NT - 30.01.1985, Blaðsíða 6

NT - 30.01.1985, Blaðsíða 6
Heimir Hannesson hdl.: Ferðaþjónustan - víðfeðm atvinnugrein með vaxtarbrodd ■ Á fyrstu árum Ferðamála- ráðs skapaðist, fyrir forgöngu þess, „munstur" að margvís- legri sameiginlegri landkynn- ingarstarfsemi þessara og fleiri aðila erlendis, sem reynst hef- ur afar vel, og hefur m.a. þetta munstur verið uppistaðan í kynningunni í ferðum forseta íslands, sem alkunna er. Verð- ur aldrei nægileg áhersla á það lögð, að vart er að finna hetri sameiningarflöt í sameiginlegri kynningu á erlendum vettvangi en einmitt þá þætti, sem í þessu munstri ber hæst, þ.e. óspillta náttúru landsins, sögu þess og menningu ásamt út- flutningsvörum landsmanna, þar sem áhersla er lögð á gæði og vöruvöndun. Fá munstur, ef nokkur. eru líklegri til að setja þann gæðastimpil sem þarf á útflutningsvörur okkar í ört vaxandi samkeppni og um leið cnn brýnni þörf þjóöfé- lagsins á því að sami útflutn- ingur skili því sem mestum aröi. í þessu skyni þarf að virkja alla þá íslensku starf- semi, sem þegar er fyrir á erlendum vettvangi og koma nýrri af stað. Einmitt þetta atriði hlýtur að vera mikilvægt efnisatriði þegar nú er loksins að koma að róttækri endur- skoðun og nýskipan á útflutn- ingsmálum okkar. Það þarf ekki að leita langt í fram- kvæmd og lagasetningu varð- andi útflutningsmál nágranna- þjóðanna til að sjá um þetta skýr dæmi, en ekkert þeirra hefur jafn mikla möguleika á því og íslcndingar að fram- kvæma þetta með þeim hætti að árangur verði og eftir því vel tekið. En það þarfnast meiri skýringa en hér rúmast að sinni. En varðandi fcrða- þjónustuna sjálfa liggur í aug- um uppi, eftir þann árangur sem orðið hefur, að hvergi má láta deigan síga í markaðs- sókninni og aukinni landkynn- ingu. Eins og rökstutt hefur verið hér að framan eru hér miklu meiri hagsmunir í húfi ■ Hciniir Hanncsson. en ferðaþjónustunnar einnar, en hún er hluti af myndinni og því mega menn ekki gleyma. Starfsemi flugfélaganna Síðast en ekki síst skal getið hinnar umfangsmiklu og sam- felldu landkynningar, sem bæði flugfélögin, þ.e. Flugleið- ir hf. og síðar Arnarflug, þó í minna rnæli sé af eðlilegum ástæðum, hafa staðið sjálf að, bæði beint héðan og frá skrif- stofum og umboðsmönnum víða um heim. Er rétt að það komi fram, að öll þessi starf- semi kemur til viðbótar þeirri sameiginlegu markaðsstarf- semi, sem á var minnst og þó að þessi landkynning, af hálfu félaga, sem eru að mestu leyti í eigu einkaaðila og beinist fyrst og fremst að því að selja flugsæti milli landa og ferða- þjónustu hérlendis, kemur þessi umfangsmikla starfsemi fjölmörgum öðrum aðilum í þjóðfélaginu til góða, m.a. eru í þágu útflutnings okkar og skapar almennt jákvæðan skilning á högum lands og þjóðar. Vantar oft mikið upp á að mönnum séu þessi sann- indi ljös í opinberum umræð- um þegar alþjóðaflug okkar ber á góma. 2. grein. Nokkrar meginstaðreyndir í lok þessarar greinar er rétt að geta nokkurra meginstað- reynda í tengslum við það sem að framan er sagt: 1. Atvinnugrein ferðamála hefur verið sívaxandi þáttur í íslenskum þjóðarbúskap og hefur skilað auknum gjaldeyristekjum til þjóðar- búsins og skapað aukin at- vinnutækifæri í vaxandi at- vinnugrein. 