NT - 15.02.1985, Blaðsíða 24
LÚRIR ÞÚ Á FRÉTT?
HRINGDU ÞA f SfMA 68-65-62
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónurfyrir hverja ábendingu sem leiðir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
I Nauð- 1 1 lending Hundruð is lendinga
| ratsjár- 1 flugvélar —1 hersins: kvödd á ve ttvang
^ Mælaborð sagði bremsurnar bilaðar
■ „Execute the masscasualitv plan - crash landing
airoplane with 31 souls“. Þannig Mjóðaði orðsending
ilugumsjónar haudaríska hersins á Keflavíkurilugvelli í
gærdag til Almannavarna. (Setjið af stað áætlun vegna
stórslyss - nauðlending (lugvélar með 31 mann innan-
borðs). Önnur tveggja Awacs ratsjárvéla ilotans sýndi á
mælaborði bilun í bremsuútbúnaði hjóla rétt fyrir fyrirhug-
aða lcndingu.
Allt viðvörunarkerfi Al-
mannavarna á Suðurnesjum var
sett í gang og kvaðst Guðjón
Pctersen hjá Almannavörnum
ætla að þarna heföu á milli þrjú
og fjögur hundruö manns verið
kvaddir út. Þegar nær lendingu
Awacs vélarinnar dró breytti
mælaborðið boðum sínum og
sýndi bremsuútbúnaðinn í góöu
lagi sem rétt reyndist þegar
vélin lenti.
Rétt áður en Awacs vélin
lcnti kom önnur herflugvél inn
á flugvöllinn, P3 Orion og hafði
einn fjögurra hreyfla hennar
liætt að ganga. Slík bilun er
talin minniháttar og hafði Al-
mannavörnum því ekki vcrið
. gerð nein boð um það. Pegar
hún var lent heyrði stjórnstöð
Almannavarna .í fjarskiptum
ofan af flugvallarsvæðinu „að
vélin væri lent og allt í góöu
lagi". Hóf stjórnstöðin þá þegar
að afboða sveitir sínar en aðeins
fáeinum mínútum síðar náðist
samband við flugumsjón hersins
og var afboöunin þá fryst aö því
litla leyti scm hún var komin til
framkvæmda. 10 mínútum síðar
lenti svo Awacs vélin klakklaust
á Keflavíkurflugvelli og var ver-
iö að rannsaka bilunina í gær.
Að sögn Dorothy J. Schmidt
upplýsingafulltrúa hersins er
talinn mögulciki á að bilunin
hafi aðeins verið sú að Ijós í
mælaborði gaf rangar upplýs-
ingar.
Bilunin í Awacs vélinni var
tilkynnt til flugumsjónar hersins
þcgar hún átti 40 mílur að
flugvellinum og sendi flugum-
sjónin þá þegar boð til Al-
mannavarna. Þá var klukkan
13:10 og klukkan 13:40 var
vélin lent. Fjórum mínútum fyr-
ir lcndingu (13:36) kviknuðu
Ijós í mælaborði vélarinnar sem
sýndi að þá væri bremsuútbún-
aður hjóla í lagi. P-3 Orion
vélin lenti klukkan 13:28.
Awacs herflugvélar cru fljúg-
andi stjórnstöðvar og ratsjár-
stöðvar ætlaðar til að stjórna
hersveitum á láði og legi í vörn
og sókn. Vélarnar eru næsta
samsorta og Boeing 707 og er
áhöfn þeirra 17 manns.
Til almannavarnasveita sem
kallaðar voru út í gær teljast
lögreglusveitir, björgunarsveitir
og heilbrigðisþjónusta á Suður-
nesjum auk sveita lækna á spít-
ölunum í Reykjavík.
■ Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli í gærdag þegar hætta var talin á að vél hersins, sömu gerðar og hér sést, myndi hlekkjast
á við lendingu með 31 niann innanborðs.
Mjólkursamsalan
loftskiptum
umbúðum.
Ferskar dögum
saman -enda í
Laugardagur
Sunnudagur
■ Veður fer hlýnandi um allt land nú um helgina.
Á Suður-, Vestur- og Norðurlandi vestra ásamt
Vestfjörðum verður slydda eða rigning og all-
hvöss suðaustanátt. Úrkomulaust og heldur hæg-
ari suðaustanátt á austanvevðu Norðurlandi og
Austfjörðum, en skýjað á Suðausturlandi.
Á sunnudag verður sennilega úrkomulaust frá
Vestfjörðum og austur um land, allt suður í
Skaftafellssýslu, en slydda eða snjókoma á vest-
anverðu landinu. Vindur verður suðvest-lægur og
öllu hægari en á laugardag.
i
*