NT - 30.01.1985, Síða 8
á
Wav hól r : w i
uuv
Miðvikudagur 30. janúar 1985
8
ridur haf:
Listasafn
Einars Jónssonar
■ Listasafn Einars Jónssonar
er opið laugardaga og sunnu-
dag frá kl. 13,30 til kl. 16,00.
Höggmyndagarðurinn er op-
inn laugardaga og sunnudaga
kl. 11-17.
Styrktarsjóður
Landakots
■ Styrktarsjóði St. Jósefs-
spítala Landakoti, hafa á
undanförnum mánuðum borist
vcglegar gjafir.
Til minningar um Unni Ól-
afsdóttur barst gjöf að upphæð
kr. 200,000,- Nú þessa daga
stendur yfir sýning í Áskirkju
í Reykjavík á kirkjumunum
eftir Unni.
Kjartan Ólafsson, apótek-
ari, hefur afhent sjóðnum kr.
50.000,- að gjöf og sama upp-
hæð hefur borist frá aðila sem
ekki vill láta nafns síns getið.
Sjóðsstjórn sendir gefendum
alúðarþakkir fyrir þessar rauns-
arlegu gjafir.
Á fundi stjórnar Styrktar-
sjóðsins hinn 5. desember s.l.
var ákveðið að verja ofan-
greindum gjöfum til kaupa á
Gamma-camera fyrir Landa-
kotsspítala. Tæki þetta er ætl-
að til rannsókna á hinum ýmsu
líffærum svo sem heila, skjald-
kirtli, beinum, lungum, lifur
og nýrurn með geislavirkum
efnunr.
Stjórn Styrktarsjóðsins vill
skora á velunnara Landakots-
spítala að leggja þessu máli
lið. Fjárframlögum er veitt
móttaka á skrifstofu spítalans
á vcnjulegum skrifstofutfma.
Gjafir til Styrktarsjóðs Landa-
kotsspítala eru frádráttarbærar
til skatts.
Pennavinir
Miss Comfort Caytee
Po Box 1090 Cape Coast
Chana W/A
Miss Comfort er 24 ára og
hefur áhuga fyrir músík, dansi
og bréfaskriftum.
Mr Boh Lee
Po Box 1090 Cape Coast
Ghana W/A
Bob er 26 ára og hefur gaman
af dansi, tónlist og tennis.
Donna Lovely Grant
Po Box 75 Tarkwa
Ghana W/A
Donna er tvítug að aldri og
hefur áhuga fyrir sundi, blaki
og öðrum íþróttum, ferðalög-
um, póstkortum, músík, dansi
og giftingu.
Kvennalista-
fundur
■ Kvennalistinn heldur
kynningarfund í JC-salnum í
Mosfellssveit á fimmtudags-
kvöld kl. 20.30. Á sunnudag
verður kynningarfundur í
Gerðubergi.
Heimilislæknar eru á
heilsugæslustöðvunum
- heilsugæslulæknir svarar Elínóru
Seltjarnarncsi 25/1 1985
■ 14/1 1985 birtist grein í NT
„Eyðublöðin og þvagprufan".
Sjúklingur lýkQr lofsorði á
Hauk heimilislækni sinn og
metur hann sýnilega að verð-
leikum. Það er hins vegar
hörmulegt að hugsa til þess að
viðkomandi heimilislæknir
hefur þurft að stunda sitt anna-
sama starf við mjög ófullnægj-
andi aðstæður.
Hins vegar stendur í grein-
inni: „Ég þverneita að láta
senda mig á einhverja heilsu-
gæslustöð til mismunandi
lækna, sem hvorki þekkja haus
né sporð á mér.“
Það er ekki í fyrsta skipti,
sem fram kemur þessi mis-
skilningur og ætla ég ekki að
elta ólar við hvernig hann muni
til kominn. Hér á Reykjavík-
ursvæðinu velur fólk, skráð á
heilsugæslustöðvar, að sjálf-
sögðu einn lækni fyrir fjöl-
skylduna. Til þess læknis leita
sjúklingar með sína kvilla and-
lega og líkamlega. Öll sam-
skipti eru skráð og flokkuð og
upplýsingum um fyrri heilsu-
farsvanda safnað eftir föngum.
Heimilislæknirinn annast
gjarnan mæðraeftirlit og ung-
barnaeftirlit fyrir skjólstæð-
inga sína. Forfallist heimilis-
læknirinn af einhverjum ástæð-
um getur fólk fengið að skjót-
ast til einhvers annars læknis á
stöðinni í það sinnið, svo öll
brýn erindi megi leysa sam-
dægurs.
Heilsugæslulæknar stefna að
því að skjólstæðingar þeirra
geti haft aðgang að læknum
stöðvarinnar á kvöldin og um
helgar og skipta með sér vökt-
um í því skyni. Vitneskja um
atburði vaktarinnar kemst
strax í hendur heimilislæknis
viðkomandi sjúklings næsta
dag.
