NT - 15.02.1985, Blaðsíða 5
Föstudagur 15. febrúar 1985 5
Skólameistarafélagið:
Skorar á ríkisvaldið að
ráða bót á kjörum kennara
■ Skólamcistarafélag íslands
hefur afhent ríkisstjórninni álykt-
un þar sem varað er við hugsanlcg-
um afleiðint>um uppsagna
kennara. t ályktuninni segir m.a.
að vel hæfir og menntaðir kennar-
ar fáist ekki til frainbúðar nema
gegn sanngjörnum launum og
skorar Skólameistarafélag tslands
á stjórnvöld að beita sér fyrir
farsælli lausn á kjaramálum
kennara. Ályktunin var aflicnt á
fundi með forsatisráðherra,
fjármálaráðherra og mennta-
inálaráðherra á mánudag.
„Við gerum okkur vitanlega
grein fyrir því. að þetta cr hluti af
stærra máli. seni eru launakjör
ríkisstarfsmanna yfirleitt," sagði
Ingvar Ásmundsson. formaður
skólamcistarafélagsins í samtali
við N'l'. Hann sagði það hafa
komið fram á fundinum að al-
mennt skrifstofufólk sem ekki
vinnur hjá Itinu opinbera, liafi
ntun hærri laun en menntaskóla-
kennarar. Að sögn lngvars eru
þess dæmi að kennarar hafi þre-
faldað laun sín á hinum frjálsa
vinnumarkaði og auk þess losnað
undan yfirvinnu sem fylgir kenn-
arastarfinu. „Það er ljóst að kenn-
arar una alls ekki kjörum sínum
og ég óttast að það fólk sent
hættir, það komi ekki aftur." sagði
hann.
Þá kom fram á fundinum að
laun þingmanna voru lengi ntiðuð
við laun menntaskólakennara og
fylgdust þessar starfstcttir að í
launum. Nú mun þingfararkaup
hinsvegar vera um 56 þúsund
krónur en meðallaun mennta-
skólakennara um 23 þús. krónur.
■ Tengdaforeldrarnir:
Jóhanna Valgeirsdóttir og
Jónsteinn Aðalsteinsson.
Friðlaust í
Freyvangi
■ Föstudagskvöldið 15.
febrúar kl. 21.00 frumsýnir
Leikfélag Öngulsstaða-
hrepps og Ungmennafélagið
Árroðinn, gamanleikinn
Aldrei er friður, eftir Andr-
és Indriðason. Leikritið var
samið 1982, en er hér í
lítillega breyttri mynd, þ.e.
staðfært á Akureyri (Síðu-
hverfið).
Leikstjóri sýningarinnar
er Theodór Júlíusson. lýs-
ingu annast Halldór Sigur-
geirsson og Pétur Haralds-
son, búninga Svava Jó-
hannsdóttir og Hjördís
Pálmadóttir. Sviðsmynd
hannaði hópurinn undir
stjórn KristjánsJónassonar.
13 leikarar á öllum aldri
koma fram, en alls vinna um
25 manns að sýningunni.
Með helstu hlutverk fara
þau Jóhann Jóhannsson og
Ólöf Birna Garðarsdóttir
sem leika ung hjón, og
Magnús Torlacius sem leik-
ur son þeirra.
Leikritið fjallar um ung
hjón sem eru að flytjast í
nýja íbúð. Ýmislegt gengur
á afturfótunum eins og gerist
oggengur. Eilífutanaðkom-
andi afskipti, svo sem frá
„tengamóourfyrirbærinu sí-
vinsæla". Ungi maðurinn
reynir að taka að sér heimil-
isstörfin, og svo mætti lengi
telja. En ef menn vilja vita
meira. þá er bara að bregða
sér í Freyvang og sjá með
eigin augum, það er heilla-
drýgst.
Onnur sýntng verður
sunnudagskvöldið 17. febrú-
ar kl. 21.00.
