NT - 01.03.1985, Page 2
Vélskólanemar skora á kennara í HÍK:
„Látið framtíð
okkar í friði"
■ Skólaféiag Vélskóla
íslands hefur sent frá sér
ályktun þar sem lýst er yfir
„hinni megnustu van-
þóknun“ á aögerðum
kennara í Hinu íslenska
kennarafélagi og sagt aö
aögcrðir kennara miði að
því að nota nemendur sem
„pólitískt þvingunarafl“
auk þess sem námi þeirra
sé vísvitandi stefnt í hættu.
Meirihluti ncmenda skól-
ans skrifaði undir ályktun-
ina.
Hafa neniendur Vél-
skólans sent HÍK bréf þar
sem segir orðrétt:
„Það hefur enginn neitt
á móti því að kennarar
segi upp og leiti á önnur
mið eftir vinnu, en aftur á
móti að segja upp með
þvílíkum látum, og biðja
fólk að ráða sig ekki í
störfin þeirra vegna þess
að þeir ætli aðeins að
knýja fram hærri laun, og
koma svo aftur, er einum
of mikið af því góða. Þetta
er sagt með tilliti til þess
að námsönnin verði í rúst
þegar þeir kæmu aftur og
það kallar á það að nem-
endur láti ekki sturta námi
sínu niður í klósettið þegj-
andi og hljóðalaust."-
Loks skora vélskóla-
nemar á kennara að láta
framtíð þeirra „í friði".
Bókmenntaverðlaun Norðurlanda:
íslensk tunga verði jaf nrétthá
-þingsályktunartillaga frá sjálfstæðismönnum
■ Fimni þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins hafa lagt fram tillögu til
þingsályktunar þar sem skorað er
á ríkisstjórnina að beita sér fyrir
því að rcglum um tilhögun bók-
menntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs vcrði brcytt á þann veg að
íslendingar leggi bókmenntaverk
sín fram á íslensku.
Ennfremur kemur fram í tillög-
unni að nái þetta ekki fram að
ganga sé íslendingum heimilt að
leggja fram þýðingar á ensku,
frönsku cða þýsku til jafns við
dönsku, sænsku og norsku eins og
nú er. f greinargerðinni kemur
fram að íslensk tunga sé torlærð
og skilin af fáum mönnum erlend-
um svo þeir geti notið bókmennta
okkar til hlítar og hætta sé á
einhæfni við þýðingar af íslensku
yfir á dönsku, norsku eða sænsku.
■ Sclurinn sem fluttur var frá Hollandi með flugvél frá Arnarflugi
öölaöist frelsi sitt á ný í fyrradag. Selurinn var futtur t körfu til sjávar
Og SÍðan Sleppt. NT myn<l Halldór
Hrútabragð og
galtabragð...
■ Hrútabragð bar á góma, -
í óeiginlegri merkingu, - á
Búnaðarþingi í vikunni. Fyrir-
lesari um nýtt kjötmat, dr.
Sigurgeir Þorgeirsson varaði
mjög við því að hrútlömbum
væri slátrað eftir mánaðainót
október nóvember því þá
mætti liúast við að þetta merki-
lega en lítt eftirsóknarverða
bragð yrði af kjötinu.
Hrútabragð kemur nefni-
lega af kynþroska hrútum en
hverfur þegar skepnan hefur
verið gelt. Einhverskonar
hormónaefni í blóðinu ber
bragð þetta um kjötið.
En eitthvað voru þingfulltrú-
ar vantrúaðir á tilvist þessa
óbragðs í kjöti og könnuðust
sjálfir ekki við að hafa fundið
það. Þess utan aldrei heyrt um
neinar rannsóknir á tilvist þess.
En Sigurgeir gaf sigekki. Hann
játti að rannsóknir væru nær
engar á þessu bragði en það
væri skylt galtabragði. Galta-
bragðið hefði svo verið rann-
sakað og vitað að það fyndu
frekar konur en karlar.
„Sumir finna hrútabragð,
hvort sem það tengist nú
eitthvað kynstarfsemi þeirra
sjálfra..., ég er nijög viðkvæm-
ur fyrir hrútabragðinu hvort
sem það bendir svo til einhvers
kvenlegs eðlis eða ekki," sagði
Sigurgeir og glotti og þurftu
bændahöfðingjar nú ekki frek-
ar vitnanna við að hrúta-
bragðið er til rétt eins og
galtabragðið.
Kjötmat ffyrir
hor-bændur
■ „Ég sé einn bónda hér inni
sem ekki fer vel út úr þessu
nýja kjötmati því hjá honum
er allt svo kafloðið," sagði dr.
Sigurgeir Þorgeirsson á Bún-
aðarþingi þegar liann kynnti
drög að nýju kjötmati, og
horfði um leið á Magnús bónda
Sigurðsson á Gilsbakka. „en
hinir sem alltaf eiga tómar
horkindur þurfa ekki að óttast
þessar breytingar," bætti Sig-
urgeir við.
Nýja kjötmatið er sem sagt
sniðið að nútímamanninum
sem alltaf er í megrun og þegar
hann leggur sér kjöt til munns
má helst ekki finnast á því
fituarða.
