NT - 15.02.1985, Blaðsíða 19
1 Tí?
1 A
: — — 1
1 tilkynningar
Jörð óskast 3óð jörð óskast til leigu. Skipti á 3 herb. íbúð í Kópavogi kemur til jjreina. Tilboð sendist á auglýsingadeild NT nerkt Y-356.
Sumarferð til Tékkóslóvakíu Tékknesk-íslenska félagið gengst fyrir skemmti- sg kynnisferð 16. ágúst til 1. september í sumar. Tékkneskumælandi fararstjóri. ýiku hringferð - vika í Prag. 4ætlaður farareyrir 35.000 kr. á mann auk skotsilfurs. Upplýsingar veitir Helgi Daníelsson hjá Sam- /innuferðum-Landsýn, sími 91-27077 og 91- 28899. Mhugið málið sem fyrst. Stjórn TÍF.
Styrkir til náms á Spáni. Spænsk stjórnvöld bjóða fram eftirtalda styrki handa islend- ngum til náms á Spáni á námsárinu 1985-86: . Einn styrk til háskólanáms i 9 mánuði. Ætlast er til að styrkþegi sé kominn nokkuð áleiðis í háskólanámi og hafi gott vald á spænskri tungu. Umsækjendur skulu ekki vera eldri en 30 ára. 2. Tvo styrki til að sækja spænskunámskeið i „Escuela de Verano espanola" í Madrid í júlí sumarið 1985. Umsækj- endur skulu hafa lokið a.m.k. 3 ára námi í spænskri tungu í íslenskum framhaldsskóla. Umsóknir um styrki þessa, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, fyrir 25. febrúar n.k. Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið 13. febrúar 1985.
Norrænir styrkir til þýðingar og útgáfu Norðurlandabókmennta. Fyrri úthlutun 1985 á styrkjum til útgáfu norrænna bókmennta í þýðingu af einu Norðurlandamáli á annað fer fram á fundi úthlutunarnefndar í vor. Frestur til að skila umsóknum er til 1. apríl n.k. Tilskilin umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, en umsóknir ber að senda til Nabolandslitteraturgruppen, Nordisk Ministerrád, Sekretariatet for nordisk kulturelt samar- oejde, Snaregade 10, DK-1205 Köbenhavn K. Menntamálaráðuneytið 13. febrúar 1985.
Björgunarhunda- sveit íslands auglýsir Hin vinsælu „Teoriu“ og hlýönisnámskeiö fara aö hefjast. Allir hundaeigendur og verðandi hunda- eigendurvelkomnir. Kennt veröur eftir kerfi F.N.L. Skráning í símum 52134, 40815 og 72313
Vinum mínum nær og fjær flyt ég innileg-
ustu þakkir fyrir stórhöfðinglegar gjafir,
heillaskeyti, blóm og margvíslegan vináttu-
vott á 70 ára afmælinu 1. febrúar s.l.
Bið ykkur öllum heilla í bráð og lengd.
Ölvir Karlsson, Þjórsártúni.
Föstudagur 15. febrúar 1985 19
Bandarískar efnahagsþving-
anirgegn Ný-Sjálendingum?
- vegna kjarnorkubanns á Nýja-Sjálandi
Washington-Reuter:
■ Bandaríkjastjórn hugleiðir
aðgerðir sem gætu dregið úr
innflutningi á mjólkurafurðum
frá Nýja-Sjálandi að sögn emb-
ættismanna Reagan-stjórnar-
innar.
Áætlunin var dregin fram eft-
ir að frosætisráðhera Nýja-
Sjálands, David Lange hafnaði
beiðni Bandaríkjamanna um
leyfi fyrir bandarísk herskip að
heimsækja ný-sjálenskar hafnir
á meðan á sameiginlegum
flotaæfingum Ástrala, Ný-Sjál-
endinga og Bandaríkjamanna
stendur. Herskipin eru sögð
geta borið kjarnorkuvopn.
Áætlunin miðar að því að
koma itl móts við offrantleiðslu
á bandarískum mjólkurafurð-
um á heimsmarkaði.
Áætlunin gerir ráð fyrir að
500.000 tonn af fitusnauðri
þurrmjólk verði seld Spánverj-
um á niðurgreiddu verði, en
mjólkin er notuð sem dýrafóð-
ur.
Áætlunin er nú í athugun hjá
aðstoðarlandbúnaðarráðherra Amstutz. Endanlegar ákvarð- sögðu embættismenn í landbún-
Bandaríkjanna, Daniel anir hafa ekki verið teknar aðarráðuneytinu í gær.
■ Buchanan, eitt þeirra bandarísku skipa sem Ný-Sjálendingar neituðu Bandarikjamönnum um
viðleguleyfí fyrir í ný-sjálenskum höfnum. Bandaríkjastjórn hugleiðir nú að beita Ný-Sjálendinga
efnahagsþvingunum í refsingarskyni. Á innfelldu myndinni er forsætisráðherra Nýja-Sjálands David
Lange.
Japan:
Sælgætiseitrarar
hóta elskendum
- á degi heilags Valentínusar
■ Japanska lögreglan hafði
mikinn viðbúnað við verslanir í
gær og í fyrradag vegna hótunar
fjárkúgara, sem hafa eitrað
sælgæti frá ákveðnum sælgætis-
framleiðendum, um að setja
blásýru í súkkulaðihjörtu á degi
heilags Valentínusar sem var í
gær.
