NT - 10.08.1984, Síða 26
Föstudagur 10. ágúst 1984 26
Siglingar á ÓL:
fslendingarnir
höfnudu í 23. sæti
■ Gunnlaugur Jónasson og
Jón Pétursson höfnuðu í 23.
sæti í siglingakeppninni á bát-
um af 470 tegund á Ólympíu-
leikunum, en keppendur voru
alls 28. Peir hlutu 147 refsistig,
þar af 26 refsistig í sjöundu og
síðustu umferð í fyrradag er
þeir lentu í 20. sæti.
Sigurvegari í 470 flokknum
varð Spánverjinn Luis Doreste
með 33,70 refsistig, Bandaríkj-
amaðurinn Stephen Benjamin
varð annar með 43,0 stig og
Thierry Peponnet, Frakklandi,
varð þriðji með 49,40 refsistig.
Bandaríkjamenn voru mjög
sigursælir í siglingakeppninni
á Ólympíuleikunum, hlutu
þrenn gullverðlaun og fern silf-
urverðlaun í flokkunum sjö.
■ Vésteinn Hafsteinsson sést hér í einu kastanna sinna í undankeppninni í kringlukasti. Vésteini tókst ekki nægjanlega vel upp og
varð í 14,sæti. Sínnmynd-POLFOTO
Stangarstökk á ÓL:
Tvenn verðlaun
til
Hástökk á ÓL:
Þórdís ekki áfram
Thompson
■ Rétt áður en NT fór í
prentun þá hafði Dale
Thompson forystu ■ tug-
þrautarkeppninni með
6365 stig en Hingsen var
rétt í rassinum á honum
eftir 7 greinar með 6333
stig. Sjötta greinin var
kringlukast og tókst
Thompson að ná góðu
kasti í sinni síðustu tilraun
annars var Hingsen langt
á undan.
Ovett
keppir
■ Steve Ovett mun keppa
í 1500 m hlaupinu sem hófst
í nótt þ.e. undanrásir.
Hann stóðst læknispróf og
sagðist sjálfur vera tilbúinn
til að taka þátt í hlaupinu.
Þetta er þriðja tilraun hans
til að vinna ÓL-gull í 1500
m hlaupi.
■ Þórdís Gísladóttir há-
stökkvari komst ekki áfram í
hástökkskeppni ÓL í gær-
kvöldi. Ekki tókst NT að hafa
uppá hve hátt Þórdís stökk alls
en lámarkshæð til að komast í
úrslitin var 1,90 m. Alls komust
15 stúlkur í úrslitin og meðal
þeirra má nefna Ulrike Mey-
farth frá V-Þýskalandi, Söru
Simenni frá Ítalíu og Debbie
Brill frá Kanada. Islandsmet
Þórdísar er 1,87 þannig að hún
hefði þurft að bæta það til að
komast áfram. En það tókst
sem sagt ekki.
1. deild kv.:
Naumur
sigur
Skaga-
kvenna
■ Skagastúlkurnar
sigruðu KR-dömur í 1.
deild kvenna í gær 2-1.
Sigurmark ÍA gerði Ásta
Rúnarsdóttir eftir að skot
Laufeyjar Sigurðardóttur
hafði stoppað í polli.
Laufey gerði fyrra mark
í A en áður hafði Margrét
Leifsdóttir náð forystu
fyrir KR.
UBK og Valur skildu
jöfn á Kópavogsvelli 1-1.
Sigrún Cora náði forystu
fyrir Val en Margrét Sig-
urðardóttir jafnaði
metin. Ekki tókst að ná
úrslitum frá leik ÍBÍ og
Víkings.
■ Frakkar og Bandaríkja-
menn hlutu tvenn verðlaun
hvor þjóð í stangarstökkskeppn-
inni á Olympíuleikunum. Sig-
urvegari varð Pierre Ouinon,
Frakklandi, stökk 5,75 m og í
öðru sæti hafnaði Mike Tully,
Bandaríkjunum, stökk 5,65 m.
