NT - 30.01.1985, Side 19
Miðvikudagur 30. janúar 1985 19
Útlönd
Bretar panta pláss í
bandarískri geimstöd
London-Reuler.
_ Breska stjórnin hefur gert
bráðabirgðasamning við Banda-
ríkjamenn um aðild í mannaðri
geimstöð sem bandarísk stjórn-
völd hyggjast smíða árið 1992.
Kostnaður við stöðina er tal-
inn nerna um 10 milljörðum
dollara og hafa Bandaríkja-
menn lagt mikla áherslu á að fá
ýmis ríki í Vestur-Evrópu, Kan-
ada og Japan til að taka þátt í
stöðvarsmíðinni.
Áður höfðu Frakkar, Vestur-
Þjóðverjar og Japanir lýst yfir
stuðningi við geimstöðvarhug-
myndina og bresk stjórnvöld
segjast búast við því að ítalir
lýsi einnig yfir stuðningi sínum
við hana á næstunni.
Bretar hafa nú skuldbundið
sig til að greiða 15% af undir-
búningsrannsóknum á hag-
kvæmni stöðvarinnar. Þeir liafa
hvatt samstarfsþjóðir sínar í
Geimferðastofnun Evrópu til að
taka einnig þátt í undirbúningi
stöðvarinnar, en samtals eru 11
ríki aðilar að geimferðastofnun-
inni.
Bandaríkjamenn vonast til
þess að ríki í Vestur-Evrópu,
Japan og Kanada greiði tvo til
þrjá milljarða dollara af bygg-
ingarkostnaði geimstöðvarinnar
en sjálfir hafa þeir lofað að
leggja fram átta milljarða.
England:
Glæpirnir koma harðast
niðurá lágstéttarfólki
■ Samkvæmt niðurstöðum
opinberrar rannsóknar á afbrot-
um á Merseyside-sýslu í Eng-
landi eru lt'kur á þvi að verða
fórnarlamb glæpa háðar stéttar-
stöðu. Hræðslan við að vera
fórnarlamb glæpa er líka bundin
stéttarstöðu.
Glæpir eru langt frá því að
vera óalgengir í þessari dæmi-
gerðu sýslu. 44% spurðra í
könnuninni höfðu orðið fyrir
glæpum á síðustu 12 mánuðum
og 25% höfðu tvisvar eða oftar
orðið fyrir barðinu á glæpum.
En það eru tengsl milli efna-
hagsstöðu og glæpa. T.d. 45%
fólks sem býr miðsvæðis í Li-
verpool, er tekjulágt og fátækt
hafði orðið fyrir því að brotist
var inn hjá því á síðustu 12
mánuðum. Aðeins 3% ríks
fólks í úthverfum sagði að brot-
ist hafi verið inn hjá því.
Ein afleiðing þess að ólíkir
þjóðfélgashópar verða mismik-
ið fyrir barðinu á glæpum, er að
mismunandi þjóðfélagshópar
hafa ólíkar hugmyndir um
hversu alvarlegt vandamál glæp-
ir eru. í Merseyside í heild telur
fólk glæpi vera þriðja mesta
þjóðfélagsvandamálið. At-
vinnuleysi og skortur á barna-
heimilum og húsnæðismál ungs
fólks eru talin alvarlegri vanda-
mál. Hjá efnaminna fólki í mið-
borg Liverpool eru glæpir taldir
annað mesta vandamálið, næst
á eftir atvinnuleysinu.
Samkvæmt rannsókninni er
nánast engin munur á kynjum
hvað varðar glæpi; nánast jafn
hátt hlutfall karla og kvenna
hafa orðið fyrir barðinu á
glæpum. En karlmenn yngri en
30 ára verða þó mest fyrir
glæpum allra hópa enda er of-
beldi mest í þeim hópi.
Félgashyggjufólk hefurgjarn-
an gagnrýnt fjölmiðla fyrir að
ala á hræðslu við glæpi og talið
að óeðlilega hátt hlutfall glæpa
og lögreglu í fjölmiðlum skapi
hræðslu fólks og undirgefni
gagnvart yfirvöldum. Þegar
raunveruleg tíðni glæpa er hins
vegar skoðuð með tilliti til stétt-
aruppruna fólks kemur í ljós að
lágstéttarfólk þarf meira á lög-
reglu að halda en aðrir hópar.