í mörgum vestrænum ríkjum
er siður að elskendur skiptist á
kortum, ástárbréfum eða hjört-
um úr kökum og súkkulaði
þann 14. febrúar. Pegar Japanir
tóku þennan sið upp breyttist
hann þannig að nær eingöngu
stúlkur gefa draumaprinsinum
sínum stórt súkkulaðihjarta á
degi heilags Valentínusar. Dag-
urinn gegnir nú sívaxandi hlut-
verki í ástarlífi japanskra ung-
menna þar sem ungar stúlkur
nota hann oft til fyrstu ástarjátn-
ingar sinnar til pilta sem þær
hafa varla þoraó að tala við
áður.
■ Japanskir lögregluþjónar leita að eitruðu sælgæti í verslunum
nú í vikunni eftir að hópur fjárkúgara hafði hótað að setja eitraða
sælgætispakka í búðir fyrir dag heilags Valentínusar þegar sérstak-
lega inikil sala er í súkkulaði og öðru sælgæti. Símamvnd: -polfoto.
París:
Hemingway-
verðlaunum
úthlutað
New York-Reuter:
■ Sovéska ljóðskáldið
Yevgeny Yevtushenko og
skáldsagnahöfundarnir Mar-
io Vargas Llosa frá Perú og
Milan Kundera, frá Tékkósl-
óvakíu voru á miðvikudag
útnefndir til Hem-
ing way-verðlaunanna.
Hemingway-verðlaunin
eru bókmenntaverðlaun sent
nýveriö var stofnað til í
minningu rithöfundarins
Ernest Hemingwáy og eru
verðlaunin 50.000 dollarar
fyrir be$tu skáldsöguna 1984.
Tilkynnt verður með viðhöfn
29. mars n.k. í París hver
hreppir verðlaunin.
Yevtushenko var útnefnd-
ur fyrir fyrstu bók sína Villt
ber, Vargar Llosa fyrir Stríð
heimsendisins og Kundera
fyrir Óþolandi léttleika til-
verunnar.
Hemingway-verðlaunin
voru stofnuð fyrir tilstuðlan
furstans af Brunei, sem er
nýjasta aðildarríki Samein-
uðu þjóðanna.
Sykurframleiðsluríki þinga:
Vilja hærra sykurverð
Japanski glæpahópurinn
„Maðurinn með21 andlit" lagði
nú til atlögu við þennan ástar-
dag. Hópur þessi hefur nú öðru
hverju í hér um bil eitt ár skilið
eftir eitraða sælgætispakka í
verslununr víðs vegar um Japan
nierkta sælgætisfyrirtæki sem
neitaði að greiða fjárkúgunarfé
til að losna við eitursendingarn-
ar.
Þrátt fyrir ákafa leit og víð-
tæka rannsókn hefur japönsku
lögreglunni ekki tekist að hafa
upp á sælgætiseitrurunum. Nú í
vikunni hafa meira en 1.500
lögregluþjónar staðið vörð við.
margar helstu verslanir t' Nag-
ova og Tokyo þar sem flestir
eiturpakkarnir hafa fundist. Við
leit í verslununum fyrr í vikunni
fundu þeir átta sælgrgtispakka
sem höfðu verið eitraðir.
Georgetöwn, Guyana-Reuter:
■ Ráðherrar 18 sykur-
framleiðsluríkja í þriðja heimin-
um eru á þriggja daga fundi sem
lýkur í dag. A fundinum hafa
verið ræddar leiðir til að hækka
heimsmarkaðsverð á sykri.
„Við erum ekki betlarar, við
förum aðeins fram á réttlát
viðskipti... aðsykurverði seldur
á öruggu verði," sagði forsætis-
ráðherra Guyana, Desmond
Hoyte í setmngarræðu stnni á
miðvikudag.
Svkurtramleiðsluríki í Afr-
íku. við Karabíska hafið og
Kyrrahafið harma ákvörðun
Efnahagsbandalags Evrópu um
að sykur verði ekki keyptur
hærra verði en 1984, en EBE
hefur árlega hefur keypt 1,3
milljónir tonna af sykri frá þess-
urn löndum.
Hoyte hvatti ráðstefnufull-
trúa til að ræða „aðgerðir sem
gripa verður til í ljósi þeirra
vandamála sem -sykurfram-
leiðsluríki eiga við að glíma í
dag og til að tryggja lífshags-
muni okkar", eins og hann
komst að orði.
„Við höfunt vörur sem þeir
(EBE) sækjast eftir og við erurn
þeint á mörgunt sviðum stjórn-
málalega mikilvægir, en við
verðum að gera okkur skýra
grein fyrir hverjir þessir hags-
munir eru svo að aðgerðir okkar
verði eins beittar og framast er
unnt." sagði Hoyte einnig.
Á fundinum eru fulltrúar frá
Guyana, Barbados, Belize.
Jamaica. St. Kitts. Nevis. Suri-
nam, Trinidad, Tobago, Congo,
Zimbabwe, Mauritius. Fiji og
Seasiland.