NT - 15.02.1985, Síða 2
Föstudagur 15. febrúar 1985
Gáski í þingmönnum:
Hverjir krota á veggi
og hverjir krota ekki!
- umræðan ósamboðin alþingi sagði forseti sameinaðs þings
■ Nokkur gáski hljóp í fulltrúa
löggjafasainkundu þjóðarinnar
í umræðum á sameinuðu þingi i
gær er Ólafur Þ. Þórðarson
gerði að umtalsefni frétt í einu
dagblaðanna um minnismiða í
símaklefum alþingis til þing-
manna um að krota ekki á
veggina. Var 5. þingmaður
Vestfjarða óhress með að þetta
mál skyldi hafa farið í blöðin og
yfirleitt yfir að þessi „minnis-
miði“ skyldi hafa verið settur
upp.
Beindi hann þeirri spurningu
til Salome Þorkelsdóttur forseta
efri deildar sem mun hafa sett
upp minnismiðann, hvort ekki
væri rétt að kannað væri hvort
krotað væri á veggi í símaklefa
alþingis og ef svo væri hverjir
væru þar að verki.
Salome sagði að ekki hefði
verið ætlunin að þessi miði yrði
blaðamatur og hefði honum ein-
ungis verið ætlað að koma fyrir
auglit þeirra sem notuðu síma-
klefa alþingis.
Sighvatur Björgvinsson
Lyfjaneysla
kvenna
umtalsvert
vandamál
■ Ofnotkun lyfja meðal
íslenskra kvenna er orðið
umtalsvert vandmál, að
sðgn Kristínar Waage,
fjölskylduráðgjafa hjá
SAA, og konum sem leita
meðferðar vegna áfeng-
isneyslu fer hér stöðugt
fjölgandi, þótt karlar séu
enn í áberandi mcirihluta.
Kristín, sem sðtti nýlega
norræna ráðstefnu um
misnotkun lyfja og áfengis
meðal kvenna, sagði að
innlendar kannanir væru
ekki fyrir hendi, en ýmis-
legt benti til að um tals-
verða misnotkun lyfja,
einkum taugalyfja, væri að
ræða á íslandi.
Ástæða þess, að fleiri
konur fara nú í meðferð
vegna áfengisvandamála,
gæti hugsanlega verið sú,
að konur hafa nú í aukn-
um mæli farið út á vinnu-
markaðinn þar sem ekki
er unnt að dyljast á sama
hátt og heima fyrir, að
sögn Kristínar.
Grindavík:
Ufsinn lætur
ekki sjá sig
kvaddi sér hljóðs og benti á að
Graffiti eða veggjalist, væri arð-
bær útflutningur hjá Banda-
ríkjamönnum og lagði hann til
að ríkisstjórnin athugaði hvort
ekki væri grundvöllur fyrir því,
í kjölfar umræðna um nýsköpun
í atvinnulífinu, að flytja út ís-
lenska Graffiti! Einnig kvaddi
Guðrún Ilelgadóttir scr hljóðs
um málið.
Að lokinni umræðunni sagði
forseti sameinaðs þings Þor-
valdur Garðar Kristjánsson að
mál væri að þessari umræðu
linnti, því með henni væri verið
að misnota þingsköp og það
sem skrifað hefði verið um
símaklefa alþingis væri óvirðing
við alþingi og þessi umræða
væri það einnig.
■ Lýður Friðjónsson, Alma Sigurðardóttir og Jóhann Magnússon
kynna koffeinlausa kókið fyrir blaðamönnum. NT-mynd: Árni Bjarna
Koffeinlaust kók!
■ Verksmiðjan Vífilfell er
þessa dagana að setja á markað
koffeinlaust Coca Cola og er
það gert til að mæta þörfum
þeirra neytenda sem vilja tak-
marka neyslu sína á koffeini.
Það kom fram í markaðs-
Svo virðist sem útgerð í Grinda
vík standi vcrulega höllum fæti
þessa dagana. í samtali við Jón
Gunnar Stefánsson bæjarstjóra í
Grindavík kom fram að ufsaveiðin
hefur algerlega brugðist, og væri
afkoma útgerðarinnar virkilega
tvísýn.
