NT - 30.01.1985, Blaðsíða 22
Miðvikudagur 30. janúar 1985 22
■ Karatc-þjálfarinn Sensei Masao Kawasoe sem er japanskur karatekappi, 7. dan, sýnir hér listir sínar á æfingu í
Gerpluhúsinu í Kópavogi. Æfingar hafa verið með honum undanfarna viku og mikil þátttaka verið á þcssum æfingum,
allt að 100 manns. Þátttakendur hafa verið frá Selfossi, Gerplu og Þórshamri. NT-m>nd Ari
Punktar...
Gunde Svan
er þjóðhetja í Svíþjóð
...Katarina Linkvist heitir nýj-
asta stjarna Svía í tennis. Þessi
21 árs gamla stúlka sigraði í
mjög sterku móti í Stuttgart í
lok síðasta árs og um daginn
vann hún Hönnu Mandlikovu
frá Tékkóslóvakíu, sem er
mjög sterk tenniskona. Fyrir
mótið í Stuttgart fékk hún
28 þúsund dollara í verðlaun
(1,2 milljónir ísl). Þessi stúlka
hætti að iðka tennis þegar hún
var 19 ára en hefur nýlega tekið
spaðann af hillunni meðgóðum
árangri. Búast Svíar við miklu
af henni á komandi árum...
...Leið Svíans fræga Ingemar
Stenmark liggur sífellt niður á
við. Hann sem venjulega hefur
haft rásnúmer eitt í bæði svigi
og stórsvigi er nú að færast
niður á við í báðum greinunum.
A meðan færast ungir og efni-
legir Svíar upp listann. Má þar
nefna Jonas Nilsson sem kom-
inn er með rásnúmer 7 og Jöran
Hallvarson sern er í áttunda
sæti. Þá má nefna að Stig
Strand hefur ekki gengið sem
best til þessa...
...Þjóðhetja í Svíðþjóð þessa
dagana er Gunde Svan. Hann
og landi hans Tomas Wassberg
fengu hlýjar móttökur á skíða-
móti í Stokkhólmi í gær. Þar
var keppt í 15 km göngu og er
þeir kappar komu í mark var
þeim fagnað vel af 20 þúsund
manns sem þarna voru saman
komin. Ekki voru þeir þó fyrstu
menn heldur var Svan í 9. sæti
og Wassberg í 12. Sá sem
sigraði heitir Jan Ottoson. Hjá
konunum sigraði Anetta Böe
frá Noregi...
Tveir leikir
í blakinu
í kvöld
■ Tveir leikir verða í 1.
deild karla í hlaki í kvöld.
Víkingur og ÍS eigast við
kl. 18:30 og kl. 20:00
spila Fram og Þróttur.
Strax á eftir leika ÍS og
UBK í 1. deild kvenna.
Allir lcikirnir verða í
Hagaskóla.
■ ÍSIS, fyrirtækið sem hefur umboð á íslandi fyrir vörur
frá Asics Tiger, afiienti nýlega körfuknattleiksdeild Vals
skó og töskur frá Asics Tiger. Á myndinni má sjá Jakob
Pétursson frá ÍSIS rétta Lárusi Hólm, formanni körfu-
knattleiksdeildar Vals tösku frá Asics Tiger. Á milli
þeirra stendur Torfi Magnússon, þjálfari Valsmanna,
með Skó í hÖndununl. NT-mynd: Ari.
Daníel keppir
á HM í alpagreinum skíðaíþrótta
sem fram fer í Bormio á Ítalíu
■ Skíðasamband íslands hef-
ur valið keppanda til að taka
þátt í heimsmeistaramótinu í
Alpagreinum sem fer fram í
Bormio á Ítalíu dagana 31.
janúar til 10. febrúar.
Það er Daníel Hilmarsson
frá Dalvík en hann mun keppa
í svigi og stórsvigi. Svigkeppnin
fer fram á síðasta degi keppn-
innar 10. febrúar en stórsvigið
þann 8. Daníel fær því einn dag
til að hvíla sig á milli keppna.
Arsenalbanarnir
gegn Liverpool
í ensku bikarkeppninni
■ Núerbúiðaðdragaíensku
bikarkeppninni, 5.umferð og fá
Arsenalbanarnir York annað
erfitt verkefni er liðið fær Liv-
erpool í heimsókn. Eftir sigur
Liverpool á Tottenham í 4.
umferð þá telja margir þá vera
sigurstranglegasta liðið í
keppninni. Annars litur drátt-
urinn þannig út (leikið verður
16. febrúar):
York-Liverpool
Bl.burn/Oxford-Manch. Utd.
Everton-Darlington/Telford
N.For/Wbl.don-W.Ham/Norw.
Luton-Watford
Ipswich-Sheff. Wed.
Chelsea/Millwall-Leicester
Southampton-Barnsley.
Þrír leikir voru í fyrrakvöld í ensku
knattspyrnunni. Ipswich tryggði sór
þátttökurétt í undanúrslitum í Mjólkur-
bikarnum með sigri á QPR í London, 2-0.
D’Avrey og Zondervan skoruðu mörkin.