Jafnir í þriðja sæti voru Earl
Bcll og Thierry Vigneron,
stukku báðir 5,60 m.
Árangur frekar slakur,
einkanlega ollu Vigneron og
Bell vonbrigðum. Vigneron á
best 5,83 og Bell 5,82 m.
Heimsmetið er í eigu Sovét-
mannsins Sergei Bubka, 5,90
m.
Kvennamót
á Akranesi
keppni
FRI
■ Bikarkcppni Frjáls-
íþróttasambands Islands,
í 1. deild, fer fram dagana
18. og 19. ágúst á Laugar-
dalsvelli. Liðsskipanir
þeirra liða, sem þátt taka
í bikarkeppninni, skulu
hafa borist skrifstofu
FRÍ fyrir 15. ágúst.
■ Akraprjónsmótið, hið ár-
lega opna kvennamót í golfi
verður haldið á Garðavelli á
Akranesi, n.k. laugardag 11.
ágúst. Mótið hefst kl. 13.00.
Það er Akraprjón á Akranesi
sem gefur verðlaun til keppn-
innar, en keppt er bæði með og
án forgjafar. Auk þess verða
ýmis aukaverðlaun.
Þá vill Golfklúbburinn Leyn-
ir tilkynna að Olís unglinga-
keppninni sem auglýst hafði verið
12. ágústn.k. er frestað fram til
9. september n.k.
Menotti á kreik
■ Kristján Arason sést hér skora í leiknum gegn Sviss. Eins og NT skýrði frá og alþjóð veit þá
sigruðu Islendingar og munu spila gegn Svíum um fimmta sætið á OL og yrði það stórgóður árangur
ef íslendingar næðu því. s«u«y»a-POLFOTO.
■ Miklar líkur eru nú taldar
á því að Cesar Luis Menotti,
sem gerði Argentínumenn að
heimsmeisturum í knattspyrnu
árið 1978, taki við stöðu þjálf-
ara hjá félaginu River Plate í
Buenos Aires í Argentínu.
Menotti sagði af sér sem fram-
kvæmdastjóri Barcelona á
Spáni fyrr á árinu.
í gær átti hann þriggja klukku-
stundalangan fund merð for-
ráðamönnum River Plate og
sagði eftir fundinn, að þótt
hann hefði marglýst því yfir að
hann vildi ekki snúa til baka til
Argentínu væri tilboð River
Plate það gott að erfitt væri að
hafna því.
Fyrrverandi þjálfari River
Plate, Luis Cubilla, sagði af sér
á mánudag eftir að lið hans
hafði tapað 1-5 fyrir Santa Fe.
■ Cesar Luis Menotti í þungum
þönkum. Tekur hann boði River
Plate?
-ár
Happdrœtti ársins
Ferð til Stuttgart á leik Stuttgart gegn Bayern Munchen.
Athugið:
Dregið á morgun, vinningar
birtast í helgarblaðinu.
NT - blaðið þitt!
Ping-mótið
í golfi
Hið árlega' Ping mót í golfi
verður haldið í Borgarnesi um
næstu helgi, 11. og 12. ágúst.
Völlurinn þar er nú í mjög góðu
ástandi og ný braut veður tekin í
notkun þar um þessa helgi, svo-
nefnd Bragarbót.
Báða dagana verða sýndar vi-
deómyndir frá öllum stærstu golf-
mótum ársins, svo sem U.S. open
og British open.
Glæsilegt golfsett verður veitt
þeim sem fer holu í höggi og auk
þess verða veitt verðlaun fyrir högg
næst holu. Þá verða þrír efstu í
flokki með og án forgjafar verð-
launaðir með glæsilegum vegg-
skjöldum. Öll verðlaunin eru gefin
af IsIen/k-Ameríska verslunarfé-
laginu, sem er umboðsaðili fyrir
Ping golfkylfurnar.