„Afkoma útgeröarinnar er
crfið, og má ckki verða öllu crfið-
ari, ef hún á ekki að lognast út af.
Grindavík hefur þá sérstöðu að
vera algerlega háð sjósókn, þannig
að allt athafnalíf er byggt upp á
sjósókn, og með því að útgerðin
ber sig jafn illa, og raun ber vitni,
er víst að allri afkomu bæjarbúa er
stefnt í voöa."
I samtali NT við Kára Ölversson
vclstjóra á Hrafni Sveinbjarnar-
syni II kom fram að báturinn
hefði einungis fiskað um fimmtíu
tonn af ufsa, það sem af er vertíð,
og til samanburðar hafði báturinn
cytt 34.000 lítrum af oliu. „Ég
man ekki cftir svona slæmri tíð
síðan að cg byrjaði árið 1974. Við
náum ekki að fiska uppí tryggingu,
og mtiður verður bara að bíða og
vona að þegar líöur á vcrtíðina
skáni þetta ástand."
Yfirmenn á farskipi smygla:
Smygl fyrir Vi millj.
keypt úti á 100 þús.
■ Kári Ölversson vél-
stjóri á Hrafni Svein-
bjarnarsyni II í vélarrúm-
inu. Hann hefur tekið
34.000 lítra af olíu, en
einungis fiskað 50 tonn af
ufsa frá áramótum.
NT-mynd: Árni Bjarna.
■ Sex yfirmenn á Ms. Suður-
landi hafa játað á sig smygl á
áfengi og tóbaki sem fannst í
skipinu við tollskoðun í fyrra-
dag. Um er að ræða 638 flöskur
af sterku víni, mest vodka, 14
iéttvínsflöskur, 11 vindlinga-
lengjur og 6 vindlakassa. Kaup-
verð þessa ytra er talið nema
tæpurn 100 þúsund krónum en
hér heima er sami varningur
metinn á liðlega hálfa milljón
króna.
Að sögn Hermanns Guð-
mundssonar hjá tollstjóraemb-
ættinu var varningurinn falinn
inni í vegg í vélarrúmi; hafði þar
verið skorið úr veggnum og
einangrun tekin burt en flösk-
urnar settar inn í stað hennar.
Athugull tollvörður rak augun í
smyglið.
Suðurlandið er búið að vera á
siglingu nú frá því um miðjan
nóvember og var smyglvarning-
urinn keyptur í borginni Ceuta
sem er spánskt fríhafnarsvæði
Marokkómegin við Gíbraitar-
sundið. Hingað komSuðurland-
ið svo frá Lissabon í fyrradag.
Að sögn Hermanns er ekki
talið að aðrir áhafnarmeðlimir
sem eru 5 talsins hafi verið í
vitorði með eigendunr
smyglsins.
Blaðamenn upp-
lýsa um flugslys
■ Glímuskjálfti og hræðsla
greip um sig meðal íslensku
„semi"-dátanna á Miðnesheið-
inni þegar NT datt í hug að
forvitnast um bilunina í Awac
vél hersins í gær (sjá baksíðu).
Flugturnsmenn uppástóðu að
þeir vissu um málið en væru
bundnir þagnarskyldu og
mættu ekkert segja. Yfirmenn
þeirra væru á flugvallarskrif-
stofunni og þangað skyldum
við hringja. Þeir á flugvallar-
skrifstofunni sögðust koma af
fjöllum og höfðu ekkert heyrt
um málið fyrr en við á blöðun-
um fórum að hringja.
„Það hefur þessi skrifstofa
ekki hugmynd um, - fyrir okk-
ur var þetta ekkert mál,“ - var
svarið þegar NT spurði livað
hefði verið áð gerast. „Þetta
hefur bara verið misskilning-
ur."
En nú mættu almannavarna-
-sveitir á staðinn, hverjir köll-
uðu þær uppeftir, það hafa þá
ekki verið þið? Spurði blaða-
maður og vildi hvergi láta sig.
„Það vitum við ekkert um,
Almannavarnir, já voru þeir
hér, - ég hef heyrt það en veit
ekkert um það," - barðist sá
sami enn um á hæl og hnakka
undan áleitnum spurningum.
