NT - 10.08.1984, Side 4
■ Hvað er sjálfsagðara en að hvíla sjálfan sig og skjalatöskuna g i p|j _ kiwi _ melónur - bláber - hljómar á ítalíuíslensku úr sölutjaldinu frá ítalanum Cosimo.
í sumarsælunni.
■ Það þarf ekki gríðarlega
mörg orð með þessum svip-
myndum úr höfuðborg
Norðurlands, Akureyri. Þar
hefur verið veðursæld í sumar,
að vísu með heiðarlegum
undantekningum til dæmis
þegar karnivalið var haldið um
daginn. Hvað um það, þegar
sól er í heiði og súlan í hita-
mælinum stígur yfir 20 gráð-
urnar, sem gerist jú all oft, þá
segja menn að stemmningin á
Ráðhústorginu verði lík því
sem gerist við strendur Mið-
jarðarhafsins. Þá greina sömu
heimildir frá því að kropparnir
í Sundlaug Akureyrar sýni að
sólarlandaferðir séu vart ann-
að en peningasóun fyrir Akur-
eyringa, því þeir hafi þetta allt
saman frítt heima hjá sér,
nema kannski brjóstbirtuna.
En hana má nálgast í Sjallanum
eða H-100 þegar kvölda tekur.
Meðfylgjandi myndir voru
teknar í einu góðviðriskastinu
norðan heiða í sumar.
Útihey algeng á Austurlandi
■ „Það er slæmt að þurfa að
geyma hey svona úti - erfitt að
láta stæðurnar standa og ganga
frá þeim svo þær ekki blotni. En
mann vantar stærri hlöður,“
sagði Hákon Guðröðarson
bóndi í Efri-Miðbæ í Norðfirði.
Hann er einn þeirra Austfirð-
inga sem búnir eru að fylla allt
sitt hlöðurými og meira til og
þurfa nú að ganga frá útiheyjum
í fyrsta sinn í mörg ár. „Hey-
fengurinn í sumar er bara eins
og í gamla daga,“ sagði Hákon
sem á um 700 bagga sem ekki
komast í hlöður að þessu sinni
enda heyskapur hans um þriðj-
ungi meiri cn í fyrrasumar.
Hákon tók fram að það væri að
■ Um 700 baggar af heyi
voru eftir þegar allt hlöðurými
hafði verð fyllt í Efri-Miðbæ í
Norðrirði. Tíðindamenn blaðs-
ins á Austurlandi segja nú
algengt að sjá menn vera að
hlaða upp útiheyjum við bæi,
enda heyfengur þar meiri en
verið hefur um áraraðir.
NT-mynd: Svanfríður.
vísu ekki að marka það slæma
sumar.
Almennt taldi Hákon að
menn hafi nú lokið þurrheyskap
og kvaðst hafa spurnir af góðum
og miklurn heyskap um allt
Austurland. „Grasið óx þó eigin-
lega of hratt í hitunum, svo
menn höfðu ekki undan að slá.
Það kom einu sinni 10 daga
óþurrkakafli og þá óx þetta allt
saman úr sér,“ sagði Hákon.
Vegna riðuveiki sagði hann
Norðfirðinga þó ekki geta selt
neitt hey, nema til nokkurra
hestamanna í Neskaupstað sem
njóta þess nú að fá þau ódýrari
en ella.
Það lá þó vel á Hákoni, enda
um 20 stiga hiti og sólskin þar
eystra og spakir spámenn búnir
að spá áframhaldandi blíðviðri
á Austurlandi a.m.k. næsta ára-
tuginn. „Maður er löngu hættur
að líta á hitamæli. Ef við mætt-
um ráða vildum við svo gjarna
senda bændum á Suður- og
Vesturlandi eitthvað af þessu
sólskini. Okkur er alveg sama
um þá í Reykjavík - þeir hafa
ekkert við sól að gera,“ sagði
Hákon oghló viðsvolítiðstríðn-
islega.
Dalir og Snæfellsnes:
Heyrnar- og tal-
meinasérfræðingar
■ Sérfræðingar Heyrnar-
og talmeinastöðvar íslands
verða á ferð um Dali og
Snæfellsnes um miðjan
þennan inánuð sem hér
segir:
Búðardal 13. ágúst
Stykkishólmi 14. ágúst
Grundarfirði 15. ágúst
Olafsvík 16. ágúst
Hellissandi 17. ágúst
Þeir sem vilja nýta sér
þessa þjónustu eru beðnir
að hafa samband við næstu
heilsugæslustöð sem fyrst.
Kvennaathvarf á Akureyri
■ Kvennaathvarf á Norður- -
landi opnaði dyr sínar 1. ágúst
síðástliðinn.
Samtök um kvennaathvarf
á Norðurlandi sjá um rekstur
þess í húsnæði, sem Akureyrar-
bær hefur látið í té. Einn
fastur starfsmaður hefur verið
ráðinn í athvarfið, en að öðru
leyti munu félagsmenn sam-
takanna annast vaktþjónustu.
Kvennaathvarfið á Akur-
eyri mun þjóna Norðurlandi
öllu, en er opið öllum konum
eftir því sem aðstæður leyfa,
án tillits til búsetu þeirra.
Neyðarsími kvennaat-
hvarfsins er 96-26910 og rnun
hannfyrstumsinnverðaopinn þeirra, sem veitt hafa þeim
kl. 14-16 og 20-22 alla daga. Á aðstoð. Akureyrarbær og
öðrum tímum sólarhringsins önnur bæjar- og sveitarfélög á
geta konursnúiðsértillögregl- Norðurlandi, auk fjölmargra
unar á Akureyri og fengið þar fyrirtækja og einstaklinga hafa
upplýsingar. ___lagt málefninu lið og með því
Samtök um kvennaathvarf stuðlað að því, að kvennaat-
á Norðurlandi vilja koma á hvarf á Norðurlandi er orðið
framfæri þökkum til allra að veruleika.