NT - 10.08.1984, Síða 16
Föstudagur 10. ágúst 1984 16
Sýningar
Félagsheimili Ölfusinga
■ Ólafur Th. Ólafsson opnar
myndlistarsýningu í félags-
heimilinu í Hveragerði á Iaugar-
dagkl. 14. Ásýningunnieru40
myndir, unnar með olíulitum
og blandaðri tækni. Þetta er 5.
einkasýning Ólafs, en hann
útskrifaðist úr málunardeild
Myndlista- og handíðaskóla Is-
lands árið 1979. Sýningin er
opin ki. 16-22 virka daga og
14-22 um helgar. Henni lýkur
19. ágúst.
Gallerí Langbrók
■ í galleríinu stendur yfir
sölusýning Langbróka og má
þar sjá grafíkmyndir, gler-
myndir, vatnslitamyndir,
textíl, fatnað, skartgripi úr
postulíni og fleira. Sýningin er
opin virka daga kl. 12-18 og
14-18 um helgar.
■ Ein af bernskuminningum Atla Ólafssonar er „Hvíta stríðið“ árið 1921.
Útvarp sunnudagskvöld klukkan 21.40:
Guðjón
Friðriksson
ræðir
við Atla
Ólafsson
■ GuðjónFriðrikssonverður
með þáttinn „Reykjavík
bernsku minnar" á sunnudags-
kvöldið klukkan 21.40, og ræð-
ir þá við Atla Ólafsson. Við
hringdum í Guðjón til að for-
vitnast um Atla:
„Atli er fæddur 1913 og er
einkasonur Ólafs Friðriksson-
ar ritstjóra Alþýðublaðsins,
sem var eins og menn vita
umdeildur og áberandi maður.
Móðir Atla var dönsk og var
líka töluverð atkvæðakona.
Hún stofnaði Hljóðfærahús
Reykjavíkur og rak það, og
beitti sér fyrir því að hingað
komu ýmsir heimsfrægir tón-
listarmenn fyrri hluta aldarinn-
ar. Það var oft mjög mikið um
að vera á þessu heimili, bar-
áttufélagar Ólafs komu þar
gjarnan og eins sóttu listamenn
til beggja hjónanna.
Atli kemur til með að skýra
frá æskuheimili sínu, sem var
á ýmsum stöðum í Reykjavík,
gjarnan í grennd við miðbæ-
inn, við Suðurgötuna, við
Austurstræti og víðar, og hann
lýsir þessu umhverfi og ýmsum
atburðum. Það stóð mikill
styrr um þetta heimili, það var
til dæmis „Hvíta stríðið“ árið
1921.“
Þátturinn „Reykjavík
bernsku minnar“ verður
endurtekinn á mánudagsmorg-
uninn klukkan 11.20.
■ í „Reykjavík bernsku minnar“ talar Guðjón Friðríksson við
Atla Ölafsson sem ólst upp á einu umdeildasta heimili Reykjavík-
ur fyrri hluta aldarinnar.
Gallerí Lækjartorg
■ Ólafur Sveinsson opnar
myndlistarsýningu á laugardag
og sýnir að þessu sinni ein-
göngu blýantsteikningar. Þetta
er fjórða sýning Ólafs á þessu
ári og stendur hún til 19. ágúst.
Allar myndirnar eru til sölu.
Light Nights
i Tjarnarbíói
■ Ferðaleikhúsið hefur nú
hafið sumarsýningar fyrir er-
lenda ferðamenn á íslandi, 15.
árið í röð. Sýningarnar fara
fram í Tjarnarbíói, fimmtu-
daga, föstudaga, laugardaga
og sunnudaga og hefjast kl. 21.
Light Nights sýningarnar eru
með nokkuð breyttu sniði í
sumar frá því, sem áður hefur
verið, þar sem þær eru ekki að
öllu leyti byggðar upp sem
kvöldvökur. Einnig eru sýnd
atriði úr nútímanum. Tónlist á
sýningunum er flutt af hljóm-
plötum, en einnig eru nokkur
þjóðlög sungin á íslensku.
Kristín G. Magnús leikkona
er sögumaður og flytur allt
talað efni á ensku.
Tónlist
Islenska óperan
■ íslenska óperan gengst fyr-
ir sumardagskrá á föstudags-
kvöldum til styrktar starfsemi
sinni. Dagskrá þessi er m.a.
ætluð erlendum ferðamönnum
og á fyrri hluta hennar er
þjóðlegur bragur. Síðari hlut-
inn er samsettur úr atriðum úr
óperum, óperettum og söng-
leikjum. Þeir sem koma fram
á þessum kvöldum eru söng-
varar hússins, kór óperunnar,
stjórnandinn Garðar Cortes og
undirleikarinn Þóra Fríða
Sæmundsdóttir. Listamennirn-
ir koma fram endurgjaldslaust.
