NT - 17.01.1985, Qupperneq 1
Braut báða
handleggi r 1
vinnuslysi
■ Maður beinbrotnaði á
báðum höndum og skaddað-
ist í andliti í vinnuslysi í
Porlá'kshöfn í gærmorgun.
Slysið varð þegar verið var
að koma færibandi hjá jarð-
efnavinnslunni Eldberg fyrir
með krana og losnaði ein
festing kranans af færiband-
inu. Maðurinn hentist þá
upp með bandinu og
skaddaðist eins og fyrr grein-
ir þegar hann féll í jörðina.
Hann var fluttur á Slysa-
deild Borgarspítalans. Mað-
urinn er vörubílstjóri á þrí-
tugsaldri sem býr á Stokks-
eyri.
Of gott veður í Reykjavík?
Skarnið
kemst ekki
á hólana
■ Pó íslendingardásami
veðurblíðuna þessa dag-
ana hefur húri þó ýmsa
óvænta annmarka; t.d. er
ekki liægt að „aka skarni á
hóla" í Reykjavík, eins og
venja er um þessar
mundir, vegna þess að
jarðvegurinn er allt of
blautur.
Hinsvegar hafa starfs-
menn garðyrkjustjóra
Reykjavíkurborgar getað
stundað önnur verk, sem
hingað til hafa ekki verið
talin til vetrarverka, svo
sem hellulagt í görðum og
lilaðið vegghleðslur. Einn-
ig hafa garðbekki i' undan-
farið verið teknir í
klössun.
Skelfisksjómennirnir á Bíldudal:
Hlunnfarnir um 1.5-2 milljónir
Lögbrot, segir Óskar Vigfússon formaður Siómannasambandsins
H „það gefur augáieið aö við
höfum verið hlunnfarnir ogþað
finnst öllum nema þeim sem
eiga að borga okkur. Pað eru
1.5-2 milljónir, sem Rækjuver
hefur haft af okkur."
Þetta sögðu sex fulltrúar skel-
fisksjómanna frá Bíldudal í
samtali við NT í gær. Sex-
menningarnir komu til Reykja-
víkur í fyrrinótt í þeim tilgangi
að reyna að finna lausn á deilu
þeirra við skelfiskvinnsluna
Rækjuver, scm þeir landa afla
sínum hjá. í gær gengu þeir á
fund forráðamanna LÍÚ, Sjó-
mannasambands íslands og
Ríkismats sjávarafurða til þess
að skýra mál sitt og lögðu fram
gögn því til stuðnings.
Deilan snýst um mat á hörpu-
diski, seni barst á land í Bíldu-
dal á tímabilinu 10. október til
13. desember 1984. Sjómenn
saka vinnslustöðina um að
greiða ekki fyrir aflann sam-
kvæmt mati frá opinberum
matsmanni, heldur samkvæmt
mati fyrirtækisins sjálfs, sem
var sjóntönnunum mun óhag-
stæðara. eða sem svarar um
22-23% að jafnaði. Frá 15. nóv-
ember til 13. desembervarmun-
urinn 11-12%, að því er sjó-
mennirnir segja.
Hafþór Rósmundsson hjá
Sjómannasambandinu sagði -í
gær, að Rækjuver væri að vé-
fengja mat Ríkismats sjávaraf-
urða, og ekki væri hægt að láta
þá komast upp með það. Óskar
Vigfússon formaður Sjómanna-
sambandsins sagði í samtali við
NT, að þetta væri lögbrot og ef
lausn yrði ekki fundin innan
Fjármál
borgar-
innar
til um-
fjöll-
unar
Sjá bls. 3
eins eða tveggja sólarhringa
myndi málið verða kært. „Hér
er um alvarlegt athæfi að ræða,
þar sem gengið er framhjá því,
/ sem ákveðið er í verðlagsráði
sjávarútvegsins, bæði af fulltrú-
um kaupenda og seljenda,"
sagði hann.
Einar M. Jóhannsson for-i
stöðumaður Ríkismats sjávaraf-
urða sagði í gær, að stofnuninni
hefðu aldrei borist kvartanir um
störf matsmannsins og þess
vegna kæmi þetta þeim á ó\ art.
Skelfisksjómennirnir hafa
ekki róið síðan fyrir helgi. AIls
eru það 15 menn, sem hafa lagt
niöur vinnu. þar af 6 menn á
þremur bátum Rækjuvers.
„Við gerunt ráð fyrir að sitja
rólegir ábryggjunni, þar til okk-
ur hefur verið greitt, þó að við
verðum að bíða til vors," sögðu
sjómennirnir. Þeir munu eiga
fund með sjávarútvegsráðherra
á morgun.
Enn varð
jafntefli
■ Kasparov og Karpov sömdu
um jafntefli eftir 26 leiki í 42.
einvígisskákinni, sem tefld var í
gær í Moskvu. Skákin tefldist
framan af nákvæmlega eins og
38. og 39. skákin.
43. skákin verður tefld á
niorgun og hefur Karpov heims-
meistari þá hvítt.
■ Skelfísksjómcnnirnir frá Bíldudal voru heldur brúnaþungir á skrifstofu forstöðumanns Ríkismats sjávarafurða í gær, og segjast ekki
munu róa fyrr en Rækjuver hafí greitt þeim það sem þeir telja sig eiga inni hjá fyrirtækinu. NT-mynd: Ami Bjarna
íslenska álfélagið:
40 K-ker smíðuð hér á landi
skapar atvinnu handa 30 manns í eitt ár
■ íslenska álfélagið undirritaði
nýlega samninga við tvö íslensk
málmsmíðafyrirtæki um smíði 40
svokallaðra K-kerja. Fyrirtæki
þessi eru skipsmiðjan Hörður í
Ytri-Njarðvík og vélsmiðjan Stál
á Seyðisfirði, og fá þau 20 ker
hvort. Verðmæti hvers kers og
grindar utan um það er um 850
þúsund krónur. Fyrstu kerin
verða afhent um mánaðamótin
maí-júní, en síðan verður eitt ker
afhent á hálfs mánaðar fresti.
Það var í september 1984, að
fyrirspurnir voru sendar til 14
íslenskra fyrirtækja og 3 erlendra
um smíði á þessum 40 kerjum.
Aðeins fimm íslensk fyrirtæki
gerðu tilboð í smíðina og öll þau
erlendu. Tilboðin frá íslensku
fyrirtækunum tveimur, svo og
tveimur erlendum, reyndust hag-
stæðust, og að sögn Pálma Stef-
ánssonar hjá ísal var engin spurn-
ing um að velja íslensku tilboðin.
Þetta er í annað sinn sem ker af
þessari tegund eru framleidd hér
á landi. Stálvík í Garðabæ fram-
leiddi fjögur ker fyrir álverið
síðastliðið vor. Hvert ker vegur
tæp 18 tonn og er reiknað með,
að vinna við kerin 40 samsvari um
30 mannárum.
Heimilis*
læknar
safna
uppsögn-
um vegna
launa
Sjábls.5