NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 29.08.1984, Qupperneq 31

NT - 29.08.1984, Qupperneq 31
 Iþróttir Evrópukeppnin í handknattleik: Norskir mótherjar - Valsmenn sitja hjá í fyrstu umferð ■ íslandsmeistarar FH og Bikarmeistarar Víkings í hand- knattleik fengu norsk lið sem mótherja í fyrstu umferð Evr- ópukeppni félagsliða í hand- knattleik, en dregið var í þess- ari keppni fyrir stuttu. FH-ingar fá Kolbotn sem mótherja í 1. umferð og Vík- ingar fá Fjellhamer sem mót- herja. Valsmenn sem taka þátt í IHF keppninni sitja hjá í fyrstu umferð. Framstúlkurnar, sem eru ís- landsmeistarar, taka nú þátt í Evrópukeppni í þriðja sinn og drógust gegn danska íiðinu Helsingör. Allir leikirnir verða leiknir í október. Peir fyrri á tímabilinu frá 8.-14. og þeir síðari á tímabilinu frá 15.-21. október. Sverrir sigraði Frá Gylfa Kristjánssyni fréttamanni NT á Akureyri: ■ Það þurfti bráðabana til að knýja fram úrslit á Norður- landsmótinu í golfi sem fram fór á Sauðárkróki um helgina. Að loknum 36 holum voru þeir jafnir Sverrir Þorvaldsson Golfklúbbi Akureyrar og Skúli Skúlason Golfklúbbi Húsavík- ur á 160 höggum. Þeir fóru í bráðabana, og strax á fyrstu holunni gerði Sverrir út um málið með því að leika á pari, en Skúli lenti í vandræðum á sama tíma. í þriðja sæti varð Sigurður H Ringsted Golf- klúbbi Akureyrar á 162 höggum, en hann hafði foryst- una eftir fyrri dag mótsins, hafði leikið á 80 höggum. í keppni með forgjöf sigruði Stefán Petersen Sauðárkróki á 139 höggum nettó, annar va.ð Steinar Skarphéðinsson einnig frá Sauðárkróki á 142 höggum og þriðji Árni B Árnason Golf- klúbbi Akureyrar á 143 höggum. Inga Magnúsdóttir GA sigraði í kvennaflokki á 179 höggum, Jónína Pálsdóttir GA varð önnur á 183, og Rósa Pálsdóttir GA á 221 höggi. Með forgjöf sigraði Jón- ína á 149, Inga varð á 155 og Rósa á 167 höggum. í unelingaflokki sigraði Örn Ólafsson GA á 165 höggum, Kristján Gylfason GA varð annar á 174 og Magnús Karls- son GA þriðji á 174 höggum. Með forgjöf sigraði Magnús 134, Ólafur Ingimarsson Golf- klúbbi Húsavíkur var annar á 140 og Örn Ólafsson var þriðji á 141 höggi. Um 60 kylfingar tóku þátt í mótinu sem fór fram á velli Golfklúbbs Sauðárkróks, það er nýr völlur sem mikið hefur verið unnið við á síðustu árum og létu norðlenskir kylfingar mjög vel af vellinum. Prost sigraði ■ Alain Prost frá Frakklandi sigraði í hollenska grand prix kappakstrinum sem fram fór um síðustu helgi. Félagi hans í McLaren liðinu, Niki Lauda frá Austurríki varð að láta sér annað sætið lynda. Hann hefur þó ennþá forystu í keppninni um heimsmeistara- titilinn í kappaksri. Hann er með 54 stig, en Alain Prost er í öðru sæti með 52.5 stig. I þriðja sæti í stigakeppninni um heimsmeistaratitilinn er Alio De Angelis frá Ítalíu með 29.5 stig, Rene Arnoux er fjórði með 24.5 stig og Nelson Piquet frá Brasilíu er fimmti með 24 stig. 31 ■ Sigurður Gunnarsson handknattleiksmaður úr Víkingi heldur í dag til V-Þýskalands til að kanna aðstæður hjá stórliðinu Grosswallstadt. Félagar hans í Víkingi og góðvinir Sigurðar úr FH þeir Þorgils Óttar og Kristján Arason munu leika gegn norskum liðum í Evrópukeppninni í handknattleik. Á þessari mynd er Þorgils kominn langt með að klæða Sigurð úr Víkingspeysunni, enda kannski tímabært ef Sigurður gengur til liðs við Grosswallstadt. NT-n»vnd: Róbert. Sigurðurtil Þýskalands ■ Austurríkismaðurínn Niki Lauda hefur nauma forystu í heimsmeistarakeppninni í kapp- akstri. ■ Sigurður Gunnarsson handknattleiksmaður úr Vík- ingi fer í dag áleiðis til V-Þýska- lands þar sem hann mun kanna aðstæður hjá v-þýska stórliðinu Grosswallstadt og ræða við forráðamenn liðsins um þá möguleika að hann leiki með liðinu í