NT - 30.01.1985, Page 9
Miðvikudagur 30. janúar 1985 9
Ár æskunnar einkennist af
hugmyndafræðilegri baráttu
■ Á íslandi hófst „Ar æskunnar" með setningarathöfn. Þar var greint frá með hvaða hætti tímabilinu verður varið til hagsbóta æsku-
fólki. En víða um heim munu milljónir unglinga aldrei heyra neitt um að árið sé tileinkað þeim. Myndir þessar eru af íslenskri æsku í
Austurstræti.
■ Framtak Sameinuðu
þjóðanna að tileinka
börnum og fötluðum
ákveðin ár til að vekja
athygli á baráttumálum
þessara hópa vöktu
heimsathygli. Árið 1985,
23ja árið sem tileinkað
er einhverju ákveðnu
málefni. virðist hins
vegar aðeins ætla að
vekja efasemdir og
sinnuleysi meðal
almennings. En
Sameinuðu þjóðirnar
hafa, án nokkurs
sérstaks áhuga,
eyrnamerkt árið sem nú
er gengið í garð sem
„Alþjóðaár æskunnar“
með siagorðunum
„þátttaka, þróun,
friður.“ Sá hópur, sem
sviðsljósið á nú að
beinast að, er
aldurshópurinn 15-24
ára og munu það vera
fimmtungur jarðarbúa.
Frumkvöðull og aðalhvata-
maður Árs æskunnar er Ceaus-
escau forseti Rúmeníu. Það
tók hann heilan áratug að
brjóta á bak aftur andstöðu
annarra ríkja við hugmyndina
um slíkt ár. Nú benda allar
líkur til þess að þetta alþjóðaár
muni einkennast af hugmynda-
fræðilegri baráttu Austurs og
Vesturs. Sovétríkin hafa boðið
til mikillar æskulýðshátíðar í
Moskvu í júlí n.k. og á sú
uppákoma að efla samstöðu
ungs fólks í „baráttu fyrir friði
og gegn heimsvaldastefnu."
Sovétríkin fjármagna þessa
hátíð og er hún skipulögð af
Alþjóðasamtökum stúdenta
og Alþjóðasamtökum lýð-
ræðislegrar æsku, sem bæði
eru „óháð“ æskulýðssamtök
sósíalistaríkja, auk nokkurra
þriðja heims ríkja. Mótleikur
Bandaríkjanna var að hvetja
E. Seaga forsætisráðherra
Jamaica til að skipuleggja al-
þjóðlega ráðstefnu æskufólks
á eyjunni í apríl n.k. Þar er
stefnt að því að hittist „ungt
fólk frá lýðræðisríkjum sem og
lýðræðissinnuð ungmenni frá
ólýðræðislegum ríkjum." Sam-
komunni, sem er að mestu
fjármögnuð af Bandaríkjunum
sem liður í „baráttu þeirra
fyrir lýðræði", er ætlað að
semja ályktun um „grundvall-
arreglur lýðræðis." Engum
sósíalistaríkjum hefur verið
boðið þangað er síðast fréttist.
Sammála um eitt atriði
Á sama tíma hafa Rúmenar
þrýst mjög á um að Sameinuðu
þjóðirnar samþykki yfirlýsingu
um réttindi og skyldur æsku-
fólks en lítt hefur gengið vegna
harðrar andstöðu vestrænna
ríkja á þeirri forsendu að slík
yfirlýsing takmarki þau rétt-
indi, sem Mannréttindayfirlýs-
ing S.Þ. veitir þessum aldurs-
hóp nú þegar. Austur- og Vest-
urblokkirnar eru þó sammála
um eitt atriði og það er að
hafna alfarið að veita auka-
fjárveitingu til framkvæmdar
ársins. Sjóður sá, sem S.Þ.
setti á fót fyrir 4 árum og átti
að taka við frjálsum framlög-
um aðildarríkjanna, nemur
aðeins 1200 þúsund krónum í
dag. Engu að síður eyða S.Þ.
drjúgum skildingi í málefnið,
því stjórnunar- og nefndar-
kostnaður vegna „Árs æskunn-
ar“ nemur nú u.þ.b. 160 millj-
ónum króna. Aðeins 4 fundir
ráðgjafanefndar „Ársins," sem
í eiga sæti 24 ríki, kostuðu S.Þ.
16 milljónir kr. Afurð þessara
4 nefnarfunda var skjalabunki
á 6 tungumálum upp á eina og
hálfa milljón blaðsíðna.
U.þ.b. 24 milljónum hefur ver-
ið eytt í svæðaráðstefnur um
málefnið og framkvæmdar-
nefnd „Alþjóðaársins," sem
hefur aðsetur í Vín, en fram-
kvæmdanefndin gefur út
fréttablað og á að gefa skýrslur
og samræma starfið.
