NT - 28.02.1985, Qupperneq 22
Stórsigur
Hollendinga
■ Hollendingar unnu
Kýpurbúa 5-0 í 5. riðli
undankeppni Evrópu-
kcppni landsliða skipaðra
leikniönnum undir 21 árs
í knattspyrnu í Leeuwar-
den í ■ Hollandi í fyrra-
kvöld. Mario Been tvö,
Johan Bosman tvö og
Edvin Bakker skoruðu
niörk Hollendinga í
leiknum.
Staðan í riðlinum er nú
þessi:
Holland.... 4 3 1 0 9-1 7
Ungverjaland .3 2 0 1 5-2 4
Austurríki .... 3 0 2 1 1-3 2
Kýpur...... 40 1 3 3-12 1
Jafntefli
■ Spánn og Skotland
gerðu jafntcfli 0-0 í 7.
riðli undankeppni Evrópu-
keppni landsliða skipaðra
leikmönnum 21 árs og
yngri í knattspyrnu í Cad-
iz á Spáni í fyrrakvöld.
Þessi lið eru mótherjar
íslendinga, sem eru í
sama riðli.
Staðan í riðlinum er
þannig:
■ Katarina Witt (fyrir miðju) er talin sigurstranglegust á HM í kvennaflokki í listhlaupi á skautum.
Hér er hún ásamt Ivanovu frá Sovét og Leistner frá V-Þýskalandi eftir EM í Svíþjóð.
Spánn ........ 2 110 2-03
Skotland ..... 3 1111-23
ísland ....... 10 0 10-10
Grikkir unnu
■ Grikkir sigruðu Al-
baníu í landsleik í knatt-
spyrnu 21 árs og yngri.
Liðin leika í 1. riðli Evr-
ópukeppninnar og var
sigurinn öruggur. Papat-
heodorou og Dimopou-
los skoruðu mörkin í síð-
ari hálfleik. Áhorfendur
voru 5000. Staöan í 1.
riðli er nú þessi:
Pólland 2 2 0 0 7 1 4
Grikkl. 2 10 13 5 2
Albanía 2 0 0 2 0 4 0
Júdó
■ Lið frá Evrópu sigr-
aði á móti í júdó sem
fram fór í París um síð-
ustu helgi. Þarna kepptu
lið frá Evrópu, Asíu, S-
Ameríku og Afríku. í
úrslitaviðureigninni sigr-
aði Evrópa Asíu 4-3.
Hnefaleikar:
Don Curry
þyngir sig
■ Heimsmeistarinn í velti-
vigt í hnefaleikum, Don
Curry, mun hækka um þyngd-
arflokk cr hann keppir við
félaga sinn frá Bandaríkjun-
um, James „llarðhaus"
Green í lok mars. Curry,
sem er aðeins 23 ára hefur
ekki tapað einum einasta
leik í veltivigt en unnið 21
stykki. Hann niun nú keppa
í léttmillivigt. „Harðhaus-
inn“ hefur tapað fjórunr
leikjum í léttmillivigt og er
talinn vera sá áttundi besti í
heiminum í dag. Margir eru
á þeirri skoðun að Curry
verði fljótlega sá besti í létt-
millivigt í heiminum.
Handknattleikur:
Urslitakeppnin
í 1. deild færist til vegna Evrópuleikja
■ Nú er Ijóst að úrslitakeppni
fyrstu deildar karla í hand-
knattleik færist til frá upphaf-
lcgu skipulagi. Fyrsti hluti
keppninnar verður að líkindum
leikinn 14.-17. niars í stað 22.-24.
mars. Næsta umferð vcrðursvo
ekki fyrr en að líkindum I.-3.
apríl. Þetta er vegna þess hve
íslenskum félagsliðum hefur
gengið vel í Evrópukeppnum
að undanförnu, FH óg Víking-
■ Loks hefur verið ákveðið
aö stofna aðdáendaklúbb Tott-
enham Hotspur hér á landi.
Stofnfundurinn verður á Sel-
fossi, en þar eins og víða um
land cru aðdáendur enska liðs-
ins Tottenham Hotspur fjöl-
margir. Fundurinn verður í ris-
inu á Inghóli skemmtistað
urbæði í fjögurra liða úrslitum.
Nú er það bara spurningin,
hvort síðustu tveir hlutar úr-
slitakeppninnar þurfa að fara
fram síðast í maí, þegar úrslita-
leikjum Evrópukeppnanna er
lokið...
Úrslitakeppni neðri hluta
fyrstu deildar verður eins og
áður hefur verið ákveðið, svo
og í annarri deild og þriðju. Þar
er líka bara lcikin tvöföld um-
þeirra Selfyssinga, laugardag-
inn 2. mars og hefst hann kl.
13:30. Klúbburinn á að verða
aðdáendaklúbbur Tottenham -
áhangenda um allt land og eru
þeir sem áhuga hafa á að kynna
sér hann beðnir um áð hafa
samband við Kristin Bárðarson
í síma 99-1537 á Selfossi.
ferð í stað fjórfaldrar í efri
hluta fyrstu deildar.....
Vígslu-
leikur
á gerfi-
grasinu
■ NT hefur horist til
eyrna að tii standi að
Ieika vígslulcik á gerfi-
grasinu í Laugardal. Á sá
að verða 25. mars næst-
komandi, og vera á milli
tveggja úrvaísliða, annars
vegar liðs Reykjavíkur og
hins vegar liðs
„Landsins". Knattspyrnu-
ráð Reykjavíkur mun sjá
um lið Reykjavíkur, en
landsliðsnefnd KSÍ að
líkindum um lið
„Landsins". Yfirumsjón
með öllu saman hefur
íþróttabandalag Reykja-
víkur.
