NT - 10.08.1984, Page 6
I
t f Z? 9 *jt• O *
< * > «
Föstudagur 10. ágúst 1984 0
Vettvangur
Hjörleifur Guttormsson:
Er uppgjafarsamningur í
- Athugasemdir við ummæli Gunnars G. Schram o<
■ Herra ritstjóri.
í blaði yðar þann 2. ágúst
sl. voru lagðar spurningar fyrir
undirritaðan svo og Gunnar
G. Schram alþingismann og
Guðmund G. Þórarinsson
verkfræðing undir yfirskrift-
inni: „Hver er besta leiðin í
álmálinu?“. Vegna nokkurra
atriða sem höfð eru eftir þeim
síðartöldu svo og í inngangi af
hálfu NT óska ég eftir að fá
birtar nokkrar athugasemdir.
1. 1 aðfaraorðum blaðsins á
undan spurningum til við-
mælenda segir m.a.: „Eftir
stjórnarskipti hér í fyrra urðu
aðilar sammála um að skjóta
þessum deilumálum til alþjóð-
legs gerðardóms...“. Hér er
misskilningur á ferðinni. Hið
rétta er, að eftir að fjármála-
ráðuneytið hafði í apríl 1983
krafið ísal um greiðslu á við-
■ Álverið í Straumsvík.
bótarsköttum vegna áranna
1976-80 að upphæð 10 milljónir
dollara vísaði Alusuisse mál-
inu í maíbyrjun 1983 til alþjóð-
legs gerðadóms eins og réttur
auðhringsins stóð til sam-
kvæmt aðalsamningi um álver-
ið í Straumsvík frá 1966.
Fyrir þessum gerðadómi,
svonefndum ICSID í Washing-
ton (Alþjóðastofnunin til
lausnar fjárfestingadeilum,
sem yfir 100 ríki eru aðilar að),
þurfti Alusuisse að verjast eðli-
legri ákvörðun íslenskra
stjórnvalda. Öllum formlegum
undirbúningi málsins fyrir
dómnum var lokið þegar bráða-
birgðasamkomulag ríkis-
stjórnarinnar og Alusuisse var
gert í september 1983. Með
því samkomulagi var málið
tekið út úr þessum farvegi og
sett í sameiginlcga gerð fyrir
þremur nefndum (panelum)
sérfræðinga til þess eins og
segir í samkomulaginu að
„leysa úr deilunni á vinsam-
legri og skjótari hátt“. - Fyrir
stjórnarskiptin var málið þann-
ig komið í alþjóðlega gerð
samkvæmt aðalsamningi, en
eftir ríkisstjórnarskiptin var
það tekið úr þeim farvegi og-
■ „Fyrir stjórnarskiptin
var málið þannig komið í
alþjóðlega gerð sam-
kvæmt aðalsamningi, en
eftir ríkisstjórnarskiptin
var það tekið úr þeim
farvegi og sett í annan og
flóknari farveg...“
sett í annan flóknari farveg, en
sem aðilar töldu vinsamlegri
og fljótvirkari. - Nú stendur
svo enn á ný til að breyta
málsmeðferðinni, taka málið
úr höndum sérfræðinganefnd-
anna þriggja og fallast á dóms-
sátt að kröfu Alusuisse.
Um þetta segir Gunnar G.
Schram í nefndu viðtali við NT
m.a.: „Málin hafa hins vegar
tafist mjög og þess vegna tel ég
dómsátt vel koma til greina - en
með ákveðnum skilyrðum að-
eins.“
Iðnaðarráðherra talar nú
með svipuðum hætti, þótt hann
segði um sama atriði á Aiþingi
10 maí sl.: „Þaö kom aldrei til
greina þótt eftir væri leitað, að
ég væri til viðræðna um samn-
inga um þessi deiluatriði.“
Af þessu má sjá, að hvorki
Bandalag íslenskra sérskólanema
sendir Ragnhildi ráðherra tóninn
■ „Stjórn BÍSN harmar þá stefnu núverandi ráðherra að í stað
samvinnu skuli hann leggja sig fram um að vinna gegn
námsmönnum, samtökum þeirra, hugmyndum og kjörum.“
Þannig segir meðal annars í mjög harðorðri yfírlýsingu sem
Bandalag íslenskra sérskólanema sendi frá sér nýlega um
samskipti við menntamálaráðherra.
