NT - 30.01.1985, Qupperneq 2
Miðvikudagur 30. janúar 1985
Skákþing Reykjavíkur eftir sjö umferðir:
Dan Hansson ef stur
■ Dan Hansson hcfur nauma
forystu þegar sjö umferðir hafa
veríð tefldar á Skákþingi Reykja-
víkur. Með því að sigra hinn
unga og efnilega skákmann Þröst
Þórhallsson í 7. umferð reif Dan
sig lausan frá öðrum keppendum.
Þröstur hafði hyrjað mótið mjög
vel með því að vinna flmm fyrstu
skákir sínar en jafntcfli og síðan
tap hafa dregið heldur úr ferð
hans hvað sem síðar verður en
alls eru tefldar 11 umferðir og
eru því fjórar spennandi umferðir
eftir.
Á hæla Dan koma svo Róbert
Harðarson og Andrí Áss Grét-
arsson, sem er jafnaldrí Þrastar,
16 ára gamall, báðir með 6 vinn-
inga. Róbert vann l.árus Jóhann-
csson í vel tefldri skák í síðustu
umferð og Andri lagði hinn
trausta skákmann Hilmar Karls-
son að vclli, en Hilmar var fyrir
skákina í efsta sæti með 5'h
vinning.
Með 5VS vinning eru svo Hauk-
ur Angantýsson, sem sigraði
Halldór G. Einarsson í mikilli
baráttuskák í síðustu umferð,
Hilmar Karlsson, Þröstur Þór-
hallsson og Árni Á. Árnason.
Þessir keppendur í efstu sætum
koma að öllum líkindum til með
að berjast um titilinn „Skák-
meistari Reykjavíkur 1985“. í
næstu umferðum tefla efstu nienn
saman og ættu línur þá að
skýrast. Danstenduróneitanlega
best að vígi en á crfiðar skákir
framundan. Þannig hefur t.d.
Róbert Harðarson unnið sex
skákir í röð eftir tap í fyrstu
umferð. Annar ungur maður sem
vert er að veita athygli og hefur
sambærilegt afrek er Þorvaldur
Logason sem tapaöi tveim fyrstu
skákum sínum en hcfur síðan
unnið allar fimm sem á eftir
fylgdu.
Skákþing Reykjavíkur er
nokkuð svipað að styrkleika og
verið hefur undanfarin ár, mesta
athygli vekur þó greinilegur upp-
gangur þeirra ungu skákmanna
sem hafa skipað sér í efstu sætin
í mótinu. Af þeim sem tefldu á
mótinu í fyrra sakna menn mest
Sævars Bjarnasonar, sem ekki
reynir að verja titil sinn, sem
hann fékk raunar með nokkuð
óvenjulegum hætti þar sem
samhliða Skákþinginu í fyrra tók
hann þátt í Búnaðarbankamót-
inu.
f síðustu umferðum hafa
nokkrar hressilegar skákir verið
tefldar sem varða baráttuna um
efsta sætið. Róbert Harðarson
komst í 2.-3. sætið með því að
leggja Lárus Jóhannesson í cftir-
farandi skák:
Hvítt: Lárus Jóhannesson
Svart: Róbert Harðarson
Spænskur lcikur
1. e4 e5
2. RB Rc6
3. Bb5 a6
4. Ba4 Rfó
5. 0-0 Rxe4
(Opna afbrigðið svokallaða sem
Kortsnoj beitti í einvígjum sínum
við Karpov 1978 og '81 og tókst
tvívegis að leggja meistarann.
En hann tapaði líka fjóruni skák-
um samtals í þessum einvígjum.)
6. d4 b5
7. Bb3 d5
8. dxe5 Be6
9. Be3
(Sjaldséður leikur sem e.t.v. er
leikinn til að koma í veg fyrir
afbrigðið 9. c3 Bc5 10. Rbd2 0-0
11. Bc2 Rxf2 sem er í miklu
uppáhaldi hjá Róbert. Kasparov
lék textaleiknum eitt sinn í frægri
skák við Yusupov sem teflir hér
á afmælismóti Skáksambands ís-
lands í febrúar.)
9. .. Be7
10. c3 0-0
11. Rbd2 Bg4
12. Rxe4 dxe4
13. Dd5! exf3
14. Dxc6 fxg2
15. Dxg2 Dc8
16. Hfel?
(Helsti hægfara leikur. Best er
16. Bh6! gxh6 17. f3 og hvítur
stendur betur að vígi.)
16. .. Df5!
(Tekur mesta broddinn úr - Bh6-
hugmyndinni.)
17. Bh6 Dg6
18. e6 Bxe6
19. Dxg6 hxg6
20. Bxe6 gxh6
(Betra en 20. - fxe6 21. Hxe6 og
staðan er jöfn.)
21. Bd5 Had8
(Auðvitað ekki 21. - Hae8 22.
