NT - 29.08.1984, Blaðsíða 32
Vinsældakönnun Rásar tvö:
Auglýsinga
tekjur hafa
fimmfaldast
- og rásinni beint út um allt land
■ „Þettahafaauglýsend-
ur kunnaö að meta, og
auglýsingatekjur hafa far-
ið ört vaxandi undanfarna
mánuði. Frá maí hafa þær
numið meira en tveimur
milljónum en komust
niður í um hálfa fyrstu tvo
mánuði ársins," sagði
Hörður Vilhjálmsson fjár-
málastjóri Ríkisútvarpsins
í samtali við NT. Eins og
kunnugt er gerði Hag-
vangur hlustendakönnun
í maí síðastliðnum sem
gaf til kynna mikla al-
menna hlustun og vinsæld-
ir rásarinnar. Síðan þá
hafa auglýsingatekjur
aukist jafnt og þétt og og
nema nú nær tveimur og
hálfri milljón. Meðalaug-
lýsingatekjur rásarinnar
fyrstu sjö mánuði ársins
eru um 900 þúsundir
króna á mánuöi.
Fyrsti útsendingarmán-
uður Rásar tvö gaf mjög
góðar auglýsingatekjur
sem döluðu svo verulega
frá og með áramótum. í
apríl fóru þær heldur að
rísa að nýju og komust
yfir tvær milljónir í júní-
mánuði og er þar talið að
fyrrgreind skoðanakönn-
un hafi haft veruleg áhrif.
Að sögn Harðar stendur
rásin nú undir sínum
rekstri og afskriftum eins
og ráð var fyrir gert en
rásin nýtur ekki hluta
þeirra afnotagjalda sem
inn koma frá hlustendum
útvarps. Til samanburðar
við auglýsingatekjur Rás-
ar tvö má nefna að mánað-
artekjur Rásar eitt af aug-
lýsingum nema um 10
milljónum króna en hjá
sjónvarpi eru þær um það
bil 7.
Tuttugu nýjjir sendar
Á þessu ári verður unn-
ið áfram að uppsetningu
FM senda rásarinnar um
allt land og er ráðgert að
setja 11 upp á þessu sumri
og stefnt að 9 á næsta
sumri. Settir verða upp
sendar á eftirtöldum
stöðum í sumar: á Grund-
arfirði og Ólafsvík og er
þá búist við að ástandið
verði gott á norðanverðu
Snæfellsnesi. Frá Stykkis-
hólmi berast öldur Ijós-
vakans svo í væntanlegan
sendi að Bæjum á Snæ-
fjallaströnd og enn lengra
í sendi á Arnamesinu. Er
þá reiknað meðaðísfirð-
ingar og fleiri Vestfirðing-
ar heyri í rásinni en víða
er þó pottur brotinn á
Vestfjörðum og vonandi
bætt úr því á næsta sumri.
Þá verður með sendum á
Hrútafjarðarhálsi, Þránd-
arhlíðarfjalli, Hegranesi,
Blönduósi, Vaðlahtiði og
Siglufirði séð til þess að
flestir á Mið- og Norðvest-
urlandi geti unað sér við
tóna rásarinnar um dægrin
löng. Enn veriður bætt við
stórum sendi á Gagnheiði
sem gerir vonandi góð
skilyrði á öllu Héraði, en
verulegt átak fyrir firðina,
Suðausturiand og Suður-
land bíður næsta sumars.
Víða á þeim svæðum sem
enn eru ekki í fullkomnu
lagi hvað sendingar snertir
má þó ná rásinni með
loftnetum og sæmilega
góðum tækjum.
■ Skipverjar kvörtuðu undan slæmri lykt og lélegri hreinsun á lest skipsins eftir síðustu löndun en eftirlitsmenn hafa ekki fett fingur út
í störf löndunarfélagsins í Hafnarfírði. NT-mvnd: Árni Bjama
Skipverjar á togaranum Júní:
Mótmæla lélegri
hreinsun á lest
■ Kampakátir rásarmenn við upptöku þegar Sverrir Ijósmyndari okkar á NT leit við í gær. Þeir hafa
líka ástæðu til að líta björtum augum á framtíðina þegar hlustendkönnun segir að 7 af hverjum 10
Frónbúum sperri eyrun við rásarabylgjunum og auglýsingar skili hálfri þriðju milljón í tekjur
mánaðarlega.
■ Skipverjar á togaranum Júní, sem Bæjarút-
gerð Hafnarfjarðar rekur, skrifuðu við komu
skipsins til hafnar í gær undir skjal, þar sem þeir
mótmæla lélegri hreinsun á lest skipsins eftir
síðustu löndun.
í skjalinu segir: „Við undirrit- eftir lestarhreinsun að lokinni
aðir skipverjar óskum hér með löndun. Ef að við þessum ósk-
um okkar verður ekki gengið
sjáum við okkur ekki fært að
láta úr höfn sakir ýldulyktar og
sóðaskapar í lest.“ Ekki rituðu
allir úr áhöfn undir mótmæla-
skjalið, en það munu hafa verið
þeir, sem vinna í lest skipsins,
sem voru forsprakkar mótmæl-
anna. Kvörtuðu lestarmennirnir
mikið yfir slæmri lykt og lélegri
hreinsun er skipið lét úr höfn,
en lyktin mun síðan hafa orðið
að mestu eftir að veiðar hófust
og lestar skipsins tóku að fyllast.
„Við vitum ekki nákvæmlega
hvað er hérna á seyði,“ sagði
Björn Ólafsson, forstjóri BÚH.
„Hér er löndunarfélag og þeir
menn sjá um uppskipun á öllum
fiski sem kemur til Hafnarfjarð-
ar. Menn frá búnaðardeild
framleiðslueftirlits sj ávarafurða
hafa litið á þessi störf þeirra og
þau hafa hingað til verið án
aðfinnslu.
Matsmaðurinn taldi ekkert
óeðlilegt við fiskinn. Hann fann
enga sérstaka lykt í lestinni og
frágangur á fiskinum var allur
mjög þokkalegur."
Júní lagði úr höfn þann 15.
þessa mánaðar og hóf veiðar
sólarhring síðar. „Þetta er 12
daga túr og þessi skip hafa
yfirleitt verið 10-12 daga í
hverjum túr,“ sagði Björn
Ólafsson. „Afli skipsins var um
200 tonn og þar af voru um 60
tonn af þorski, sem veiddur var
fyrstu þrjá veiðidagana. Sá fisk-
ur verður e.t.v. metinn í annan
flokk, en matið verður ekki
ljóst fyrr en búið er að skipa upp
öllum aflanum,“ sagði Björn
Ólafsson, forstjóri BUH.
Drykkjan flyst
í léttari vínin
■ Áfengissiðir
landsmanna virðast
hafa stórbreyst á síð-
ustu árum. Sam-
kvæmt upplýsingum
Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins
jókst neysla lands-
manna á borðvínum
um 17,5% frá 1982
til 83. Þá jókst neysl-
an á heitum vínum,
sem eru m.a. púrt-
vín og sérrí, um 9%
á milli sömu ára.
Það er til marks
um að þessi aukning
hafi ekki beinlínis
þýtt aukningu á
áfengisneyslu, held-
ur flutning frá sterk-
um vínum til léttari
vína, að áfengis-
neysla á mann var
nær sú sama þessi
tvö ár, eða 3,13 vín-
andalítrar fyrra árið,
en 3,24 það síðara;
er síðari talan því
sem næst sú sama og
neyslan var árið
1979. -Er hér sleppt
að taka tillit til fjölg-
unar fólks á áfengis-
aldri, enda var hún
óveruleg.