NT - 15.02.1985, Síða 21
Föstudagur 15. febrúar 1985 21
Úfönd___________________________
Rauðir Khmerar beita skæru-
hernaði gegn sókn Víetnama
VNathananakorn, Ihailand-Kcutcr
■ Kambódískir flóttamenn hvíla sig í thailensku þorpi eftir flóttann frá bardagasvæðunum í Kambódíu
þar sem nú stendur vfir stórsókn Víetnama gegn skæruliðum Rauðra Khmera. Á undanförnum þremur
vikum hafa um 40.000 manns flúið frá Kambódíu til Thailands. símamvnd-poLKOio
Kynfýsn felldi varnar-
málaráðherra Kanada
Ottawa-Bonn-Reuter
■ Varnarmálaráðherra Kan-
ada, Robert Coates, hefur sagt
af sér vegna fréttar í kanadísku
blaði um að hann hafi heimsótt
vestur-þýskan næturklúbb í
nóvember á seinasta ári, þar
sem bæði sé að finna nektarsýn-
ingar og vændiskonur.
Samkvæmt frétt blaðsins
heimsótti Coates næturklúbb-
inn ásamt tveimur aðstoðar-
mönnum sínum þegar hann var
á NATO-fundi í smábænum
Lahr í Vestur-Þýskalandi. Þar
mun hann hafa setið og rætt við
nektardanskonu í tvær klukku-
stundir á meðan aðstoðarmenn
hans brugðu sér frá.
Yfirvöld í Vestur-Þýskalandi
áætla að það séu um fimmþús-
und njósnarar frá Austur-Evr-
ópu í landinu og að margir
þeirra starfi í næturklúbbum
þar sem þeir reyni að fá her-
menn og aðra. sem þekkja til
öryggismála. til að ljóstra upp
leyndarmálum.
Coates harðneitar því að
liann hafi framið öryggisafglöp
á þessari kvöldstund. En þrátt
fyrir það neyddist hann til að
segja af sér.
■ Víetnamskt herlið hel'ur nú
að mestu leyti náð á sitt vald
svæðinu sem skæruliðar Rauðra
Khmera höfðu bækistöðvar sín-
ar á nálægt Phnom Malai-fjalli í
Vestur-Kambódíu. En áður en
svæðiö féll í hendur Víetnama
höfðu Rauðir Khmerar skipt
liði sínu upp í smáhópa sem nú
halda uppi skæruhernaði gegn
Víetnömum annars staðar í
Kambódíu.
Engar upplýsingar eru um
mannfall vegna sóknar Víet-
nama sem er sú öflugasta síðan
þeir sendu herlið inn í Kani-
bódíu. En yfirmenn í thailenska
hernum segjast telja að Rauöir
Khmerar haldi að mestu óskertu
liði sínu sem er álitið um 10.000
manns.
Víetnamar eru taldir hafa
160.000 til 180.000 manna herlið
í Kambódíu. í bardögunum
undanfarnar þrjár vikur hafa
nieira en 50.000 manns flúið
uirdan sókn Víetnama yfir til
Thailands.
■ Jeremy Levin, sköminu
áður en honum var rænt í Beirút
á síðasta ári.
Fréttamanni
sleppt eftirár
í gíslingu
Washington-Kcutcr.
■ Sýrlendingar hafa skýrt frá
því að bandarískur sjónvarps-
íréttamaður, sern var rænt fyrir
tæpu ári, sé kominn í leitirnar
og hann sé nú heill á húfi í
Damaskus í Sýrlandi.
Fréttamaðurinn heitir Jeremy
Levin og var í haldi hjá hópi
múhameðstrúarmanna sem
rændu honum í Beirút í mars á
síðasta ári. Ekki er enn vitað
hvort hann var látinn Iaus eða
hvort honum tókst að sleppa úr
haldi.
Gjaldþrotamet
í V-Þýskalandi
Wicsbadcn-Kcutcr.
■ Samkvæmt opinberum töl-
um í Vestur-Þýskalandi hafa
aldrei orðið fleiri gjaldþrot þar
en á síðasta ári.
Alls urðu 16.760 gjaldþrot á
árinu sem er fjögurra prósenta
aukning frá því árið 1983.
Gjaldþrotum vegna upphæða
sem fóru yfireina milljón marka
(tæpl. 13 rnillj. ísl. kr.) fjölgaði
um 7,8%.
Gjaldþrotum einstaklinga
fjölgaði mun meira en gjald-
þrotum fyrirtækja eða um 20%
frá því árið áður.
Himneskur
grafreitur
Washington-Reuter
■ Bandaríkjastjórn
samþykkti í fyrradag áætl-
un bandarísks fyrirtækis
um að senda jarðneskar
leifar 10:330 rnanna út í
himingeiminn til sinnar
hinstu hvílu fyrir 3.900
dollara á hvert iík.
Geimgrafhýsið verður
sent á loft frá Wallops-
eyju í Virginíu í Banda-
ríkjunum í árslok 1986
eða snemma á árinu 1987.
