NT - 15.03.1985, Blaðsíða 4
(31
Sjávargull byggir laxeldisstöð við Grindavík:
Fimm hundruð tonna
árseldi undir þaki
■ Byggingenneinnarlaxeldis-
stöðvar er nú i undirbúningi
við Grindavík. Verður stöðin
reist við ströndina í landi
Hrauns, og rnun hún fullgerð
geta framleitt a.m.k. 500 tonn
af laxi árlega. Athygli vekur við
þessa stöð eicki fyrst og
fremst stærðin, heldur fyrir-
komulag bygginga og starfsemi,
sem eru mjög frábrugðin því
sem áður hafa verið gerðar
áætlanir um hér á landi.
Það er hlutafélagið Sýávargull
h.f. sem hyggst reisa stööina.
Sjávareull verður að naumum
meirihluta í eigu Islendinga,
eins og lög gera ráð fyrir en
norskir aðilar eiga 49%. Er
ætlunin að efna til almenns
útboðs á hlutafé hér á landi á
næstunni.
Eldi undir þaki
Laxeldisstöð Sjávargulls
verður á landi, en mun þó nota
sjó í eldiskerin. Verða tvö 350
metra aðfallsrör frá stöðinni út
í sjó til þess að tryggja að inntaks-
sjórinn verði laus við mengun
frá landi. Engin blöndur, við
heitt jarðvatn mun eiga sér stað
í stöðinni.
Stöðin verður síðan yfir-
byggð, sem gerir það að verkum
að mun auðveldara en ella verð-
ur að stunda eldið yfir vetrar-
tímann. Yfirbyggingin minnkar
ennfremur yfirborðskælingu
sjávarins í eldiskerjunum, en
hitastig ræður einmitt miklu um
vaxtarhraða eldislax. Ljóst er
að hitastigið í þessari stöð verð-
ur þó lægra heldur en í stöðvum
sem nýta jarðvarma, og eru
arðsemisútreikningar hennar
við það miðaðar.
Ætlunin er að beita nýrri
tækni við rekstur laxeldisstöðv-
arinnar. Þannig verður fóðrunin
að mestu sjálfvirk, og stýrt rueð
tölvubúnaði. Einnig verður beitt
nýstárlegri tækni við að fylgjast
nákvæmlega með fóðruninni og
ástandi kerjanna.
Síðast en ekki síst verður
lögð mikil áhersla á hreinsun
í stöðinni. Þannig verða eldisker-
in sérstklega löguð með tilliti
til þess að óhreinindi safnist
ekki í þau, og á hverju keri
verða tvö affalssop. Affallssjór-
inn verður leiddur um sérstök
göng til þess skilja frá honum
fóðurúrgang áður en hann fer
aftur í hafið við Grindavík.
Fyrsta slátrun 1988?
Að sögn Valdimars Þorvarð-
arsonar og Valdimars Valdi-
marssonar, forvígismanna
Sjávargulls, er stefnt að því að
hefja framkvæmdir við laxeldis-
stöðina í sumar. En þar sem enn
á eftir að afla nokkurra leyfa og
ganga frá fjármögnun og hluta-
fjársöfnun hér heima, geta
framkvæmdir dregist til næsta
vors. Byrja þarf á að leggja
aðfallsrörin, framkvæmdir við
þau þurfa að fara fram yfir
sumartímann. Bygging stöðvar-
innar mun kosta um 270 milljón-
ir króna.
Stöðin mun geta tekið til
starfa einu ári eftir að fram-
kvæmdirhefjast. Þáverða keypt
seiði, en þar sem laxinum er
■ Valdimar Þorvarðarson (t.v.) og Valdimar Valdimarsson virða
fyrir sér teikningar af laxeldisstöð Sjávargulls. NT-mynd: Ami Bjama.
Borgarspítalinn:
Nýr aðstoðarf ramkvæmda-
stjóri tekinn til starfa
■ Nýlega tók Magnús Skúla-
son, viðskiptafræðingur, við
starfi aðstoðarframkvæmda-
stjóra Borgarspítalans.
Magnús lauk kandidatsprófi í
■ Magnús Skúlason, nýr að-
stoðarframkvæmdastjóri Borg-
arspítalans.
viðskiptafræði frá Háskóla Is-
lands vorið 1975. Að því loknu
réðst hann til starfa hjá Banda-
lagi háskólamanna og starfaði
þar fram á vor 1979. Frá því í
maí 1979 hefur hann starfað hjá
Vinnumálasambandi samvinnu-
félaganna sem deildarstjóri hag-
deildar.
Akranes
Græn-
jaxlar
frum-
sýndir
■ Leiklistarklúbbur nem-
endafélags Fjölbrautaskólans á
Akranesi frumsýnir á laugardag
kl. 20.30, leikritið „Grænjaxla"
eftir Pétur Gunnarsson.
Leikendur eru 13 auk 4 manna
hljómsveitar. Leikstjóri er Sigr-
íður Hagalín.
Næstu sýningar eru mánudag-
inn 18.mars og þriðjudaginn 19.
mars kl. 20.30.
■ Tveir leikenda í hlutverkum
sínum.
