NT - 30.01.1985, Blaðsíða 4
Miðvikudagur 30. janúar 1985 4
Til sölu er þessi glæsilega bifreið sem er af gerðinni MAZDA RX 7 árg
1980 ekin aðeins 70 þús. km. í bifreiðinni eru hljómflutningstæki frá
PIONEER ásamt átta hátölurum og tveimur kraftmögnurum. Verð kr.
430.000.Fæst á sérstöku tilboðsverði gegn staðgreiðslu kr. 300.000.
MBSAÍÁj
alla ruts
Hyrjarhöfða 2 - Sími 81666
Frönsk eðalvín kynnt á íslandi:
Daguránvínser
dagur án gleði!
■ Marie-Paule Leroux kynnti Muscadct vínin sín á sannfærandi hátt fyrir íslenskum vínunnendum.
Konráð Axelsson kannar ilm eðalvínsins en hinum megin borðsins fylgist franska sendiherrafrúin með
af athygli.
■ Hér sést Hilmar Jónsson ritstjóri Gestgjafans, meðal annarra, í óða önn við leggja dóm á veigarnar.
■ Skenkt í glös vínsmakkaranna, sem eru hinir alvarlegustu á svip,
enda dugir enginn hálfkæringur við þcnnan starfa.
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ
NT fylgist með vín-
smökkun, ævafornri list
erlendis sem lítið
hefur verið iðkuð hér
■ „Dagur án víns, er dagur án
gleði,“ sagði Mademoiselle
Marie-Paule Leroux sem nýlega
var hér á ferð á vegum frönsku
vínframleiðendanna Sauvion &
Fils til að kynna forsvarsmönn-
um íslenskra veitingahúsa og
vínunnendum leyndardóma
Muscadet hvítvínanna frá
Frakklandi.
Verður og ekki annað ætlað
af síauknum vinsældum veit-
ingastaða hér á landi en að
íslendingar hafi áttað sig á þess-
ari staðreynd og í því sambandi
er ánægjulegt til þess að vita að
hlutur léttra vína, hvítra og
rauðra er að aukast í samkeppn-
inni við bjórlíkið. Og ekki nóg
með það, hlutur þurra hvítvína
fer vaxandi í neyslu hvítra vína
enda eru þau með afbrigðum
ljúffeng með sjávarréttum.
Muscadet-vínin eru ættuð frá
vesturhluta Frakklands, nánar
til tekið næsta nágrenni borgar-
innar Nantes, þar sem Loire áin
fellur til sjávar út í bláfextar
öldur Atlantshafsins. Vínþrúg-
ur hafa vaxið á þessum stað
síðan á dögum Rómverja í
Frakklandi en héraðið hefur
fyrst getið sér orð sem vínrækt-
arhérað eftir síðari heimstyrj-
öldina. Framleiðendurnir eru
margir og smáir á þessu svæði
og undir venjulegum kringum-
stæðum kaupa stór vínútflutn-
ingsfyrirtæki upp framleiðsluna
og hella öllu saman og selja sem
standardmerki.
En það eru ekki allir sem eru
hrifnir af þessari samblöndun
og þar á meðal eru Sauvion og
Fils, fjölskyldufyrirtæki föður
og sona sem ferðast um héraðið
og kaupa bestu framleiðsluna
og kynna hana sem „uppgötv-
un“ sína hvert ár. Af því leiðir
að Muscadet vínin eru misgóð
eftir árunt og tegund sem er í
„uppgötvunarflokknum" eitt
árið er ekki gulltryggð í hann á
því næsta.
Vínsérfræðingarnir Sauvion
leggja land undir fót síðsumars
og smakka sig í gegnum bestu
framleiðsluna og gera síðan
kaupsamninga. Eftir það fær
vínið að hvíla í friði fram í
aprílmánuð en þá kemur fyrir-
tækið á staðinn með átöppunar-
vélar sínar og það er sett á
flöskur. Pað gerist á hverjum
búgarði fyrir sig og hefur vínið
verið geymt á sömu ámum allan
tímann en ekki millifært. Pað
kallast á vínmáli „sur lie“ og fær
vínið fyrir vikið annan karakter,
verður frísklegra á bragðið og
kitlar ögn tungubroddinn, eins
og kampavín, þegar það er
drukkið.
Marie-Paule hafði með í far-
teski sínu til íslands 10 tegundir
af Muscadet hvítvíni og reyndar
fylgdi með ein tegund af rauð-
víni. Vínin, sem öll voru frá
1983, höfðu það sammerkt að
vera frekar þurr en einkar
bragðgóð. Mátti heyra á við-
stöddum að þeirn fundust gæðin
aukast eftir því sem leið á
smökkunina, enda voru úrvals-
vínin rúsínan í pylsuendanum í
þessari vínsmökkun sem fram
fór á Hótel Holti í samvinnu við
franska verslunarfulltrúann
Ginu Letang og Konráð Axels-
son innflytjanda.
Muscadet vínin eru ekki
■ Hrafnkell Guöjónsson eig-
andi Hrafnsins fagmannlegur í
fasi.
ennþá seld í ríkinu hérna en
vonandi verður breyting þar á
fljótlega. Þessi þurru frönsku
hvítvín eru alltof góð til að
íslenskir vínunnendur fái ekki
að njóta þeirra. Útfiutningur
Sauvion & Fils hefur aukist
mikið á síðustu árum og nú er
svo komið að sögn Marie-Paule,
að meira er selt úr landi en á
heimamarkaði. Mestasalan hef-
ur verið á Bretlandseyjum en á
síðustu árum var hafinn útflutn-
ingur til Norðurlandanna og
hefur Muscadet unnið þar hug
og hjörtu vínunnenda.
Fyrir þá íslendinga sem ekki
hafa þolinmæði til að bíða eftir
því að Muscadet komi til lands-
ins upplýsist hér með að hægt er
að kaupa það í fríhöfninni í
Keflavík, ef menn eiga þar ferð
um.
áþj
■ Hópur hinna „útvöldu“ sem nutu þeirrar ánægju að mæta í
vínkynninguna sem haldin var á Hótel Holti. NT-myndir: Árni Bjarna