NT - 30.01.1985, Blaðsíða 20
Miðvikudagur 30. janúar 1985 20
Skip Sambandsins munu
ferma til íslands á næstunni
sem hér segér:
Hull/Goole:
Dísarfell .......... 11/12
Dísarfell ...........25/2
Rotterdam:
Jan ................31/1
Dísarfell .......... 12/2
Dísarfell ...........26/2
Antwerpen:
Jan ................31/1
Dísarfell .......... 13/2
Dísarfell .......... 27/2
Hamborg:
Jan ................. 1/2
Dísarfell ...........15/2
Dísarfell ...........29/2
Helsinki:
Hvassafell.......... 18/2
Falkenberg:
Mælifell.............15/2
Larvik:
Jan ................. 4/2
Jan..................18/2
Jan ................. 4/3
Gautaborg:
Jan ................. 5/2
Jan ................ 19/2
Jan ................. 5/3
Kaupmannahöfn:
Jan ................. 6/2
Jan .................20/2
Jan ................. 6/3
Svendborg:
Arnarfell ........... 5/2
Jan .................21/2
Jan ............... 7/3
Aarhus:
Arnarfell ........... 4/2
Jan .................21/2
Jan ................. 7/3
Gloucester, Mass.:
Jökulfell............ 8/2
Skaftafell...........25/2
Halifax, Canada:
Jökulfell....... 9/2
Skaftafell......26/2
C SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandstuisinu
Pósth 180 121 Reykjavik
Simi 28200 Telex 2101
Hverjum
bjargar
það
næst
HUUMFEnOAR
WrAð
é
Útlönd
Kólaskaginn:
Sovétmenn fjarlægja
kjarnorkueldflaugar
Osló-Reuter
■ Sovétmenn hafa dregið til
baka SS-5 kjarnorkueldflaugar
sínar frá Kólaskaganum við
norsku landamærin. Eldflaugar
þessar eru orðnar úreltar vegna
langdrægari kjarnorkueldflauga
sem þeir hafa komið fyrir lengra
frá landamærunum.
Frá þessu er sagt í tímaritinu
„Uernaðarjafnvægi" sem gefið
er út í Noregi. Tímaritið segir
að SS-20 kjarnorkueldflaugar
-Sovétmanna í Evrópu hafi gert
SS-5 úreltar. SS-20 bera kjarna-
odda og draga 5000 km.
Svæðið við Kólaskagann er
aðalathafnasvæði norðurflota
sovéska sjóhersins. Norðurflot-
inn er talinn vega um 60% af
gagnsóknarstyrk Sovétmanna
að sögn Ellman Ellingsen aðal-
ritara „Norsku Atlantshafs-
nefndarinnar" sem er rann-
sóknastofnun á sviði alþjóða-
hermála.
Á Kólaskaganum er stærsta
flotastöð í heimi að sögn Elling-
sens og þar er hornsteinn hern-
aðarleg stórveldis Sovétmanna.
Portúgalir óttast
skæruliðaárásir
Lissabon-Reuter
■ Portúgalska stjórnin
hélt skyndifund í gær tii aó
ræða leiðir til að bregðast
við herferð vinstrisinnaðra
skæruliða sem gerðu árás á
NATO-herskip í höfninni
í Lissabon í fyrradag.
Skæruliðasamtökin FP-
25 hafa lýst yfir ábyrgð á
hendur sér vegna árásar-
innar á herskipið og ýms-
um öðrum árásum að
undanförnu. Á síðastliðn-
um fjórum árum hefur FP-
25 staðið að mörgum
bankaránum, morðum og
sprengjuárásum en sam-
tökin draga nafn sitt af
uppreisn hersins 25. apríl
1974 þegar einræðisstjórn-
inni í Portúgal var steypt.
Embættismenn í Port-
úgal óttast að árásir borg-
arskæruliðanna að undan-
förnu tengist alþjóðlegri
herferð skæruliðasamtaka
í Evrópu gegn NATO sem
m.a. hefur lýst sér í árás-
um á NATO-mannvirki í
Vestur-Þýskaland, Belgíu
og Frakklandi.
í síðasta ári voru um
fimmtíu manns handtekn-
ir, grunaðir um aðild að
FP-25. Stjórnvöld telja að
fjölgun árása þessara sam-
taka að undanförnu kunni
einnig að tengjast því að
fljótlega verða réttarhöld
hafin í máli þessara grun-
uðu skæruliða.
Giftist
daginn
fyrir
aftökuna
Quillota, Chile-REuter:
■ Dæmdur morðingi giftist sam-
býliskonu sinni kvöldið áður en
hann var tekinn af lífi í gærmorgun
fyrir morð.
Maðurinn, sem hét CarlosTopp
Collins, var áður í lögreglunni í
Chile. Fyrir skömmu var hann
ásamt öðrum lögreglumanni fund-
inn sekur fyrir fjölda morða,
nauðgana og rána í ferðamanna-
bænum Vina Del Mar fyrir fjórum
árum.
Collins hafði búið með sambýl-
iskonu sinni í óvígðri sambúð
síðastliðin átta ár. Hann fékk
blindan prest til að gera sambúð-
ina heilaga kvöldið fyrir aftökuna,
þannig að fyrrverandi sambýlis-
kona hans er nú orðin ekkja.
Stokkhólmsráðstefnan:
Vopnum verði
ekki beitt
- segir í nýjum samningsdrögum Sovétmanna
Stokkhólmur-Reuter
■ Á afvopnunarráðstefnunni
í Stokkhólmi í gær lögðu
Sovétmenn fram drög að sam-
komulagi sem ætlað er að
koma í veg fyrir beitingu her-
valds í milliríkjadeilum.