Skemmtunin hefst kl. 21.
Kjarvalsstaðir
■ Fimm ungir listamenn opna grafík- og teiknisýningu í
austursal á laugardag, alls 40 verk. Listamennirnir eru Aðalheiður
Valgeirsdóttir, Hildigunnur Gunnarsdóttir, Sigurbjörn Jónsson
og Svala Jónsdóttir. Sýningin er opin daglega kl. 14-22 og lýkur
26. ágúst.
Skálholt
■ Síðustu sumartónleikarnir
á þessu ári verða á laugardag
og sunnudag. Þaí koma fram
trompettleikarinn Ásgeir
Steingrímsson og orgelleikar-
inn Orthulf Prunner. Þeir leika
verk eftir Torelli, Vivaldi, J.S.
Bach, Hándel og Purcell, auk
þess, sem þeir flytja stef úr
Þorlákstíðum frá 13 öld. Ás-
geir lauk einleikaraprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykja-
vík árið 1979 og hélt síðan til
New York, þar sem hann var
til ársins 1983. Orthulf Prunner
er Vínarbúi og stundaði þar
orgelnám. Hann hefur verið
búsettur hér á landi í nokkur
ár og hefur starfað sem organ-
leikari við Háteigskirkju. Tón-
leikarnir í Skálholtskirkju
hefjast kl. 16 og er aðgangur
ókeypis.
Norræna húsið
■ íslandsdeild Ung Nordisk
Musik heldur tónleika á sunn-
udagkl. 17, þarsem flutt verða
tónverk eftir fimm ung íslensk
tónskáld. Þau eru Mist Þork-
elsdóttir, Haukur Tómasson,
Árni Harðarson, Lárus Gríms-
son og Atli Ingólfsson. Meðal
flytjenda verður Hamrahlíðar-
kórinn. Tónsmiðirnir fimm
munu taka þátt í norrænni
tónlistarhátíð í Málmey síðar í
þessum mánuði.
Ferðalög
Sumarleyfisferðir
Ferðafélagsins:
1. 9.18. ágúst (10 dagar):
Hornvík-Hornstrandir. Tjald-
að í Hornvík og farnar dags-
ferðir frá tjaldstað.
2. 10-15. ágúst (10 dagar):
Ekið norðurSprengisand. Síð-
an farið um Gæsavatnaleið í
Öskju, Dyngjufjöll, Herðu-
breiðarlindir, Mývatn,
Kverkfjöll, Jökulsárgljúfur,
Ásbyrgi, Tjörnes. Til baka er
farið um Auðkúluheiði og
Kjöl. Ath.: Þessi ferð kemur í
stað ferða nr. 20 og 27 í
ferðaáætlun.
4.11-18. ágúst (8dagar): Hver-
avellir-Krákur á Sandi-Húsa-
fell. Gönguferð með viðleg-
uútbúnað.
5. 14-19. ágúst(6dagar)Fjörð-
ur-Flateyjardalur. Gist í svefn-
pokaplássi á Grcnivík og farn-
ar ferðir þaðan í Fjörðu og
Flateyjardal.
6. 17-22. ágúst (6 dagar) Land-
mannalaugar-Þórsmörk.
Gönguferð milli sæluhúsa.
7. 17.-26. ágúst (10 dagar):
Hvítárnes-Þverbrekknamúli-
Þjófadalir-Hveravellir. Geng-
ið milli sæluhúsa frá Hvítárnesi
til Hveravalla. Nánari upplýs-
ingar og farmjðasala á skrif-
stofu F.I., Öldugötu 3.
ATH.: Allar sumarleyfisferðir
á greiðslukjörum.
Ferðafélag íslands.
Helgarferðir 10-12. ágúst
(brottför kl. 20. föstud.)
1. Hveravellir - Þjófadalir -
Grasaferð. Gist í sæluhúsi F.I.
2. Þverbrekknamúli -Hrútafell
(1410 m) Gist í sæluhúsi F.í.
4. Þórsmörk. Gist í Skag-
fjörðsskála. Uppselt.
5. Landmannalaugar - Eldgjá.
Gist í sæluhúsi. F.í. í Land-
mannalaugum.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu F.Í., Öldugötu 3.
Miðvikudag 15. ágúst - kl. 08
- Þórsmörk, dagsferð/og far-
þegar til lengri dvalar.
Miðvikudag 15. ágúst kl. 20.
Vífilsstaðahlíð - Sveppaferð.
Verð kr. 200,- (kvöldferð).
Brottför frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin. Far-
miðar við bíl. Frítt fyrir börn í
fylgd fullorðinna.
Ferðafélag íslands.
Sunnudagur
12. ágúst
8.00 Morgunandakt Séra Bragi
Friöriksson prófastur flytur ritning-
arorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl.