Á heilsugæslustöðvum hafa
heimilislækrar undantekning-
arlaust ritara, víða rannsókna-
stofu og með þeim starfa
hjúkrunarfræðingar, sem hef-
ur mjög mikla þýðingu í sam-
bandi við hjúkrun í heimahús-
um, ungbarna- og mæðravernd
auk skólaeftirlits o.fl.
Hvers eiga Reykvíkingar að
gjalda, að ekki skuli allir Reyk-
víkingar eiga kost á þjónustu
heilsugæslustöðva?
Guðfinnur P. Sigurfinnsson.
Guðfinnur P. Sigurfinnsson er
starfandi heilsugæslulæknir á
heilsugæslustöð Seltjarnar-
nesi, en sú stöð þjónar Rvík að
hluta.
• L< >: (L
jEyðublöðin og þvagprufan
ll.iUNXctlunnn v.ir ,ið
ilnp.i nng s\»i já cg g.it ckki
liumm.ið h.mn Irjm jI mcr
| lcngtir ng l.igÁi lciA ininj lil
ll.llls H.mks ll.iukurcr
licimilisl.i-kmrmn okkjr
I'cimi inn korn j stnluiu
I Iuiis ng ll.iukur lur .ct'lurn
I lingrum um hcljunun
| liii.ikk.iiin >•>; hjlsmn .i mcr.
s.igAi hjnn
„Allir vmWjr cru
gr|oth.irÁir .if voAvjh»v||ju
I vltirÁu cnnþj oxlunum
pcgar þu vclrit.tr ’
í.g v.irÁ j«> viAurkcnnj. já
|uá v iUIi j;lc\ m.ist ,iá sljpp.i al
i ovlum nj: h.ilsi. (xrjur cj: v inn
laukur vctl ndmlcga
ivitaA hvai> cg gcri og |url
ckki j ó taka langar vkvrslur til
ji> vita hvar vkórmn krcppir
Hann vagdivt artla ad gcfa mcr
voósavlakandi pillur og
nokkrar sprautur hcmt i
voóvann til að taka siravta
vcrkinn
Mcðan cg var að fa
sprauturnar i hilwnn. vpurði
hann mig hvort cg hcíði farið
nylcga mcð þvagprufu i
r*ktun. þvi að cg cr mcð
vandræðanyru Það vcit
Haukur lika Og hvort v*n
ckki orðið langt viðan Cg fór i
14 Þad cr blóðprufa scm ti
þarf að fara í tvivvar á ári. ffg
mundi ckkcrt hvað var langt
siðan cg stnð i þcssu vcscm
siðjst ffjukur flcllir mcr upp
rð
i Moðunumsinum Hann
þungui j hrun
Hcvrðu giM\». þu crt jlvcg
rrakjIjuv (Það vivvi cg nu, cg
cr húm að vera makalauv i vjó
ar ) hu attir að fara mcð
þvagprufu fynr fjórum
manuðum Langar þig vvona
miktð »ð lcnda afiur akút inn
a vpitala og liggja hcila viku
fram i gangi'*-
Ég varð að jita. að það vm
ckkcrt ógurlcga vkcmmulcgt.
þótt vimahormð i Landakoti
hcfði haft vinn vjarma
Haukur fór að útfylla
cyðuNoð til að vcnda mig tvivt
og hast mcð þvagnrufu og i
hloðrannsnkn A nvcðan
spurði hann um hcilsufar
hjrnjnnj hvort cldn vtclpan
hctði fcngM> hlo«>fuh»jlgu aflur
og hvort vu yngn vrr ckki
orðm matlyuugn Ég grcip
fram i (>nr honum iður cn
hann helt lcngra
.hað þvðir ckki f>Tir þig jð
vcgjaaðCtcigiaðlcggjaaf fg
nla að fara »ð uofna anti
mcgnuvarklubh Eg cr orðm
hundloð a oJlu
mcgnjturkjaflxði "
Haukur vkclhhló .Nci. Cg
nla ckkcrl að vcgja þcr að
horavt hu crl ign ctnv og þu
crt “
Það cr ckki að undra. þótt
cg vc hrifm jf
hcimilivlxknmum minum Lg
þscrncita að lata scndj mig j
cmhvcrjj hcilsuga-slustiM> hl
mivmunjndi Ixknj wm
hvorki þckkjj hjus nc vporð j
mcr Hið opinhcr j spjr.iði
hcldurckkcrl j hsi I fcg hcfði
\ .\
ckki Ifjuk til ,ið pjsvj upp ,i
mig vxn eg lúngu dauð. hxli
aðhorgjkr 7 imi.tHl i skjtt .i
manuði og bormn v;cru .i
fi jmlxrslu hnts opmhcr.i
Síma-
sambands-
lausir
Pöbbar
Pöbh-ötull hringdi og vildi
koma cftirfarandi kvörtun á
framfæri:
■ Ég er oft á ferðinni í mið-
bænum ýmissa erinda og þá á
ég það til að bregða mér inná
einhverja af þessurn nýju öl-
stofum til að væta kverkarnar.