Mótmælt er tilhæfulausum árásum menntamálaráðherra ís-
lands á hagsmunasamtök og bent þar sérstaklega á bann sem lagt
var á skylduaðild námsmanna erlendis að Sambandi íslenskra
námsmanna erlendis, SINE „...með reglugerðarbreytingu þess-
ari hefur ráðherrann stigið stórt skref í átt til banns við
skylduaðild að hverjum þeim hagsmunasamtökum sem heyra
undir hans embætti, enda beinast yfírlýsingar ráðherrans í þá átt.
Við svo búið er Ijóst að t.d. hagsmunasamtök kennara mega
vænta sams konar aðgerða frá hendi menntamálaráðherra.“
Þá segir orðrétt um afskipti ráðherrans af Lánasjóðnum:
I. Stjórn LÍN
Það er stjórn BÍSN áhyggju-
efni að menntamálaráðherra
íslands, í bræði sinni yfir því
að stjórn LÍN hafi starfað eins
og lög og reglugerð um LÍN
skipa fyrir, skuli leggja sig
niður við að væna stjórnina
opinberlega - þar með talinn
fulltrúa BÍSN, - um óheiðar-
leika og ábyrgðarleysi sökum
flokkspólitískra skoðanna.
Ásakanir ráðherra á hendur
stjórn LÍN eru ósæmandi og
settar fram, að þvf er virðist, í
þeim eina tilgangi að koma
sökum yfir á saklausa. Á hinn
bóginn svipta þær dulunni af
ráð- og dáðleysi ráðherrans og
Alþingis í málefnum fram-
haldsmenntunar íslendinga.
Þess skal getið að BÍSN er
bandalag nemendafélaga 15
aðskildra sérskóla á íslandi og
hefur hvert félag 1 fulltrúa í
miðstjórn bandalagsins.
Hverjum fulltrúa er tekið opn-
um örmum án nokkurra hug-
leiðinga um flokkspólitískar
hugrenningar viðkomandi.
Þau fyrirmæli sem fulltrúi
BÍSN í stjórn LÍN fær frá
bandalaginu og störf hans
verða að einkennast af eru
einföld:
1. Hann á að vinna að fram-
gangi menntamála þjóðar-
innar.
2. Hann á að gæta hagsmuna
námsmanna.
í þriðja lagi, og það er mikil-
vægast
3. Hann á að fara að stjórnar-
skrá íslands og lögum, -
jafnvel þótt hæstaréttar-
íögmaðurinn Ragnhildur
Helgadóttir kunni ekki slíkt
að meta.
Órökstuddar fullyrðingar
menntamálaráðherra og mál-
gagns flokks hans (Morgunbl.)
um efni sem mjög greiðlegt er
að fá sannar og réttar upplýs-
ingar um eru menntamálum
landsmanna, embætti ráðherra
og samskiptum hans við náms-
menn síst af öllu til framdrátt-
ar. Það verður að segjast eins
og er að eftirspurn ráðherrans
og málgagnsins eftir góðum
upplýsingum um LÍN og náms-
menn hefur verið í öfugu hlut-
falli við framboðið.
II. Fjármál LÍN og náms-
menn á 1. ári. (víxillán).
Til lausnar á fjárhagsvanda
LÍN hefur menntamálaráð-
herra lýst því yfir að hann vilji
ekki að 1. árs nemar fái náms-
lán á 1. misseri hjá LÍN heldur
ætli hann sjálfur að búa svo um
hnútana að í staðinn geti þeir
fengið jafn góða fyrirgreiðslu
hjá bönkum.