Oleg Grinevskij, fulltrúi
Sovétríkjanna á þessari 35 ríkja
ráðstefnu, lagði fram drögin á
fyrsta fundi ráðstefnunnar eftir
fund Gromyko og Schultz í
Genf fyrr í þessum mánuði.
Fulltrúi Bandaríkjanna á
ráðstefnunni, James Goodby
mat drög Sovétmanna ekki
mikils og sagði Bandaríkin og
bandamenn þeirra ekki viljuga
til að ræða slíkan samning.
Drög Sovétmanna gera ráð
fyrir bindandi skuldbinding-
um, þeirra sem undirritasamn-
inginn. um að grípa ekki til
vopna. Er þá átt við að „verða
ekki fyrstur til að beita hefð-
bundnum vopnum eða kjarn-
orkuvopnum gegn öðrum aðil-
um samningsins". Einnig er
rætt um að gera viðeigandi
ráðstafanir til að koma í veg
fyrir vígbúnaðarkapphlaup í
geimnum.
Á ráðstefnunni ríkir nú
meiri bjartsýni en þegar hún
hófst í janúar fyrir ári síðan.
■ Oleg Grinevskij, fulitrúi Sovétríkjanna á afvopnunarráð-
stefnunni í Stokkhólmi. Hann kynnti drög Sovétmanna á
blaðamannafundi í gær.
Austurríki:
Ráðherra biðst afsök-
unar á nasistavináttu
■ Dr. Fred Sinowatz, kanslari Austurríkis (t.v.) féllst í gær á afsökunarbeini varnarmálaráð-
herrans, Friedhelms Frischenschlagers (t.h.) á því að hann skyldi hafa boðið striðsglæpamanninn
Walter Reder velkominn til Austurríkis þegar sá síðastnefndi kom þangað í síðustu viku eftir tæplega
fjörtíu ára fangelsisvist á Ítalíu. símamjnd-poLro ro
Fundu brot úr
sovéska flugskeytinu
Helsinki-Reutcr
■ Finnski herinn telur sig hafa
fundið brot úr sovéska flug-
skeytinu sem flaug inn yfir Finn-
land fyrir einum mánuði.
Hreindýrabóndi í Norður-
Finnlandi fann í fyrradag plast-
hlut sem hernaðaryfirvöld telja
að sé úr stýriflauginni sem flaug
yfir Noreg og inn í finnska
lofthelgi þann 28. desember á
síðasta ári.
Samkvæmt ratarmælingum
Norðmanna féll flaugin til jarð-
ar fyrir norðaustan Inari-vatn
en það er einmitt þar sem
hreindýrabóndinn rakst á
plasthlutinn. Svæðið, þar sem
hluturinn fannst, hefur nú verið
lokað af til frekari leitar.
Sovétmenn viðurkenndu fyrr
í þessum mánuði að flaugin væri
frá þeim og hún hefði flogið inn
yfir Noreg og Finnland vegna
tæknibilunar. Þeir báðu bæði
Finna og Norðmenn afsökunar
á þessum mistökum.
Vín-Reuíer
■ Við lá að samsteypustjórn
sósíalista og Frelsisflokksins í
Austurríki klofnaði eftir að upp
komst að varnarmálaráðherr-
ann, Friedhelm Frischenschla-
ger, hafði tekið á móti nasista-
leiðtoganum Walter Reder þeg-
ar hann kom úr fangelsi í Ítalíu.
Stjórnarslitunum varð aðeins
afstýrt með að Fred Sinowatz
kánslari samþykkti afsökunar-
beiðni varnarmálaráðherrans.
Frischenschlager segir að sér
þyki leitt að hafa gert þessi
mistök og hann biðji bæði al-
menning og kanslarann af-
sökunar á því að hafa boðið
Walter Reder velkominn en Re-
der er sagður hafa borið ábyrgð
á fjöldamorðum á Úölum í
heimsstyrjöldinni síðari.
Frelsisflokkurinn hafði hótað
því að slíta stjórnarsamstarfinu
ef Frischenschlager yrði vikið
úr embætti. Þessi „mistök"
varnarmálaráðherrans komu
sér einstaklega illa fyrir austur-
rísku stjórnina núna þar sem
einmitt um þessar mundir halda
gyðingar heimsþing sitt í fyrsta
skipti f Austurríki.
Stjórnarandstæðingar hafa
lagt fram vantrauststillögu í
þinginu á varnarmáláráðherr-
ann og verður hún borin undir
atkvæði á föstudag en ekki er
búist við því að hún verði
samþykkt.
Angóla:
Skæruliðar
drepa
óbreytta
borgara
Lisbon-Reuter
■ Portúgalska útvarpið
hefur skýrt frá því að
skæruliðar UNITA-hreyf-
ingarinnar í Angóla hafi
drepið 32 óbreytta borg-
ara í árás á þorp nálægt
höfuðborginni nú á mánu-
daginn.
Samkvæmt útvarpinu
voru 22 þeirra, sem skæru-
liðarnir drápu, börn og
konur. Stjórnarherinn í
Angóla segist hafa fellt
ellefu uppreisnarmenn á
umræddu svæði.
UNIT A-skæruliðahreyf-
ingin hefur barist gegn
marxískum yfirvöldum í
Angóla allt frá árinu 1975
þegar landið fékk sjálf-
stæði frá Portúgal.