Bc6 og hvitur vinnur.)
22. Hxe7 Hxd5
23. Hxc7 He8!
(Þetta hróksendatafl er mun
betra á svart þó liðsuflinn sé jafn.
Svartur ræður yfir opnum línum
og á alla möguleika á því að
notfæra sér veikleikana í peða-
stöðu hvíts.)
24. a4 He2
25. Hc6 Hxb2
26. Hxa6 Hg5t
27. Khl
(Kóngsi átti tvo reiti og var
hvorugur kosturinn góður. Eftir
27. Kfl Hf5 vinnur svartur létt.)
27. .. bxa4
28. Hf6
(Hvíta staðan er einnig töpuð
eftir 28. H6xa4 Hxf2.)
28. .. a3!
III 1111
III H
II II lllllllllll
1
tó
(Með tilliti til máthættu í borði er
þetta peð friðhelgt; 29. Hxa3
Hbl mát.)
29. h4 Ha5
30. Kg2 a2
31. Hd6 Hbl
32. Hdl Hxdl
- og hvítur lagði niður vopnin
enda verður hann hrók undir.
8. umferð verður tefld á mið-
vikudaginn en teflt er þrisvar í
viku í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur að Grensásvegi 44-
46, þ.e. á sunnudögum, miðviku-
dögum og föstudögum. Má ætla
að línur taki að skýrast í næstu
umferð þegarefstu menn mætast.
Keppendur á Skákþingi
Reykjavíkur eru 90 talsins í opn-
um flokki en auk þess er teflt í
unglingaflokki og þar eru kepp-
endur 38. Eftir sex umferðir
hefur Hannes Hlífar Stefánsson
1 ‘h vinnings forskot á keppinauta
sína, með fullt hús, en fjölmargir
eru með 41/’ vinning.
Helgi Ólafsson skrifar um skák
Erfiðleikar bænda nú meiri en síðustu 3 áratugi:
Reikningum nokkurra bænda
lokað vegna hárra skulda
- en aðrir fá aðvörun frá Kaupfélagi Borgfirðinga
■ „Ég get fullyrt að fleiri
bændur eiga nú í meiri fjárhags-
erfíðleikum heldur en verið hef-
ur þau 27 ár sem ég hef verið
kaupfélagsstjóri,“ sagði Ólafur
Sverrisson, kaupfélagsstjóri í
Borgarnesi m.a. er NT spurði
hann hvort rétt væri hermt að
Kaupfélag Borgfírðinga væri
farið að loka reikningum bænda
vegna skulda.
- Það'eru ekki margir sem
hefur verið lokað hjá. En við
höfum hert nokkuð okkar inn-
heimtuaðgerðir frá því sem ver-
ið hefur. Það má segja að málin
séu í biðstöðu - menn hafa
fengið aðvaranir eða tilkynningu •
um það að áframhaldandi
skuldasöfnun gengi ekki og þeir
eru nú að skoða sín mál. Þeir,
sem algerlega eru lokað á úttekt
hjá, eru fáir, en þó fleiri en
oftast áður, sagði Ólafur.
En hvaða bjargir á bóndi í
sveit ef lokað er á alla úttekt til
heimilisins? - Okkur finnst
a.m.k. engin björg í því að lána
slíkum manni í óefni. Margir
bændur eiga sem betur fer vini
eða lánastofnanir sem þeir geta
leitað til. En sumir eru auðvitað
í stökustu vandræðum - og þau
minnka ekki við það að hlaða
upp skuldum í kaupfélaginu.
Spurður hvort um háar skuldir
væri að ræða - hundruð þús-
unda?, sagði Ólafur: - Það þykir
nú ekki mikið hjá bónda að
skulda 100 þúsund, þótt auðvit-
að sé slík skuld raunverulega
stærri hjá smábónda en stór-
bónda, sem hefur mikið meira
innlegg.
Ólafur sagði skuldir bænda á
félagssvæðinu sem heildar hafa
hækkað í kringum 53% á árinu
1984, þegar búið er að taka
skuldbreytingu, þ.e. úr lausa-
skuldum í föst lán, sem margir
fengu í fyrra, inn í dæinið. Sé
miðað við að ca helmingur
hækkunarinnar sé á móti hækk-
uðu verðlagi má áætla að skuldir
hafi í raun hækkað í kringum
25%. Ólafur sagði brúttótekjur
margra bænda hafa minnkað -
og nettótekjurnar (laun þeirra)
ennþá meira. Launin séu nú
mun minna hlutfall í verðlags-
grundvellinum en verið hefur.