2. Ferðaþjónustan - atvinnu- grein ferðamála, er í raun vaxandi útflutningsgrein, sem hefur góða möguleika á því að verða einn af vaxtarbroddunum í ís- lensku atvinnulífi, sé að henni hlúð og henni sköpuð aðstaða til áframhaldandi vaxtar. 3. Á árinu 1984 má áætla að hafi starfað rúmlega 5% íslendinga beint eða óbeint að framkvæmd ferðamála og hliðargreinum hennar. Þáttur ferðamála í öflun gjaldeyristekna á s.l. ári er umtalsverður eða um 8% af heildarverðmæti vöruút- flutnings. Þar fyrir utan eru innlendar tekjur innan at- vinnugreinarinnar, sem eru verulegar. 4. Ferðaþjónusta er forsenda núverandi samgöngukerfis landsmanna, hvort sem litið er til flugsamgangna við útlönd eða fjölmarga þætti í samgöngukerfinu innan- lands. Koma erlendra ferðamanna til landsins árið um kring er forsenda þeirr- ar tíðni í alþjóðaflugi til og frá landinu, er tekist hefur að halda uppi. 5. Vegna þeirrar fjárfestingar sem þegar er orðin í ferða- ■ Ný hótel hafa bætt aðstöðu og allt mannlíf í viðkomandi byggðalögum. Myndin er tekin í vínstúku nr. 4 í Hótel Húsavík. málum okkar, m.a. rnjög aukið hótelrými hringinn í kringum landið, er hægt að auka umsvif og tekjumynd- un í atvinnugrein ferðamála án verulegrar viðbótar fjárfestingar. Minna má á, að mikilvægir þættir ferða- mála felast í ýmiskonar þjónustu, þar sem lítillar fjárfestingar er þörf. 6. Skilja ber þá staðreynd, að undantekningarlítið kemur fjárfesting í ferðamálum öllum landsmönnum til góða, þó með mismunandi hætti sé og t.d. fjárfesting í hótelum og samkomustöð- um ekki síst hringinn í kringum landið á stærri og smærri stöðum bætir alla félagslega aðstöðu á við- komandi stöðum og auðgar og bætir mannlífið. Ef til vill er þessi síðasti liður mikilvægari en margir ætla og því miður ein af þeim staðreyndum, sern of fáir tengja gildi ferðamála fyrir ís- lenskt þjóðfélag. Aukin nýting slíkrar fjárfestingar stuðlar bæði að auknum tekjum fyrir viðkomandi byggðarlag og þjóðarbúið í heild. Þessari staðreynd gleyma til dæmis stjórnvöld of oft þegar ákveðin eru lánskjör til slíkra fram- kvæmda, tollastefna er mótuð og söluskattur ákveðinn og fleiri tengd atriði. Vaxtarbroddur og f járfesting Eins og rakið var í þessu yfirliti má leiða að því sterk rök, að atvinnugrein ferða- rnála gæti verið einn lífvænleg- asti vaxtarbroddurinn í ís- lensku atvinnulífi á næstu árum og áratugum. Hafi hvort tveggja í senn góða möguleika á því að afla þjóðarbúinu auk- inna gjaldeyristekna og skapa aukna starfsmöguleika fyrir nýja og uppvaxandi kynslóð. Það má ennfremur leiða að þvi skýr rök, að meðal annars vegna þess að veruleg fjárfest- ing hefur verið í atvinnugrein- inni á undanförnum árum, m.a. með stórauknu hótel- rými, ekki síst víða út um landsbyggðina, þarf tiltölulega litla viðbótarfjárfestingu til að gera atvinnugreininni kleift að auka umfang sitt verulega bæði varðandi fjölþætt þjónustu- starfsemi við erlenda ferða- menn jafnframt því sem búið er í haginn fyrir ferðalög ís- lendinga um eigið land. Það er sérstök ástæða til að minna á, að það er t.d. ekki eingöngu hlutverk Ferðamála- ráðs íslands að stuðla að ferða- lögum erlendra manna til ís- lands í viðskiptalegum tilgangi heldur er það ekki síður hlut- verk ráðsins að stuðla að og Atvinnugrein ferðamála hefur verið sívaxandi þáttur í íslenskum þjóðar- búskap og hefur skilað auknum gjaldeyristekjum til þjóðarbúsins og skapað aukin atvinnutækifæri í auknum mæli HP ^ NT 1 A/þýðuflokkur 20,1% 15,3% 15,4% FramsAknarflokkur 13,2% 17,8% 17,7% Bandal. jafnaðarm. 