Rannsóknin er byggð á 3500
manna úrtaki úr íbúaskrá Mers-
eyside-sýslu en í henni búa 1,5
milljón.
(New Statesman)
Japanska
menntamálaráðuneytið:
„Kennum útlend-
ingum japönsku“
1
■ Meðvitund Japana um eigið
mikilvægi í alþjóðaviðskiptum
hefur aukist mikið að undanförnu.
Þeim finnst nú ekki lengur útilok-
að að útlendingar leggi á sig að
læra japönsku heldur hefur
menntamálaráðuneytið japanska
lýst því yfir að nú sé stefnt að því
að meira en tífalda fjölda jap-
önskukennara fram til ársins 2000.
Hingað til hefur Japönum þótt
sjálfsagt að öll viðskipti við útlönd
fari fram á ensku eða öðrum
erlendum tungum en nú er það að
breytast smám saman. Það eru
kannski ekki síst aukin viðskipti
við önnur Asíulönd sem hafa opn-
að augu japanskra ráðamanna
fyrir því að enska nægir ekki
alltaf sem viðskiptamál. Þannig
hafa vinsældir kínversku t.d. auk-
ist mikið í japönskum skólum og
mörg fyrirtæki senda starfsmenn
til að læra kínversku í nokkur ár.
Eftir því sem umsvif japanskra
fyrirtækja erlendis aukast mun
erlendum starfsmönnum þeirra
líka fjölga og það er talið æskilegt
að a.m.k. sumir þeirra geti talað
japönsku. Það er nú að renna upp
fyrir Japönum að tungumál þeirra
er ekkert síður fallið til alþjóð-
legra samskipta en aðrar þjóð-
tungur.
Mörg þróunarlönd hafa líka lát-
ið í Ijós áhuga á því að senda fleiri
nemendur til Japans til að læra
vísindi og tækni og áhugi fyrir
Japan hefur einnig aukist mikið á
Vesturlöndum. En hingað til hafa
Japanir ekki treyst sér til að taka
við nema tiltölulega litlum fjölda
erlendra nemenda, m.a. vegna
þess hvað japönskukennarar eru
fáir í landinu.
Nú eru aðeins um 2.200 kennar-
ar í Japan sem hafa japönsku-
kennslu sem aðalstarf. Mennta-
málaráðuneytið í Japan hefur
ákveðið að fjölga þcim upp í um
25.000 á næstu 15 árum um leið og
erlendum nemendum verður fjölg-
að úr rúmlega tíu þúsund upp í um
100.000.
Evrópsk
geimferja
London-Reuter.
■ Upplýsingatækniráð-
herra Breta, Geoffrey
Pattie, segir að Geim-
ferðastofnun Evrópu hafi
nú til athugunar smíði lít-
■ Airane-geimflaug
Geimferðastofnunar
Evrópu. Hugsanlega
mun ný tegund Airane-
flauga flytja evrópska
geimferju út í geiminn.
illar evrópskar geim-
ferju.
Hann skýrði frá þessu í
gær skömmu áður en hann
lagði af stað til Rómar á
tveggja daga fund þeirra
ellefu ríkja sem eiga aðild
að Geimferðastofnuninni.
Hann sagði að tillagan um
geimferjuna væri komin
frá Frökkum sem vildu
senda hana á loft með
nýrri og öflugri gerð af
Ariane-eldflaug Evrópu-
ríkjanna.
BJARG
FASTEIGNAMIÐLUN
Goðheimum 15, símar:
68-79-66
68-79-67
3ja herb.
Miðbraut - Seltj.
Góð 3ja herb. risíbúð ca 90 fm 2 svefnherb. Rúmg. stofur. Gott
eldhús. Verð 1750-1800 þús.
Dvergabakki
Góð 3ja herb. íbúð á 3. hæð ca 80fm, góður bílsk. Verð 1.850 þús.
Skipti möguleg á 2ja herb. íbúð.