Leitin að 18 ára piltinum:
Vísbending ofan úr Borgarnesi
■ Hafþór Hauksson, 18 ára
pilturinn sem hvarf fyrir 11
dögum er enn ófundinn. Lög-
reglunni hefur nú borist vís-
bending um að hann hafi ef til
vill sést í Borgarnesi daginn
eftir að hann ók heiman frá sér
á jeepsterbílnum sem myndin
er af. Lögreglan grennslast nú
fyrir um málið eftir þessum
upplýsingum.
Til þess að fyrirbyggja mis-
skilning er rétt að koma því á
framfæri að ekkert bendir til að
hvarf Hafþórs tengist sakamáli
af neinu tagi og hann sjálfur
aldrei á sakaskrá komist.
■ Þetta er bifreið Hafþórs, en vísbending hefur nú borist um að
hann hafi ef til vill sést í Borgarnesi mánudaginn 21. janúar.
Bjórinn kemur |eða
hvenajr kwnur kakan og jolin eint og Ingvi
Hrafn aagSi vij Ragnhildi HelgadóHurj
■ Menn sem eru næmir á
undirölduna á Alþingi telja að
bjórfrumvarpið eigi nú vísan
mikinn meirihluta þingmanna.
Það liggur í því að þingmenn
hafa uppgötvað að ríkið fær
ekki eðlilegar skatttekjur af
þeim milljónum lítra af bjór-
líki sem rennur í stríðum
straumum niður alkóhólþyrst-
ar kverkar höfuðborgarbúa og
Selfyssinga alla daga vikunnar.
Ef bjórinn yrði leyfður myndu
skatttekjur ríkisins aukast um
tugi ef ekki hundruði miljóna.
Það eru helst Ólafur Þórðar-
son, Jón Helgason og Halldór
á Kirkjubóli sem streitast á
móti, trúir trúarsannfæringu
sinni og því að þeir séu til þess
bornir að hafa vit fyrir öðrum.
Kreddukommar
rassskelltir
■ Ritdeilur vinstrimanna eru
farnar að eiga inni hjá Þjóðvilj-
anum og nú nýjast tekur Guð-
mundur Ólafsson sig til og les
yfir kreddukommúnistum sem
aldrei komast upp úr þeim
pytti að telja Sovét eitthvað
betra en Bandaríkin. Guð-
mundur kemst víða skemmti-
lega að orði og dropateljari
getur ekki stillt sig um að stela
hér Post skript greinar Guð-
mundar:
„Þegar ég er að ganga frá
þessum pistli berst mér í hend-
ur grein ungs menntamanns
með alþýðuna í munninum,
Páls Halldórssonar, jarðeðlis-
fræðings...“
Þessa grein mætti að öðru
leyti draga saman í stutta bæn:
„Ó, Guð, ég þakka þér að ég
er róttækari en aðrir rnenn."
Svo mörg voru þau orð.
Sovét og
íslandið
\! í *
/V*:!
' ::Æ$
■ En nefndur Guðmundur
er fyrir margt löngu þekktur
fyrir að komast skemmtilega
að orði. Einhverntíma á
menntaskólaárum dropatelj-
ara býsnuðust ungir drengir
yfir þeim ósköpum sem so-
! véskir andófsmenn mega þola
að vera læstir inni með geð-
sjúkum. Guðmund, þá sem nú
stærðfræðikennari í skólanum,
bar þar að og þrumar yfir
okkur strákana:
„Þetta er nú ekki mikið.
Þarna fyrir austan taka þeir
glæpamenn og loka þá inni í
geðsjúkrahúsum en hér heima
tökum við geðsjúklingá og lok-
um þá inni í fangelsum."
Mikið satt og rétt því hveru
oft hafa ekki þeir scm úr-
skurðaðir hafa verið ósakhæfir
verið vistaðir nteðal þrjóta og
glæpamanna þar sem Kleppur
vísar slíku fólki ævinlega frá
sér.
'Y /v:
Þá er þorrinn byrjaður góða!
Tannvandræði
■ Tannverndardagurinn er
um garð genginn og vonandi
að hægt verði að koma flúrtöfl-
um oní þá sem erfa eiga landið
þannig að þeir lendi ekki í
sömu raunum og kona ein
austan af fjörðum sem fékk
falskar tennur á Akureyri.
Pössuðu tennurnar ekki par
vel og þurfti konan að leggja á
sig ferðalag á ný í höfuðborg
Norðurlands til að fá leiðrétt-
ingu mála sinni hjá tann-
lækninum góða. Segir sagan,
sem er tekin ófrjálsri hendi úr
Degi og börnuð af dropatelj-
ara, að hún hafi mælt fram
eftirfarandi vísu þegar hún
kom inn til „tanna" og verið
frekar smámælt:
Þó ég gengi frjáls og frí
fjarri sorg og pínum.
Kem ég enn með kjaftinn í
kápuvasa mínum.
Ættu raunir af þessu tagi að
verða ungviðinu til varnaðar
og „laugardagssælgætinu" til
framdráttar!
r