NT - 30.01.1985, Qupperneq 21
i f"-f-*
I * ♦
________Útlönd
Háskólamenn
Thatcher sem
Miðvikudagur 30. janúar 1985 21
í Oxford hafna
heiðursdoktor
doktor í lögum við háskólann.
Þetta er í fyrsta skipti í 40 ár að
forsætisráðherra er ekki gerður
að heiðursdoktor við háskól-
ann.
Við atkvæðagreiðslu í hinu
hetga þingi Oxfordháskóla
greiddu 738 atkvæði gegn því að
Thatcher fengi doktorsnafnbót-
ina en aðeins 219 studdu tillögu
um að hún yrði gerð að heiðurs-
doktor. Fyrirfram var vitað að
margir prófessorar voru á móti
því að Thatcher fengi doktors-
nafnbótina en fæstir áttu von á
Gandhi
skemmt-
ir sér
með
sikhum
■ Forsætisráðherra Indverja
tók í gær þátt í hátíðahöldum
með þjóðdönsurum frá hinum
ýmsu stöðum á Indlandi í tilefni
af lýðveldisdegi Indverja. Þann-
ig fylgir hann fordæmi móður
sinnar sem lét sig aldrei vanta
við hátíðahöldin.
Hér sést Gandhi stilla sér upp
ásamt þjóðdönsurum sikha.
Símamynd - POLFOTO.
að svona margir myndu greiða
atkvæði gegn henni.
Háskólamennirnir voru á
móti því að Oxfordháskóli
heiðraði Thatcher þar sem hún
hefur dregið mjög úr útgjöldum
til menntamála. Pulzer, prófess-
or í pólitískri heimspeki, segir
að ríkisstjórn Thatchers hafi
unnið kerfisbundin skemmdar-
verk á menntakerfinu í Bret-
landi. Eins og atkvæðagreiðslan
sýnir eru margir sammála þess-
ari skoðun hans.
Margrét Thatcher er fyrsti
forsætisráðherra Breta sem er
kona. Sjálf útskrifaðist hún frá
Oxford árið 1947 eftir að hafa
lagt stund á efnafræði. Það er
talið mikið áfall fyrir Thatcher
að Oxfordháskóli skuli ekki
vilja veita henni heiðursnafn-
bót.
Eftir úrslitin sagði talsmaður
forsætisráðherra samt að vilji
Oxford ekki veita henni dokt-
orsnafnbót þá sé Thatcher sú
síðasta sem vilji þiggja slíka
nafnbót.
■ Margrét Thatcher. Þegar
fréttist að Oxfordháskólamenn
vildu ekki fá hana sem heiðurs-
doktor lýsti talsmaður hennar
því yfir að hún hefði þá engan
áhuga á slíku.
■ Prófessorar og starfsmenn
Oxfordháskóla felldu í gær með
yfirgnæfandi meirihluta tillögu
um að gera Margréti Thatcher,
forsætisráðherra, að heiðurs-
Holland:
Sprengju-
árásá
stjórnar-
byggingu
Gröningcn-Reuter
■ Borgarskæruliðar í Hollandi
fleygðu í gær eldsprengju að bygg-
ingu hollenska varnarmálaráðu-
neytisins í Gröningen.
Áður óþekktur hópur, sem kall-
ar sig Ógnarfylkingu norðursins,
hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni
sem olli litlu tjóni. í fréttatilkynn-
ingu hópsins segir að árásinni hafi
verið beint gegn „þrælum heims-
valdastefnunnar" og í framtíðinni .
verði aðrar svipaðar árásir gerðar
á NATO-byggingar og þá sem hafi
samstarf með NATO.
Pólland:
Dauðadóms kraf ist vegna
morðsins á Popieluszko
Torun, Pólland-Reuter
■ Leszek Pietrasinski,
aðalsaksóknari í máli ka-
þólska prestsins Popieluszko,
krafðist í gær dauðadóms
yfir lögregluforingjanum
Piotrowski sem sagður er
hafa tekið þátt í morði á
prestinum.
Saksóknarinn kallaði
Piotrowski „glæpamann,
■ Saksóknarinn í máli Pop-
ieluszko krafðist í gær dauða-
dóms yfir lögregluforingjan-
um Gregorz Piotrowski, sem
er sagður vera höfuðpaurinn
í morðinu á Popieluszko í
október 1984.
Símamvnd - POLFOTO.