Samvinnuferðir-Landsýn:
Mikill áhugi fyrir
utanlandsferðum
- síst minni en í fyrra sem þó varð „metár hjá ferðaskrifstofum“
■ Mikill áhugi viröist nú vera á
utanlandsferöum í ár, ugsíst minni
en s.l. ár „sem varð metár hjá
feröaskrifstofum" að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá
ferðaskrifstofunni Samvinnuferð-
ir-Landsýn. Nú þegar hafa hátt í
eitt þúsund manns pantað ferðir til
sæluhúsanna í Hollandi og er
grcinilegt á viðbrögðunum aö nýi
sólarlandastaðurinn Rhodos á
miklurn vinsældum að fagna.
Að þessu sinni gildir sérstakt
verð fyrir aðildarfélaga í stað af-
sláttar til allra félagsmanna ASÍ,
BSRB. LÍS, BHM. SÍB. o.fl.
samtaka launafólks sem eru eig-
endur ferðaskrifstofunnar, Alls er
gert ráð fyrir að aðildarfélagsaf-
sláttur nemi um sjö milljónum
króna.
Ferðaskrifstofan hefur nú gefið
út sumarferðabækling fyrir árið
1985 og kennir þar margra grasa.
Fyrir þá sem haft hafa viðskipti við
ferðaskrifstofuna, en vilja kanna
klubbsms, en hann startar mjog t
tengslum við Útsýn. Meðlimir
Fríklúbbsins fá 1.500 kr. afslátt af
flestum ferðum félagsins, og af-
slátt í fjölda verslana og veitinga-
staða erlendis og innanlands.
Meðlimir Fríklúbbsins gcta allir
16 ára og eldri orðið, og kostar
félagsskírtcini 150 krónur.
Þá er fjallað um heimsreisu-
klúbb Útsýnar, en meðlimir hans
eru nú um 400. Tilgangur klúbbs-
ins er að standa fyrir ferðum til
fjarlægra staða og má nefna að
1980 var farið til Mexico, 1981 til
Brasilíu, 1982 til Kenya, 1983 til
Bangkok, Bali ogSingapore, ogtil
Egyptalands og Israel 1984. í ár er
■ Nú eru sólþyrstir íslendingar teknir að hugsa sér til hreyfings, áætlað að fara til Kenya aftur, en
enda var síðasta sumar mörgum þungt í skauti a.m.k. sunnan og bæta við vikudvöl í I anzaníu.
vestanlands. Á Costa del Sol er boðið upp á
nýjar slóðir, má geta þess að
nokkrar nýjungar eru í feröaáætl-
un S-L í ár. Má m.a. nefna sjálf-
stæðar leiguflugferðir til Rhodos,
nýjan sæluhúsastað í Hollandi og
ný sumarhús í Danmörku, leigu-
flug til Salzburg o.fl. auk þess scm
Rimini-Riccionc, Grikkland, Du-
brovnik í Júgóslavíu, Sovétríkin,
Kanada og Norðurlönd eru á með-
al hefðbundinna áfangastaða.
Ferðir til sæluhúsa í Hollandi og
sumarhúsa í Danmörku kosta frá
kr. 14.800 í tvær vikur, feröir til
Rhodos frá kr. 24.51M) í þrjár
vikur. til Rimini eða Riccionc má
komast fyrir 19.700 í ellefu daga
ferð og ferðir til Dubrovnik kosta
frá kr. 21.400 fyrir tvær vikur.
Auk hinna sérstöku greiðslu-
kjara fyrir öll aðildarfélög skrif-
stofunnar býður S-L upp á það
sem kallað er „sama verð fyrir alla
landsmenn" en í því fclst að far-
þegar utan af landi, sem eru á leið
til útlanda með ferðaskrifstofunni.
fáinnanlandsflugið ókeypis ef þeir
staðgreiða fcrðapöntun fyrir 2.
apríl næstkomandi. Gildir þetta í
hópferðum til helstu áfangastaða
ferðaskrifstofunnar.