Með þessari yfirlýsingu hef-
'ur ráðherrann tekið á sig mikla
ábyrgð gagnvart náms-
mönnum.
Það skal tekið fram að sam-
tök námsmanna hafa ekki ver-
ið innt neins álits á þessari
aðgerð enda eiga þau eftir að
sjá yfirlýsingu ráðherrans
verða að veruleika.
Vegna þessarar stöðu
vill BÍSNtakafram:
1. Vegna mjög skýrra laga-
ákvæða gerir þessi aðgerð
ekki betur en að velta fjár-
hagsvandanum yfir áramót-
in og getur því ekki talist
annað en bráðabirgðalausn
sem kemur mjög hart niður
á námsmönnum með víxil -
lán ef fer sem horfir.
2. Námsmenn geta bent á
margar mun raunhæfari til-
lögur til varanlegrar lausnar
á eilífum vandræðum LÍN.
Ber þar fyrst að nefna þá
uppástungu að Alþingi og
ríkisstjórn þjóðarinnarhagi
sér einhvern tíma í sam-
ræmi við sín eigin lög um
sjóðinn.Undanfarin ár hafa
stjórn og starfsmenn sjóðs-
ins ítrekað sett fram fjár-
hagsáætlanir sem miðast við
ákvæði laga og reglugerðar
annars vegar en líklega
fjölda- og verðlagsþróun
hins vegar. Þessar áætlanir
hafa aldrei hljóðað upp á
hærri útgjöld en raun hefur
orðið á þó menntamálaráð-
herra haldi öðru fram.
Þvert á móti þá hafa þær
staðist eða verið ívið of
lágar ef eitthvað er. Það er
freklegur og gerræðislegur
niðurskurður fjárlaga- og
hagsýslunefndar
fjármálaráðuneytisins sem
ár eftir ár hefur sett fjármál
sjóðsins út af sporinu.
Stjórn BÍSN er spurn: Til
hvers er Alþingi að setja
lög ef framkvæmdavaldið
fer ekki eftir þcim?
3. Eittafforgangsmarkmiðum
BÍSN er að afnumin verði
sú misntunun sem 1. árs
nemar og aðrir víxlavið-
skiptamenn LÍN mega
þola.
Það er töluleg staðreynd að
óvissa í fjármálum LÍN
hræðir stóran hóp ungs
fólks frá því að hefja nám,
- hóp harðduglegs fólks
sem á fullt erindi í lánshæft
nám.
Þar af leiðandi, og einnig
vegna þess að nemandi á 1.
ári lánshæfs náms er að
hefja algerlega nýtt nám í
nýju umhverfi, oft viðerfið-
ar aðstæður, eins og t.d. í
lélegu okurleiguhúsnæði,
og síðast en ekki síst vegna
þeirrar auknu ábyrgðar sem
ungt fólk er að axla á
þessum tímamótum, er al-
ger reginskyssa að íþyngja
námsmönnum á 1. ári með
áhyggjum af fjárhagslegri
afkomu sinni á námstíman-
um.
4. Stjórn BÍSN hvetur náms-
menn á hvaða námsári sem
þeir eru til að sækja um
aðstoð LÍN ef fjárhagserf-
iðleikar þeirra standi í vegi
fyrir áframhaldandi námi.
Þeir námsmenn sem leita
þurfa á náðir bankanna
vegna aðgerða mennta-
málaráðherra ættu að snúa
sér til Ragnhildar Helga-
dóttur menntamálaráð-
herra íslands, Hverfisgötu
4-6, 2. hæð ef bankarnir
veita ekki sömu fyrir-
greiðslu og LÍN. Ef treysta
má orðum ráðherrans mun
hann vafalítið kippa svo-
leiðis smámunum í liðinn.