NT - 01.03.1985, Page 4
Föstudagur 1. mars 1985 4
Akureyri
háskólabær
Bærinn hefur
allt sem þarf,
segja heimamenn
■ Ef af stofnun útibúsins verð-
ur verða háskólastúdentar
algeng sjón á Þórunnarstræti,
því uppi eru hugmyndir um að
nýta kennslustofur Iðnskólans
við þá götu.
Reykjavíkur, og ennfremur
þykir nú mörgum sem ríki deyfð
í atvinnulífinu utan suðvestur-
hornsins,-
Því þykir mörgum Akureyr-
ingum sem hér sé hægt að snúa
þessari þróun við og benda á að
eina svar okkar við efnahags-
örðugleikum og erfiðleikum í
atvinnulífi sé aukin menntun.
En enn hefur ákvörðunin
ekki verið tekin, en fari svo að
Háskólinn setji upp útibú á Ak-
ureyri, gæti það þýtt að nýr
fjörkippur kæmi í atvinnulíf
þessa gamla iðnaðarbæjar, með
því að aukin menntun og tækni-
þekking flytjist norður.
■ Verður Akureyri, hinn
forni menningarstaður Norður-
lands, háskólabær?
Þessari spurningu velta nú
margir Akureyringar fyrir sér
enda gæti háskólakennsla á Ak-
ureyri orðið mikil lyftistöng
fyrir bæjarfélagið allt.
Fyrir stuttu sagði Ragnhildur
Helgadóttir, menntamálaráð-
herra, aðspurð um hvort hún
væri hlynnt háskóla á Akureyri,
að hún væri hlynnt öllum mál-
um sem skynsamleg rök væru
fyrir, en nefnd sem skipuð var
1982 til að vinna að undirbún-
ingi og tillögugerð að fyrirhug-
uðu útibúi frá Háskóla íslands
á Akureyri, hefur mælt með
stofnun háskólaútibús þar.
Tryggvi Gíslason, skóla-
meistari Menntaskólans á Ak-
ureyri, var einn nefndarmanna
og sagði hann í samtali við NT
að full samstaða hefði verið
innan nefndarinnar, en nefndin
gerir tillögur um að i fyrirhug-
uðu útibúi fari fram kennsla í:
1) Tölvufræðum.
2) Fyrri hluta nám í viðskipta-
fræði.
3) Fyrsta árs nám í verkfræði
og raunvísindum.
4) Tveggja ára áfangi til BA
prófs í tungumálum, sál-
fræði, uppeldisfræði og heim-
speki.
5) Nám og verkþjálfun í læknis-
fræði, sjúkraþjálfun, og
hjúkrunarfræði í tengslum
við Fjórðungssjúkrahúsið.
6) Efling tónmenntanáms,
iðnnáms, listnáms og hvers
kyns rannsóknarstarfa,
7) Endurmenntun í ýmsum
kennslugreinum.
8) Að stofnað yrði til „frjáls
háskólanáms" með aðstoð
útvarps og sjónvarps.
Tryggvi sagði ennfremur að
tilkoma útibúsins þyrfti ekki að
auka fjárhagsvandræði háskól-'
ans, heldur gæti þvert á móti
leyst ýmis vandræði skólans,
t.d. húsnæðisvandræði. Hann
sagði að í raun væri vilji allt sem
til þyrfti.
Ófugþróun snúið við
En hver er akkur Akureyrar
af háskólaútibúinu, ef af
verður? Hluti stúdenta frá Ak-
ureyri yrði áfram heima við
nám í stað þess að fara suður.
Þá mætti reikna með fólki frá
nágrannabyggðalögunum og
jafnvel námsmönnum að
sunnan.
Fólk með háskólamenntun
myndi frekar setjast að fyrir
norðan og gæti nýtt þekkingu
sína við önnur störf en kennsl-
una eina og ný störf gætu
skapast.
Þá myndi bærinn hafa tekjur
af námsmönnunum og tekjur af
sköttum og öðru sem fylgir
fólksfjölgun. Þetta gæti allt þýtt
að þeirri þróun sem verið hefur,
að fólk og fjármagn flytjist
suður, verði snúið við.
Raunhæfur möguleiki!
„Akureyri hefur í raun allt til
alls til að verða háskólabær.
Hér eru vegalengdir styttri,
húsaleiga l.ægri og lífið yfirleitt
fyrirhafnarminna og ódýrara en
í Reykjavík," segir Úlfar
Hauksson, hagsýslustjóri Akur-
eyrarbæjar, en hann hefur unn-
ið að tillögum um námsáætlun
háskólaútibúsins ásamt fleirum.
Varðandi húsnæði og aðra
aðstöðu á Akureyri hefur verið
bent á að húsnæði Iðnskólans
við Þórunnarstræti gæti hentað
enda eru þar 12 kennslustofur
sem rúmað geta 200-300 nem-
endur.
Þá býður samstarf við Fjórð-
ungssjúkrahúsið, Menntaskól-
ann og Verkmenntaskólann upp
á ýmsa möguleika, og er mögu-
legt t.d. að mötuneyti M.A.
gæti nýst öllum framhalds-
skólunum á Akureyri.
Byggðaþróun
Á síðustu árum hefur verið
fólksflótti frá landsbyggðinni til
■ Kristjana Samper. „Maðurinn“ er meginþema verka hennar.
■ Ætli Iðnskólinn verði hækkaður um bekk og gerður að háskóla?
Kristjana Samper
áKjarvalsstöðum
■ Áannaðþúsundmannshafa
nú séð skúlptúrsýningu Krist-
jönu Samper á Kjarvalsstöðum,
en hún varopnuðs.l. laugardag.
Verkin á sýningunni eru 24 og
flest unnin á síðastliðnum tveim
árum og meginþema sýningar-
innar er „Maðurinn."
Sýningin stendur yfir til 10.
mars.
Dario Fo í
Garðabænum
■ Leikfélag Garðabæjar
frumsýnir „Nakinn maður
og annar í kjólfötum," eftir
Dario Fo á laugardagskvöld
kl. 20.30. Leikstjóri er
Valgeir Skagfjörð, en með
helstu hlutverk fara Ólafur
Birgisson, Þórhallur Gunn-
arsson, Ragnheiður Thor-
steinsson, Magnús M.
Magnússon, Unnur Magn-
úsdóttir, Valdimar Óskars-
son og Geirlaug Magnús-
dóttir.
Sýningar fara fram á nýju
sviði í safnaðarheimilinu í
Garðabæ, þar sem Garðbæ-
ingar hafa nú eignast eigið
leikhús til nánustu framtíð-
■ Þorbjörg Halldórsdóttir og Sigurður Atlason í hlutverkum
s inum í leikritinu Köld eru kvennaráð, sem Leikfélag Hólmavíkur
frumsýnir í kvöld.
Leikfélag Hólmavíkur:
Frumsýnir gamanleik
■ Leikfélag Hólmavíkur
frumsýnir í kvöld gamanleikinn
Köld eru kvennaráð, eftir Staff-
ord Dickens. Þýðandi verksins
er Ragnar Jóhannesson en leik-
stjóri Auður Jónsdóttir. Hlut-
verk í leikritinu eru sex.
Frumsýningin verður í Fé-'
lagsheimili Hólmavíkur í kvöld
kl. 21.00 en næstu sýningar
verða á laugardag kl. 15.00 og
21.00. Fyrirhugað er að sýna
leikritið í nágrannabyggðarlög-
um.