Fyrir hvað er borgað?
Þegar spurt hefur verið um í
hvað allir þessir peningar fari,
verður fátt um svör. Michael
Stolirov, aðstoðarforstöðu-
maður upplýsingaskrifstofunn-
ar í Vín, neitaði t.d. að gefa
upplýsingar um kostnað,
skipulag og áformaðan árang-
ur á þeim forsendum að það
væri ekki hlutverk þeirra að
sýna mælanlegan árangur, auk
þess sem engar tölulegar upp-
lýsingar væru fyrir hendi, og
árangur af starfsemi í tengslum
við „Ár æskunnar" væri mál
einstakra ríkisstjórna." Klass-
ískt svar á vettvangi Samein-
uðu þjóðanna.
Stuðningsmenn „Ársins"
benda á að fjöldi æskufólks
hafi tvöfaldast síðan 1950 og sé
nú nálægt einn milljarður og á
þessum áratug muni koma til
sögunnar ný kynslóð, sem búi
við algera óvissu um lífsaf-
komu sína og jafnvel versnandi
kjör. Á þessum málum verði
að taka. T.d. eru tveir fimmtu
hlutar atvinnulausra á Bret-
landi ungt fólk og má gera sér
í hugarlund aðstöðu jafnaldra
þeirra í þróunarlöndunum.
Ennfremur sýna tölur gífur-
lega aukningu eiturlyfja-
neyslu, alkóhólisma, glæpa og
vonleysis meðal æskufólks
hvarvetna í heiminum. í dager
hálf milljón ungmenna heimil-
islaus í ríkasta landi heirns,
Bandaríkjunum, og þar hverfa
50.000 unglingar sporlaust á
hverju ári. Götur og stræti
Mexíkóborgar eru eina heimili
einnar milljónar barna og
þessa tölu má tvöfalda varð-
andi Rio de Janeiro. Klerkur-
inn Bruce Ritter, sem starfræk-
ir skýli fyrir heimilislausa ung-
linga í New York og Guate-
mala segir að þetta æskufólk
muni aldrei heyra „Áræskunn-
ar“ nefnt á nafn og þaðan af
síður verða þátttakendur í
neinni skipulagðri starfsemi
viðvíkjandi „Árinu“ né njóta
þess á annan hátt.
Mismunandi áhersluatriði
Hins vegar munu 130 millj-
ónir sovésks æskufólks, sem
ungliðahreyfingin þar í landi
telur sig hafa innan sinna vé-
banda, njóta góðs af alls kyns
sýningum og námskeiðum
einkanlega um friðarmál. Er
það í samræmi við óskir Ceaus-
escu Rúmeníuforseta urn að
sjá ungt fólk vinna saman með
samlöndum sínum að því að
draga úr ófrfðarhættu og berj-
ast fyrir nýrri efnahagsskipan í
heiminum. En það unga fólk,
sem leitað hefur verið álits hjá
hefur minni áhyggjur af þess-
um hefðbundnu deilumálum
landsfeðra sinna. Starfsmaður
bresku framkvæmdarnefndar-
innar um „Ár æskunnar" segir
aðalverkefnin þar í landi verða
um málefni eins og atvinnu-
leysi, misrétti kynjanna, kyn-
þáttakúgun og húsnæðismál. í
Bretlandi eru nú starfandi um
100 hópar og hafa þeir verið
hvattir til að finna og starfa að
eigin hugðarefnum. Árangur-
inn birtist í ýmsum myndum,
s.s. áætlun um útgáfu bókar
um réttindi þeirra ungmenna
sem hætta námi, breytingu á
niðurníddum bát í sumarbúðir
fyrir unglinga, sem eiga í erfið-
leikum o.s.frv. Eins mun ráð-
gerður dagsfundur æskufólks í
breska þinginu að öllurn lík-
indum snúast um atvinnumál.
Aðferðir til að hjálpa sér sjálfu
hefur og verið vinsælt verkefni
meðal ungs fólks í mörgum
löndum. Til dæmis settu ungir
atvinnuleysingjar í Shanghai í
Kína á stofn gistihús og veit-
ingasölu í gömlu loftvarna-
byrgi og er stjórn þess og
ákvörðun launa algerlega í
þeirra eigin höndum. Sam-
vinnuhópar ungmenna hafa
einnig verið stofnaðir vítt og
breitt um Kína um alls kyns
atvinnurekstur, svo sem versl-
anir og verkstæði.
Líklegást er þó, að í flestum
löndum heims muni „Ár æsk-
unnar“ í mesta lagi leiða til alls
kyns ráðstefna í „Sameinuðu-
þjóða stiT en ekki til fleiri
atvinnutækifæra fyrir ungt
fólk.