Föstudagur 15. mars 1985 4
■ Útlitsteikning af væntanlegri laxeldisstöð Sjávargulls h.f. skammt austan við Grindavík. Lengst til
vinstri eru setþrær, þá koma kerskálarnir en lengst til hægri á myndinni er dælustöðin og frá henni
liggja aðveiturör sem ná munu um 350 metra í sjó fram.
.
± i.________
"•Y-Wf
HSt
œms
slátrað tveggja ára gömlum gæti
fyrsta slátrun hugsanlega farið
fram árið 1988.
Áætlað verðmæti 500 tonna
af laxi er um 90 milljónir ís-
lenskra króna. Reiknað er með
að atvinna skapist fyrir um 30-40
manns við laxeldisstöðina og er
þá meðtalin vinna við fóður-
verksmiðju og birgðastöð sem
Sjávargull hyggst reisa, með
eða án samvinnu við aðra aðila,
á hafnarsvæðinu í Grindavík.
300 þúsund seiði
Ekki mun ætlunin að klekja
laxaseiðum í stöðinni heldur
verða seiðin keypt. Valdimar
Þorvarðarson sagði þó óvíst
hvernig gengi að anna seiða-
þörfinni, en hann sagði að þyrfti
um 300 þúsund seiði á ári, en
það jafngildir hátt í tvöfaldri
framleiðslu Kollafjarðarstöðv-
arinnar svo dæmi sé tekið. Er í
athugun að Sjávargull reisi
seiðastöð í samvinnu við aðila á
Suðurlandi til þess að anna
seiðarþörfinni.
Sýning í Þjóðskjalasafninu:
20 ár frá stofnun
viðgerðarstofunnar
■ í Þjóðskalasafninu stendur
yfir sýning í tilefni 20 ára afmæl-
is viðgerðarstofu safnsins og er
h'enni ætlað að sýna ástand bóka
og skjala sem til stofunnar
koma og mismunandi aðferðir
við viðgerðir.
Á stofunni er unnið að
viðgerðum fyrir Þjóðskjalasafn-
ið, Landsbókasafnið og Árna-
stofnun. Verkefnin eru afar
fjölþætt, t.d. koma frá Þjóð-
skalasafninu kirkjubækur,
bréfabækur og skjöl embætta,
hreppabækur og fleira. Frá
Landsbókasafni berast bréfa-
söfn, handrit, gamalt prent og
dagblöð. Allt er þetta í mjög
misjöfnu ástandi en talsvert er
myglað og fúið, sem rekja má til
rakra húsa og slæmrar umhirðu.
Fyrsti forstöðumaður stofn-
unarinnar var Vigdís Björns-
dóttir en 1978 tók Hilmar Ein-
arsson við forstöðu viðgerðar-
stofu og gegndi starfinu til síð-
ustu áramóta. Núverandi for-
stöðumaður er Áslaug Jónsdótt-
ir en þrír starfsmenn eru nú í
fullu starfi við viðgerðarstof-
una.
■ Þjóðskjalasafnið og
viðgerðarstofa þess er til húsa í
Landsbókasafninu.
NT-nyad: Sverrir
Bridgehátíðin
hefst í kvöld
■ Ólympíumeistarar Pólverja
í bridge verða meðal þátttak-
enda í Bridgehátíð 1985 sem
hefst á Hótel Loftleiðum kl.
19.30 í kvöld, en einnig verða
bridgemeistarar frá Bretlandi,
Danmörku, Pakistan og Banda-
ríkjunum meðal þátttakenda.
Bridgehátíðin, sem nú erorð-
in árlegur viðburður hér á
landi, skiptist í tvö mót, tví-
menning með þátttöku 48 para,
og sveitakeppni með þátttöku
yfir 40 sveita.
Tvímenningskeppnin verður
spiluð á föstudagskvöld og laug-
ardag en sveitakeppnin á sunnu-
dag og mánudagskvöld.
Að Bridgehátíð 1985 standa
Bridgesamband íslands,
Bridgefélag Reykjavíkur og
Flugleiðir en þessir aðilar hafa
undanfarin fjögur ár haft sam-
vinnu við framkvæmd þessa
móts.
Velunnarar Borgarspítalans:
Kaupá
smásjá
- til athugunar
■ Félag velunnara Borgar-
spítalans samþykkti á aðal-
fundi sínum ályktun þar sem
skorað er á viðkomandi
stjórnvöld að draga ekki úr
framkvæmdahraða við bygg-
ingu B-álmu Borgarspítal-
ans.
Alls eru félagar í Félagi
velunnara Borgarspítalans
350 og er tilgangur félagsins
að bæta aðstöðu sjúklinga
sem njóta þjónustu spítal-
ans, og efla vísindastarfsemi
þar.
I fréttatilkynningu frá fé-
laginu segir að nú sé til
athugunar að kaupa smásjá
sem nota á við nákvæmar
skurðaðgerðir. Þá er fyrir-
hugað að skreyta ganga spít-
alans.
Formaður félagsins er Eg-
ill Skúli Ingibergsson, en aðr-
ir í stjórn eru Brynjólfur
Jónsson. Anna Bjarnason,
Bjarki Elíasson, Björg Ein-
arsdóttir, Hafsteinn Guð-
mundssonog Tómas Sveins-
son.