NT - 15.02.1985, Qupperneq 20
Hí
Kynþáttastefna
í breskum inn-
flytjendareglum
l.ondon-Kcutcr.
■ Nefnd uni kynþáttajafnrétti
á Bretlandi hefur kontist að
þeirri niðurstöðu að við frani-
kvæmd hreskra innflytjenda-
reglna sé fólki mjög mismunaö
eftir kynþáttum.
Á blaðamannafundi, sem
nefndin boðaði til fyrr í þessari
viku, kom meöal annars fram
að blökkumönnum og Asíufólki
væri þrjátíu sinnum oftarsynjað
OECD:
Norðmenn
varaðir við
OlíU'
gróðanum
París-Reutcr.
■ Samtök þróaðra iðn-
ríkja, OECD, liafa varað
norsku ríkisstjórnina við
að treysta of einhliða á
hagnaðinn af Norðursjáv-
arolíunni til að viðhalda
hagvexti.
I ársskýrslu OECD er
því spáð að hagvöxtur
Norðmanna minnki á
þessu ári niður í 1,5% frá
því að vera 3,8% á síðasta
ári. í skýrslunni segir
m.a.: „Iðnaðarframleiðsla
hefur því sem næst staðið
í stað í áratug og aukinn
hluti vinnuafls í iðnaði
starfar í lágvaxtargrein-
um leyfi til að koma til Bret-
lands en fólki af hvítum kyn-
stofni. Við komuna þyrfti þetta
fólk líka að bíða miklu lengur
hjá útlendingaeftirlitinu en
hvítir.
Samkvæmt skýrslu sem
nefndin hefur gert er eiginkon-
um manna af öðrum kynþáttum
en hvítum neitaö um landvistar-
leyfi í fjórunr tilvikum af hverj-
um fimm og í aðeins tvö skipti
af hverjum fimrn frá börnin
dvalarleyfi.
Fjölmörg dæmi eru talin upp
úr skjölum útlendingaeftirlitsins
sem sýna fordóma í garð um-
sækjenda um landvistarleyfi af
svörtum eða gulum kynþáttum.
Stundum er þeim lýst sem
„lygurum", Marokkómenn eru
t.d. sagðir „einfaldir og undir-
förulir“. í opinberu skjali sem
notað er við þjálfun starfs-
manna útlendingaeftirlitsins er
m.a. sagt um Nígeríumenn að
þeir „hafi tilhneigingar til að
hafa metnað og áætlanir sem
séu í engu samræmi við hæfi-
leika þeirra og kringumstæður".
Mörg fleiri svipuð dæmi eru
talin upp í skýrslu nefndarinnar
sem sýna hvernig útlendingaeft-
irlitið byggir á fordómum og
alhæfingum um heila hópa fólks
eftir því af hvaða þjóðerni það
er.
Höfundar skýrslunnar segjast
vona að innflytjendareglurnar
verði gerðar sveigjanlegri og
kynþáttamisrétti útrýmt þegar
fjallað er um innflytjendaum-
sóknir. Slíkt myndi bæta mjög
samskipti fólks af mismunandi
kynþáttum á Bretlandi.
Eros stendur aftur
í Piccadilly Circus
l.ondon-Kcutcr.
■ Ástarguðinn, ferskur eftir
andlitslyftingu, kom aftur til
London í gær til að veita birtu
sinni á dag heilags Valentínus-
ar.
Hin fræga stytta Erosar, hins
vængjaða ástarguðs var fjarlægð
frá Piccadilly Circus í London í
ágúst s.l. og færð til viðgerðar
og er það önnur meiriháttar
viðgerðin á styttunni síðan hún
var steypt 1893.
í grísku goðsögnunum var
Eros goð ástríðanna en liann
var sonur Afródíte gyðju ástar-
leikja og samfara.
Vanessa Redgrave:
Tapaði málinu
gegn Boston-
hljómsveitinni
Bo.slon-Kcutcr.
■ Hæstaréttardómari í
Bandaríkjununt hefur
svipt leikkonuna Van-
essu Redgrave 100.000
dollara skaðabótum sem
undirréttur hafði dæmt
henni vegna samningsrofa
samninga við hana árið
1982.
Redgrave, sem er ein-
dreginn stuðpingsmaður
frelsissamtaka PLO, segir
að Bostonhljómsveitin
hafi rofið samninga við
sig vegna þrýstings frá
samtökum gyðinga.
Hljómsveitin bauð henni
31.000 dollara í sættir
fyrir dómsúrskurðinn
sem hún hafnaði.
Redgrave var dæmd til
að greiða allan dóms-
kostnað sem er talinn
nema allt að 15.000 doll-
urum.
■ Brunaliðsmenn láta lík eins gestsins, sem lést í stórbruna í fimm stjörnu lúxushóteli í Manila
á Filipseyjum, síga niður af svölum. Símamynd: Polfoto.
