NT - 20.11.1984, Side 2
Ófaglært starfsfólk:
Tímakaup 5-17% hærra í
Reykjavík en úti á landi
Karlar með 12-26% hærra timakaup en konur í sömu störfum
■ Þótt kjarasamningar séu
gerdir fyrir allt landið er raunin
sú að ófaglært verka- og af-
greiðslufólk á höfuðborgar-
svæðinu hefur frá 5% og upp í
17% hærra tímakaup í dagvinnu
að meðaltali heldur en fólk í
sömu störfum utan höfuðborg-
arsvæðisins, samkvæmt úrtaks-
könnun Kjararannsóknar-
nefndar. Hér er átt við greitt,
tímakaup í dagvinnu án bónus,
en bónusálag hjá verkafólki í
Hskvinnu reynist einnig um 25%
hærra á höfuðborgarsvæðinu en
úti á landi, að meðaltali. Vinnu-
tími verkafólks úti á landi er
hins vegar um 2 stundum lcngri
á viku en á höfuðborgarsvæð-
inu.
í viðtölurn við foryst.umenn
innan VMSÍ og ASÍ kom fram
að þessi munur hefur verið til
staðar lengi og ekkeFt sé svo
sem um hann að segja. Þetta sé
einnig alþekkt erlendis að laun
í stórborgum séu til muna hærri
en í strjálbýli.
í fréttabréfi Kjararanrrsókn-
arnefndar kemur fram að af-
greiðslumenn (karlar) í verslun-
um á höfuðborgarsvæðinu
höfðu rúmlega 17% hærratíma-
kaup í dagvinnu aðjneðaltali á
2. ársfjórðungi (apríl-júní) í ár
en karlmenn í sömu störfum í
verslunum utan höfuðborgar-
Jaki var
það
heillin!
■ Gámakrana Eimskipafél-
agsins við Sundahöfn var gefíð
nafn um helgina við hátíðlega
athöfn. Var hann nefndur Jaki
og læðist sá grunur að mörgum
að hann sé nefndur eftir Guð-
mundi „Jaka“ Guðmundssyni
formanni Verkamannasam-
bands íslands og ötulum baráttu-
manni fyrir hagsmunum hafnar-
verkamanna.
Er lítið vafamál að þessi nafn-
gift sé réttnefni, kraninn getur
lyft 30 tonnum og tveimur betur
í einu og gnæfír 61 m yfír
sjávarmál í hæstu stöðu. Setur
hann mikinn svip á hafnarsvæð-
ið og gæti svo farið að Sunda-
höfn yrði í framtíðinni einungis
nefnd Jakaból.
NT-mynd: Ámi Bjarna.
Uppboðið á Óskari Magnússyni:
Nær25millj.
ónir hverfa
Skuldir við byggðasjóð, ríki og bæ
■ Talið er að skuldir togarans
Óskars Magnússonar nemi ná-
lægt 25 milljónum meira en
hann var sleginn á, nú fyrir
skemmstu. Þeir sem þar verða
fyrir því að fá reikninga sína
aldrei greidda eru byggðasjóð-
ur, ríki og Akranesbær. Bróð-
urparturinn, eða upphæð á bil-
inu 10 til 20 milljónir eru skuldir
við byggðasjóð.
Það voru fyrirtæki á Akranesi
sem keyptu togarann fyrir 98,5
milljónir. Eitt þeirra var áður
meðeigandi í útgerðinni á Ósk-
ari. Endanlegt uppgjör á
skuldakröfum liggur ekki fyrir
en verður væntanlega tilbúið
um eða fyrir mánaðamót.
Kosningaþátttaka:
Þriðjudagur 20. nóvember 1984 2
svæðisins, eða 115,09 kr. á móti
98,24 kr. að meðaltali. Hjá
afgreiðslustúlkum var munur-
inn 4,5% - þ.e. 86,37 kr. á móti
82,68 kr. á tímann í dagvinnu.
