NT - 30.01.1985, Blaðsíða 3

NT - 30.01.1985, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 30. janúar 1985 3 Nauðsynjarnar sitja fyrir þegar sverfur að: Um 8.900 krónum meira íáfengis-en mjólkurkaup - hjá íslensku vísitölufjölskyldunni 1984 ■ Þótt verð á áfengi hafí á síðasta ári hækkað um 20% umfram hækkun launa og al- menns verðlags, frá árinu áður, jókst áfengisneysla íslendinga um tæp 2% á mann, mælt í hreinum vínanda. Til að ráða við hin stórauknu útgjöld vegna áfengiskaupanna hafa menn eðlilega orðið að spara við sig í öðru - væntanlega ónauðsyn- legra. Sá sparnaður hefur m.a. komið fram í mjólkursölunni, sem á sama tíma minnkaði um tæp 4% á mann að meðaltali. Upphæðin sem íslendingar vörðu til áfengiskaupa frá ÁTVR á síðasta ári nam rúmum 1,4 milljörðum króna, eða nán- ar talið 1.408.541.116 krónum, sem var tæplega 43% hærri upphæð en árið áður, eða um 423 millj. króna. Meðalhækkun taxtakaups á sama tímabili var tæp 19%. Ef við deilum áfengissölunni niður á alla íslendinga, 20 ára og eldri, hefur hver þeirra keypt áfengi fyrir um 9.150 krónur á síðasta ári. Skiptum við upp- hæðinni aftur á móti niður á „vísitölufjölskylduna“ hefur áfengiskaupareikningur hennar að meðaltali orðið um 23.500 krónur yfir árið, sem var 8.150 króna hækkun frá fyrra ári. Til samanburðar er skemmti- legt að geta þess, að heildar- mjólkurkaup íslendinga (ný- mjólk og léttmjólk) na'mu um 876,5 milljónum króna á síðasta ári. Mjólkurútgjöld „vísitölu- fjölskyldunnar" hafa því verið um 14.600 krónur að meðaltali, eða um 8.900 krónum minni en brennivínsútgjöld þessarar sömu fjölskyldu. Verðhækicun á mjólk varð hlutfallslega svipuð og á áfeng- inu. Munurinn var hins vegar sá, að mjólkurkaupin minnkuðu menn urn nær 1,3 milljónir lítra frá árinu áður, eða um 27 lítra á hverja „vísitölufjölskyldu" að meðaltali. Bíræfnir bílaþjófar Stálu bíl- umog fóruí bílakaup ■ Tveirungirmennstálu í fyrrinótt bíl í Þorláks- höfn og óku til Reykjavík- ur. Þar stálu þeir öðrum en létu Reykvíkinginn hafa X-bílinn úr Þorláks- höfn. Talið er að þeir hafi verið komnir aftur til Þor- lákshafnar fyrir morgun og skiluðu þá R-bílnum þar sem þeir stálu hinurn. Við eftirgrennslan í Höfn- inni fann lögreglan svo mennina tvo og eru þeir grunaðir um ölvun við akstur í báðum ferðum. Vistunarvandi ör- yrkja er óleystur - segir Helgi Seljan alþingis- maður, sem lagði fram fyrir- spum um málið á alþingi í gær. ■ Philippe Noiret í hlut- verki sínu í Tataraeyði- mörkinni, sem kvik- myndaklúbbur Aliance Francaise sýnir. Alliance Francaise: Tataraeyðimörkin í Regnboganum - Frá Aðalsteini Valdimarssyni, nemanda í Breiðholtsskóla, í starfskynningu á NT. ■ „Hvað líður aðgerðum til lausnar á vistunarvanda þeirra öryrkja sem við mesta fötlun búa?“ Þannig hljóðar fyrirspurn sem Helgi Seljan og Guðrún Helga- dóttir lögðu fram á alþingi í gær. Helgi sagði í viðtali við NT, að fyrirspurnin væri flutt vegna þess að þau vildu fá að vita hvort ekki ætti að gera neitt í þeim mikla vanda sem mætir því fólki hér á landi sem er svo mikið fatlað, andlega eða lík- amlega, að ekki er hægt að sinna því á þeim stofnunum sem nú eru til í landinu. „Þetta er ekki stór hópur. Ekki nema 10-20 manns, sem er svona illa fatlað,“ sagði Helgi. Hann sagði ennfremur til í dæm- inu að stofna sérdeild fyrir fólk- ið en samt væri auðvitað æski- legra að hægt væri að sinna því meira hverju fyrir sig. Helgi sagði einnig að ýmsir aðrir möguleikar væru í þessu máli. Það væri t.d. hægt að veita aðstandendum færi á að sinna þeim með aðstoð heima- hjúkrunar. Aðalatriðið væri að margt af þessu fóli væri í dag á venjulegum