vetur. Forráðamenn Grosswallstadt hafa lýst áhuga sínum á að fá Sigurð til Iiðs við sig, en eins og kunnugt er þá varð Sigurður fjóröi marka- hæsti leikmaðurinn í hand- knattleikskeppni Ólympíuleik- anna. Upphaflega var ætlunin hjá forráðamönnum Grosswall- stadt að fá danska landsliðs- manninn Morten Stig Crist- iansen í herbúðir liðsins, en þrálát meiðsl Danans hafa orð- ið til þess að Grosswallstadt menn hafa farið að líta annað. I samtali við NT í gær sagði Sigurður að hann hefði meiri áhuga á því að leika með Gross- wallstadt, en að fara til Kanarí- eyja og leika með Grand Kan- arí í spönsku deildinni, en for- ráðamenn þess liðs hafa lýst áhuga sínum á að fá Sigurð til liðs við sig. Sigurður sagðist verða í Þýskalandi í 3-4 daga til þess að kanna málið, en með öllu væri óvíst hvort af samningi yrði milli hans og Grosswall- stadt. Ef af yrði að Sigurður gengi til liðs við Grosswallstadt, yrði hann fyrsti útlendingurinn til þess að leika með þessu sterka liði, sem er eitt hið alsterkasta í heimi. ÍA-Víkingur ■ í dag verður einn leikur í 1. deild karla á íslandsmótinu í knatt- spyrnu og eigast við Skagamenn og Víkingur á Akranesi. Leikurinn hefst kl. 18:30. Með sigri í þessum leik þá geta Akurnesingar tryggt sér endanlega íslandsmeist- aratitilinn þó svo að Ijóst þyki að hann verði þeirra hvort sem sigur vinnst í dag eður ei. Eins og allir muna þá urðu Skaga- menn bikarmeistarar á sunnudaginn var og munu áhangendur þeirra heimta að íslandsbikar- inn komi líka upp á Skaga, strax í dag. Vík- ingar verða þó örugglega erfiðir í leiknum í dag enda falldraugurinn víð- frægi farinn að naga á þeim hælana. Þeir þurfa að sigra í dag til að hrista hann af sér og skjótast um leið upp í fjórða sætið í deildinni. Hvað gerist verður svo að koma í Ijós í kvöld. Þá verður líka spilað í úrslitum 4. deildar í kvöld og eigast þá við ÍR og Léttir annarsvegar og Tjörnes og Reynir Á. hinsvegar. Báðir leikirnir hefjast kl. 18:30. Ardiles skorinn upp ■ Argentínski miðvallar- leikmaðurinn, smái og knái Asvaldo Ardiles hjá Tottenham, hefur verið skorinn upp og liðþófí úr hné verið fjarlægður. Talið er að þessi upp- skuröur muni verða til þess að kappinn geti ekki leikið með Tottenham næstu fjórar vikurnar Finnar sterkastir í þúsund vatna rallinu ■ Finnar unnu þrefaldan sigur í þúsund vatna rallinu sem fram fór í Finnlandi um síðustu helgi. Ari Vatanen sigraði í rallinu, Markku Alen varð annar og Henri Tovivonen varð þriðji. Svíinn Stig Blomqvist varð fjórði í rallinu, en hann hefur nú forystu í keppninni um heimsmeistaratitilinn í rall- akstri. Hann hefur 113 stig. Finninn Hannu Mikkola er þriðji með 86 stig. Þrjár rall- keppnir eru eftir í heimsmeist- arakeppninni á þessu ári. Hannu Mikkola, sem ekur Audi Ouattro eins og Biom- qvist, féll úr keppni í þúsund vatna rallinu um helgina, er bíll hans skall harkalega niður á holóttum vegi. Sigurvegarinn Ari Vatanen, sern sigraði í þúsund vatna rallinu 1981, kom í mark með tveimur mínútum betri tíma en Markku Alen. Vatanen ekur Peugeot 205, en tvívegis á þessu ári hefur hann orðið að hætta keppni vegna bilana í bílnum, en nú gekk allt að óskum. Þeir félagar Markku Alen, sem fjórum sinnum hefur sigrað í þúsund vatna rallinu og Henri Tovivonen aka báðir Lancia rally bifreiðum. Þessi rallkeppni, sem er sú stysta í heimsmeistarakeppn- inni í rallakstri, er 1420 km löng og sérleiðirnar eru 51 talsins. Blaðberar óskast í eftirtalin hverfi Löndin Melana Skjólin Leitin Hlíðarnar Hraunbæ Teigana Miðbæinn Vesturbæinn Kópavog Breiðholt Einnig vantar blaðburðarfólk á biðlista í öllum hverfum í Reykja- vík og Kópavogi. Síðumúla 15 sími: 686300

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.