Hjá verkakörlum var munur-
inn 12,4% eða 92,24 kr. meðal-
tímakaup á íiöfuðbort_arsvæði
(+ 29,70' kr. bónusálag á‘
klukkut.) á móti 82,10 rneðal-1
tímakaupi (+23,78 kr.bónusálag)
á landsbyggðinni..Launamunur-
inn hjá verkakonum var 9,4% -
þ.e. 82,45 kr. á tímann (+ 33
kr. bónusálag) á höfuðborgar-
svæðinu á móti 76,34 kr. á
tímann (+26,58 kr. bónusálag) á
landsbyggöinni. Hvað verka-
konurnar á landsbyggðinni
snertir er einnig athyglisvert að
meðaltímakaup þeirra er aðeins
örlítið fyrir ofan lágmarksdag-
vinnutekjutrygginguna.
Athyglisvert er einnig að bera
saman tímakaup verkafólks og,
afgreiðslufólks eftir kynjum.
Þá kemur í ljós að verkakarlar
hafa að meðaltali 11,6% hærra
tímakaup í dagvinnu miðað við
landið allt og afgreiðslumenn
hafa að meðaltali 26,3% hærra
tímakaup en konur við sömu
störf. Sýnist þetta mikill launa-
munur meðal fólks sem vinnur
eftir sömu samningum á sömu
kauptöxtum - eða eru kannski
til karla- og kvennataxtar?
Síðasti kratinn Svo andskoti þýft
á safn!
■ Þessi er stolinn úr Víkur-
blaðinu en það stal honum úr
blaðinu Fréttum í Vestmanna-
eyjum og snéri honum uppá
Húsvíkinga. Birtist hann hér í
tilefni nýafstaðins krataþings.
Eins og kunnugt er hafa
skoðanakannanir bent til þess
að fylgi Alþýðuflokksins fari
þverrandi og óttast sumir að
flokkurinn þurrkist hrcinlega
út. Menn hafa tekið eftir því
að þegar Sigurður Gunnars-
son, einn ágætastur krati á
Húsavík, er að hyggja að fugl-•
um fyrir náttúrufræðistofnun-
ina má oft sjá Finn Kristjáns-
son, safnvörð, á einhverju róli
í grennd. Ekki munFinnur þó
vera að hyggja að fuglum,
hann hefur hins vegar brenn-
andi áhuga á að tryggja sér eitt
eintak af krata fyrir Safnahús-
ið, ef eins fer fyrir krötum eins
og geirfuglinum, að stofninn
þurrkist endanlega út!
■ Kirkjuhaldari í einni af
sveitakirkjum landsins átti
löngum í erfiðleikum með að
fá menn til aöslá kirkjugarðinn
á sumrin. Sumar eitt þótti
kirkjuhaldara sér þó bærilega
borgið er hann haiði komist í
samband við roskinn mann
sem orð hafði farið af sem
röskum sláttumanni - en að
vísu líka að karl væri nokkuð
vínhneigður. Kirkjuhaldari
réði karl til starfans og hafði
ekki áhyggjur af slætti að sinni.
Þó nokkru síðar vildi til að
dauðsfalí varð í sókninni og
þar af leiðandi jarðarför. Fór
kirkjuhaldari þá að hyggja að
kirkjugarðinum eitt kvöldið og
komst að því að lítið hafði
verið slegið af grasi í garðin-
um, en sláttumanninn fann
liann hins vegar kófdrukkinn í
einu garðshorninu. „Er erfitt
að slá garðinn?" spurði kirkju-
haldari hógværlega. „Já, það
er vont að slá þetta - þetta er
svo andskoti þýft", var svarið
sem hann fékk frá sláttumanni.
