NT - 15.02.1985, Blaðsíða 23
„Þeir léku með
öllu hjartanu“
■ „Við vorum betra liðið í
þessum leik og strákarnir léku
svo sannarlega með öllu hjart-
anu og áttu sigurinn skilinn,"
sagði hinn frábæri þjálfari ís-
lenska liðsins, Bogdan Kowal-
czyk, við blaðamann NT eftir
leikinn. „Þetta lið er það besta
í heiminum og við getum verið
stoltir yfir að hafa náð jafngóð-
um árangri á móti því og raun
ber vitni. Það er mjög gott að
ná forystu og það svona góðri
strax í byrjun. Það setur pressu
á hina og þeir verða tauga-
strekktir. Hjá okkur heppnað-
ist margt og það þarf að vera
smá heppni með í bland til að
ná að brjóta þetta lið niður.
Vörnin okkar var góð og mark-
varslan frábær og þá gengur
þetta upp," bætti Bogdan við.
Hann sagði ennfremur að í
þessum þremur leikjunt sem
spilaðir voru við Júgóslava hafi
íslenska liðið spilað mjög vel í
fyrsta leiknum en heppnin ekki
verið með því. í öðrum leikn-
unt spilaði liðið mjög vel í 40
mínútur og í þessum þriðja leik
þá var spilað ntjög vel og
heppnin var okkar megin.
„Mínir leikmenn hafa tæplega
úthald í þrjá svona erfiða leiki
og í kvöld var spilað á „vara-
orku" og með hjartanu. Við
vorum tilbúnir til að leika eins
fast og þeir léku í gær og stað-
ráðnir í að láta þá ekki kom-
ast upp mcð neitt óþarflega
gróft eins og í gær,” sagði
Bogdan að lokum og var að
vonum ánægður með íslensku
strákana eins og allir því það er
svo sannarlega frábært að
leggja þetta júgóslavneska lið
að velli.
„Alveg dásamlegt"
■ „Ég var ekki viss um að
okkur tækist að leggja Júkkana
að velli í þriðja leiknum fyrr en
rétt fyrir leik því þá náðum við
upp dásamlegri stemmningu og
svo gekk allt upp fyrstu mínút-
urnar og við náðum góðu for-
skoti. Það var mjög erfitt fyrir
Júgóslavana að minnka þetta
forskot og þeir eyddu miklu
púðri í það. Síðan náðum við
að skora strax eftir að þeir
jöfnuðu og það dró ennþá
meira úr þeim," sagði Páll
Ólafsson, en hann var mjög
atkvæðamikill í seinni hálfleik
og skoraði þá 6 mörk.
„Frábært“
■ „Að vinna þriðja
leikinn er alveg frábært,
ég átti varla von á þessu.
Við héldum út og vörnin
var frábær. Þeir gerðu
aðeins sex mörk í seinni
hálfleik - það er mjög
gott á móti þessu liði. Svo
var markvarslan alveg
frábær,“ sagði Þorgils
Óttar Mathiesen eftir
ieikinn.
Ísland-Júgóslavía:
Föstudagur 15. febrúar 1985
■ Páll Ólafsson svífur í loftinu, með dyggri hjálp Júgóslavanna og skorar. Þorgils Óttar styður við hann um leið og skotið ríður af.
Blak:
Gottog
slæmt
í'rá Samuel Emi i Færeyjum:
■íslenska karlalandslið-
ið í blaki vann sannfær-
andi sigur í öðrum lands-
leiknum við Færeyinga í
blaki, sem fram fór í
Klakksvík í gærkvöldi.
Leikurinn endaði 3-1 og
voru síðari tvær hrinurnar
í leiknum stórvel leiknar
hjá íslendingum.
Kvennalandsliðið náði
sér aldrei á strik í gær-
kvöldi og steinlá fyrir
þeim færeysku, 0-3.