Föstudagur 1. mars 1985 2
Hornafjörður:
Bændum hótað
rafmagnslokun
- vegna reikninga sem
Kaupfélagið á að borga
■ Nær öllum bændum í
Hornafirði var fyrir skemmstu
sent rukkunarbréf frá Raf-
magnsveitum ríkisins þar sem
hótað er að loka fyrir rafmagnið
verði reikningarnir sem spanna
6 mánaða rafmagnsnotkun ekki
greiddir fyrir 4. mars. Bændur
hafa að vanda sent rafmagns-
reikninga sína til Kaupfélags
Austur-Skaftfeilinga sem hefur
átt að sjá um að taka út af
inneign upp í greiðslu til
RARIK.
„Það eiga nú ekki allir bænd-
ur inni hjá okkur," sagði Her-
mann Hansson kaupfélagsstjóri
KASK þegar NT ræddi við
hann. „En við munum greiða
þessa reikninga fyrir alla sem
við teljum okkur skylt að greiða
fyrir og erum þegar búnir að
borga talsverðan hluta af þessu.
En ef það eru einhverjir bændur
sem við teljum ekki skyldu okk-
ar að greiða fyrir þá látum við
Rafmagnsveiturnar og viðkom-
andi bónda vita en ekki blöðin,"
sagði Hermann. „En orkan er
dýr og tekjur bæði til lands og
sjávar litlar. Það er mál númer
eitt, tvö og þrjú.“
NT er ekki kunnugt um hvort
einhverjir bændur hafi fengið
orðsendingu þess efnis að kaup-
félagið muni ekki greiða raf-
magnsreikninga þeirra fyrir 4.
rnars.
Nær allir bændur í Austur-
Skaftafellssýslu, tæplega 100
talsins, senda reikninga sína
fyrir síma, dagblöð og rafmagn
beint inn til Kaupfélagsins og
ganga skuldir þá upp á móti
inneign bænda fyrir afurðir
þeirra.
Hjá Rafmagnsveitunum feng-
ust þær upplýsingar að
greiðsluvandi sem þessi væri
nær árviss en mismunandi hefði
verið til hvaða ráða væri gripið
til þess að fá reikningana
greidda.
Bóndi sem NT ræddi við þar
eystra var furðu lostinn yfir
þessum vinnubrögðum og sagði
að fyrr yrðu þeir að loka fyrir
rafmagnið hjá Kaupfélaginu
en hægt væri að loka hjá bænd-
um því í raun skuldaði Kaupfé-
lagið þessa peninga en ekki þeir.
Kartöflumálið:
Framsókn samþykkti
niðurgreiðsluleið
■ Ráðherrar Framsóknarflokks samþykktu í gær tillögur
sjálfstæðismanna þess efnis að í stað þess að banna innflutning
á verksmiðjukartöflum verði innienda framleiðslan varin með
niðurgreiðslum.
Hefur verið ákveðið að borga 12 krónur með hverju kílói af
þessari vöru en talið er að heildargjöld vegna þessa verði vart
minni en 10 milljónir króna. Með þessum aðgerðum má reikna
með að smásöluverð innlendra verksmiðjukartaflna lækki úr
rúmum 80 krónum niður í 70.
Kannski kaupmaðurinn hér á myndinni selji þá betur það sem
hann hefur hér í hægri hendi en það sem er í þeirri vinstri.
NT-mynd: Árni Bjarna.
Fyrirspurn í sameinuðu þingi:
Hvað líður kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði?
■ Helgi Seljan hefur beint
fyrirspurn til iðnaðarráöherra í
sameinuðu þingi um kísilmálm-
verksmiðju á Reyðarfirði.
Spyr liann við hvaða innlenda
og erlenda aðila hafi verið rætt
um þátttöku í byggingu kísil-
málmverksmiðju og hver hefur
orðið niðurstaðan úr viðræðum
við hvern um sig. Einnig er
spurt um hve mikla eignarhlut-
deild í verksmiðjunni hafi verið
rætt í hverju tilviki og út frá
hvaða raforkuverði til verk-
smiðjunnar hafi verið gengið í
þessum viðræðum og hver staða
verksmiðjumálsins sé nú. Loks
spyr Helgi Seljan hvaða skilyrð-
um þurfi að fullnægja til að
ráðherra beiti sér fyrir því að
ríkisstjórnin taki ákvörðun um
að ráðist verði í framkvæmdir
við verksmiðjuna.
Ný framleiðslustefna
Jónasar DV-ritstjóra
Það má nú kenna þér hænsnarækt Jónas minn!
Búkolla mín
bu bu bu...
■ Jón Baldvin lauk nýverið
yfirreið sinni yfir Norðurland
þar sem fundað var með svip-
uðu sniði og á öðrum fundum
Jóns Baldvins. Báru fundirnir
vfirskriftina „Hverjir eiga
Island?" og hélt formaðurinn
fyrst framsöguræðu og svaraði
síðan fyrirspurnum.
Samkvæmt myndrænum
heimildum Alþýðublaðsins
virðist einn merkasti og e.t.v.
fjölmennasti fundurinn hafa
verið í fjósinu á Gauksmýri í
Skagafirði en ekki fylgir sög-
unni hver tilsvör formannsins
hafi verið við spurningum bú-
peningsins. Enda ekki öllum
gefið að skilja jafnt dýra- og
mannamál...