NT - 10.08.1984, Síða 15
Föstudagur 10. ágúst 1984 15
IlL Útvarp — Sjónvarp
Útvarp laugardag klukkan 15.10:
Tímaf rekt en skemmtilegt
- segir Gunnar Salvarsson umsjónarmaður „Listapoppsins“
■ Afi Anssa segir honum frá því þegar hann gekk á skíðum
til að komast í skólann í gamla daga.
Sjónvarp laugardag klukkan 18.30:
Afi og Anssi
Finnsk barnamynd.
Þýðandi: Trausti Julíusson
■ „Þetta er nú ósköp stutt
mynd", sagði Trausti Júlíusson
þýðandi „Afa og Anssa“.
„Hún fjallar um afa sem segir
dóttursyni sínum Anssa frá
sinni skólagöngu áður fyrr.
Hann gekk í sveitarskóla og
þá var allt langtum frumstæð-
ara og erfiðara og líka meiri
agi á öllu. Þetta er svona
smámynd til að sýna krökku-
num að hlutirnir voru ekki eins
þægilegir í gamla daga og þeir
eru í dag.“
Sjónvarp laugardagskvöld klukkan 22.45:
Dularfullir
atburðir
í Feneyjum
■ Klukkan 22.45 á laugar-
dagskvöldið endursýnir sjón-
varpið breska biómynd frá
árinu 1973, „Eigi má við öllu
sjá“ („Don’t looknow”). Leik-
stjóri er Nicholas Roeg, aðal-
Eigimá
við öllu
sja,
breskbío-
mynd 1rá árinu
1973
hlutverk leika Donald Suther-
land og Julie Christie.
Dóttir hjónanna Johns og
Lauru drukknar á mjög svip-
legan hátt rétt við heimili
þeirra og þau eru svo miður sín
eftir áfallið að þau treysta sér
ekki til að búa lengur í húsinu.
John er listamaður og fær
vinnu við að gera við listaverk
í kirkju í Feneyjum, og þau
flytja þangað en minningin um
dóiturina ásækir þau stöðugt.
í Feneyjum fara svo að gerast
atburðir sem þau setja í sam-
band við eitthvað dulrænt, því
þau þykjast sjá dóttur sína
hvað eftir annað.
Myndin er ekki við hæfi
barna.
urlagatónlist til þessara
landa, þó það sé auðvitað
mikið af góðri tónlist annars
staðar. Þessi vinsælustu lög
eru ekki endilega sú tónlist
sem mér er mest að skapi,
mér finnst hinsvegar svona
vinsældalistar afskaplega
merkileg fyrirbæri og hef alla
tíð reynt að fylgjast með
þeim. Þeireru svonapínulítill
samtímaspegill. Hinsvegarer
því ekki að leyna að þetta er
kannski ekki endilega besta
rokktónlistin og oft alls ekki,
þetta eru meira slagarar.
Margir flaska á því að halda
að rokk sé bara þessi vinsæla
tónlist, en rokkið er miklu
meira.
Listapopp er þáttur sem
hefur verið í ákaflega föstum
skorðum frá upphafi, en vin-
sældalistarnir breytast, ogþar
með lögin. Ég hef verið með
þáttinn í rúmt ár, minnir mig,
ætli ég verði ekki bara elli-
dauður í þessu. Það sem mér
finnst skemmtilegast við
þetta er að fylgjast með í því
sem gerist nýtt, þetta er ágætt
tækifæri fyrir unga og nýja
flytjendur til þess að koma
sér á framfæri, og maður
verður að fylgjast vel með til
þess að geta haldið út svona
þætti. Það er ekki nóg bara
að nefa nafnið á laginu og
flytjandanum, maður verður
helst að þekkja eitthvað til
þeirra og það er auðvitað
tímafrekt en skemmtilegt.
■ John og Laura fara til Feneyja þar sem ýmsir undarlegir atburðir fara að gerast.
■ „Listapopp" Gunnars
Salvarssonar er á dagskrá
útvarpsins klukkan 15.10 á
laugardaginn, og að því til-
efni fannst okkur bráðsnjöll
hugmynd að fá Gunnar til að
segja nokkur orð um þáttinn:
„Listapopp er þáttur sem
á að kynna íög af vinsældalist-
um í Bretlandi og Bandaríkj-
unum. Þessi lönd eru höfuð-
stöðvar rokksins, og á vinsælda-
listum þar eru jafnan lög sem
njóta mikillar hylli hér heima.
Ég hef haft fyrir reglu að
kynna lög sem eru í efstu
sætunum og lög sem eru á
hraðferð upp listana, en
sleppi þeim sem eru á niður-
leið. Ég hef til umráða 50
mínútur, og kem að svona
14-15 lögum, eða 7 lögum af
hvorum lista.
Mestu erfiðleikarnir við
þessa þáttagerð eru aðföngin,
að útvega plöturnar. Þetta
eru glænýir listar sem ég
kynni eftir, breski listinn er
til dæmis kynntur í Lundún-
um á miðvikudegi, og stund-
um kemur það fyrir að lög
fara beint inn á topp 20, og
þá getur verið dálítið snúið
að hafa þá plötu við hendina.
En ég hef allar klær úti og
reyni eftir bestu getu að út-
vega þessi lög, en það fer sem
sagt talsverður tími í þessi
aðföng, og það hefur komið
fyrir að ég hafi ekki náð í
plötu þá vikuna sem hún kom
inn á listann.
