NT - 10.08.1984, Side 9
Mercedes Benz 190E 2.3*16:
Aftur sportlegir Benzar
■ Minnsti bíllinn frá Mercedes Benz, nú með 185 ha vél sem
skilar honum á 7.5 sek. í 100 km hraða og kemur honum upp í
230 km hraða á klst.
■ Frá elstu bilasmiðjum
heims, Daimler-Benz í Þýska-
landi, koma nú aftur sportlegir
bílar sem verða færir um að
koma auðnustjörnunni frægu
fyrstri yfir marklínu kapp-
aksturbrauta heimsins, eftir
margra ára hlé.
1978-1980 lagði Daimler-
Benz nær allt í sölurnar til að
vinna heimsmeistaratitilinn í
ralli í anda gamalla hefða fyrir-
tækisins, því bílar þess hafa
unnið aksturskeppnir af ýmsu
tagi frá því á síðustu öld.
Árið 1980 var sú erfiða
ákvörðun þó tekin að hætta
þátttöku í kappakstri og ralli
þar sem stórir, þungir SLC
(með fimm lítra V8 vélar) og
sex strokka 280E hentuðu ekki
eins vel á þröngum rallstöðum
og léttir séruppbyggðir bílar
„óæðri“ framleiðenda. Kostn-
aðurinn við hvert rall rúllaði á
upphæðum fjarri allri skyn-
semi, enda notaðar þyrlur,
flugvélar, ótal aðstoðarbílar og
gífurlega fjölmennt starfslið
með ógrynni varahluta.
Þá þegar var í undirbúningi
nýr minni Mercedes-Benz sem
var af mjög hentugri stærð til
að breyta í keppnisbíl, og með
annað augað á þeirri staðreynd
hönnuðu tæknimennirnir í ná-
inni samvinnu við Cosworth í •
Bretlandi nýtt hedd á fjögurra
strokka vélina.
Eins og í kappakstursbílum
var þetta hedd með fjórum
ventlum á strokk og afar vand-
að að allri gerð, steypt hjá
Cosworth með sérstakri tækni.
Árangurinn er sá að úr 2,3
lítrum rúmtaks nást heil 185
hestöfl án nokkurra aukaverk-
ana eins og gangtregðu, lítils
snúningsátaks eða skamms líf-
tíma.
Til þess að ná þessari hest-
aflatölu má segja að séu þrjár
leiðir.
Sú fyrsta er að hafa vélina
stóra (sbr. „you can‘t beat
cubic inches"), raunar er vél
nú þegar í framleiðslu hjá
Benz sem gefur 185 hö, en hún
er sex strokka og 2,8 lítrar að
rúmtaki.
Önnur leiðin var að bæta
afgasforþjöppu („turbochar-
ger“) á fjögurra strokka vélina,
en gallar þeirrar lausnar þóttu
of miklir fyrir jafn virt merki
og Mercedes-Benz.
Þriðja leiðin þótti vænleg-
ust, þar sem vélar með 4 ventla
á strokk gefa mikla orku miðað
við eigin þyngd, minni fyrir-
ferð, og bestu nýtni eldsneytis.
Ekki sakar að í kappakstri,
þar sem skipt er í flokka eftir
rúmtaki vélar er þessi lausn
mjög góð.
Mercedes-Benz merkið hef-
ur áunnið sér orð fyrir virðu-
leika og fastheldni, en 190
2,3-16 lítur út eins og hann hafi
verið skreyttur hjá einum af
hinum mörgu og alltaf fjölg-
andi „Veredler" Þýskalands
með síða svuntu framan og
aftan, stærðar væng aftaná,
brettabreikkanir, síða sílsa-
lista og meira að segja auka-
klæðningu upp á miðjar hliðar,
allt úr plasti.
Að vísu ekki úr neinu drasl-
plasti, heldur glertrefjastyrktu
polýúreþani sem er í sama lit
og bíllinn, blásvart eða silfur-
grátt. Þessar viðbætur eru ekki
tómt skraut eins og flestra
aukahlutaframleiðendanna
heldur nákvæmlega útreiknað-
ir í vindgöngum til að minnka
loftmótstöðu og lyftingu og
vega upp á móti breiðum
dekkjunum (sem auka loft-
■ Merkilegasti hluti nýja
bflsins, heddið með fjóra
ventla á hvem strokk, tvískipta
soggrein og „pústflækjur“.
mótstöðuna töluvert). Þessi
dekk eru sérsmíðuð hjá Pirelli
fyrir einmitt þennan bíl, og
fjöðrunin stillt saman við ein-
mitt þessi dekk. Að sögn þeirra
sem reynt hafa er árangurinn
ekki minni en frábær og má
vænta þess að fleiri feti í
fótspor Benz og Chevrolet
(sem fékk Good Year til að
hanna sérstök dekk fyrir nýju
Corvettuna).