Það var mikil barátta í
leiknum en strax í fyrstu
hrinu urðu Íslendingarnir
fyrir áfalli er Kristján
Már Unnarsson tognaði
og verður hann líklega
ekki með í kvöld er liðin
mætast í þriðja sinn.
Hrinurnar í gær fóru
16-14, 6-13,15-1 og 15-6.
Önnur hrinan var slök en
síðan spiluðu þeir Leifur,
Hreinn, Jón, Lárentsín-
us, Samúel og Þorvarður
mjög vel síðustu tvær
hrinurnar og sigurinn var
öruggur.
Konunum gekk illa og
áttu aldrei möguleika í
sínum leik. Þær töpuðu
hrinunum 9-15, 14-15, og
12-15. Þær gerðu sig sek-
ar um mörg byrjandamis-
tök og steinláu.
Liðin mætast í kvöld í
Þórshöfn.
JU NT-mynd: Sver
Island rassskellti
Ólympíumeistarana
sigraði með 7 marka mun, 20-13 í frábærum leik í Laugardalshöil.
■ Þó að íslensk tunga sé fjölbreytileg þá fyrirfinnst ekki eitt
einasta lýsingarorð í henni sem er nógu sterkt og yflrgripsmikiö
til að lýsa leik íslenska landsliðsins í handknattleik í gærkvöldi.
Islensku strákarnir hreinlega rassskelltu Ólympíumeistarana frá
Júgóslavíu og sigruðu með 7 marka mun, 20-13. Júgóslavarnir
þoldu ekki að tapa og sumir þeirra trylltust hreinlega og varð að
sýna einum þeirra rauða spjaldið og reka hann útaf á síðustu
þrem mínútunum.
A þeim tíma lokaði Brynjar Kvaran markinu, varði vítakast
og þrjú línuskot en liann kom inn á til að verja vítið. Einar
Þorvarðarson hafði staðið í markinu allan tímann og varið
frábærlega.
lokaði markinu og sóknin gekk
íslenska liðið hóf leikinn af
miklum krafti. Kristján skoraði
fyrsta markið með þrumuskoti,
Þorgils annað af línu og það
þriðja skoraði Kristján úr víta-
kasti áður en Júgóslavarnir
komust á blað. Á þessum fyrstu
mínútum varði Éinar 5 skot,
þar af eitt víti, og það var ekki
fyrr en á 7. mínútu leiksins sem
gestirnir náðu að launta inn
einu marki, 3-1.
Kristján skoraði þriðja mark
sitt og 4. mark íslands með
þrumuskoti, Páll bætti um bet-
ur úr hraðaupphlaupi. Einar
varði glæsilega og Þorbergur
skoraði af línu eftir góða send-
ingu frá Kristjáni og staðan var
orðin 6-1 og 11 1/2 mínúta liðin
af leiknum. Þetta var ótrúlegt.
vörnin leikin af hörku, Einar
eins og i sogu.
En þessi velgengni gat ekki
verið endalaus, Júgóslavarnir
skoruðu 3 næstu mörk og
minnkuðu muninn í 6-4. Nú
voru þeir farnir að leika vörn-
ina mjög framarlega og ruglaði
það sóknina hjá íslendingum
sem snöggvast.
Næstu 5 mínútur gekk ekki
sem best, Sigurður skaut
framhjá og Jakob brenndi af
hraðaupphlaupi. En það kom
ekki að sök því Einar var í
markinu. Hann varði 5 skot í
einni lotu og upp úr því síðasta
komst Bjarni einn í hraðaupp-
hlaup og honum urðu ekki á
nein mistök. 7-4.
Júgóslavarnir tóku sig nú
saman í andlitinu, gerðu aftur
3 mörk í röð og jöfnuðu þar
með metin, 7-7 þegar um 4
mínútur voru eftir af fyrri hálf-
leik. Þegar tíminn var liðinn
átti aðeins eftir að taka auka-
kast og Kristján Arason stillti
sér upp og bjó sig undir að
skjóta . Þá flaug einn Júgóslav-
inn á hann og var rekinn útaf
svo það fækkaði um einn í
varnarvegg Ólympíumeistar-
anna. Kristján nýtti sér það til
fulls og skoraði beint úr auka-
kastinu og íslendingar voru því
yfir 8-7 í leikhléi.