En við hvern get ég talað?
Spurði blaðamaður loks. Og
þá vísaði kappinn á Svein Ei-
ríksson slökkviliðsstjóra. En
Sveinn var á fundi og kallaði til
símans að við skildum bara
tala við flugturninn. Og þá var
kominn hringur.
Loks var ráðist í það að tala
aftur við Almannavarnir og
þessu næst við blaðafulltrúa
hersins.
Þar fengust ailar nauðsyn-
legustu upplýsingar og útkom-
an er sú að umferð og „crash"
Kanans á Keflavíkurflugvelli
séu bara alls ekki á vegum
íslenskra flugvallaryfirvalda í
Keflavík. Þannig verða það
blaðasnápar í Síðumúlanum
sem koma fréttunum til
starfsmanna par metra frá
flugbrautinni en ekki öfugt.
Reykt samkvæmt
atkvæðagreiðslu
í Vestmannaeyjum
■ Þau eru mörg vandamálin
sem hinir kjörnu fulltrúar al-
mennings þurfa að glíma við’
og geta oft verið torleyst. Þá er
gott að hafa einhvern stóra-
dóm til að leita til og því hægt
að skjóta sér undan ábyrgð
falli salómonsdómur hans mál-
efninu í vil.
í bæjarstjórn Vestmanna-
eyja hafa nýsett reykinga-
varnalög valdið bæjarfulltrú-
um hinum mestu vandræðum.
Hefur farið fram gagnmerk
umræða unt hvort reykja megi,
eða ekki, á fundurn bæjar-
stjórnar og sýndist sitt
hverjum. Var málið svo flókið
Lilefnaiðnadur i verii:
Frjósemishormón úr
íslensku merarblóði
Þær eru nú munur, þessar aukabúgreinar
könnun fyrirtækisins fyrir
nokkru að mikill áhugi væri á
koffeinlausu kóki og er með
þessu verið að mæta þeim
óskum. Það er hins vegar engu
að síður sannfæring fyrirtækis-
ins að neysla koffeins í þeini
mæli sem er í gosdrykkjum sé
með öllu skaðlaus fyrir heilsu
fólks, enda hafi farið fram ítar-
legar rannsóknir erlendis sem
staðfesti þessa skoðun.
Koffeinlausa kókið verður í
sams konar flöskum og Sprite
og Tab og auðkennt með
vörumerki Coca Cola og borð-
anum koffeinlaust. Markaðs-
setningin er áfangi í þeirri við-
leitni Vífilfells að koma til móts
við óskir neytenda en undanfar-
ið hefur fæðan og samsetning
hennar skipt meira máli fyrir
neytendur en áður.
og brýnt að fá úr því skorið, að
leitað var til stóradónrs, sem í
þessu tilviki er Vinnueftirlit
ríkisins, og það beðið um að
kveða uppúr um hvort reyking-
ar væru leyfðar eða ekki á
fundum.
Brugðust menn syðra vel við
málaleitan þeirra Eyjamanna,
enda sýnt að þar stefndi í
styrjaldarástand ef ekki yrði
uppúr kveðið hið snarasta, og
létu þau boð út ganga til hinnar
vestmannaeyskuheimsbyggðar
að reykingar á bæjarstjórnar-
fundum þar brytu ekki í bága
við landslög.
Var að vonum þungu fargi
létt' af reykingamönnum í
bæjarstjórn og drógu þeir
reykandann léttar en andreyk-
ingamennirnir vildu ekki gef-
ast upp baráttulaust, þrátt fyrir
skýlausa niðurstöðu stóra-
dóms, og lögðu frarn tillögu
um að reykingar yrðu ekki
heimilar á fundum.
Var tillagan að vonum bor-
in undir atkvæði og kom þá
berlega í Ijós hugur bæjar-
stjórnarmanna til reykinga.
Fimm voru á nióti tillögunni,
tveir fylgjandi henni og tveir
sátu hjá. Niðurstaðan er því sú
að reykingar eru leyfðar á
bæjarstjórnarfundum í Vest-
mannaeyjum.
y