í ágúst í fyrra nærri ári áður
en bíllinn átti að koma á
almennan markað tóku Daiml-
er-Benz á leigu kappaksturs-
og reynslubrautina í Narde á
Suður-Ítalíu til þess að setja
nokkur heimsmet í hraðakstri,
náðu meðalhraðanum 247 km/
klst yfir vegalengdirnar 25.000
km, 25.000 mílur og 50.000
km.
Til þess þurftu ökumenn
Benz að aka bílunum í steikj-
andi hita stanslaust (nema til
að taka bensín og skipta unt
dekk og ökumenn) án loft-
ræstingar, því öll op voru
byrgð sem hægt var til þess að
minnka loftmótstöðuna. Eina
bilunin varð kveikjuhamar
sem brotnaði í einum af 3'
bílum og mátti ekki reglanna
vegna skipta um. í staðinn var
hann límdur saman í hasti og
dugði það sem eftir var!
Með þessu öllu saman tókst
verksmiðju'num að vekja á sér
stórkostlega athygli og já-
kvæða þar sem öll helstu bíla-
blöð heims birtu ítarlegar ríku-
lega myndskreyttar greinar um
heimsmetstilraunina og nýja
bílinn.
Önnur opibera sýningin á
bílnum var síðan nú um daginn
þegar hin fornfræga Núrburgr-
ing kappakstursbraut var opn-
uð aftur eftir gagngerar endur-
bætur. Við það tilefni lögðu
Mercedes-Benz til 12 eins 190
2,3-16 bíla sem jafnmargir
frægir kappakstursökumenn
óku fyrstu hringina á nýju
brautinni.
Fyrir marga var það mjög
táknrænt að sjá, þar sem áður
fyrr höfðu bestu ökumenn
heims ekið þar silfurlitum bíl-
um með þríodda stjörnunni til
sigurs frá opnun þessarar fræg-
ustu kappakstursbrautar
Þýskalands, ódauðlegum bíl-
um sem hæstu verð í bílaheim-
inum eru greidd fyrir nú, eins
og 300 SL (SuperLeicht) og
hinum ýmsu „Silberpfeil" (Silf-
urpíla) sérsmíðuðu kapp-
akstursbíla.
„Silberpfeil" hefði mátt
kalla hina 12 silfruðu 190 2,3-
16 þar sem ökumennirnir nýttu
230 km hámarkshraðann og
hröðun: sem „Silberpfeil"
eftirstríðsáranna hefði verið
fullsæmdur af, 7,5 sek. á 100
km hraða.
Strax á næsta ári verða þeir
svo í harðri keppni við aðra
bæði á Núrburgring og annar-
staðar í Evrópu en er spáð
algerum yfirburðum af keppi-
nautunum.
Langar þig í eintak? Sjálf-
sagt mál, verðið er u.þ.b. 800-
900 þúsund.
A.A.
o
Globusn
Lágmúla 5, Reykjavik,
siini 81555.
(D
^
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200
_ (Di 0
Bílasala Garðars
/^*\bíla- og batasalan f fzy SIMI 53233 J\ " Læk|argotu 46. Hafnarfirði I Borgartúni 1 sími: 19615
egill nnnnn ©
VILHJÁLMSSON HF
Smiðjuvegi 4c - Kópavogi - Simi 79944-79775
/Æk
©
BILASALA HÍNRÍKS
SÍMI93-1143
AKRANESI
æ
©
BILASALAN BUK s/f
SKEIFUNNI 8-108 REYKJAVÍK
SÍMI: 686477
JOFUR HF
NYBYLAVEGI2
KOP.AVOGI
SIMI42600
©
Bilasala Vesturlands
Borgarbraut-56
Borgarnesi 7577 & 7677
Ðílasaia Hornafjarðar
Álaugareyjavegi Höfn
Sími: 97-8782
0
Bílasalan
SKEIFAN
Skeifunni 1 1
Simar 84848 og 35035.
m
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
"Bl
r
0
BfLASALA
FITJUM - NJARÐVlK - SlMI 377«
Eina
tölvuvædda
bílasalan
, Grensásvegi 11-
a landinu 108Reykjavik-simi 83150
BÚASALAN
bilcS
Þjóðbraut 1 Akranesi
Sími: 93-2622
BILAMARKAÐUR
Símar:
18300-
686300