Einar Þorvarðarson byrjaði
seinni hálfleikinn á því að verja
skot úr horninu og Þorbergur
fékk boltann. brunaði upp allan
völl og skoraði glæsilegt mark,
9-7. Einar varði aftur í næstu
sókn Júgóslavanna, íslendingar
voru fljótir fram og Páll fékk
boltann í horninu og var ekki í
vandræðum með að koma hon-
um í netið, 10-7. Júgóslavarnir
minnkuðu í 10-8, áður en Þor-
bergur skoraði glæsilega 11-8.
Eftir um það bil 6 mín. Ieik
náði Páll boltanum og brunaði
upp en markvörður Júgóslav-
anna varði. Mínútu seinna
komst Palli aftur upp og nú
skoraði hann af öryggi, staðan
orðin 12-8 og allt að verða
vitlaust í Höllinni.
Júgóslavarnir koniust lítt
áleiðis gegn sterkri vörn íslend-
inganna og þrátt fyrirað Kristján
væri rekinn útaf í tvær ntínútur
fékk íslenska liðið næsta færi.
Bjarni komst dauðafrír fram,
en þá stöðvuðu dönsku dómar-
arnir leikinn og gáfu liðsstjóra
Júgóslavanna gult spjald.
Furðulegur dómur.
Næsta mark var júgóslavn-
eskt en Páll hélt forskotinu
með marki úr hraðaupphlaupi
eftir mjög góða sendingu frá
Guðmundi. Júgóslavar minnk-
uðu í 13-10 en Sigurður með
langskoti, 14-10.Isakovic, besti
leikmaður Ólympíumeistar-
anna minnkaði muninn í 14-11.
Þá kom frábær kafli hjá íslend-
ingum. fjögur mörk í röð og
áhorfendur vissu ekkert í sinn
haus. Hvað var að gerast? Páll
Ólafsson skoraði 3 af þessum 4
mörkurn öll á glæsilegan hátt
og Kristján skoraði það fjórða
úrvíti. Isakovic gerði 12. ntark
Júkkanna og Kristján 19. mark
íslands úr víti sem Páll fiskaðí.
Nú var allt komið á suðupunkt,
Cvetcovic var rekinn útaf, fékk
rautt spjald, en 4 Júgóslavar
náðu að skora í ringulreiðinni
sem ríkti, 13-19. Þá kom Brynj-
ar Kvaran inn á til að verja víti,
sem og hann gerði, og stóð í
markinu það sem eftir var leiks-
ins, tæpar 3 mínútur. Á þeim
tíma varði hann 3 línuskot auk
vítakastsins og Þorbjörn Jens-
son innsiglaði sigurinn af lín-
unni, 20-13.
Að öðrum ólöstuðum lék
Einar Þorvarðarson stjörnu-
hlutverkið í íslenska liðinu að
þessu sinni. Hann varði alls 18
skot á stórkostlegan hátt.
Páll Ólafsson var alveg stór-
góður í seinni hálfleik og nýtti
hann sér mjög vel frelsið sem
hann fékk þegar Kristján og
Sigurður voru klipptir út á
köntunum. Hann gerði 6 ntörk
í seinni hálfleik. Hinirallir léku
rnjög vel og liðsheildin small
einstaklega vel saman. Leik-
kerfi gengu oft upp og í heild
var hér sennilega besti leikur
sem íslenska landsliðið hefur
spilað frá upphafi.
Mörk íslands gerðu: Páll
Ólafsson 7, Kristján Arason 6
(2 víti), Þorbergur Aðalsteins-
son 3, Þorgils, Sigurður, Bjarni
og Þorbjörn fyrirliði Jensson
gerðu allir eitt mark.