NT

Ulloq

NT - 15.03.1985, Qupperneq 3

NT - 15.03.1985, Qupperneq 3
Föstudagur 15. mars 1985 Flutti hassi inn 2,5 kíló af fyrir kaupmanninn ■ Rúmlega tvítugur skip- verji af Urriðafossi og versl- unareigandi um fertugt hafa nú játað að hafa flutt inn tvö og hálft kíló af hassi, að andvirði um 1,2 milljónir ísl. króna. Skipverjinn ungi var hand- tekinn í Hafnarfirði síðast- liðinn mánudag, á leið heim úr skipinu að tilskipun fíkni- efnalögreglunnar. Fundust í fórum hans tæp þrjúhundruð grömm af hassi og í kjölfar handtökunnar var verslunar- eigandinn handtekinn og leitað á heimili hans. Þar fundust rúm tvö kíló til við- bótar. Skipverjinn hefur verið látinn laus úr gæsluvarð- haldi, enda mun hlutdeild hans í málinu Ijós. Hefur hann játað að hafa flutt inn tilgreint hass fyrir verslunar- eigandann. Eitthvað á lög- reglan enn vantalað við þann síðarnefnda , þótt játning liggi fyrir, því liann heíur ekki verið látinn laus, og gæsluvarðhaldsúrskurður yfir honum rennur ekki út fyrr en eftir hálfan mánuð. Rafalar og hverflar Blöndu til Sumitomo: Stefnt að undirrit- un á miðvikudaginn — Húsavík: Skákogmát ■ Stórmeistararnir Lombardy, Lcin. Helgi Ólafsson og Guðmundur Sigurjónsson eru meðal keppenda á þriðja alþjóð- lega stigamóti Skákar á Húsavík dagana 15.-27. mars. Aðrir keppendur eru, Jón L. Arnason, Bernard Zuckerman, Knut J. Helmers, Jonatan D. Tisdall, Karl Þorsteins, Pálmi Pétursson, Sævar Bjarnason og Áskell Örn Kárason. Mótið er í áttunda styrkleikadokki FIDE og þarf því átta vinninga. af ellefu mögulegum, til að ná áfanga til stórmeistara- titils. Mótsstjóri er Jóhann Þórir Jónsson. en yfir- dómarar eru Guðmundur Arnlaugsson og Jóhann. Skákstjórar eru Jóhannes Haukur Hauksson og Sigurður Gizurason. ■ Fulltrúar japanska stór- fyrirtækisins Sumitomo eru væntanlegir til landsins um helgina til að ganga formlega frá samningi við Landsvirkj- un um rafala og túrbínur í Blönduvirkjun og stefnt er að undirritun miðvikudaginn 20. mars næstkomandi. Jap- anirnir munu þá einnig af- henda framkvæmdatrygg- ingu í samræmi við útboðs- gögnin, og á hún að vera 3.3 milljónir dollara, eða 25% af samningsupphæðinni. Þessar upplýsingar fengust hjá Halldóri Jónatanssyni forstjóra Landsvirkjunar í gær, og sagði hann, að ekki væri ástæða til að ætla annað en að Sumitomo stæði við tilboð sitt. í síðustu viku þótti hins vegar fullljóst, að þeir myndu hreppa samning- ■ „Hvað er afbrigðilegt kynlíf." Þessu munu framsögumenn á árlegu málþingi þriðja árs sálarfræðinema við Háskóla fs- lands leitast við að svara á laugardag kl. 14.00 í hátíðarsal Háskólans. Dr. Gísli Guðjónsson, sál- fræðingur, flytur framsögu- ræðu, en honum var boðið sérstaklega hingað til lands vegna þessa, frá Englandi þar inn. Tilboð japanska fyrir- tækisins var talið hagstæðast einkum vegna lánakjaranna, sem þeir buðu Landsvirkjun upp á. sem hann starfar við Institute of Psychiatry við University of London. Aðrir framsögumenn cru Pétur Guðgeirsson, lög- fræðingur, séra Sigfinnur Þor- leifsson, dr. Högni Óskarsson, geðlæknir, og Jenný Baldurs- dóttir, frá samtökum um kvannaathvarf. Fundarstjóri verður Sigrún Júlíusdóttir fé- lagsráðgjafi. Aðgangur kostar 100 kr. og er þá kaffi og kökur innifalið. Hvað er afbrigðilegt kynlíf? HOTEL HEILLAIMDI HEIMUR Starfsfólk Hótels Loftleiða býður þig velkominn. Takmark okkar er að gera þér dvölina ógleymanlega. Við bjóðum þér flest það sem hvíllr, hressfr og léttir lund. Þæglleg herbergi, sundlaug, gufubað, Ijúffengan mat, góða skemmtun og iðandi mannlíf. Síðast en ekki síst munum við leitast við að greiða götu þína í höfuðborginni. Við getum til að mynda bókað fyrir þig miða í leikhúsið eða óperuna og vitaskuld sjáum við til þess að bílaleigubíllinn bíði þín við hóteldyrnar sé þess óskað. Strætisvagnaferðir eru frá hóteldyrum á 30 mín. fresti. HÓTEL LOFTLEIÐIR FLUGLEIDA fm* HÓTEL HÚSGAGNAÚTSALA Seljum nœstu daga ýmsar gerðir húsgagna norsk - sœnsk - þýsk - ítölsk - og jafnvel íslensk sófasett - borðstofuhúsgögn svefnherbergishúsgögn - stóla o.fl. - einnig margar gerðir áklæða - lampa og málverk Húsgögnin sem eru öll ný og ógölluö verða seld með 30-50% afslætti Geymið þessa auglýsingu - þetta verður ekki auglýst aftur í dagblöðunum. Húsgagnaútsalan Síðumúla 30 - Sími 686822

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.