NT - 15.03.1985, Blaðsíða 12
t
Föstudagur 15. mars 1985 12
Spegill________
Simon Le E
■ í>að kostar ekki neitt að
láta sig dreyma, eins og kunn-
ugt er. Hitt getur aftur á móti
■ „Auðvitað er ég skít-
hræddur, alveg eins og það á
að vera,“ segir Simon um borð
í bátnum sínum. Þar verður
hann að hlýða fyrirmælum
skipstjórans, rétt eins og aðrir
hásetar.
orðið dýrara að láta draumana
rætast. Pað á hins vegar ekki
við Simon Le Bon, í hinni
sívinsælu hljómsveit Duran
Duran, sem nú orðið veit ekki
aura sinna tal. Hann ef nefni-
lega í þann veginn að láta
draum sinn rætast.
Draumur Simons er rándýr,
kostar u.þ.b. eina milljón ster-
lingspunda. Og hann getur
orðið dýrari, því að hann er
hreintekki hættulaus. Þaðsem
Simon er í þann veginn að
hrinda í framkvæmd er þátt-
taka í einni hættulegustu kapp-
siglingu, sem upp hefur verið
fundin.
Pessi kappsigling er kölluð
Whitbread Round the World
og er eins og nafnið bendir til
—
—
Þáttaskil í lífi dægurlagasöngvara
- þegar Neil Diamond hneig niður á sviðinu og var fluttur beint á spítala. En ári síðar lék
hann í „Jass-söngvaranum“, sem er laugardagsmynd Sjónvarpsins á morgun
■ Tvær ólíkar myndir af Neil Diamond. - Glaður og hress að
skemmta áheyrendum, - og svo þreyttur og þjáður af streitu
heima, þar sem öll fjölskyldan „þarf helst að stjana við hann“,
eins og hann segir í viðtaii.
■ Neil Diamond söngvari er
í aðalhlutverki laugardags-
myndar Sjónvarpsins -Jass-
söngvarans“ 16. mars. Hann
hefur árum saman verið þekkt-
ur dægurlagasöngvari, en Neil
fæddist í New York 24. jan.
1941, svo nú er hann orðinn 44
ára.
Það urðu mikil þáttaskil í lífi
dægurlagasöngvarans, þegar
hann, árið 1979 í San Fran-
cisco, hneig niður á sviði í
miðri söngskemmtun og var
fluttur beint á spítala. Þar kom
fram við rannsókn, að hann
var með æxli við hrygginn, og
læknirinn sagði honum, að það
yrði að taka það hið allra
fyrsta. Neil vildi reyna að ljúka
samningum um skemmtanir
næstu vikurnar, og bað um
frest. Enginn frestur fékkst og
söngvarinn varð að undirgang-
ast 12 tíma uppskurð.
Það var mikil hætta á lörnun
vegna nálægðar æxlisins við
mænu, en hægt var að koma í
veg fyrir það. Þó segir Neil, að
þrátt fyrir þjálfun sé hægri
fótur sinn alltaf svolítið tregur
til að láta að stjórn. „Flestir
þurfa ekki að hugsa um það að
taka hvorn fótinn fram fyrir
annan, - en það er einmitt það
sem ég verð að gera. Ég verð
að beita allri athygli að því að
ganga eins og venjulegt fólk, -
en hvað um það, ég er lánsam-
ur að geta þó gengið.“
Það er alltaf uppselt þar sem
Neil Diamond kemur fram og
plötur hans seljast um allan
heim. Mesta salan var í laginu
„You Don’t Bring Me
Flowers", sem hann söng með
Barbra Streisand, en það var í
12 vikur á vinsældalistum.
Einnig seldist grimmt plötu-al-
búniið „Love at the Greek“,
Þrátt fyrir plötusöluna og
góðar undirtektir á sviði, þá
sækja á söngvarann miklar
áhyggjur um að nú sé hann
„búinn“ og dottinn út úr
skemmtibransanum. En hann
er þó sagður einn af þeim
„sígildu" og plötur hans seljast
stöðugt.
Neil segist vera himinlifandi
þegar hann sér að sonur hans,
sem er 13 ára, hefur mynd af
honum uppi á vegg ásamt öðr-
um poppurum sem hann hefur
dálæti á. „Kannski gerir hann
það bara fyrir mig að hafa
mynd af mér uppi við, en það
hlýjar mér samt um hjartað."
Neil segist vera ánægðastur
þegar hann getur hvílt sig
heima með fjölskyldunni, en
hann hefur í 15 ár verið giftur
Marciu seinni konu sinni og á
tvo syni með henni Jesse, 13
ára og Micah, 6 ára. Einnig á
hann tvær uppkomnar dætur
frá fyrra hjónabandi.
Á síðasta ári fór Neil Dia-
mond mikla söngferð um
Bretlandseyjar og meginland
Evrópu og söng alls staðar
fyrir fullu húsi.
Myndin sem Sjónvarpið sýn-
ir nú, „Jasssöngvarinn" var
tekin 1980, sem sagt rúmu ári
eftir að söngvarinn varð að
gangast undir hinn mikla
uppskurð, en hann tók eins
stutt veikinda- og endurhæf-
ingarfrí og hann komst af með,
því að hann segist una svo illa
aðgerðarleysi. „Mér finnst
gaman að syngja fyrir áheyr-
endur, og ég á erfitt njeð að
hugsa mér að hætta. Ætli ég
hökti ekki inná sviðið þegar ég
verð orðinn áttræður? - en ég
lofa því að gera mitt besta alla
tíð.“