Strax síðastliðið haust,
þegar gerfigrasvöllurinn í
Laugardal var tilbúinn
stóð til að leika á honum
vígsluleik. En ekki varð
neitt úr því. Síðan hefur
verið æft grimmt á vellin-
um, og einn stórleikur
farið þar fram, leikur
Luton Town og Reykja-
víkurúrvalsins. Sá hlýtur
í raun að hafa verið hinn
eiginlegi vígsluleikur, en
kannski á að vígja völlinn
með lúðraþyt og öllu til-
heyrandi.
Eitt er víst, að Revkja-
víkurúrvalið stendur bet-
ur að vígi, hefur leikið á
veilinum áður. Að ekki
sé talaö um allar æfing-
ar....
Aðdáendaklúbbur
- Tottenham Hotspur stofnaður
Fimmtudagur 28. febrúar 1985 22
Skautar:
HM í Tókýó í
næsta mánuði
Búist við hörkukeppni hjá körlunum
■ í næsta mánuði fer fram í
Tókýó í Japan, heimsmcistara-
keppnin í listhlaupi á skautum.
Eins og venja er þá er mikið
talað um hverjir eiga mögu-
leika á titlum og við hverju
megi búast á þessu móti.
í karlaflokki eru fjórir nefnd-
ir sem helstu arftakar Banda-
ríkjamannsins Scott Hamilton
sem nú hefur lagt skautana á
hilluna. Kanadamaðurinn Bri-
an Orser, Sovétmaðurinn AI-
exander Fadeuev, Tékkinn
Jozef Sabovcik og bandaríski
meistarinn Brian Boitano.
Orser er aðeins 23 ára en
hefur samt unnið kanadíska
meistaratitilinn fimm sinnum í
röð og hann er sá eini í heimin-
um sem tekið hefur þrefalt
snúningsstökk í keppni. Fade-
yev varð Evrópumeistari 1984
en hann meiddist á sovéska
meistaramótinu fyrir stuttu og
er ekki víst að hann verði búinn
að ná fyrri styrkieika fyrir
mótið. Sabovcik náði að sigra á
Evrópumeistaramótinu í
Gautaborg fyrr á þessu ári.
Boitano er talinn vera sá besti
í Bandaríkjunum eftir að Ham-
ilton hætti og er á mikilli upp-
leið.
Hjá konunum er Katarina
Witt talin sigurstranglegust en
hún er núverandi Evrópumeist-
ari, Heimsmeistari og Ólym-
píumeistari. Witt er þó aðeins
19 ára. Helsti keppinautur
hennar verður 17 ára bandarísk
stúlka Tiffany Chin að nafni
sem varð bandarískur meistari
fyrr í þessum mánuði.
Bogdan „njósnar“
- á B-keppninni í Noregi
■ Bogdan Kowalczyk lands-
liðsþjálfari fer í dag til Noregs
þar sem hann mun fylgjast með
síðustu leikjum B-keppninnar
í handknattleik. Með Bogdan
fara þeir Jón Hjaltalín Magnús-
son formaður Handknattleiks-
sambands íslands, og Þórður
Sigurðsson stjórnarmaður í
HSÍ.
Þeir félagar munu verða í
Noregi fram yfir helgi, og stefn-
an er að kortleggja toppþjóð-
irnar í B-keppninni, því sex
efstu fara í A-keppnina í febrú-
ar á næst ári í Sviss. Þar verða
fyrir sex efstu lið frá Ólympíu-
leikunum í Los Angeles, þar á
meðal litla ísland...
■ Bogdan fer til Noregs og Geir þjálfar drengina.
Drengjalandsliðið í handbolta:
Æfir á fullu
■ Drengjalandslið íslands í
handknattleik, lið skipað leik-
mönnum 18 ára og yngri, kepp-
ir á Norðurlandamóti drengja-
landsliða í Finnlandi í apríl-
mánuði. Liðið æfir nú grimmt
undir stjórn Geirs Hallsteins-
sonar, þess kunna hanknatt-
leiksmanns og þjálfara.
Samkvæmt heimildum NT
hefur aldrei verið eins mikið
lagt í undirbúning drengja-
landsliðs hér eins og nú. Æfing-
ar hafa staðið síðan í október.
Öll handknattleiksfélög í land-
inu áttu kost á að senda leik-
menn sem þeir töldu eiga erindi
í liðið. Alls hafa verið prófaðir
rúmlega eitt hundrað piltar, og
nú eru 19 þeirra, sem valdir
hafa verið úr, við æfingar. Það
verða svo 14 piltar sem fara til
Finnlands í apríl...
Kvennalandsliðið
- fer til Danmerkur í lok mars
■ Líklegt er að íslenska
kvennalandsliðið í handknatt-
leik fari til Danmerkur í lok
mars og leiki þar tvo leiki við
danska kvennalandsliðið. Þetta
er ekki fullfrágengið en líkur
standa til að þetta verði úr.
Nýlega var skipt um þjálfara
hjá danska kvennalandsliðinu,
eftir fremur slælega frammi-
stöðu liðsins að undanförnu.
Nýi þjálfarinn heitir Ole
Eliassen, og er gamall hand-
boltajaxl, sem oft hefur leikið
gegn íslendingum. Eliassen
þessi hefur látið fara mikið
fyrir sér í dönskum fjölmiðlum
að undanförnu, og margt verið
rætt og ritað í Danmörku um
að nú sé stundin upprunnin, nú
skuli danska dvennalandsliðið
fara að láta til sín taka. Það var
einmitt Ole Eliassen sem tók
vel í málaleitan HSÍ, óg taldi
mjög líklegt að af þessum leikj-
um við ísland gæti orðið...