NT - 29.08.1984, Page 1

NT - 29.08.1984, Page 1
Framkvæmdastofnun selur 20 prósent hlutabréfa í Álafossi á 35 milljónir í dag er fjallað um vatnspökkunarverksmiðju ■ Tuttugu prósent hluta- bréfa í Álafossi voru í gær seld starfsmönnum fyrir- tækisins á, samkvæmt heimildum NT, nálægt 35 milljónum króna. Stefán Guömundsson, stjórnarformaður Fram- kvæmdastofnunar, sagði NT í gærkvöld, að þar sem starfsfólki Álafoss hefði enn ekki verið tilkynnt um verðið, þá vildi hann ekki staðfesta þetta verð. Hann sagði að sam- þykkt hefði verið tillaga endurskoðanda Fram- kvæmdastofnunar um verð hlutabréfanna “sem er, að mínu áliti sann- gj arnt verð“ sagði Stefán. Sala hlutabréfanna var afgreidd á fundi stjórnar Framkvæmdastofnunar á Sauðárkróki í gær. Á fundinn mættu einnig þingmenn í Norðurlands- kjördæmi vestra og full- trúar þéttbýlisstaða í kjör- dæminu. Að sögn Stefáns verður rætt á fundi stjórnarinnar í dag um byggingu vatns- pökkunarverksmiðju á Sauðárkróki. Hann sagði að um verksmiðjuna hefði verið fjallað í iðnaðar- ráðuneytinu og að mikill hugur væri í heima- mönnum. 14 ára drukkinn og meðvitundar* laus fannst við Hraunbæ í Árbæ ■ í gærkvöld fannst 14 ára drengur, meövit- undariaus viö hús- ið að Hraunbæ 118 í Arbæ. Er álitið að drengurinn hafi fallið í Elliðaárnar og verið dröslað upp að húsinu og skilinn þar eftir. Drengurinn var drukkinn. Árskógsströnd: Fann manna vi ■ Kristján Snorra- son, bóndi á Hellu á Árskógsströnd fann í skurði við hús sitt mikið af beinum, sem álitið er að séu frá 16. öld. Mynd gk-Akureyri. Sjá á bls. 5 Eyjamenn stórauka áfengiskaupin sín - ásamt Keflvíkingum og Austfirðingum ■ Vestmannaeyingar virðast, samkvæmt þeim tölum sem nú liggja fyrir, hafa aukið áfengiskaup sín mest allra landsmanna frá því í fyrra. Salan í áfengis- útsölu bæjarins frá apríl- byrjun til júníloka var að líkindum 14% meiri að magni til en sömu mánuði í fyrra. Er hér byggt á upplýsingum um krónu- tölusölu verslunarinnar, sem Áfengisráð hefur birt, svo og almennri þróun drykkjarvara og áfengis- liöar framfærsluvísitöl- unnar á þessu tímabili. Magnaukningin í Keflavík hefur samkvæmt sömu forsendum verið 11,4%, og aukningin á Seyðisfirði 10%. Hins vegar virðist áfengis- salan á Siglufirði hafa dregist saman um 25%. En þar er þess að gæta að frá því í fyrra hefur ný áfengisútsala verið opnuð í nágrannabænum Sauðár- króki, en þessi útsala selur í ár nær tvöfalt meira en útsalan á Siglufirði. Einnig virðist áfengissalan á Ak- ureyri, í Reykjavík og á ísafirði hafa dregist lítils háttar saman. í heild virðast áfengis- kaup landsmanna vera svipuð í ár og í fyrra. En þau kostuðu landsmenn um 360 milljónir króna frá apríl til júní í ár. Arkitektar stefna félagsmálaráðherra vegna löggiBdingar byggingafræðinga til að teikna hús ■ Arkitektafélag íslands hefur stefnt Alexand- er Stefánssyni félagsmálaráðherra fyrir dóm og krafist þess, að ógild verði sú gjörð hans að veita þremur byggingafræðingum löggildingu til að teikna hús. Jafnframt hefur byggingafræðingun- um þremur verið stefnt og þess krafíst, að þeir missi réttindi sín. Kröfu sína byggja arkitektar á túlkun á byggingareglugerð, sem gekk í gildi árið 1979. Þar segir m.a. að rétt til að gera aðaluppdrætti og séruppdrætti hafi arkitektar, bygginga- fræðingar, byggingatækni- fræðingar og verkfræðingar hver á sínu sviði, og að starfs- sviðið markist af starfsreynslu. Arkitektar vilja túlka þetta á þann veg, að ekki sé hægt að veita byggingafræðingum leyfi til að teikna hús. Byggingafræðingarnir eru á öndverðri skoðun og benda á, að starfsreynsla þremenning- anna, sem hér um ræðir, sé á teiknistofu við almenn hönn- unarstörf, við hlið arkitekta. Þeir byggingafræðingar, sem útskrifuðust fyrir 1979 hafa allir fengið löggildi, ef þeir hafa sótt um hana. En um þetta hefur verið deilt síðan 1979. Skipu- lagsstjórn ríkisins hefur hallast að skoðun arkitekta, en félags- málaráðherra er á öndverðri skoðun, enda hefur hann löggilt þá þrjá byggingafræðinga, sem um það hafa sótt. Alirefir eru mun skæðari m villirefurinn. Akranes Borgarnes Breiðdalsvík Fáskrúðsfjörður Grindavik Kópavogur Suðurnes Vopnafjörður “Sjábls.6-7 bls.7

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.