8.35 Létt morgunlög Strauss-
hljómsveitin i Vinarborg leikur lög
eftir Johann, Josef og Eduard
Strauss. Willi Boskovsky og Walter
Goldschmidt stj.
9.00 Fréttir
9.05 Morguntónleikar a. Tokkata
úr Orgelsinfóniu nr. 5 i f-moll op.
42 eftir Widor og „Bæn" eftir
Boéllman. Jane Parker-Smith
leikur á orgelið i Westminster-
dómkirkjunni. b. „Exultate, jubi-
late“, mótetta í F-dúr K. 165 fyrir
sópran, og Messa i C-dúr K. 257
eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Kór og Sinfóniuhljómsveit útvarps-
ins í Vinarborg flytja. Einsöngvar-
ar: Krisztina Laki, Carolyn Watkin-
son, Tomas Moser og Robert Holl.
Organleikari: Rudolf Scholz;
Leopold Hager stj.
10.00 Fréttir. Frá Ólympiuleikunum.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Út og suður Þáttur Friðriks
Páls Jónssonar.
11.00 Messa á Elliheimilinu Grund
Prestur: Séra Lárus Halldórsson.
Organleikari: Daníel Jónasson.
Hádegistónleikar.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30Á sunnudegi Umsjón: Páll
Heiðar Jónsson.
14.15 „Jónas og Jafetus1'
15.15 Lífseig lög Umsjón: Asgeir
Sigurgestsson, Hallgrimur Magn-
ússon og Trausti Jónsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Háttatal Þátturumbókmenntir.
Umsjónarmenn: Ornólfur Thors-
son og Árni Sigurjónsson.
17.00 Fréttir á ensku
17.10 Hljóðritun frá tónleikum til
styrktar íslensku hljómsveitinni
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Eftir fréttir Umsjón: Bernharð-
ur Guðmundsson.
19.50 „Það er haegt" Hjalti Rögn-
valdsson les Ijóð eftir Kára
Tryggvason.
20.00 Sumarútvarp unga fólksins
Stjórnandi: Helgi Már Baröason.
21.00 Merkar hljóðritanir a. Eugen
d'Albert leikur á pianó Ballöðu i
g-moll op. 24 eftir Edward Grieg.
b. Jenö Hubay leikur á fiðli tónlist
eftir Hándel, Bach og sjálfan sig.
21.40 Reykjavík bernsku minnar -
11. þáttur Guðjón Friðriksson
ræðir við Atla Ólafsson. (Þátturinn
endurtekinn í fyrramálið kl. 11.20).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 „Að leiðarlokum" eftir
Agöthu Christie Magnús Rafns-
son les þýðingu sina (5).
23.00 Djasssaga Kvikmyndir II - Jón
Múli Arnason.
23.45 Fréttir frá Ólympíuleikunum
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Sunnudagur
12. ágúst
13.30-18.00 S-2, (sunnudagsút-
varpjTónlist, getraun, gestir og
létt spjall. Þá eru einnig 20 vinsæl-
ustu lög vikunnar leikin frá kl.
16.00-18.00. Stjórnendur: Páll
Þorsteinsson og Ásgeir Tómas-
son.
Sunnudagur
12. ágúst
15.00 Óiympiuleikarnir í Los Ange-
les. (þróttafréttirfráólympíuleikun-
um 1984. Umsjónarmaður Bjarni
Felixson. (Evróvision - ABC og
Danska sjónvarpið)
18.00 Sunnudagshugvekja. Séra
Sigurður H. Guðmundsson sókn-
arprestur í Hafnarfirði, flytur.
18.10 Geimhetjan. Sjöundi þáttur.
Danskur framhaldsmyndaflokkur í
þrettán þáttum fyrir börn og ungl-
inga. Þýðandi og þulur Guðni Kol-
beinsson. (Nordvision - Danska
sjónvarpið)
18.35 Mika. Þriðji þáttur. Sænskur
framhaldsmyndaflokkur í tólf þátt-
um um samadrenginn Mika og
ferð hans með hreindýrið Ossian
til Parisar. Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir. Þulur Helga Edwald.
19.00 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.45 Tónlelkar í Bústaðakirkju -
fyrri hluti. Pétur Jónasson og
Hafliði M. Hallgrimsson leika á
gítar og selló á Listahátíð 1984.
Upptöku stjórnaði Þrándur Thor-
oddsen.
21.20 Hin bersynduga. Þriðji þáttur.
Bandarískur framhalds-
myndaflokkur í fjórum þáttum
byggður á samnefndri skáldsögu
eftir Nathaniel Hawthorne. Þýð-
andi Jóhanna Þráinsdóttir.
22.10 Ólympíuleikarnir í Los
Angeles. Iþróttafréttir frá ólympíu-
leikunum 1984. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson. (Evróvision - ABC
Danska sjónvarpið)
23.30 Dagskrárlok.