Það er svosum ekki í frásögur
færandi, allir virðast gera
þetta, en það sem ég ætlaði að
nefna eru símavandræðin.
Á cinum staðnum lenti ég í
því að þurfá að hringja og
leitaði til veitingamannsins en
hann sagði mér að það væri
enginn sími í húsinu. Reyndar
laug hann því blákalt því teng-
ill var á veggnum og símasnúra
hvarf inn í næsta skáp en
eflaust er ntikill ágangur í
símann. Því spyr ég. Hvers
vegna geta þessir staðir ekki
sett upp sjálfvirka símsala?
Reyndar veit ég að svoleiðis
apparat finnst á einum þessara
nýju staða.
Annað sem ég vil koma á
framfæri í leiðinni er sá skortur
sem er á símaklcfum t miðbæn-
um og yfirleitt í borginni allri.
Þetta þykir sjálfsagt í erlend-
um stórborgum og ættum við
ekki að þurfa að vera st'ðri á
þessu sviði frekar en öðru.
■ Bréfritari segir að þessi forsíðumynd NT sem birtist á mánudag afsanni þá firru að fólk sé alltaf
hólpið í leigubíl.
Vil fá barnabílstóla og
bílbelti í leigubifreiðar
Reykjavík 28.1/85
■ Fyrir nokkrum árunt var
það lögleitt af hinu háa Alþingi
að bílbelti skuli vera í bílum og
enginn skuli sitja í framsæti án
þess að hafa slíkt belti um sig
miðjan. Gott og vel. Þessu
hefur fólk svo tekið og bíl-
beltanotkun aukist gífurlega.
Sömuleiðis hefur notkun
barnabílstóla stóraukist en
ekki veit ég þó til að slíkt hafi
verið lögleitt.
En nema hvað. Þeir menn
sem hvað mest eru á götunni,
leigubílstjórar, eru alþekktir
af því að nota aldrei bílbelti.
Þeir bílar þekkjast líka þar
sem beltin eru í ólagi og margir
þessara heiðursmanna virðast
taka það sem vantraust og
beinlínis móðgun ef einhver
lætur sér detta í hug að setja á
sig belti. „Það hefur alltaf
verið bilað og maður fer heldur
ekki rneð bílinn á verkstæði
þegar ekkert annað er bilað í
bílnum," sagði einn leigubíl-
stjóri við undirritaðan þegar
hann ætlaði að spenna það á
sig. „Það setur það líka enginn
á sig. Þú ert líklega annar í
röðinni sern tekur svona í
það," bætti hann við og svo var
ekki fengist meira um það.
Nema hvað bílstjórinn kvaðst
ætla að menn gætu gott eins
drepið sig í belti eins og án
beltis. Urn það þarf þá um-
ræðu.
Það gegnir svo sama máli
um barnabílstóla sem stöðvun-
um væri alveg vorkunnarlaust
að hafa í einum eða tveimur
bílum.
Forsíðumyndin hjá ykkur í
NT í dag afsannaði þá firru að
fólk sé alltaf hólpið í leigubíl.
í umferðinni er enginn
hólpinn, hvorki þú né ég.
Farþegi og barnamaður
■ Hvað
lega???
er klukkan eigin-
Af hverju er
Hlemmklukkan
höfð vitlaus?
■ Það er gáfulegt til þess að
hugsa að borgin skuli koma sér
upp dýrri og mikilli klukku
fyrir utan biðskýlið á Hlemmi
og svo er ekkert um það hugs-
að hvort þessi klukka er rétt
eður ei.
Síðan á þriðjudag hefur
þessi reisulega klukka gefið
grandvaralausum vegfarend-
um vitlausar upplýsingar um
gang himintungla. Fyrir þá sem
spásséra klukkulausir um bæ-
inn getur svona uppákoma ver-
ið afar óþægileg. Klukkan sú
arna hefur semsagt verið
u.þ.b. 6 mínútum of fljót og
þegar ég nálgast Hlemm og sé
á skífuna Itugsa ég; „Æi, ég er
þá búinn að missa af vagnin-
um.“ Tölti svo bölvandi með
hendur í vösum inn í biðskýlið
og gef mig á tal við rónana.
Nema Itvað þá blússar vagninn
minn framhjá. Og ég verð að
bíða korter enn.
Það eru því vinsamleg til-
mæli til yfirvalda yfir nefndri
klukku að framvegis verði hún
liöfð rétt miðað við Greenwich
tíma en tekin niður ella.
Stundvís farþegi
Skrifið til:
... eða hringið í
síma 686300
milli kl. 13 og 14
Lesendasíðan
Síðumúla 15
108 Reykjavík