Efstihjalli
Góð 3ja herb. íbúð ca 90 fm. Góðarinnréttingar, suður svalir. Verð
1.850-1.900 þús.
Bugðulækur
Góð 5 herb. íbúð á 3. hæð, ca 110 fm, 4 svefnherb., góöar stofur,
suður svalir.
4ra herb. íbúðir
Kleppsvegur
Góð 4 herbergja íbúð, ca 120 fm á 2. hæð. Góðar innréttingar.
Þvottahús inn af eldhúsi. Verð 2.4 millj.
Kríuhólar
Glæsileg 4 herb. íbúð ca. 105 fm. Innr. og frág. í sérflokki.
Hraunbær
Góð 4ra herb. íbúð á jarðhæð Verð 1.850-1.900 þús.
Hamraborg
Góð 4 herb. íbúð á 1. hæð, ca 120 fm. Þvottaherb. innaf eldhúsi.
Suðursvalir. Mikið útsýni. Bílskýli.
Sérhæðir
Kambasel
Góð hæð í tvíbýlishúsi, ca. 117 fm. 3.svefnherb., stór stofa,
sérþvottaherb. Verð 2300 þús.
Sérhæð í austurborginni
Glæsileg efri sérhæð ca 120 fm. Nýjar innréttingar.
Hlíðarbygsð
Glæsilegt raöh
Einbýli - Raðhús
Glæsilegt ráohús ca. 130fm auk30 fm í kj. Góöur bílskúr. Frág. lóð.
Verð 3800 þús.
Brekkutangi Mos.
Gott raðhús á tveim hæðum, ca. 278 fm að mestu fulbúið. Góður
bílskúr. Laust strax. Verð 3.300.
Brekkutangi
Gott raðhús 2 hæðir og kj. Ca 290 fm, í kj. er 3ja herb sér ibúð tilb.
undir tréverk. Verð 3.700 þús.
Hryggjarsel
2 hæðir og kj. Ca 230 fm. Á efrihæð eru 4 stór svefnherb., gott bað.
Á 1. hæð eru stórar stofur, eldhús, þvottaherb. og gestasnyrting. í
kj. er sérinngengin 2ja herb. íbúð Stór tvöfaldur bilsk. Skipti möguleg
á minni eign.
Glæsilegt einb. í austur-borginni
Glæsilegt einbýlishús ca 230 fm.lnnr. í sérflokki. Tvöfaldur bilskúr
Fallegur garður. Verð 7 millj.
Verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Austurborgin
Glæsilegt verslunarhúsnæði á besta stað i austurborginni, ca 400
fm. Getur selst I 4 einingum. Teikningar og upplýsingar á skrifstof-
unni.
Borgartún
Verslunar- og skrifst.húsn. á 1 hæð. Afh. fullbúið að utan, tilb. undir
trév. að innan. Teikn. á skrifst.
Iðnaðarhúsnæði
Vagnhöfði
Gott iönaðarhúsn. á tveimur og hálfri hæð. í kj. eru 120 fm með
góðum innk.dyrum. Á efri hæð eru 120 fm auk 60 fm skrifst.-húsn.
á millilofti. Góð innkeyrsla. Mikil lofthæð. Að hluta laust fljótlega.
Höfum kaupendur að iðnaðarhúsnæði af öllum
stærðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Höfum kaupendur að eftirfarandi eignum: 4ra-5
herb. í Voga- eða Heimahverfi. 3ja herb. í voga-
hverfi eða Hlíðum.
Reykjalundur
40 ára
Föstudaginn 1. febrúar n.k. bjóðum við vinum og
velunnurum Reykjalundar í heimsókn í tilefni 40
ára afmælis stofnunarinnar.
Kl. 14.00 hefst stutt afmælisdagskrá í sam-
komusal, en að henni lokinni verða allar deildir
og vinnustaðir opnir til kl. 17.00 og gefst gestum
þá tækifæri til að kynnast margháttaðri starfsemi
Reykjalundar á sviði endurhæfingar og iðnaðar
Vinnuheimili S.Í.B.S. að
Reykjalundi
Mosfellssveit.