0,0% 6,4% 6,6% Sjálfstaaðlsflokkur 37,3% 39,7% 35,4% Alþýðubandaiag 13,5% 14,9% 14,6% Samt. um kvonnal. 10,0% 6.6% 7,7% Aðrir 0 0,2% 2,8% ■ Skoðanakönnun DV sem birtist í gær, sýnir nokkuð aðra skiptingu milli flokka en kannanir NT og Helgarpósts- ins sem birtust á fimmtudag í fyrri viku. Hér á síðum NT hefur því iðulega verið haldið 1 fram að skoðanakannanir sem gerðar eru af íslenskum blöð- um séu ekki nægilega nákvæm- ar til að unnt sé að taka niðurstöður þeirra alvarlega í smáatriðum. Munurinn á niðurstöðum DV annars vegar og niðurstöð- um NT og Helgarpóstsins hins vegar er í sumum tilvikum allmikill og styrkir það óneit- anlega þessa skoðun. Maður gæti kannski freistast til að halda að meira mark sé takandi á skoðanakönnunum NT og Helgarpóstsins, þar eð Hvað er sameiginlegt með Alþýðuflokknum og bjórlíkinu? þeim ber nokkurn veginn sam- an um fylgi flestra flokka. Þetta þarf þó alls ekki að vera svo. í fyrsta lagi er verulegur munur á fylgi Sjálfstæðis- flokksins milli þessara tveggja kannana, þótt aðrir flokkar komi svipað út í þeim báðum. Þessi munur er yfir 4% og er eftir að finna haldbæra skýr- ingu á honum. Hins vegar er tiltölulega auðvelt að skýra þá miklu fylgisaukningu sem Alþýðu- flokkurinn fær í skoðanakönn- un DV miðað við hinar tvær. Þegar niðurstöður skoðana- kannana NT og Helgarpóstsins voru birtar á fimmtudag í síð- ustu viku, vöktu þær verulega athygli og hlutu m.a. vandlega umfjöllun bæði í útvarpi og sjónvarpi. Það hefur því trú- lega verið vandfundinn sá ís- lendingur sem ekki vissi mæta- vel af því nú um helgina, þegar DV kannaði skoðanir kjós- enda, að Alþýðuflokkurinn var í verulegri sókn. Undir slíkum kringumstæðum er alls ekkert óeðlilegt að mun fleiri en ella lýsi yfir stuðningi við þann flokk. Það var þannig vitað fyrir- fram að uppsveifla Alþýðu- flokksins myndi sýnast stærri í niðurstöðum DV og að þessu var einmitt vikið hér í þessum dálkum á laugardaginn þegar rætt var um væntanlega skoð- anakönnun DV. Þar sagði svo: „Raunar er blaðið nú að vinna að skoðanakönnun sem birtast átti á mánudaginn, en vonandi hafa þeir vit á að hætta við hana þar sem niður- stöður verða gjörsamlega ó- marktækar, litast óhjákvæmi- lega af niðurstöðum úr könnunum NT og Helgar- póstsins og umræðum sem fylgt hafa í kjölfarið.“ Það er ekkert ofsagt, þótt því sé haldið fram að hin mikla uppsveifla sem Alþýðuflokk- urinn fær í könnun DV, sé nokkuð ýkt og mun stærri en hún hefði orðið ef DV hefði gert sína könnun á sama tíma og Helgarpósturinn og NT. - Skiptir máli hver spyr? Þegar niðurstöður DV og NT eru bornar saman, kemur einnig í Ijós athyglisverður munur á fylgi Framsóknar- flokksins og Sjálfstæðisflokks- ins. Framsóknarflokkurinn fær mun meira fylgi í NT könnun- inni en hjá DV. Með Sjálf- stæðisflokkinn er þessu öfugt farið. Hann kemur sterkari út úr könnun DV en hjá NT. Sú skýring á þessu fyrir- brigði, að það hafi áhrif á niðurstöðurnar, hver það er sem spyr, er satt að segja ákaflega freistandi.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.