Sumar-
áætlun
Útsýnar:
■ Sumaráætlun Útsýnar er kum-
in út og að vanda er boðiö upp á
ferðir á hefðbundnar sólarstrend-
ur íslcndinga á Spáni og á Italíu og
auk þess til Portúgal. Grikklands,
Þýskalands, Dannicrkur og cnsku
Kívíerunnar.
Þá er og kynnt starfsemi Frí-
Nikkelfjallið
frumsýnt í dag
■ Sýningar á islensk-banda-
rísku kvikmyndinni „Nikkel-
fjallið" hefjast í Kegnhoganum
í dag en myndin er gerð eftir
samnefndri skáldsögu John
Gardner. Kvikmynd þessi er
afrakstur sainstarfs nokkurra
íslendinga og Bandaríkja-
manna og ntun það vera í fyrsta
skipti sem slíkt samstarf á sér
stað við gerð leikinnar kvik-
myndar í fullri lengd.
Bandaríkjamaðurinn David
Shanks fór þess á lcit við Jakob
Magnússon. að hann sæi um
framkvæmd og framleiðslu á
„Nikkelfjallinu" en þá lá fyrir
handrit cftir Drew Dcnbaum.
Jakob fckk til liös við sig all-
marga Islendinga tiuk Bretans
David Bridges sem sá um kvik-
myndun en hann hefur kvik-
myndað nokkrar mynda Ág-
ústs Guðmundssonar.
Myndin fjallar um átök fólks
í litlu samfélagi, Nikkelfjalli,
þar sem hagur fólks er misjafn
en þó vænni eftir þvt scm ofar
dregur á fjallið.
Meöal leikara eru Michael
Cile scm þekktur er úr banda-
rísku sjónvarpsþáttunum
„Mod Squad", Grace Zabrin-
skie og Patrick Cassidy. Þá
leikur í myndinni 97 ára gamall
maður, Don Bcddoc,og er það
jafnframt hans 157. kvikmvnd.
Sólarstrendur
og sumarhús
■ íslenskir sóldýrkendur á ströndinni við Costa del Sol.
íbúðir og hótelherbergi á allt frá 5
stjörnu hótclum til 3 stjörnu.
Costa del Sol hefur verið einn
vinsælasti sumarleyfisstaður ís-
lendinga og segir í bæklingi Útsýn-
ar að þar bjóðist mönnum að lifa
„Kóngalífi fyrir lítið fé".
Sumarlcyfisstaður Útsýnar í
Portúgal er Algarve, eða ströndin
sem Arabar kölluðu A1 garbh, eða
„vestur”.
Þar má m.a. sjá fornminjar frá
dögum portúgölsku sægarpanna,
auk fjörugs skemmtanalífs nútím-
ans. Ódýrustu fargjöld Útsýnar
erum um 20.000 krónur. T.d.
kostar 20.630 kr. á manninn í
tveggja manna stúdío íbúð á Júpi-
ter hótelinu á Costa del Sol í 26
daga í svokallaðri vorferð. Ítalía
er aðeins dýrari cn Spánn, en þar
cr hægt að dvelja í tvær vikur íyrir
um 22.000-25.000 á manninn.
í Portúgal er verðlag svipað, og
t.d. hægt að dvelja í 3 vikur fyrir
rúmlcga 22.0IK) krónur þar. Ferðir
til ensku Rívíerunnar og til Þýska-
lánds oru í svipuðum verðflokkum
eða frá um 20.000 krónum og upp
í 26.000 krónur.
Að auki er boðið upp á viku-
ferðir til London á 16.70Í) krónur,
sumarhús á Sjálandi í tvær vikur
fyrir 16.420 krónur og viku í
Ámsterdam á 20.31K) krónur.
s nmyiHHH
SÖLUBOÐ
...vöruverö í lágmarki