Filipseyjar:
íkveikja í fimm
stjörnu hóteli?
■ Tugir manna létust í
miklum eldsvoða í lúxushót-
elinu „Regent of Manila"
sem kom upp aðfaranótt
miðvikudags. Ekki tókst að
slökkva eldana fyrr en eftir
rúmlega einn sólarhring.
Yfirvöld hafa nú fyrirskipað
rannsókn á því hvort um
íkveikju hafi verið að ræða.
288 gestir voru skráðir í
hótelið þegar eldurinn kom
upp. Björgunarmenn höfðu
fundið lík 27 manns í gær en
enn var margra saknað. Jafn-
vel var talið að allt að fimm-
tíu manns kynnu að hafa látið
lífið. Flestir gestanna voru
útlendingar.
15. febrúar 1985 20
Kína:
Opnum
ferða-
borgum
fjölgar
Peking-Reuter:
■ Kínverska utanríkisráðu-
neytið hefur skýrt frá því að frá
og með deginum í dag geti
erlendir ferðamenn heimsótt 98
borgir og smærri staði án sér-
staks ferðaleyfis svo frenri sem
þeir hafi vegabréfsáritun til
Kína.
Lengi vel þurftu útlendingar
ávalt sérstaka heimild til ferða-
laga innan Kína þótt viðkom-
andi hefði fengið vegabréfsárit-
un til landsins. En árið 1982
voru 29 borgir opnaðar útlend-
ingum án slíkra formsatriða.
Nú hefur þeim verið fjölgað
upp í 98.
Áð auki er hægt að fá leyfi til
að heimsækja 159 staði í Kína
með því að sækja um sérstakt
ferðaleyfi. Þegar nýjar borgir
eru opnaðar fyrir erlenda ferða-
menn í Kína er fyrst og fremst
farið eftir því hvort viðunandi
gistirými er til í borgunum og
hvort þar er að finna túlka sem
geta aðstoðað útlendingana.
Nígería:
Lögregla þjóf-
kennd og skot-
in til bana
Lagos, Nígcríu-Reutcr.
■ Lögreglumaður sem rann-
sakaði þjófnaðarkæru var talinn
vera þjófur af sjónarvottum og
skotinntilbana.
Fréttastofa Nígeríu skýrði frá
því í gær að lögreglumaðurinn,
Yinusa Bakare, hafi verð skot-
inn með eigin byssu þegar hann
kom á stað þar sem þjófnaður
hafði verið kærður. Sjónarvott-
arnir þrifu af honum byssuna og
skutu hann.
Málið er í rannsókn að sögn
lögreglunnar.
50 farast í eldi í farþegaskipi
■ Að minnsta kosti fimmtíu létu lífið í eldsvoða í indverska farþegaskipinu Cidambaram á
þriðjudag.
Þessi mynd var tekin af skipinu þegar það kom aftur til hafnar í Madras á Indlandi í
gærmorgun. Eldurinn kom upp þegar skipið var um 320 kílómetra fyrir austan borgina.
Eldsupptök eru ókunn. Simamynd: Polfolo.
Hert lyf jaeftirlit
með íþróttamönnum
London-Kcutcr.
■ Stjórn breskra áhugamanna
í íþróttum hefur ákveðið að
allir breskir íþróttamenn, sem
vilja taka þátt í alþjóðamótum,
verði að vera tilbúnir til að
gangast undir fyrirvaralaust
lyfjapróf hvenær sem er.
Fallist íþróttamennirnir ekki
á að gangast undir lyfjapróf missa
þeir sjálfkrafa rétt til að taka
þátt í alþjóðamótum. Eftirlit
með lyfjanotkun íþróttamanna
í Svíþjóð og Finnlandi hefur
einnig verið hert mjög að
undanförnu.
í síðasta mánuði úthlutaði
sænska ríkisstjórnin tveim millj-
ónum sænskra króna til þess að
hindra lyfjanotkun íþrótta-
manna frá Svíþjóð. Sérstök
áhersla verður lögð á eftirlit
með þeim sænsku íþróttamönn-
um sem stunda æfingar í Banda-
ríkjunum. Finnar hafa líka á-
kveðið að taka upp lyfjapróf
fyrir íþróttamenn á meðan á
æfingum þeirra stendur en ekki
aðeins í mótum eins og hingað
til.
Mjög strangar reglur gilda
um lyfjanotkun íþróttamanna
við alþjóðamót til að koma í veg
fyrir að þeir noti lyf til að reyna
að byggja upp vöðva og^við-
bragðsflýti. Á Ólympíuleikun-
um síðastliðið sumar voru silfur-
verðlaun tekin af hlauparanum
Martti Vainio, sem varð annar í
10.000 metra hlaupi, eftir að
lyfjapróf sýndi að hann hafði
tekið steroids.