NT - 10.08.1984, Blaðsíða 5
Föstudagur 10. ágúst 1984 5
■ Þekkið þið kroppinn? Gúanórokk-kóngurinn Bubbi Mort-
hens ber í beltisstað var meðal þeirra sem sóluðu sig á
Ráðhústorginu.
■ íssalarnir höfðu ekki undan að afgreiða viðskiptavinina sem
vantaði smá kælingu.
F
Málin rædd í rólegheitum.
NT-myndir: Kolbcinn.
■ Ungir menn dragast allsstaðar að blómarósum eins og býflugur að blómkrónum.
Greinargerð frá Náttúruverndarráði vegna ályktunar
sýslunefndar N-ísafjarðarsýslu um Hornstrandafriðland:
Ávallt gott samstarf um
málefni friðlandsins
■ Samkvæmt lögum nr. 47/1971 um
náttúruvernd getur Náttúruverndarráð
ekki friðlýst landsvæði einhliða né
breytt reglum um friðlýst svæði nema í
samráði og með samþykki landeigenda
og annarra rétthafa viðkomandi land-
svæðis.
Þegar Hornstandafriðland var stofn-
að árið 1975 höfðu því farið fram
ítarlegar viðræður við landeigendur,
sem stofnuðu m.a. með sér félagsskap,
Landeigendafélag Sléttu- og Grunna-
víkurhrepps (LSG), til viðræðna við
Náttúruverndarráð um undirbúning að
stófnun friðlandsins. Er samkomulag
um mörk og reglur hafði náðst milli
þessara aðila, var tillagan send Mennta-
málaráðuneytinu, og var hún staðfest
með auglýsingu í Stjórnartíðindum B,
nr. 366/1975. Segir þar m.a. í 8. gr.
reglnanna að Náttúruverndarráð skuli
hafa samráð við LSG um nánari fram-
kvæmd á reglum þeim, er um friðlandið
gilda.
Allt frá stofnun friðlandsins hefur
ávallt verið gott samstarf milli þessara
aðila um málefni friðlandsins, en það
hefur fyrst og fremst verið fólgið í því
að afgreiða umsóknir um byggingu
sumarbústaða, en bæði Náttúruvernd-
arráð og stjórn LSG hafa verið sammála
um það að leyfa einungis þeim að
byggja, sem land eiga í friðlandinu.
A sameiginlegum fundi fulltrúa Nátt-
úruverndarráðs og stjórnar LSG, sem
haldinn var í kjölfar aðalfundar LSG
vorið 1983 var samþykkt að taka reglur
friðlandsins til endurskoðunar m.a. í
ljósi síaukins ferðamannastraums um
svæðið og til að tryggja enn betur en
verið hefur virkt samband þessara aðila
og rétt landeigenda. Náðist fljótlega
samkomulag milli þeirra, en bæði vegna
ákvæða náttúruverndarlaganna um
Hornbjarg, tignarlegt á að líta, er hluti af
Hornstrandafriðlandi sem sýslunefnd
N-Isafjarðarsýslu og Náttúruverndarráð
þrátta um.
samráð við alla landeigendur í sambandi
við friðlýsingu, og þess að stjórn LSG
hafði ekki umboð til að ganga frá nýjum
reglum fyrir hönd sinna félagsmanna
var samþykkt að auglýsa eftir athuga-
semdum í Lögbirtingablaðinu, og birtist
hún þann 4. apríl sl. í niðurlagi auglýs-
ingarinnar segir orðrétt:
„Samkvæmt 36. gr. náttúruverndar-
laga er hverjum þeim, sem verður fyrir
fjárhagstjóni vegna náttúruverndarað-
gerða, veittur réttur til skaðabóta. Nátt-
úruverndarráði er jafnframt, samkvæmt
30. og 31. gr. laganna skylt að gera
landeigendum, ábúendum og öðrum
rétthöfum kost á að kynna sér friðlýs-
ingu og koma á framfæri mótmælum
eða gera bótakröfur. Er það nú gert
með þessari auglýsingu og skulu kröfur
hugsanlegra rétthafa berast skrifstofu
Náttúruverndarráðs innan fjögurra
mánuða frá birtingu auglýsingar þessar-
ar“.
Tími til að skila inn athugasemdum
rennur því út 4. ágúst nk. í framhaldi af
því mun Náttúruverndarráð í samráði
við stjórn LSG fara yfir þær athuga-
semdir sem borist hafa og er þá hugsan-
legt að reglurnar breytist í samráði við
óskir landeigenda eða vegna þess að sýnt
þykir að þær muni á einhvem hátt ganga á
eignarrétt manna umfram þeirra éigin
lóskir. Þá fyrst mun Menntamálaráðu-
neytinu verða send tillagan með ósk um
staðfestingu.
Ljóst er að það er þessi auglýsing,
sem er undirrótin að fyrrnefndri ályktun
sýslunefndar N-ísafjarðarsýslu. Nátt-
úruverndarráð leyfir sér hins vegar að
láta öðrum eftir að dæma um réttmæti
hennar og hvort að í henni felist „of-
stjórnartilhneiging“, heimild um „nán-
ast óbundnar hendur um setningu
reglna“ eða að Náttúruverndarráð hafi
„óhæfilegt vald“.
Að lokum leyfir Náttúruverndarráð
sér að taka fram að í 10. gr. fyrrnefndrar
tillögu um breyttar reglur um friðlandið
er kveðið á um að starfa skuli samráðs-
nefnd um málefni friðlandsins sem í
eigi sæti fulltrúar landeigenda og Nátt-
úruverndarráðs, sem er mun sterkar
kveðið að orði en í núgildandi reglum,
enda er allt samráð og samstarf við
landeigendur að dómi Náttúruverndar-
ráðs forsenda þess að tilgangur friðlýs-
ingar nái fram að ganga, þ.e. að hin
fjölskrúðuga náttúra friðlandsins fái að
blómstra áfram, samfara því að brott-
fluttir íbúar og afkomendur þeirra
ásamt hinum almenna ferðamanni fái
notið þeirra djásna, sem við eigum
þarna norður undir heimskautsbaug.
Heimsþekktar vörur á frábæru verði.
Kerti frá AUTOLITE — BOSCH — CHAMPION.
Platínur — Kveikjulok, Hamrar, Þéttar og Kveikju-
þræðir frá USA og V.-Þýskalandi.
Dýrin kunna ekki umferöarreglur. Þess vegna þarf aö syna aögæslu
i nánd þeirra. Hins vegar eiga allir hestamenn aö kunna umferöar-
reglur og riöa hægra megin og sýna bilstjórum sams konar viömót
og þeir ætlast til af þeim.
u
UMFEROAR
RÁÐ