Perú:
Verkamenn
hertaka
skrifstofur
Lima-Reuter
■ Yfír 150 verkfalls-
menn lögðu undir sig
skrifstofur ríkisnám-
anna í Perú í gær. Með
aðgerðinni fylgdu þeir
eftir kröfum um launa-
hækkanir er haft eftir
talsmönnum verkalýðs-
félagsins.
Verkfallsmennirnir
| eru starfsmenn sink-
hreinsunarstöðvar. Að-
gerðin fór friðsamlega
fram og engir gíslar
| voru teknir.
Um 800 verkamenn
Itóku þátt í verkfallinu
Iþegar það hófst fyrir
Iviku. Hreinsunarstöðin
sem þeir starfa í fram-
I leiðir um 60% af sink-
framleiðslu Perú-
Imanna.
hrottafenginn og kaldrifjað-
an“. Hann krafðist einnig 25
ára fangelsisdóms yfir þrem
öðrum lögreglumönnum
Adam Pietruszka, Waldemar
Chmielewski og Leszek
Pekala.
Pietrasinski sagði fyr-
ir réttinum að ríkisvaldið
hefði óyggjandi sannað að
um morð að yfirlögðu ráði
hafi verið að ræða.
Það vakti mikla geðshrær-
ingu hjá aðstandendum Pop-
ieluszko og lögræðingum að
saksóknarinn hélt 45 mín-
útna ræðu þar sem hann
ásakaði prestinn þungum
tóni að hafa með öfgafullri
and-kommúnískri baráttu
sinni vakið upp jafn öfgafullt
andsvar lögreglumannanna.
Öfgar prestsins Ieiddu til
dauða hans sagði saksóknar-
inn.
Réttarhöldin hafa staðið í
22 daga.
■ f gær krafðist saksóknar-
inn 25 ára fangelsisdóms yfir
leynilögreglumanninum
Adam Pietruszka.
Evrópskir borgar-
skæruliðar eflast
París-Reuter
■ Frönsku hryðjuverka-
samtökin, Action Directe
(Beinar aðgerðir) hafa tekið
upp samstarf við borgar-
skæruliða í Vestur-Þýska-
landi og Belgíu. Morð þeirra
á Rene Audran, háttsettum
embættismanni í franska
varnarmálaráðuneytinu, nú á
föstudaginn sýnir að þeim er
alvara í hótunum sínum um
aukna hryðjuverkastarfsemi
samfara alþjóðlegu sam-
starfi.
Action Directe hafði fram
að þessu fyrst og fremst feng-
ist við sprengjuárásir á
mannvirki en ekki framið
nein fyrirfram skipulögð
morð. En tíu dögum fyrir
morðið á Rene Audran
skýrðu samtökin frá því að
þau hefðu tekið upp sam-
band við Rauðu herdeildirn-
ar í Vestur-Þýskalandi og
franska lögreglan segist einn-
ig telja að þau hafi samband
við kommúnistahópana í
Belgíu.
Öll þessi samtök hafa lýst
yfir stríði gegn NATO og
hafa að undanförnu ráðist á
hernaðarmannvirki banda-
lagsins í Evrópu. Franska
dagblaðið Le Monde segist
hafa það eftir áreiðanlegum
heimildum að borgarskæru-
liðar hyggist myrða m.a. yfir-
menn kjarnorkukafbáta og
flugmenn sprengjuflugvéla
sem hafi kjarnorkuvopn
innanborðs.
Frá því árið 1982 hefur
franska lögreglan handtekið
19 menn sem grunaðir eru
um aðild að Action Directe.
Að sögn hafa samtökin að
undanförnu einnig rætt við
(rska lýðveldisherinn, sam-
tök aðskilnaðarsinna í Kors-
íku og samtök baskneskra
aðskilnaðarsinna.
Hvað er Húsnæðisbanki?
Hver er réttur Búseta í kerfinu?
Hverjir eiga að byggja íbúðir
námsmenn?
Þessu verður svarað á fundi sem
Alexander Stefánsson félagsmálaráð-
herra hefur boðað til að Hótel Hofi
fimmtudaginn 31. jan. kl. 20.30
Á ári æskunnar er ungt fólk hvatt til að
taka virkan þátt í fundi um brýnasta
hagsmunamál sitt.
SUF og FUF félögin í Reykjavík
og Reykjanesi.
STEINGRÍMUR BJÖRNSSON SF.
Fíat 1271982-'83
Nýkomið á hagstæðu verði:
framljós — afturljós,
stefnuljós — hliðarljós,
frambretti — framstykki compl.
k SUÐURLANDSBRAUT 12, RVÍK. SÍMAR 32210 - 38365. i