Ég lít auðvitað á aðra lista
af og til, og kynni þá topplög
frá Þýskalandi, Hollandi,
Svíþjóð og fleiri löndum, en
ég hef sem sagt aðallega ein-
beitt mér að Bretlandi og
Bandaríkjunum því við
höfum alltaf sótt okkar dæg-
■ „Vinsældalistar eru merki-
leg fyrirbæri, en rokkið er
auðvitað mikið meira en það
sem verður vinsælast á hverj-
um tíma.“ Gunnar Salvarsson
sér um „Listapopp.“
Laugardagur
11. ágúst
7.00 Veöuriregnir. Fréttir. BænTón-
■ leikar. Þulur velur og kynnir. 7.25
Leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Frá Ólympíul-
eikunum. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Ásgeir Þon/aldsson,
Súgandafirði, talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga Helga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir). Óskalög
sjúklinga frh.
11.20 Súrt og sætt. Sumarþáttur fyrir
unglinga. Stjórnendur: Sigrún Hall-
dórsdóttir og Erna Arnardóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.40 íþróttaþáttur Umsjón: Ragnar
Örn Pétursson
14.00Á ferð og flugi. Þáttur um
málefni liðandi stundar I umsjá
Ragnheiðar Davíðsdóttur og Sig-
urðar Kr. Sigurðssonar
15.10 Listapopp - Gunnar Salvars-
son. (Þátturinn endurtekinn kl.
24.00).
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Framhaldsleikrit: „Gilberts-
málið“ eftir Frances Durbridge
V. þáttur: „Kvenlegt hugboð"
(Áöur útv. 1971) Þýðandi: Sigrún
Sigurðardóttir. Leikstjóri: Jónas
Jónasson. Leikendur: Gunnar Eyj-
ólfsson, Helga Bachmann, Jón
Aðils, Jón Júlíusson, Baldvin Hall-
dórsson, Pétur Einarsson, Brynja
Benediktsdóttir, Þóra Borg, Rúrik
Haraldsson og Benedikt Árnason.
17.00 Fréttir á ensku
17.10 Síðdegistónleikar
18.00 Miðaftan I garðinum með
Hafsteini Hafliðasyni.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Elskaðu mig: 3. þáttur
Dagskrá um ástir í ýmsum
myndum. Umsjón: Viðar Eggerts-
son. Flytjendur ásamt honum: Ása
Ragnarsdóttir, Evert Ingólfsson og
Margrét Helga Jóhannsdóttir.
(Áður útvarpað 1978)
20.00 Manstu, veistu, gettu. Hitt og
þetta fyrir stelpur og stráka. Stjórn-
endur: Guðrún Jónsdóttir og Mál-
fríður Þórarinsdóttir.
20.40 „Laugardagskvöld á Gili“
Stefán Jökulsson tekur saman
dagskrá úti á landi.
21.15 Harmonikuþáttur Umsjón:
Högni Jónsson.
21.45 Einvaldur í einn dag Samtals-
þáttur í umsjá Áslaugar Ragnars.
22.00 Tónleikar
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 „Að leiðarlokum" eftir
Agöthu Cþristie Magnús Rafns-
son les þýðinguy sína (4).
23.00 Létt sígild tónlist
23.40 Fréttir frá Ólympíuleikunum
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til kl.
Laugardagur
11. ágúst
24.00-00.50 Listapopp Endurtekinn
þáttur frá Rás-1. Stjórnandi: Gunn-
ar Salvarsson.
00.50-03.00 Á næturvaktinni Létt
lög leikin af hljómplötum. Stjórn-
endur: Kristin Guðnadóttir og Þóra
Hrönn Óðinsdóttir.
(Rásir 1 og 2 samtengdar kl. 24.00
og heyrist þá i Rás-2 um allt land).
Laugardagur
11. ágúst
15.00 Ólympíuleikarnir i Los Ange-
les.
18.30 Afi og Anssi Finnsk barna-
mynd. Afi segir frá skólagöngu
sinni. Þýöandi Trausti Júlíusson.
(Nordvision - Finnska sjónvarpið)
18.50 Ólympíuleikarnir í Los Ange-
les. Iþróttafréttir frá ólympíu-
leikunum 1984. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson. (Evróvision - ABC
og Danska sjónvarpið)
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.301 fullu fjöri. Fjórði þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur i sex
þáttum. Aðalhlutverk: Julia Mack-
enzie og Anton Rogers. Þýðandi
Ragna Ragnars.
21.00 Svlkahrappur (The Flim Flam
Man) Bandarísk gamanmynd frá
1967. Leikstjóri Irvin Kershner.
Aðalhlutverk: George C. Scott,
Michael Sarrazin og Sue Lyon.
Ungur strokumaður úr hernum
slæst í för með alræmdum lands-
hornaflakkara og lifsspekingi. Þeir
kumpánar koma ár sinni vel fyrir
borð með ýmsum prettum en verðir
laganna sitja stöðugt um þá. Þýð-
andi Ellert Sigurbjörnsson.
22.45 Eigi má við öllu sjá. (Don’t
Look Now) Endursýning Bresk
biómynd frá 1973, gerð eftir skáld-
sögu Daphne du Maurier. Leik-
stjóri Nicholas Roeg. Aðalhlutverk:
Donald Sutherland og Julie Christ-
ie. John og Laura missa unga
dóttur sína mjög sviplega. Þau una
ekki lengur heima i Bretlandi en
halda til Feneyja þar sem dularfullir
atburðir taka að gerast.
00.35 Dagskrárlok.