sjúkrahúsum og erfiðleikar við að sinna því væru svo miklir að eitthvað yrði að gera í málinu. ■ Sjávarsíðan NT mynd Róbert Fyrirspurnar- flóðá þingi ■ Jóhanna Sigurðardóttir lagði í gær fram sex fyrirspurn- ir varðandi banka og spari- sjóði. Þingmaðurinn vill m.a. fá að vita hver heildaraf- greiðsla viðskiptabanka og þriggja stærstu sparisjóðanna hafi verið til finrm stærstu lántakenda tvö sl. ár. Hversu rnargar umsóknir liggi fyrir um stofnun nýrra bankaútibúa og sparisjóða. Hverju skuld- bindingar bankanna nemi er- lendis. Hver vaxtamunur inn- og útlána hafi verið tvö sl. ár. Og hversu hár auglýsinga- kostnaður bankanna hafi verið að undanförnu. Þá spyr Guðrún Helgadóttir fjármálaráðherra um auglýs- ingakostnað vegna sölu spari- skírteina ríkissjóðs og hvað ætla megi að hann jafngildi launurn margra í 15. launa- flokki BSRB. Helgi Seljan spyr um afgreiðslu lána frá Húsnæðisstofnun. Guðmund- ur J. Guðmundsson flytur þingsályktun um fullvinnslu sjávarafurða. Sami ásamtfleir- um flytja frumvarp til laga um aukinn rétt verkafólks sem koma mundi í veg fyrir að fólk ; fiskvinnslu verði svipt tekjum sínum með viku fyrtrvara og Svavar Gestsson o.fl. flytja tillögu um rannsókn á inn- flutningsversluninni. Aðeins var fundað í samein- uðu þingi í gær. Eimskip fékk freðfiskflutningana fyrir SH en Skipafélagið Víkur bauð lægri flutningsgjöld ■ Kvikmyndaklúbbur Alliance Francaise sýnir kvikmyndina Tataraeyði- mörkin í litla sal Regnbog- ans (á 2. hæð) í kvöld, miðvikudaginn 30. janúar, ogannað kvöld, kl. 20.30. Tataraeyðimörkin (Le désert des Tartares) var gerð árið 1976 undir leik- stjórn Valerio Zurlini, eft- ir samnefndri skáldsögu Dino Buzzatti. Að mörgu leyti heillandi mynd um bið hermanna eftir ímynd- uðum óvini úr norðrinu. Aðalhlutverkin eru leikin af Jacques Perrin, Vittorio Gassman, Helmut Griem, Philippe Noiret, Laurent Terzieff, Jean-Louis Trintignan og Max von Sydow. ■ Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna hefur ákveðið að taka tilboði Eimskips h.f. í flutninga á freðfíski til Bandaríkjanna. Tilboð Eimskips var metið hagkvæmara, þegar allt var skoðað en tilboð Skipafélags- ins Víkur, þótt Víkur hafí boð- ið lægra flutningsgjald. í fréttatilkynningu frá SH segir að það sem úrslitum hafi ráðið, þegar tilboð þessara tveggja skipafélaga voru metin hafi verið meiri tíðni ferða hjá Eimskip, betri skipakostur og smærri farmar í gámaskipum Eimskips en frystiskipi Víkna, sem spari geymslu- og vaxta- kostnað. „Ég hugsa að það sé ansi margt að athuga við þetta, þegar nánar er skoðað," sagði Finnbogi Kjeld, framkvæmda- stjóri Skipafélagsins Víkur, í samtali við NT í gærkvöldi. „Þeir bjóða út flutninga frá 28 höfnum á íslandi til einnar hafnar í Bandaríkjunum og það á að lesta á 8-12 höfnum í hverri ferð. Það er skýrt og skorinort í útboðsgögnunum. Þeir hefðu átt að skýra það strax hvaða óskir þeir hefðu um þessa hluti, en það virðist allt koma eftir á. Það er ekkert um það að þeir óski eftir tíðari ferðum en við gátum boðið upp á.“ Ölafur Gunnarsson fram- kvæmdastjóri SH sagði í gær- kvöldi að það væri rétt að eins og málið var lagt upp í upphafi hafi mismunur á tilboðunum verið til staðar, Víkum í vil. Hins vegar væru fleiri þættir sem taka hefði þurft tillit til. Þarna er um að ræða útboð upp á 80-90 milljónir króna á ári og tilboð Eimskips hefði verið hagstæðara ef litið sé á alla flutningakeðjuna frá upp- hafi til enda. „Við áskildum okkur rétt til að taka hvaða tilboði sem væri og við eigum ekki neinna hagsmuna að gæta S' 'á skipafélögunum," sagði lafur.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.