fínasta lagi ■ Talsverð ölvun vará Akra- nesi í fyrrinótt. Að sögn lögreglu var ekki komið ró á fyrr en rúmlcga þrjú um nóttina og sagði lög- reglan að ölvun sem þessi væri mjög óvenjuleg í miðri viku. Tilraun var gerð til að brjót- ast inn í íþróttahúsið á staðn- um og einnig til að stela bíl. Hafði verið reynt að tengja fram hjá sviss bílsins cn ekki tekist. Ekki hefur tekist að hafa uppi á þeim sem þar voru að verki. Langar þig í bíltúr upp unr fjöll og firnindi um helg- ina? Þá skaltu byrja á því að lesa það sem hér fer á eftir: Samkvæmt upplýsingum frá Vegaeftirlitinu eru nú allir helstu fjallvegir landsins í ágætu ásigkomulagi og færir öllum bílum. Þeir vegir sem taldir eru hér á eftir eru þó við venjulegar kringumstæð- ur’ekki taldir færir minni bílum en jeppum nema það sé sérstaklcga tekið fram. Sprcngisandur, Kjölur, Fjallabakslcið nyrðri (greið- fær fólksbílum vestan Land- mannalauga), Fjallabakslcið syðri, Vegur milli Fljótshlíðar og Hvanngils (lokaður í bili), Lakavegur, Dómadalsleið (fær fólksbíl- um), Vegur í Veiðivötn (talinn fólksbílafær), Kaldidalur (fær öllum bílum), Steinadalsheiði (fær léttum bílum, öxulþungi undir 5 tonnum), Tröllatunguheiði (fær öllum bílum), VIMNUEFTIRLIl RfKISINS L J Byggingaverktakar - Eigendur byggingakrana Að gefnu tilefni skal byggingaverktökum og öðrum eigendum byggingakrana bent á að þeir einir mega stjórna byggingakrönum sem til þess hafa skírteini, útgefin af Vinnueftirliti ríkisins sbr. reglu nr. 198/1983 um réttindi til að stjórna vinnuvélum. Til að öölast tilskilin réttindi þarf viðkomandi að hafa sótt námskeið á vegum Vinnueftirlitsins, hafa hlotið verklega þjálfun undir stjórn kennara og staðist verklegt próf. Næsta námskeið í meðferð og stjórnun byggingakrana verður haldið að Síðumúla 13, Reykjavík, dagana 17.-18. ágúst n.k. Eru verktakar, byggingameistarar og aðrir eigendur eða notendur byggingakrana hvattir til að notfæra sér námskeið þetta. Eftir að námskeiðið hefur verið haldið mega menn búast við að vinna með byggingakrana verði stöðvuð án fekari fyrirvara nema stjórnendur þeirra hafi tiiskilin réttindi. Skráning þátttöku er í síma: 91-82970. Reykjavík 9. ágúst 1984 Vinnueftirlit ríkisins Síðumúla 13. Steingrímsfjarðarheiði ýslæmur jeppavegur), Skagafjarðarheiði, F-72, (greiðfær), Eyjafjarðarlcið, F-82, (greiðfær), Oskjuleið (greiðfær). Væntanlegum ferðagörp- um er þó hollt að minnast þess að í rigningu getur á- stand veganna versnað mjög snarlega. Búið ykkur því vel undir ferðina minnug hins fornkveðna að „skjótt skip- ast veður í lofti og orð í hvolft! Flöskugler í lögreglugæslu ■ Það var sagt frá því í blaðinu um daginn að rólegt hefði verið hjá gæslu- mönnum og lögreglu um verslunarmannahelgina enda hegðun landans til fyrir- myndar. Á einum stað stóð lögreglan þó í ströngu og það jafnvel svo að bágt var með tíma til að taka þá fáu óláta- belgi sem sáust á staðnum úr umferð. Það var í Þjórsárdal þar sem Selfosslögreglan hafði bækistöðvar sínar. Þar höfðu liðsmennirnir ákveðið að nota þessa miklu helgi sem fjáröflun fyrir sjónvarp- skaupum á stöðina. Nú mega lesendur ekki ætla að hér hafi verið um neinar ólögleg- ar fyrirætlanir að ræða svo sem sölu á haldlögðu víni eða mútustarfsemi. Nei því fer fjarri. Blessaðir strákarnir tóku sig bara til og tíndu gler á mótsvæðinu alla helgina, - stjórí ráðstefnu um steinsteypu. NT^nynd: Sverrir ■ Ríkharður tíndu og tíndu eins og þeir gátu og hafa sjálfsagt komist langt með kaupin á litsjón- varpinu þessa helgi. En nátt- úrlega eins og með alla aðra sem græddu á helginni þá eru ágóðatölur leyndarmál sem ekki verður gasprað í fjöl- miðla. Tilbúnar truflanir? ■ Eins og landsmenn hafa tekið eftir þá eru olíufélögin komin í samkeppni. Felst hún í því að þeir keppast við að hella aukaefnum út í bensínið og reyna síðan að telja landsmönnum trú um að þau séu ómissandi. Essó þraukar þó enn bætiefna- laust. Það var Olís sem reið á vaðið og svo undarlegt sem það nú var þá mátti lesa um það í blöðunum tveim dögum áður en nýja bætiefn- ið kom á markað að truflanir miklar væru í gangi bílvéla. Lírur í kassann Ratadi ekki ut ur Kópavogi og þurfti að greiða sekt ■ Bráðum bætast nokkr- ar lírur í ríkiskassann. Lögreglan í Kópavogi stoppaði í gær ítalskan ferðamann vegna of hraðs aksturs. ítalanum var ekki sleppt með aðvörun, heldur verður honum gert að greiða sekt fyrir lögbrot sitt. Annars mun ítalinn hafa brugðist glaður við er hann var stöðvaður. enda rammvilltur. Var hann á leið á Akranes en ók vest- ur Kópavoginn. Lögregl- an leiðbeindi manninum eftir að hafa gengið frá nauðsynlegum atriðum vegna hraðakstursins. Ráðstefna: Fjallað um steinsteypu ■ í dag hefst á Hótel Loft- leiðum þriggja daga norræn ráðstefna um rannsóknir á stein- steypu og steinsteyptum mann- virkjum. Ráðstefnan er haldin á vegum Norræna Steinsteypusambands- ins og er hin tólfta sem sam- bandið stendur að. Þátttakendur á ráðstefnunni munu verða um 210, en búist er við að gestir verði alls um 280. Sverrir Hermannsson, iðnað- arráðherra setur ráðstefnuna kl. 9:30, en síðan flytur þekktur verkfræðingur, Fritz Leonhardt fyrirlestur sem hann nefnir: „Þáttur rannsókna í starfi mínu.“ Framkvæmdastjóri ráðstefn- unnar er Ríkharður Kristjáns- son, verkfræðingur. Bílar færu treglega í gang, dræpu á sér á ljósum og guð má vita hvað. Áttu þessi ósköp að stafa af því að fjórum förmum af bensíni hefði verið blandað saman. Nú vill svo til að dropahöf- undur þekkir engan sem átt hefur í erfiðleikum venju fremur með bílinn sinn, enda garmarnir iðulega með samansull af bensíni sem keypt er með margra. daga, jafnvel vikna millibili. Það skyldi þó aldrei vera að allar þessar kvartanir hafi \erið sviðsettar?

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.