Chelsea og Sheffield gerðu jafntefli í 8
liða úrslitum sömu keppni. Speedy gerði
mark Chelsea og Madden skoraði fyrir
Sheffield. Loks tryggði Norwich sór sæti
í 5. umferð FA bikarsins með sigrí á
Birmingham, 1-0. Bruce gerði markið
eina.
Rugby ryður sér til
rúms í Austur-Evrópu
- Sovétmenn og Rúmenar þegar orðnir sterkir
■ Rugby íþróttin sem cinu
sinni var leikin á skólavöllum
almenningsskóla í Englandi,
breiðist ótrúlega hratt út.
Langt er síðan íþróttin lagði
Nýja-Sjáland, Ástralíu og Suð-
ur-Afríku undir sig en nú hefur
hún breiðst til sumra Asíulanda
ogNorður- og Suður-Ameríku.
En með tilliti til þess hvert
íþróttin á rætur sínar að rekja
má segja að mest komi á óvart
hve hún er orðin vinsæl í Aust-
ur-Evrópu.
I Rúmeníu sem hefur látið
mikið að sér kveða á alþjóða-
vettvangi, eru nú 15.000 iðk-
endur í 200 félögum. í Sovét-
ríkjunum eru 20.000 iðkendur
og fer sú tala vaxandi.
Rugby er ekki eins vel á veg
komið í Póllandi en formaður
pólska rugby-sambandsins er
ekki svartsýnn um framtíðina:
„Rugby er nú kennt í leikfimi
í skólum og ég tel að árið 2000
verðir pólskir rugby-iðkendur
orðnir a.m.k. 20.000.“
íþróttinni heldur áfram að
vaxa fiskur um hrygg þrátt fyrir
mikla samkeppni við knatt-
spyrnuna, sem enn hefur vinn-
inginn ■ Austur-Evrópu.
„Iþrótt þessi virðist falla vel
að Rúmenum og skapgerð
þeirra," sagði Valeriu Irimescu
þjálfari rúmenska landsliðsins
og fyrrum bakvörður liðsins.
„Rúmenar eru mjög hraust
þjóð sem metur mikils líkam-
legt atgervi.“
Rugby-íþróttin barst til
Rúmeníu fyrir fyrra stríð með
stúdentum sem voru við nám í
Englandi og Frakklandi.
Rugbylandsliðið vann til
fyrstu verðlauna Rúmena á Ól-
ympíuleikum, bronsverðlauna
á OL í París árið 1924.
Fyrsti sigur Rúmena á aðal-
keppinautum sínum, Frökkum
var árið 1960 en keppnisferð
landsliðsins til Nýja-Sjálands
árið 1975 þegar liðið náði jöfnu
10-10 gegn heimamönnum, var
vendipunkturinn í sögu rúm-
enskrar rugbyiðkunar og festi
Rúmena í sessi meðal bestu
þjóðanna.
Bæði Frakkar og Walesbúar
hafa nýlega tapað fyrir Rúmen-
um í Búkarest og einnig Skotar
í maí síðastliðnum, 28-22.
Rúmenar léku svo gegn Eng-
lendingum um síðustu helgi og
er það fyrsti opinberi lands-
leikurinn á milli þjóðanna.
í Sovétríkjunum kom Rugby
til sögunnar árið 1917. Járn-
brautarverkamenn, margir frá
Wales og Norður-Englandi,
kynntu íþróttina en byltingin
sleit þær rætur sem þá voru
byrjaðar að festast.
Rugby-íþróttin festi rætur í
Sovétríkjunum á ný á 6. ára-
tugnum og Rugby sérfræðingar
telja að Sovétmenn verði
komnir í fremstu röð í heimin-
um eftir 4-5 ár.
■ Upphaf Rugby-leiks. Dómarinn (fremstur á myndinni) hendir knettinum inn i þvöguna og liðin
sem standa hvort á móti öðru, reyna að ýta andstæðingunum til baka. Það lið sem er ýtnara grípur
boltann og kastar honum til samherja utan þvögunnar sem síðan tekur á rás. NT-mynd: Þórmundur
Breskir frjálsíþróttamenn
„Nota ekki ólögleg lyf “
að sogn ritara sambands áhugaíþróttamanna í Bretlandi
■ Framámaður í breskum
íþróttamálum neitaði í fyrra-
dag fullyrðingum um að breskir
frjálsíþróttamenn notuðu al-
mennt Iyf til að auka getu sína.
Nigel Cooper, ritari breska
áhugamannasambandsins sagði
að eftir 10 ára stöðugar prófanir
á öllum stærri mótum, í allt á
hundruðum íþróttamanna,
hefðu aðeins komið upp tvö
tilvik sem ólögleg lyf hefðu
verið notuð.
Þessi fullyrðing kemur í kjöl-
farið á frétt í Sunday Times þar
sem segir að 60% bestu íþrótta-
manna Breta noti lyf.
Cooper sagði ennfremur:
„Það eru engar staðreyndir á
bak við þessa frétt. Mikill
meirihluti notar alls ekki lyf.“