Á faraldsfæti um hátíðarnar:
UppselttilKan
arí og Spánar
■ íslendingar ætla að vera á
faraldsfæti um næstu jól og
áramót. Mikil sala hefur verið í
farseðlum undanfarna daga,
bæði í einstaklingsferðir og hóp-
ferðir. Sérstaklega mun salan
hafa tekið dágóðan kipp, þegar
gengisfellingin komst í hámæli.
Ferðaskrifstofur og flugfélög
'efna til hópfcrða til Kanaríeyja
um jól og áramót og eru þær
þegar uppseldar. Þá hefur verið
mikið pantað í ferðir til Kanarí
allt fram í mars á næsta ári. Ein
ferðaskrifstofan er með skipu-
lagðar hópferðir til sólarstranda
Spánar í vetur og eru desem-
berferðir uppseldar, en enn eru
sæti laus í janúar.
íslendingum hefureinnig ver-
ið boðið upp á skíðaferðir til
Austurríkis. Flugleiðir hefja
beint leiguflug þangað í síðari
hluta janúar og eru pantanir
þegar farnar að berast.
50 milljón
króna launin
■ „Fimmtíu króna keflið."
Enn heggur DV í sama kné-
runn - að gera stólpa grín að
slöku verðskyni Guðmundar
Jaka. Margir muna sjálfsagt
eftir því fyrr á þessu ári þegar
blaðamaður DV spurði ýmsa
mektarmenn þjóðfélagsins um
verð á nokkrum algengum
matvörum og Guðmundur hélt
að þær væru um þrisvar sinnum
dýrari en þær voru þá í raun og
veru. I þetta sinn gripu þeir■
Jakann glóðvolgan með
tvinnakefli það sem Guð-
mundur gerði að umræðuefni í
útvarpsumræðum frá Alþingi
nýlega, þar sem hannbýsnaðist
yfir að eitt tviunakefli skuli
komið upp í 5.000 krónur
gamlar.
Tvinnakefli eins og Jakinn
heldur á hefur Dropateljari
keypt mörg að undanförnu og
aldrei þurft að borga nema um
12-14 krónur fyrir stykkið'
(Mölnlycke 110 m) og þykir
því illt að heyra hvað okrað
hefur verið á Guðmundi.
En úr því aðGuðmundur er
enn svo fastur í gömlu krónun-
um þætti Dropateljara áhuga-
vert að vita hvort hann reiknar
launin sín líka enn í gömlum
krónum, sem væntanléga hafa
þá færst vel yfir 4.000.000 -
fjórar milljónir - á mánuði
með síðustu kjarasamningum
og ættu því jafnvel að ná 50
milljónum króna þetta árið
þegar allt er talið. 5.000 kr.
kefli er nefnilega jafn stór hluti
af 4.000.000 kr. mánaðar-
launum og 50 kr. kefli af
40.000 króna launum.
Hamrahlíðarkórinn sigraði
í söngvakeppni æskufólks
■ Hamrahlíðarkórnum voru afhent sigurverðlaunin í söngvakeppni æskufólks - Let the
people sing 1984 - um helgina við hátíðlega athöfn í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Söngvakeppnin var haldin í umsjá Evrópusambands útvarpsstöðva sem íslenska útvarpið er
aðih að. Hamrahlíðarkómum hefur verið boðið til Hannover í Þýskalandi í maí á næsta ári
til að taka þátt í stórri kórakeppni eftir að hann fór með sigur af hólmi í söngvakeppni
æskufólks. Stjórnandi Hamrahlíðarkórsins er Þorgerður Ingólfsdóttir. NT-mynd: Ámi Bjama
18% hjá Sókn
■ Nýgerðir kjarasamningar
voru samþykktir af 18% at-
kvæðisbærra félagsmanna hjá
verkalýðsfélaginu Sókn. en ekki
11% eins og kom fram í frétt
blaðsins í gær. Misskilningurinn
stafar af því að atkvæðisbærir
félagar innan Sóknar eru aðeins
í kringum tvö þúsund, en ekki á
fjórða þúsundinu, eins og sagt
var frá í fréttinni.