NT - 10.08.1984, Page 18
Föstudagur 10. ágúst 1984 18
■ Níu mánaða frelsi yngdi Heidi upp um mörg ár.
■ Vonbrigðin yflr móttökunum heima í Sviss hafa
sett mark sitt á Heidi og hún er nú nær því en
nokkru sinni fyrr að gefast upp.
Níu mánaða frelsi greitt dýru verði
■ Heidi Gabler var orðin 44
ára gömul, þegar hún tók ör-
lagaríka ákvörðun. Hún ætlaði
ekki að sætta sig við að lifa
lífinu á sama tilbreytingarlausa
og áhyggjufulla mátann til ævi-
loka. Hún ætlaði að taka málin
í sínar hendur og gera bylt-
ingu. Heidi lét ekki sitja við
tilhugsunina eina, heldur hófst
þegar handa. En fullnaðaraf-
leiðingar breytni sinnar sá hún
ekki fyrir.
Heidi var búin að vera gift í
22 ár, húsgagnasmið sem hafði
einna mestan áhuga á íþróttum
og sjónvarpsglápi. Börnin 3
voru orðin uppkomin, það
yngsta 16 ára. Aðalstarf Heidi
hafði til skamms tíma verið að
gæta bús og barna í svissnesku
þorpi skammt frá Zúrich, en
þar sem fjármál fjölskyldunnar
voru í mesta ólestri sökum
óráðsíu húsbóndans, fékk hún
hálfsdagsvinnu sem einkaritari
fyrir 11 árum. Heidi stóð sig
vel í vinnunni og þar kynntist
hún því, sem hún fór algerlega
á mis við heimafyrir, hún fékk
hrós fyrir vel unnið starf. Hún
hikaði því ekki við að taka að
sér heilsdagsvinnu, þegar hún
hafði gert sér Ijóst, að ekki
dygði hálfsdagsvinna til að
koma fjárhag fjölskyldunnar á
réttan kjöl. Reyndar komst
hún fljótt að raun um að heils-
dagsvinna hennar dugði ekki
heldur til.
Heima fyrir var allt við það
sama, þó að Heidi væri farin
að vinna utan heimilis allan
daginn. Þar æptu allir á þjón-
ustu hennar sýknt og heilagt
og engum datt í hug að lyfta
litla fingri sjálfur heima fyrir.
Krakkarnir rifust sífellt og eig-
inmaðurinn sat steinþegjandi
fyrir framan sjónvarpstækið,
þegar hann var heima. Hann
lagði ekki einu sinni við hlust-
irnar, þegar kona hans reyndi
að ræða við hann um í hvert
óefni væri komið málum fjöl-
skyldunnar.
Heidi greip þá til þess ráðs
að fara á fund lögfræðings og
fela honum að sjá um skilnað
fyrir sig. Það var ekki fyrr en
bréfið frá lögfræðingnum barst
í hendur manni hennar, að
hann rankaði við sér að henni
væri alvara. En nú var ekki
aftur snúið fyrir Heidi. Hún
hélt áformum sínum til streitu
og eitt atriði í þeim var að fara
eitthvað langt í burtu. Ein-
hverra hluta vegna varð Sing-
apore fyrir valinu. Þaðan lá
svo leið hennar til Sumatra, en
þar stundar gamall kennari
hennar fornleifarannsóknir
einhvers staðar inni ífrumskóg-
inum og hann hafði oft boðið
henni að koma til sín. Þegar
landvistarleyfi hennar á Su-
mötru rann út, hélt hún svo til
Sri Lanka í leit að uppfyllingu
á einhverjum óljósum draumi
um gönguferðir á óendan-
legum, hvítum ströndum í
skugga pálmatrjáa.
Raunveruleikinn varð þó
annar en hún hafði hugsað sér.
í Columbo, höfuðborg Sri
Lanka, tók hún sér ból í
útjaðri stórs mýrarsvæðis. Þar
átti einnigbólfestu urmull mý-
flugna, sem tóku á móti Heidi
með því að stinga hana og
bíta, þar til hún leit út eins og
gatasigti. Og í landinu ríkti
borgarastyrjöld, sem Heidi
varð svo sannarlega vör við.
En á Sri Lanka varð Heidi
fyrir þeirri gæfu að kynnast
góðu fólki, sem tók hana með
sér á stað, sem uppfyllti draum
hennar. Þar átti hún eldheitt
ástarævintýri með innfæddum
manni, sem yngdi hana upp
um mörg ár. En eftir 7 mánaða
sveitasælu, fór Heidi að finna
til viss óróleika. Tími var kom-
inn til að halda heim til Evrópu
og kynnast börnunum sínum
aftur, þau hlutu að vera hætt
að rífast.
Það var á flugvellinum í
Zúrich, sem rann upp fyrir
Heidi Ijós um að hún hefði
raunverulega brennt allar brýr
að baki sér, þegar hún hélt
fyrirvaralítið út í heim frá
eiginmanni og börnum 9 mán-
uðum fyrr. Maður hennar upp-
lýsti hana um það, að skilnað-
urinn væri genginn í gegn og
hann vildi ekkert af henni vita.
Og það vildu börnin ekki
heldur. Gömlu vinirnir vildu
ekkert við hana kannast og
ekki fékk hún vinnu, þar sem
því var borið við að hún hefði
sýnt gróft ábyrgðarleysi með
því að hlaupa frá öllu saman.
Er hægt að finna upp reiðhjólið?
■ Ef þið komið til eist- sé. Hér ferðast allir um á skyldur hjóla og sumir
nesku borgarinnar Tartú, hjóli, frá smábörnum upp í liggjandi, eins og sjá má af
sannfærist þið um að svo gamalmenni. Heilar fjöl- meðfylgjandi myndum.
Þrír hjólreiðamenn á sama hjólinu.