Það verður sent upp í 3000
kílómetra hæð þar sem
það á að hringsóla næstu
63 milljón ár í hinu svo-
kallaða Van Allen-bclti.
Talsmenn einkafyrir-
tækisins Celestis segjast nú
þegar hafa fengið mörg-
hundruð fyrirspurnir.
Fólk hringi jafnvel frá
Englandi og írlandi til að
panta pláss í geimgrafhýs-
inu. Þeir segjast stefna aö
því að senda allt að því tíu
geimför árlega mcð jarð-
neskar leifar fólks upp til
himna.
Geimgrafhýsin veröa
ekki einungis ætluö
Bandaríkjamönnum hcld-
ur verður fólki í Englandi,
írlandi, Japan og hugsan-
lega fleiri löndum boðið
upp á að notfæra sér þessa
þjónustu að sögn tals-
manns fyrirtækisins.
Til þess að gera himna-
förina sem ódýrasta eru
hinir látnu brenndir mjög
rækilegri líkbrennslu og
öskunni síðan þjappað
niöur í örsmá gullhúöuð
hylki scm er kontið fyrir í
geimgrafhýsinu. í framtíö-
inni verða himnafcrðirnar
svo ekki nauðsynlega
bundnar við sporbaug um-
hverfis jörðina heldur
verður einnig boðið upp á
lengri lciðir út úr sólkerf-
inu.
Svíar banna inn-
flutning á blóði
Stokkhólmur-Rcuter
■ Svíar hafa hætt öllum ínn-
flutningi á blóði eftir að 11 ára
gamall drengur fékk áunna
ónæmisbæklun (AIDS) vegna
blóðgjafar.
Blóðið sem drengnum var
gefið kom frá Bandaríkjunum.
Sænskir læknar segjast nú vera
hættir að nota innflutt blóð frá
Bandaríkjunum þar sem þar
hefðu margir blóðgjafar verið
kynhverfir eða eiturlyfjasjúk-
lingar þar til fyrir skömmu.
Ekki er vitað um nema sextán
Svía sem hafa fengið áunna
ónæmisbæklun en í Bandaríkj-
unum hafa meira en 7000 manns
fengið hana. Sjúkdómur þessi
leiðir næstum því alltaf til
dauða.
Spánn:
Lítil þátttaka í læknaverkfalli
Madrid-Kcutcr
■ Þriggja daga verkfall
lækna, sem starfa hjá ríkinu,
hófst á Spáni í fyrradag en
stjórnvöld segja þátttöku í
verkfallinu takmarkaða.
Talsmaður heilbrigðisstofn-
unar Spánar segir að verkfallið
hafi engin áhrif í 13 af 50
fylkjum á Spáni og takmörkuð
áhrif í öðrum fylkjum. Þátt-
takan sé hvergi yfir helming.
Talsmenn læknasambands-
ins, sem boðaði til verkfallsins.
segja hins vegar að yfir 80% af
51.000 félagsmönnum sam-
bandsins styðji verkfallið. Öll
helstu verkalýðsfélög á Spáni
hafa gagnrýnt verkfall lækn-
anna og segja það til komið
vegna pólitískra ástæðna.
Flughraðamet
til Astralíu
■ Concord-þota breska flugfélagsins British Airways setti í
gær flughraðamet frá London til Sydney í Ástralíu. Flugtími
vélarinnar var aðeins 17 tímar, 3 mínútur og 45 sekúndur.
Orsökin fyrir þessu óðagoti hjá flugfélaginu var sú að
farþegarnir 91, sem fóru með vélinni, þurftu að komast til
Sydney tímanlega til að komast um borð í lúxusfarþegaskipið
Queen Elisabeth sem lagði af stað í skemmtireisu frá Sydney
í gær. Símamynd-POLFOTO
t
Eiginmaður minn
Gústaf Hjartarson
frá Grjóteyri í Andakílshreppi
lést 30. janúar sl. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum innilega sýnda samúð, sérstaklega viljum við þakka
lækni hans sl. 7 ár Agli Jakobsen og hans starfsfólki fyrir
umhyggju og alúð og síöast en ekki síst öllu starfsfólki á
Öldrunarlækningadeildum Landspítalans Hátúni 10-B fórn-
fúsa umönnun.
Einnig kærar þakkir til allra þeirra er voru hjá honum og veittu
aðstoð i löngum veikindum.
Guð blessi ykkur öll
Guðrún J. Elnarsdóttir
börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabarn
og systkini hans
t
Okkar innilegustu þakkir til ykkar allra er sýndu okkur samúö
og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, dóttur
og systur
Ernu Sólveigar Sigvaldadóttur
Halldórsstöðum Eyjafirði.
Hreinn Gunnarsson
Rósa Steinunn Hreinsdóttir,
Steinunn E. Björnsdóttir,
Þórir H. Sigvaldason,
Guðrún H. Sigvaldadóttir,
Birna M. Sigvaldadóttir,
Jón B. Sigvaldason,
Elsa Þ. Heiðdal,
og systkinabörn.